Metta

Page 1

LESBÖK MORGUNBLAÐSEVS - MENMNG LISTBR

6. TÖLUBLAÐ - 73.ÁRGANGUR

EFNI

STEPHAN G. STEPHANSSON

Milljón sólir rísa er fyrirsögnin á grein Þorvarðar Iljálinarssonar um skáldverk Kjarl ans Árnasonar, en fyrsta Ijóðabók hans, Dagbók Lasarusar, kom út 1986. Síðan hefur hann sent frá sér smásagnasafn, skáldsögu og smáprent með örleikritum og ljóðum. Hann hefur einnig skrifað töluvert um bókmenntir og þýtt. Þorvarður segir verk Kjartans einkennast af einstöku samspili sársauka og kímni.

Atómskáldin eru enn til umræðu í grein eftir Jón Óskar þar sem hann svarar grein eftir Dagnýju Kristjánsddttur bókmenntafræðing, sem átti upphafið að þessum orðaskiptum í Lesbókarviðtali á sl. ári. Telur Jón að Dagný hafi ekki fengið réttan skilning á bókmenntabyltingunni um miðja öldina og að rangar fullyrðingar séu í málflutningi hennar um atómskáldin, sem Jón telur að Dagný ófrægi og lítillækki.

-BROT I rökkrinu, þegai' ég orðinn er einn og afmér hefreiðingnum velt ogjörðin vor hefur sjéifa sig frá sól inn ískuggana elt ogmælginni sjáífri sígur í brjóst og sofnar við hundanna gelt En lífsönnin dottandi S dyrnar er sest, sem daglengis vörðw mhm ei% sem styggði upp léttfleygu ljóðin mín öll, svo liðu þau sönglaust frá mér, sem vængbrautþá hugsun, sem hófsig á loft og himininn ætíaði sér -

Wagner átti ekki upp á pallborðið eftir stríðið fremur en annað sem fengið hafði á sig nazistastimpil. Verk hans höfðu verið sýnd á sama hátt frá upphafi og ekkja Wagners lagði áherzlu á sams konar framhald. Það voru hins vegar synirnir, Wieland og Wolfgang, sem stigu það skref, þegar þráðurinn var tekinn upp að nýju eftir stríðið, að færa hina ytri umgjörð óperanna í takt við nýja tíma. Um það skrifar Árni Tómas Ragnarsson.

KVELD

Metta Hansdóttir í Vík fluttist frá æskustöðvum síuiau á Jótlandi til Bessastaða, 16-17 ára. í fyrri hluta greinar um þessa merku konu segir Halldór Ármann Sigurðsson frá því, að á Bessastöðum var henni gert barn og þá svo um samið að ungur prestur l'engi brauð ef hann tæki hana að sér. Brauðið fékk hann en sveik samninginn og ektaði aðra konu, en Metta giftist Jóni Hjaltalín og bjuggu þau m.a. í Vík, landnámsjörð Ingólfs Arnarsonar. Frá búskap Mettu með Jóni segir í næstu Lesbók.

FORSÍÐUMYNDIN: Kristinn tók þessa mynd af listmálaranum Baltasar, sem nú stendur á sextugu og heldur sýningu í Gerðarsafni í Kópavogi, þar sem viðfangsefnið er ímynd konunnar, eins og hún birtist í Eddukvæðunum.

Það iandið, sem ekki með o'nálag hátt í upphæðum neitt getur bæst, þar einskis jnanns velferð er volæði híns né valdið er t&kmarMðhæst og sigurinn aldrei er sársauki neins, en sanngirni er boðorðið æðst Ogvimmótt mannkynsum vegíausajbrð" svo voðalöng orðin mér finnst, sem framfara skSman sé skröksaga ein og skuggarnir enn hafi ei þynnst. Þvíjafnvel ífornöld sveifhugur eins hátt og hvar er þá nokkuð, sem vinnst?

Stephan G. Stephansson (Stetón Guðmundur Guðmundsson,) 1853-192?, var fæddur og uppalinn f SlcagafirSi en ffultist ungur fil Vesturheims bar sem fionn varð bóndi f Albertofylki. Honn er höfuðslcáld Vestur-Íslendinga og í IjóSum st'num birtisr hann sem friðorsinni einlægur jaínaSarmaður og umfram alflt hugsandi maður sem sffellt efast, samonber síðustu Ijóðlínuna hér aS ofan.

RABB

K

AUPÆÐI aðventunnar og ölæði áramótanna er að baki, óttinn við kreditkortastöðuna er tekinn við en timburmennirnir afstaðnir. Sár eftir minniháttar barsmíðar, rispur og blá augu eru sem óðast að gróa og öðlast eðlilegan líkamslit og æluklessur og hitt og annað rusl hefur verið fjarlægt af götunum. Komnar eru heilar ruslakirnur í stað þeirra sem afreksmenn næturlífsins hafa slegið botninn úr, heilar rúður eru komnar í stað þeirra sem sömu hetjur slógu í mask og búið er að gera við póstkassann við póstútibúið við Hávallagötuna eða setja upp nýjan. Ungur maður, sem stundað hefur nám í Svíþjóð undanfarin ár ásamt fleiri íslendingum, fór út að skemmta sér með þeim á gamlárskvöld. Þeir fóru á veitingahúsið Astro við Austurstræti og undu sér þar vel, enda fór allt skemmtanalíf þar fram með friði og spekt eins og siður er á góðum samkomustöðum. Með þeim var sænskur piltur sem komið hefur hingað áður og átti góðar minningar sfðan þá. Nú kom að lokunartíma hússins og samkvæmt þeim vafasömu reglum sem hér gilda var hleypt út úr öllum skemmtihúsum borgarinnar á sama tíma, enda virðast þær reglur byggjast á því að ekkert sé eins skemmtilegt og múgur drukMnna manna. Piltarnir ætluðu að reyna að ná í bíl eins og aðrir en höfðu jafnlitla möguleika á því og þeir. Svíinn talaði ensku því hann vissi að hérlendir skilja og tala það mál betur en norræn mál. Stúlka ein í þyrpingu ungra æsingaseggja hrópaði á hann að vera ekki með neina stæla, hann gæti alveg eins talað sitt eigið mál og aðrir. En þegar henni varð ljóst

MANNLIF OG MANNRAUNIR

að þetta var útlendingur hvatti hún félaga sína til að taka í lurginn á „helvítis útlendingnum". Þeir létu ekki segja sér það tvisvar en réðust milli tíu og fimmtán saman á Svíann, upptendraðir af drengskap víMnganna, slógu hann í götuna, spörkuðu í hann, rifu úlpu hans í tætlur og mölvuðu myndavél þeirra félaga. Vinur hans kom honum til hjálpar en hlaut sömu móttökur. Einn úr hópnum reyndi þó að liðsinna þeim. Tókst þeim að lokum að sleppa úr klóm þessara hraustu drengskaparmanna og hlupu sem fætur toguðu niður á lögregluskrifstofuna við höfnina. Lögregluþjónninn sem kom til tals við þá sagðist ekkert geta gert. Þeir óskuðu eftir að gefa skýrslu um aðförina en hann neitaði að taka við henni, sagði að þeir yrðu að fara á stöðina við Hlemm, og hann kvað það ekki skipta sig neinu máli þótt þeir segðu, eins og hann vissi, að ekki væri hægt að fá neinn bfl. Hann fór svo aftur inn í hlýjuna en þeir töltu af stað heim til sín því þeir þóttust vita að gestkvæmt væri á lögreglustöðinni á nótt sem þessari. Þegar þeir höfðu gengið lengi, lengi komust þeir loks heim og verkuðu af sér eftír getu blóð og önnur ummerki um vinsemd víkingasonanna í miðborginni. Fengu þeir loks að gefa skýrslu daginn eftir, þegar þeir höfðu beðið tímunum saman eftir að önnur fórnarlömb skemmtanalífsins hefðu sagt sögu sína. Eitthvert kvöld um þetta leyti var viðtalsþáttur við þingmenn í sjónvarpinu og var rætt ástandið í miðborg Reykjavíkur að kvöld- og næturlagi um helgar. Sighvatur

Björgvinsson taldi það svo geigvænlegt að leita þyrfti langt út í heim til að finna annað eins, ef það væri þá til, og tóku fleiri í þann streng. Þá lagði orð í belg þingkona, Guðný að nafni, og sagði með umburðarlyndisbrosi að börnin sín hefðu sagt sér að þessar sögur úr miðborginni væru bara ýkjur. Astandið væri alls ekki slæmt. Ég gat ekki stillt mig um að reka upp kaldranalegan hæðnishlátur. Þetta var nefnilega ekki í fyrsta sinn sem ég heyrði auðtrúa konu hafa lygasögur eftir börnunum sínum. Hún hefði vafalaust sagt það vera ýkjur þótt henni hefðu verið sýndir piltarnir, klóraðir, marðir, með rifin föt og brotna myndavél. Börnin hennar hefðu sennilega sagt henni að strákurinn hefði bara hlaupið á vegg eða jólatréð á torginu og síðan logið upp sögunni til þess að reyna að krækja sér í skaðabætur. Nei, Guðný góð. Krakkarnir þínir hafa bara verið að róa þig til þess að þú skyldir ekki halda að þeir væru í félagsskap unglinga sem gætu flækst inn í aðfinnsluvert athæfi. Ástandið í miðborginni er svo slæmt að nóttunni um helgar að fullorðið fólk þorir ekki að vera þar á ferli en tekur heldur bíl ef það þarf að fara milli borgarhluta. Það eru ekki ýkjur þegar sagt er frá því að fólk hafi verið atyrt, barið og jafnvel stungið með hnífum fyrir þá sök eina að vera á ferð um miðborgina á þeim tíma sem afkomendur víkinganna telja hana sitt athafnasvið. Þetta þurfa ekíri að vera slæmir krakkar en að líkindum eru þeir illa eða alls ekki uppaldir. Kannske eru heimili þeirra slæm,

foreldrar þeirra hafa vanrækt þá og ekki beitt þá neinum aga, en látið þá alast upp eins og verkast vildi. Sálfræðingur einn sagði fyrir mörgum árum að ef við héldum áfram á þeirri braut að svíkja börn um heilbrigðan heimilisaga ættu unghngavandamál eftir að margfaldast hér. Prestur einn sagði mér hið sama og bætti við: Ef börn læra ekki að hlýða og fara eftir reglum frá barnæsku geta þau ekki heldur farið eftir lögum þegar þau eru fullorðin. Agi þýðir ekki að foreldrar séu harðir við börn sín, þvert á móti, þeir eiga að elska þau, en þeir eiga líka að ala þau upp með skynsemi af því að þeir elska þau og viya að þau verði að góðu og löghlýðnu fólki. Eg hef séð börn rífa til og káfa á hlutum sem verða á vegi þeirra, á heimilum þar sem þau eru gestkomandi og í verslunum, og ef vandað er um við þau segir foreldrið bara: 0, hann er nú bara að leika sér, skinnið Utla. Auðvitað er barnið að leika sér en foreldrarnir eiga bara að gæta þess að það leika sér ekki að því sem aðrir eiga og það getur skemmt. Þeir mega ekki heldur horfa í aðra átt og látast ekki taka eftir neinu, þegar börnin þeirra eru að rífa til. Og börn vilja að þeim sé stjórnað. Þeim líður vel þegar samvinna þeirra og foreldranna er góð. Og foreldrarnir verða að gefa sér tíma til að sinna þeim og ala þau upp. Magnús heitinn Sigurðsson skólastjóri, sem lét sér öðrum fremur annt um börn sem lent höfðu á villigötum, sagði eitt sinn við mig: Vandræðabörn koma alltaf frá vandræðaheimilum. Heimili vandræðabarns getur litið vel út, svo að ókunnugir sjái þar enga misfellu á neinu, en það er alltaf eitthvað að, þótt það sé svo vel falið að ókunnugir komi ekki auga á það. TORFI ÓLAFSSON

LESBÓK MORGUNBLAÐSINS ~ MENNING/USTIR 7. FEBRÚAR 1998

3


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.