3 minute read

Að loknu málþingi

Að loknu málþingi slysavarna- og viðbragðsaðila

Hótel Natura 29. nóvember 2018

Advertisement

Yfirskrift málþingsins var:

Er skilvirt að viðbragðsaðilar séu með fræðslu- og þjálfunaraðstöðu á einum stað, getum við gert gott betra með því?

Með endurmenntun og þjálfun um landið, út frá slíkri fræðslu- og þjálfunarmiðstöð?

Mæting á málþingið var mjög góð, þrátt fyrir afar slæmt veður þennan dag, menn sem komust ekki fundu lausnir og sendu t.d. erindi sitt í gegnum netið. Mikil ánægja er með framtak LSS að halda málþing slysavarna- og björgunaraðila með þessum hætti, umgjörðin sögð mjög góð, dagskrá einstaklega fróðleg og gagnleg. Í ljós kom t.d. að menn voru ekki með á hreinu hvað var til af búnaði og vissu ekki af fjölbreyttum námskeiðum hjá hver öðrum. Ætluðu menn og konur að vera í sambandi strax eftir málþingið og skiptast á vitneskju og búnaði. Sérstaklega ber að þakka starfsmönnum þingsins sem tóku að sér fundarstjórn, ritun og umræðustjórnun. Höskuldur Einarsson fundarstjóri/ráðgjafi, Vilhjálmur Halldórsson fundarritun/umræðustjóri og Þorsteinn Þorkelsson fundarritun/umræðustjóri. Mjög dýmætt er fyrir LSS að hafa aðgang að svona sérfræðingum og

reynsluboltum við að leysa mikilvæg verkefni, hvort sem menn eru innan LSS eða ekki. Tekið skal fram að öll þeirra vinna var sjálfboðavinna. Auk þess ber að þakka starfsmönnum LSS, Hermanni Sigurðssyni og Guðrúnu Hilmarsdóttur, fyrir þeirra framlag.

Á þinginu var samþykkt eftirfarandi ályktun:

„Ályktun málþings viðbragðsaðila um sameiginlega fræðslu- og þjálfunaraðstöðu

Reykjavík, 29.11.2018

Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna stóð fyrir málþingi með öllum viðbragðsaðilum um sameiginlega fræðslu- og þjálfunaraðstöðu. Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, heiðraði samkomuna með þátttöku sinni. Viðbragðsaðilar kynntu sín þjálfunar- og fræðslumál og töluðu allir um nauðsyn þess að koma á laggirnar sameiginlegri aðstöðu á þessu sviði. Í kjölfarið störfuðu umræðuhópar sem ræddu kosti þessarar samvinnu og hvernig væri hægt að fjármagna slíkt verkefni. Niðurstaða málþingsins var sú að stofnaður verði klasi viðbragðsaðila til að þróa verkefnið áfram, leita staðsetningar og fjármögnunar. Nýta skal þá góðu aðstöðu sem er til staðar hjá viðbragðsaðilum til að auka samvinnu og bæta þjálfun. Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna mun óska eftir tilnefningum frá viðbragðsaðilum til að ákveða næstu skref.“

Slysavarna- og viðbragðsaðilar reka nokkra skóla í dag sem vinna frábært og gott starf. Þeir keppast við að sinna þörfum slysavarna- og viðbragsaðila, að auki sinna sumir skólarnir erlendum aðilum. Skólarnir hafa námið og þjálfunina eins fjölbreytta og hægt er hverju sinni, ýmist með fjarnámi, verklegum æfingum og/eða í samstarfi sín á milli eða við aðra aðila. Alltaf eru menn að reyna gera gott betra með samstarfi, kaupum á búnaði og fara erlendis til að fá þekkingu og reynslu. Margir kennarar, leiðbeinendur og nemendur hafa farið erlendis í gegnum tíðina, verið lengri eða skemmri tíma í stórum og litlum þjálfunarbúðum eða skólum. Þessir aðilar hafa komið heim fullir þekkingar og reynslu af fjölbreyttu námi og þjálfun fyrir slysavarna- og viðbragsaðila. Árið 2019 er fræðslu- og þjálfunarmiðstöð með aðstöðu til margskonar verklegra æfinga á einum stað enn ekki til. Aðstaða þar sem slysavarna- og viðbragsaðilar allsstaðar að af landinu geta komið saman til að samnýta þjálfun, fræðslu og búnað til reglulegrar endurmenntunar og þjálfunar. Margt hefur verið reynt með góðum vilja og tilraunum, sem ekki hefur náð tilsettum árangri. Þegar klasi viðbragðsaðila til að þróa verkefnið áfram hefur verið stofnaður samkvæmt ofangreindri ályktun, til að leita að staðsetningar- og fjármögnunarleiðum, er

ég þess fullviss að slík fræðslu- og þjálfunaraðstaða á einum stað verði að veruleika, í þágu lands og þjóðar. Eins og við vitum hafa mörg stórvirki verið unnin í slysavarna- og björgunarmálum þó í upphafi hafi mönnum fundist hugmyndin galin eða ekki framkvæmanleg vegna kostnaðar, t.d. þyrlusveit Landhelgisgæslunnar og Slysavarnaskóli sjómanna og margt annað sem of langt mál er að telja upp hér.

Einar Örn Jónsson

Ráðstefnustjóri / slysavarnaog björgunarmaður .

This article is from: