5 minute read

Spyrðu hagsmunafulltrúa SHÍ: Jessý Jónsdóttir svarar spurningum stúdenta FAQ for SHÍ’s Student Interest

Spyrðu hagsmunafulltrúa SHÍ Jessý Jónsdóttir svarar spurningum stúdenta

FAQ for SHÍ’s Student Interest Representative Jessý Jónsdóttir Answers Questions from Students of HÍ Mynd / PhotoSara Þöll Finnbogadóttir

Advertisement

Hagsmunafulltrúi SHÍ er kjörinn á skiptafundi Stúdentaráðs. Hags munafulltrúi er stúdentum innan handar og stendur vörð um hags muni og málstað stúdenta við skólann.

Hvenær byrjaðir þú að brenna fyrir hagsmunamálum? Ég sat í nemendaráði í grunnskóla og lét til mín taka þar og lagði þar með grunninn að mínum hagsmunabaráttuferli, ef svo má að orði komast! Í háskólanum tók ég fyrst þátt í hagsmunabaráttu stúdenta árið 2018 og sat svo í Stúdentaráði og sviðsráði. Ég var líka virk í nemendafélaginu mínu og fólst í því viss hagsmunagæsla, t.d. að sitja námsbrautarfundi og láta mig námið varða almennt. Ég hef alltaf verið gagnrýnin á umhverfi mitt og látið í mér heyra þegar ég kem auga á eitthvað sem ég tel misrétti. SHÍ’s interests’ representative is elected at the Student Council’s exchange meeting and is at hand for students while safeguarding and supporting their interests and causes.

When did your interest in Student politics begin? I sat on the student council at my primary school and you can say that laid the foundation for my interest in social-campaigns. When I joined Háskóli Íslands I wasted no time in getting into Student politics. I started campaigning for students back in 2018, and later sat on the Student Council both as a representative for my field of study and also for the whole school. During that time these jobs involved meetings and arguing for student interest. I always have a critical point-of-view and am not afraid to call people out on their bullshit.

My teacher did not submit a grade on time. What do I do? When this happens one can email their teacher and reference article 60 of the laws of HÍ. The article states; “Grades must be published no later than two weeks after each exam, but three weeks after each exam during the examination period in December.”

What do you enjoy most about your job?

And what is the least favorite aspect? What I enjoy the most is to help students seek their rights and find solutions to their issues and problems in collaboration with teachers, the department, and faculty members. Fortunately, most of the time it is enough for me to send an email explaining the details of the case of an affected student. In my experience I find that the majority of teachers are ready to find solutions in a professional manner. Furthermore, I relish the challenge of having other people put their trust in me and to get to know them and other people involved in the altercation. I must say I do not find this job boring but it can be challenging. Especially when dealing with matters that have personal stakes, are unique, or have a large impact in the life of a student, that is when it gets busy and I need to work quickly. But, that is what I am here for! No issue is too small for me or too challenging.

I am dissatisfied with my grade, can Jessý help with that? Again I would turn to the laws of HÍ; If one fails an exam it is possible to request an independent inspector for one’s exam (see article no. 59). Furthermore, according to article no. 59 a student is entitled to “an assessment of his written solution if requested within 15 days of the publication of the grade.” If a student feels that their rights were infringed on then the next step is to contact the head of the department that the student belongs to. If the case is serious enough the University Council will be informed and will debate on the matter. Fortunately, this rarely happens but I am ready to fight even if it comes to that!

Kennarinn minn hefur ekki skilað af sér einkunn á réttum tíma.

Hvað geri ég? Þá geturðu sent póst á kennara námskeiðsins og vitnað í 60. gr. reglna háskólans, „Prófverkefni og mat úrlausna“ en þar stendur skýrt: „Einkunnir skulu birtar í síðasta lagi tveimur vikum eftir hvert próf, en þremur vikum eftir hvert próf á próftímabili í desember.“

Hvað finnst þér skemmtilegast í starfinu? En leiðinlegast? Mér finnst langskemmtilegast að aðstoða stúdenta við að leita réttar síns og finna flöt á málum þeirra í samvinnu við kennara, deildir eða svið. Oft nægir að senda póst og inna eftir svörum og gera grein fyrir málstað stúdentsins sem á í hlut mín upplifun er sú að flestir kennarar vilja finna málum góðan farveg og vilja gera vel. Mér finnst líka ótrúlega skemmtilegt að finna fyrir trausti til mín og hef líka gaman af því að kynnast fólkinu sem á í hlut og leysa úr málunum saman. Mér finnst í raun blessunarlega ekkert leiðinlegt við starfið en það getur verið erfitt að greiða úr aðstæðum sem eru einstakar eða persónulegar og þegar mikið er í húfi fyrir stúdentinn. Þá er auðvitað mikið undir og oft þarf að hafa hraðar hendur, en til þess er ég hér! Ekkert mál er of lítið til að leita til mín með, og ekkert mál of stórt til að leysa úr.

Ég er ósátt með einkunn. Getur þú hjálpað með það? Hér langar mig líka að benda á reglur skólans, en t.d. er hægt að óska eftir óháðum prófdómara (sjá grein nr. 59) ef stúdent hefur fallið á prófi og jafnframt, skv. sömu grein, á stúdent ávallt rétt á „mati skrif legrar úrlausnar sinnar ef hann æskir þess innan 15 daga frá birtingu einkunnar“. Ef stúdent þykir á sér brotið er hægt að skjóta málinu formlega til deildarforseta og við tekur þá formlegt ferli sem m.a. getur falið í sér að háskólaráð taki málið fyrir. Flest mál er þó hægt að leysa án þess að fara með þau þangað, en það er ekkert mál að gera svo ef til þess kemur!

This article is from: