2 minute read
Kolsýrukerfi eru framtíðin í sjávarútvegi
Við hjá Kælitækni höfum dregið vagninn í innleiðingu náttúrulegra kælimiðla. Kerfi með kolsýrus sem kælimiðil er að okkar mati það sem koma skal í framtíðinni í staðinn fyrir hefðbundin freonkerfi. Mikið hefur verið að gera hjá okkur að undanförnu í að setja upp ný kolsýrukerfi í verslunum og frystigeymslum,“ segir Vilhjálmur Vagn Steinarsson, framkvæmdarstjóri KT Þjónustu, þjónustudeildar Kælitækni.
Kælitækni setti upp fyrsta kolsýrukerfið á Íslandi fyrir rúmum fimm árum . Kerfið var sett upp í fiskvinnslu og hefur reynst mjög vel . Freon-kerfin segir Vilhjálmur að hverfa og kolsýrukerfi að taka við . „Þjónusta okkar spannar stórt svið og við erum að þjónusta skip, fiskvinnslur, kæli-og frystigeymslur, verslanir og veitingastaði og svo margt fleira . Þegar skipt er út eldri freonkerfum yfir í kolsýru þarf að endurnýja kælikerfið eins og það leggur sig . Verslunargeirinn er mikið að skipta yfir í kolsýrukerfi um þessar mundir og þá er verið að skipta út öllum kælum og frystum inni í verslununum ásamt stærri geymsluklefum . Kælitækni hefur séð mikið til um þessa vinnu ásamt því að útvega allan búnað .
Advertisement
Þetta eru umtalsverð verkefni að ráðast í en kosturinn er sá við þessi kerfi að allar lagnir taka mun minna pláss, orkusparnaðurinn mikill og viðskiptavinurinn er með umhverfisvænan kælimiðil . “
Kolsýrukerfi fyrir sjávarútveginn Vilhjálmur segir að í ljósi þeirrar reynslu sem komin sé á notkun kolsýrukerfanna í iðnaði, frystigeymslum, verslunum og fiskvinnslum hér á landi þá eigi þau mikið erindi í sjávarútveginn . „Kælimiðillinn er algjörlega umhverfisvænn, auk þess sem raforkunotkun minnkar um 25-20% þannig að ávinningurinn er umtalsverður . Við erum í góðu samstarfi við erlenda framleiðendur varðandi þróun og lausnir fyrir skip, ferskvinnsluskip og frystitogara . Gott samstarf við erlenda birgja hefur skilað því að við hjá Kælitækni erum leiðandi á markaðnum í dag hvað varðar fjölbreyttar lausnir þegar kemur að kolsýrukerfum . Fyrir útgerðina er mikill sparnaður í olíunotkun fólginn í því að velja kolsýrukerfi, auk þess sem kerfin taka mun minna pláss . Við sjáum fyrir okkur að kolsýrukerfi muni í auknum mæli verða eftirsóknarverður valkostur í fiskvinnslum og skipum í náinni framtíð .
Við hjá Kælitækni seljum allan búnað fyrir kæli- og frystikerfi, auk þess sem við sjáum um uppsetningu og viðhald kerfa
Vilhjálmur Vagn Steinarsson, framkvæmdarstjóri KT Þjónustu, þjónustudeildar Kælitækni.
þegar þau eru komin í fullan rekstur . Einnig erum við mikið að þjónusta landsbyggðina, oft í samstarfi við umboðsmenn okkar um land allt . Þetta fyrirkomulag hentar bæði okkur og viðskiptavinum okkar á landsbyggðinni . Það skiptir okkur miklu máli að veita eins góða þjónustu og við getum . Við bjóðum viðskiptavinum að koma með í umhverfisvæna framtíð . “
Ísvélar
Bjóðum uppá allar stærðir og gerðir af ísvélum.
Allt frá litlum vélum upp í stórar ísverksmiðjur.
Rauðagerði 25 108 Reykjavík Sími 440 1800 www.kaelitaekni.is