2 minute read
Menntun er undirstaða framfara
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum Menntun er undirstaða framfara
„Það er verðugt verkefni að starfa við að mennta ungt fólk, ekki bara til að það geti starfað í atvinnulífinu og tryggt að það verði tilbúið að takast á við kröfur framtíðarinnar,“ segir Helga Kristín Kolbeins, skólameistari í grein sinni.
Advertisement
Menntun er einn af þeim búsetuþáttum sem skipta hvað mestu máli úti á landsbyggðinni. Í Vestmannaeyjum er Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum sem tók formlega til starfa fyrir rúmum 40 árum, haustið 1979. Þá runnu saman í einn skóla Vélskólinn í Vestmannaeyjum, Iðnskólinn í Vestmannaeyjum og framhaldsdeildir Gagnfræðaskólans í Vestmannaeyjum. Vélstjóramenntunin hefur tekið breytingum á þessum árum vegna aukinna krafna um hæfni og aukinnar tækni. Sumt er þó óbreytt því alltaf er nauðsynlegt að læra grunninn sem fagið byggir á.
Ein meginstoð framfara og hagvaxtar í þjóðfélögum er menntun og þar með þekking sem hægt er að nota til framfara . Í sjávarplássi eins og Vestmannaeyjum er menntun einstaklinga undirstaða framfara . Einstaklinga sem síðan með þekkingu sinni, störfum og reynslu byggja upp samfélagið og fyrirtækin sem þeir starfa hjá .
Átak í endurnýjun kennslutækja Í skólanum er lögð áhersla á að laða fram í einstaklingum frumkvæði og frjóa hugsun og það hefur reynt á þann þátt á árinu 2020 . Skólinn þarf að að vera með tækja- og tæknibúnað eins og best gerist á hverjum tíma og tryggja stöðuga endurnýjun til að nemendur verði hæfari og taki með sér nýjustu þekkingu og tækni út í atvinnulífið .
Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum hefur verið að vinna með þann veruleika undanfarin ár . Mikið átak hefur verið í að endurnýja kennslutæki skólans, CNC rennibekkir hafa leyst hefðbundnu bekkina af og sýndarveruleiki er nýttur í kennslunni . Útvegaðar hafa verið nýjar vélar til kennslu í vélstjórnargreinum ásamt hermum og fleiri tækjum .
Breytingar framundan á vinnumarkaði Miklar breytingar eru á hvernig námsgreinarnar eru kenndar og er lögð mun meiri áhersla á samvinnu við lausn verkefna . Verkefnin eru skoðuð frá mörgum sjónarhornum til að finna nýjar og betri lausnir en við höfðum í gær . Einnig eru nemendur hvattir til að líta innávið, lifa í núvitund og rækta sjálfa sig til að vera betur undirbúnir fyrir áskoranir lífsins .
Nú er almennt viðurkennt að breytingarnar sem framundan eru á vinnumarkaði munu gjörbreyta vinnumarkaðnum og hugsanlega flýtir heimsfaraldur Covid-19 þeirri þróun . Verkefni skólans er að laga sig að þeim breytingum og bjóða fullorðnu fólki viðbótarnám til að þeir einstaklingar sem þegar eru á vinnumarkaðnum verði færari að takast á við nýjan veruleika . Það nám þarf að vera lotubundið og hægt að stunda með vinnu . Með því móti uppfylla skólarnir ekki aðeins kröfur sem gerðar eru til þeirra að mennta ungt fólk heldur mennta þeir einnig reynslumikið fólk og aðlaga það breyttum veruleika framtíðarinnar . En það vantar kennara og er eitt helsta úrlausnarefni næstu missera að fá einstaklinga til að leggja fyrir sig kennslu í verk- og iðngreinum . Þeir sem hafa lagt fyrir sig kennslu í iðn- og verknámi eru flestir mjög ánægðir í starfi, en það eru bara of fáir einstaklingar sem leggja þetta fyrir sig .
Það er verðugt verkefni að starfa við að mennta ungt fólk, ekki bara til að það geti starfað í atvinnulífinu og tryggt að það verði tilbúið að takast á við kröfur framtíðarinnar .
Helga Kristín Kolbeins skólameistari Framhaldsskólans í Vestmannaeyjum