16
wnning
ÞRIÐJUDAGUR 25. MAI 1999
Frumstæð tákn og fjarskafegurð Margrét Jónsdóttir listmálari sýnir tæplega 40 málverk af ýmsum stærðum í aðalsal Hafharborgar og kaffistofu. Titlarnir eru aðeins fjórir: Lífsvatnið, Móðurskautió djúpa, „Still life" (kyrralífsmynd) og Móöir jörð, og er efni þeirra allra, litur og áferð mjög svipað. Á grænum eða jarðlitum bakgrunni, sem minnir helst á fellt flauelsklæði eða bungandi mosabreiðu, eru totur og holur með misaugljósar skírskotanir til kynfæra og streymir hvít- Margrét Jónsdóttir leitur vökvi út úr sumum, líkamsvessar eða lækjarsprænur. Kyrralífsmyndirnar sýna ávexti og steina á sams konar bakgrunni. í sýningarskrá fer listakonan fram á að áhorfandinn reyni að upplifa myndirnar með hjartanu; noti ekki rökhugsunina. Hún segist fást við „djúpið í lífi okkar ... hið smáa í hinu stóra", efni sem hlýtur að snerta alla menn, enda notar hún alþekkt frumstæð tákn.
Myndlist Áslaug Thorlacius Margrét er ágætur málari og sýningin er að mínu mati heilsteypt og falleg ef ekki væru á henni mjóg slæmir annmarkar. Djúpar holur hafa sterkt aðdráttarafl, augað leitar stöðugt inn í þær. Því býst ég við að Margrét ætli að ná fram en vegna þess að hún virðist nota svarta litinn óblandaðan úr túpunni þar sem dýptin á að vera mest er móðurskautið ekki hyldjúpt og heillandi heldur fiatt, eins og svartglansandi sneplar hafi verið lagðir yflr þessa annars mjúku og safariku fiauelsjörð. Þar með er aðdráttaraflið ekki hið samá. Frágangur myndanna er einnig sundur-
gerðarlegur og óvandaður. Minnstu myndirnar eru í römmum sem þó eru ekki allir eins. Flestar eru á blindrömmum, illa strengdar, sum hornin skaga langt út frá veggjunum. Stærstu strigarnir eru negldir beint á vegginn og slapa milli nagla. Þessir gúlpar í striganum vinna gegn fellingunum í myndfletinMálverk, 1998. um. Synd að láta svo einföld atriði spilla annars kraftmikilli sýningu.
Ekki allt sem sýnist Þorri Hringsson sýnir í Listasafni ASÍ. Þar gefur að líta málverk annars vegar af mat og hins vegar konum. Þetta eru glansmyndir, maturinn er litsterkur og skrautlegur og uppstillingarnar puntaðar, konurnar vel snyrtar, brosandi og fagrar. Stúlkurnar líða reyndar fyrir nálægðina við matinn sem tekur megnið af athygli áhorfandans. Kannski hefði verið betra að halda þessum tveimur syrpum aðskildum.
þetta nostalgískar myndir. Matarmyndirnar eru gamaldags, málaðar eftir matreiðslubókum, og eins og vera ber er matnum stillt upp eftir fagurfræðilegum formúlum til þess að hann verði sem mest lokkandi. Konurnar tilheyra líka yfirborðskenndum auglýsingaheiminum, fallegar táknmyndir fyrir gullaldartímann upp úr striði. Skiltamálunarvinnubrögðin tilheyra einnig heimi auglýsinganna. Úr fjarska virðast myndirnar afar raunsæislega og nákvæmt málaðar en í návígi sér maður að þær eru grófar, nánast „illa" málaðar. Þrátt fyrir glansinn er því hvorki hægt að segja að mann langi í matinn né það freisti manns að vera í sporum stúlknanna eða að kynnast þeim nánar. Satt best að segja er þetta allt nokkuð fráhrindandi, á sama hátt og aðferðin þolir nálægðina illa. Flæmsku meistararnir, sem fyrir einhverjum öldum máluðu undurfagrar mataruppstillingar, gerðu það vegna þess hve þær bjuggu yfir margs konar áferð og birtubrigðum sem hentuðu tilraunum þeirra til að höndla fegurðina með litnum. Hér er allt annað á ferðinni. Þorri er miklu frekar að sýna okkur hvernig blekkingin sykurhúðar yfirborð hlutanna og hvað hið ákjósanlega getur með auðveldum hætti snúist upp í andhverfu sína og orðið ógeðfellt þegar betur er að gáð. Þetta er fin sýning sem vinnur á við umhugsun.
A vissan hátt eru Þorri Hringsson - Kartöflu-laxabaka, 1998.
Síbylja frá barokktíð Rússneska tónskáldið og dulspekingurinn Alexandr Scriabin sagði um tónlist sem var samin fyrir daga Beethovens að hún væri dauð. Það er nokkuð til í því þó Scriabin hafi ýkt eins og hans var von og vlsa. Beethoven var byltingarmaður í tónlistinni; tónlist forvera hans var ávallt samin samkvæmt viðteknum formúlum og oftar en ekki eftir pöntun einhvers baróns eða greifynju. En Mozart, Haydn, Handel, Monteverdi og Bach voru samt snillingar og tónlist þeirra fyllir mann andakt þótt hún sé samin eftir föstum reglum. Mörg önnur tónskáld voru til sem nú eru að mestu gleymd. Þau kunnu líka sitt fag og sömdu áheyrilega tónlist sem er þó óttalega andlaus ef Kammersveitin Musica Antiqua Köln. grannt er skoðað. í Langholtskirkju mátti heyra á hvítasunnudag hálfgleymda (og hálfgelda) tónlist því hinn heimsfrægi kammerhópur Musica Antiqua Köln hélt þar, undir stjórn Reinhards Goebels, tónleika þar sem á efnisskránni voru verk eftir barokktónskáldin Albrici, Becker, Baltzer, Kirchoff, Meder, Fischer og Telemann. Telemann var snillingstigi. Á hinn bóginn var Sónata í g-moll eftir ur, og tónlist hans er fyrir löngu orðin ódauðDietrich Becker bæði fjölbreytileg og lifandi, leg, en hið sama verður ekki sagt um flesta enda samanstóö hún af nokkrum stuttum en hina. Samt var forvitnilegt að heyra ýmislegt ólíkum hlutum þar sem margar hugmyndir á efnisskránni. Sumt var fallegt, með grípkomu við sögu. Annað á efnisskránni var eftandi laglínum og seiðandi hljómum, eins og ir þessu, sumt áheyrilegt en hitt varla annað fyrsta verkið, Fantasia „á 7 violes í C", sem en leiðinleg síbylja. var samin árið 1645 í Stokkhólmi af óþekktu tónskáldi. En næsta tónsmíðin, Sinfonia primi toni frá 1650, eftir Vincenco Albrici, var óttalega Þess má geta að sjaldnast eru til fyrirmæli leiðinleg. Sömu hendingarnar og mótífin um túlkun á stórum hluta barokktónlistar. heyrðust aftur og aftur, án teljandi umbreytYfirleitt var ekki gefið til kynna i nótunum inga. Skipti þá engu þó tónlistin væri fjörleg, hversu hratt ætti að leika og ekki heldur hún hljómaði samt eins og þráhyggja á háu neitt sagt um styrkleikabrigði eða frasering-
Tótilist Jónas Sen
Hvergi feilnóta
ar. En hefðirnar voru sterkar og einnig réð túlkandinn miklu sjálfur og þvi voru flestar tilskipanir af hálfu tónskáldsins taldar óþarfar. Hraðaval og annað í túlkun Musica Antiqua Köln var greinilega úthugsað og fræðileg rök fyrir öllu sem hún gerði. Þó var ekki laust við að Pavqne & svíta í C dúr eftir Thomas Baltzer hefði mátt vera hægari og hátíðlegri hraðinn var svo mikill að tónlistin fór einhvern veginn inn um annað eyrað og út um hitt. Kannski má kenna einbeitingarleysi undirritaðs um að verkið féll í svo grýttan jarðveg en um miðbik tónleikanna var honum farið að liða eins og á sýningu á vegg-
fóðri. Svona tónlist er nefnilega eins og fallegt veggfóður sem maður starir ekki beint á í hrifningarvímu en finnst þó huggulegt á stofuveggjunum. Það er ósköp ljúft að hafa eldgamla, óþekkta tónlist á fóninum heima á meðan maður slappar af í baði en að fara á tónleika með þessari sömu tónlist er fullmikið af því góða. Samt er maður þakklátur því tónlistarfólki sem dustar rykið af gömlum tónverkum og nennir að æfa það því innan um leynist ein og ein perla. Musica Antiqua Köln er tvímælalaust frábær hópur, allir hljóðfæraleikararnir í fremstu röð, hvergi feimóta, hljómurinn fullkomlega samstilltur og túlkunin lífleg og sannfærandi. Þrátt fyrir það voru þetta fremur leiðinlegir tónleikar. Notalegra hefði verið að heyra þá í útvarpinu heima, á meðan maður flatmagaði uppi í sófa með bók.
Dogmað blífur Hafi einhver haldið aö dogma-fyrirbærið í dönskum kvikmyndum væri hóla verður sá hinn sami að sætta sig við að hafa rangt fyrir sér. Frá kvikmyndahátiðinni í Cannes berast þær fréttir að í bigerð séu sextán kvikmyndir sem gera eigi samkvæmt fyrirmæium þeirra reglubræðra, Lars von Triers, Thomasar Vinterbergs og félaga. Menn hafa hreinlega tekið dogmasótt víðs vegar um Evrópu því þessar myndir verða gerðar í Þýskalandi, Hollandi, Frakklandi og Englandi - auk Danmerkur. Til upprifjunar ganga dogma-reglurnar út á sem ailra einfaldasta kvikmyndagerð: Engin tilbúin sviðsmynd, engin sérstök hljóðupptaka, allt kvikmyndað með vél sem tökumaðurinn heldur á, engin gervilýsing, aðeins sú birta sem er á tökustað hverju sinni, allt gerist hér og nú, engir „búningar" og ekki má tilgreina í myndinni hver leiksrjórinn er. Danska kvikmyndastofhunin gerði þau örlagariku mistök á sinum tíma að neita dogma-bræðrum um styrki til myndanna sem nú fara sigurfór um heiminn (eina þeirra, Fávita von Triers, má sjá í reykvísku kvikmyndahúsi um þessar mundir). Til þess að bæta fyrir brot sín býður stofnunin þeim nú að gera alle tiders kvikmynd um Danmörku og Dani um árþúsundamót og það verðá engar 15 milljónir eins og þeir báðu um á hnjánum í gamla j daga sem þar verða lagðar í púkk heldur miklu miklu meira.
Tena syngur Billie
Varla getur ljúfsárri jasssöng en lagasmíðarnar sem Billie Holiday (á mynd) festi á vinýl þann stutta tíma sem hún var í góðu formi. Fyrir nákvæmlega fjörutíu árum, nánar tiltekið 25. maí 1959, kom hún í síðasta sinn fram opinberlega, og þá í Phoenix Theatre í New York. í tilefni af því ætlar kanadíska söngkonan Tena Palmer, sem búsett er hér á landi, að syngja til heiðurs Billie í Iðnó í kvöld (þriðjudag) og annað kvöld kl. 20.30 við undirleik valinkunnra tónlistarmanna: Óskar Guðjónsson á tenórsaxófón, Samúel Samúelsson á básúnu, Kjartan Valdemarson á píanó, Þórður Högnason á kontrabassa og Pétur Grétarsson á trommur. Varla þarf að taka fram að sungin verða nokkur þeirra laga sem Billie gerði fræg, t.d. What a Little Moonlight Can Do, God Bless the Child, Sophisticated Lady, You've Changed, Billie's Blues, Get out of Town, kannski líka Strange Fruit.
Myndlistin lifir á Stöðvarfirði Sýknt og heilagt er klifað á því að á landsbyggðinni sé viðvarandi skortur á öllu sem heitir listmenntun; hún eigi bara heima í Reykjavík og á Akureyri. Þetta eru að sjálfsögðu ýkjur eins og margt annað sem sagt er um sveitir landsins. í nokkur ár hefur Ríkharður Valtingojer grafíklistamaður (og fyrsti handhafi Meríningarverðlauna DV fyrir myndlist) staðið fyrir margs konar myndlistaruppfræðslu og listastarfsemi á Stöðvarfirði þar sem hann býr ásamt Sólrúnu Friðriksdóttur konu sinni sem einnig er listamaður. Verkleg námskeið sem hann hefur haldið á heimaslóðum að sumarlagi hafa ávallt verið vel sótt. í júní og júlí verður Ríkharður (á mynd) með nokkur þriggja og fjögurra daga námskeið um grafiktækni á Stöðvarfirði. Þann 3. júní hefst námskeið í háþrykki og i kjölfarið fylgir námskeið í polyester-litógrafiu þar sem hægt er að nota tölvu, leysiprentara og ljósritunarvél. í júlí verða síðan námskeið í djúpþrykki og offsetlitógrafiu, auk þess sem fólki gefst kostur á alhliða myndlistarnámskeiði þar sem hægt verður að læra teikningu, grafik, vatnslitatækni og skúlptúrgerð.
Umsjóii Aöalsteinn Ingólfsson L