Á vakt fyrir Ísland 1tbl 2019

Page 14

Að loknu málþingi

slysavarna- og viðbragðsaðila

Hótel Natura

29. nóvember 2018

Yfirskrift málþingsins var:

Er skilvirt að viðbragðsaðilar séu með fræðslu- og þjálfunaraðstöðu á einum stað, getum við gert gott betra með því? Með endurmenntun og þjálfun um landið, út frá slíkri fræðslu- og þjálfunarmiðstöð? Mæting á málþingið var mjög góð, þrátt fyrir afar slæmt veður þennan dag, menn sem komust ekki fundu lausnir og sendu t.d. erindi sitt í gegnum netið. Mikil ánægja er með framtak LSS að halda málþing slysavarna- og björgunaraðila með þessum hætti, umgjörðin sögð mjög góð, dagskrá einstaklega fróðleg og gagnleg. Í ljós kom t.d. að menn voru ekki með á hreinu hvað var til af búnaði og vissu ekki af fjölbreyttum námskeiðum hjá hver öðrum. Ætluðu menn og konur að vera í sambandi strax eftir málþingið og skiptast á vitneskju og búnaði. Sérstaklega ber að þakka starfsmönnum þingsins sem tóku að sér fundarstjórn, ritun og umræðustjórnun. Höskuldur Einarsson fundarstjóri/ráðgjafi, Vilhjálmur Halldórsson fundarritun/umræðustjóri og Þorsteinn Þorkelsson fundarritun/umræðustjóri. Mjög dýmætt er fyrir LSS að hafa aðgang að svona sérfræðingum og

14

Á vakt fyrir Ísland

reynsluboltum við að leysa mikilvæg verkefni, hvort sem menn eru innan LSS eða ekki. Tekið skal fram að öll þeirra vinna var sjálfboðavinna. Auk þess ber að þakka starfsmönnum LSS, Hermanni Sigurðssyni og Guðrúnu Hilmarsdóttur, fyrir þeirra framlag.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.