2 minute read
Fagdeild sjúkraflutningamanna LSS
Ný stjórn
Við sem sinnum bráðaþjónustu og sjúkraflutningum erum öflugur hópur og nóg er til af ferskum einstaklingum innan okkar raða sem láta sig málin varða og vilja taka þátt. Það var ekki af verri endanum liðsaukinn sem fagdeildinni barst nú fyrir skemmstu þegar ný stjórn tók við á 19. þingi LSS. Við bjóðum þessa nýju stjórn velkomna og óskum henni um leið góðs gengis.
Advertisement
Stjórnina skipa nú:
Arnar Páll Gíslason (HSU) Hlynur Höskuldsson (SHS) Ásgeir Valur Flosason (SHS) Birna Dröfn Birgisdóttir (HVE) Erla Sigríður Sigurðardóttir (HSU) Kristófer Jón Kristófersson (BS) María Ingadóttir (HSU) Patryk Zolobow (HVE) Þessi öflugi hópur hefur boðið fram krafta sína til að halda áfram þessu mikilvæga starfi og þeim verkefnum sem komin eru af stað. Þessi innáskipting er gleðiefni en við sem stétt nýtum okkur breiddina og njótum nú nýrra sjónarhorna með sömu markmiðin í sigtinu. Við stefnum ávallt saman á það að bæta þjónustuna við fólkið sem þarf á henni að halda. Við viljum bæta aðbúnað og velferð sjúkraflutningamanna, styrkja stoðir grunn- og framhaldsmenntunar og tryggja viðhaldsmenntun sjúkraflutningamanna. Við viljum jafnframt leggja okkar af mörkum til að styrkja viðbragðskerfið á landinu í heild svo það gagnist öllum sem best. Það hefur sýnt sig að mikill áhugi er á störfum fagdeildarinnar, hún er vettvangur okkar til þess hafa áhrif á framgang mála sem snerta þjónustuna og það er orðið flestum ljóst að það sem við gerum skiptir máli. Lykilinn að því er að við séum áfram málefnanleg og í góðu samstarfi við aðra þá sem eiga í hlut þ.m.t. aðrar fagstéttir, rekstraraðila og stjórnvöld.
Störf fagdeildarinnar
Á 19. þingi LSS var lögð fram skýrsla fagdeildar síðustu tveggja ára en hana má finna á vef landssambandsins www.lsos.is.
Birkir Árnason
Fagdeildin lagði einnig fram ályktun um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga fyrir þingið og var hún samþykkt einróma, hana má einnig finna á vefnum. Nýlega átti fagdeildin fund með heilbrigðisráðherra þar sem gengið var á eftir okkar málum og stefnumótun bráðaþjónustu og sjúkraflutninga. Rætt var um fyrirliggjandi aðgerðaráætlun til ársins 2025 og farið var yfir athugasemdir og áherslur LSS. Fundurinn gekk vel og frekari samskipti verða í kjölfarið. Ég vil hvetja alla til að kynna sér áætlunina en hana má finna á vef stjórnarráðsins. Fagráð sjúkraflutninga fundar reglulega en það er ráðgefandi til HRN og fjallar meðal annars um þjónustuviðmið, innleiðingu nýjunga og umsagnir vegna starfsleyfisumsókna að beiðni Landlæknis.
Sjúkrabílar
Samstarf við Rauða krossinn er að vanda gott en 50 gulir sjúkrabílar rúlla nú um göturnar. Það sem helst er að frétta af því er að ákveðið hefur verið að nýta viðbótarákvæði samningsins við ríkið og til stendur að framleiddir verði 12 slíkir bílar til viðbótar. Rauði krossinn skoðar nú frekari uppfærslur á búnaði í samstarfi við fagdeildina. Fagráð sjúkraflutninga hefur gert athugasemdir við kröfulýsingu samningsins og kallar eftir uppfærslu hennar við gerð nýs samnings.
Menntun og miðlun
Eftir fundi fagdeildarinnar með fulltrúum heilbrigðisráðuneytisins og (þá) mennta- og menningarmálaráðuneytisins hefur landsráði um mönnun og menntun í heilbrigðisþjónustu verið falið að taka sérstaklega fyrir menntun sjúkraflutningamanna. Undirbúningur er hafinn að gerð hæfnimats og starfaprófíls með aðstoð Fræðslumiðstöðvar atvinnulífsins. Fagdeildin á fulltrúa í ýmsum ráðum og nefndum en þar má nefna endurlífgunarráð, skyndihjálparráð og fagráð Sjúkraflutningaskólans. Nánar um störf fagdeildar á tímabilinu má lesa í skýrslu stjórnar sem nefnd var að ofan.
Við hvetjum alla þá sem hafa áhuga á því að bæta framtíð bráðaþjónustu og sjúkraflutninga á Íslandi að taka þátt í umræðunni og láta sig málin varða. Notum hópinn okkar á Facebook