03 10 2014 tiskaogsnyrtivorur

Page 1

Tíska & snyrtivörur Kynningarblað

Helgin 3.-5. október 2014

Umhirða húðar um vetur  Varnir í frosti og kulda

Litir, ilmir og förðun haustið 2014  Náttúruleg förðun

og kattaraugu

Sérfræðingarnir spá í hausttískuna  Káputískan og

skyrtukjólar

Sveiflur í hártískunni  Fléttur, skipt í miðju

og gylltir tónar

Smokeyförðun  Skref fyrir skref

Brandenburg

ERUM VIÐ AÐ LEITA AÐ ÞÉR? PANTAÐU TÍMA Í SÍMA 540 1919 EÐA Á BLEIKASLAUFAN.IS #BLEIKASLAUFAN

ÁRIÐ 2014 ER STAÐREYNDIN SÚ AÐ UM HELMINGUR UNGRA KVENNA MÆTIR EKKI REGLULEGA Í LEGHÁLSKRABBAMEINSLEIT. KAUPUM BLEIKU SLAUFUNA OG HÖLDUM LEITINNI ÁFRAM.


tíska & snyrtivörur

50

Helgin 3.-5. október 2014

Selma Karlsdóttir förðunarfræðingur hjá Reykjavík Fashion Academy segir aðaláhersluna veturinn 2014 vera á sterka og áberandi augnumgjörð. Dramatískum áhrifum er náð með gerviaugnhárum, þykkum augnháralit, „smokey-eye“ förðun og bronstónum.

Selma Karlsdóttir förðunarfræðingur.

Nýjung: DIM Generous leggings 100 Den

• 100 den leggings sem henta vel fyrir konur með kvenlegar línur. • Ekkert teygjufar, þrengja hvorki að mjöðmum né mitti. • Einstaklega teygjanlegt efni, haldast vel uppi og renna ekki niður. • Stærðir M, L, XL, XXL. • Hágæðavara úr Lycra efni, falleg mött áferð.

Lyfja Smáralind, Smáratorg, Laugavegi, Lágmúla, Grindavík, Borgarnes, Stykkishólmur, Apótekið Setberg, Lyfjaval, Lyfjaver, Apótek Suðurnesja, Garðs-Apótek, Urðarapótek, Kvosin, Elínborg.

Á haustsýningu Rodarte voru málm áhrifin umhverfis augun áberandi.

Á haustsýningu Gucci var aðaláherslan lögð á augun og voru gerviaugnhár og þykkur maskari í aðalhlutverki.

Áberandi eye-linerarar og afturhvarf til sjöunda áratugarins hjá Yves Saint Laurant.

Náttúruleg förðun og kattaraugu í vetur Þ að er alveg ótrúlegt hvað falleg förðun getur gert mikið. Létt náttúruförðun og fallegur farði getur gert gæfumuninn þegar þú ætlar að láta þér líða vel yfir daginn og dregur fram það fallegasta ef rétt er farið að. Konur í dag hugsa almennt mjög vel um sig og leggja áherslu á að vera vel snyrtar og farðaðar,“ segir Selma Karlsdóttir, förðunarfræðingur og kennari við Reykjavík Fashion Academy. Hún segir dramatísk augu verða áfram aðalatriðið í vetrarförðuninni en auk þess eru mjög löng og þykk gerviaugnhár nýjasta trendið.

„Smokey“ augu verða áfram vinsæl en auk þess koma þykkir „eye-linerar“ í öllum litum mjög sterkir inn. Einnig er vinsælt að skapa ákveðið „metalik look“, eða málm áhrif umhverfis augun. „Það er líka mikið lagt upp úr skyggingum og allt gert til að hafa förðunina sem náttúrulegasta og fallega,“ segir Selma. „Flestar stjörnur bæði í sjónvarpi og í tískubransanum hafa gert sem mest úr því að vera með fallega farðaða húð og skyggingar sem draga fram kinnbein og móta andlitið á sem

fallegastan hátt. Á tískuviku í New York í sumar lagði t.d. förðunarfræðingurinn Francios Nars mikið upp úr ofboðslega fallega náttúruförðun en aðaláherslan og trendið var að gera mjög „edgy“ kattaraugu. Einnig var mikið um að móta andlit með fallegum brons tónum en þetta virtist vera aðal trendið á flestum tískuvikum í heiminum. Augabrúnir munu haldast áfram þykkar en á tískuvikunum haustið 2014 mátti meira að segja sjá gerviaugabrúnir festar á andlit og í sumum tilfellum fjaðrir.“

Blue therapy blur frá Biotherm

Oil & Tonic frá Biotherm

Ný formúla unnin úr þörungum sem jafnar og sléttir áferð húðarinnar samstundis og hrukkur minnka sjáanlega. Gott fyrir djúpar hrukkur, slappa húð og grófa húð.

Age fitness advanced frá Biotherm

NÝTT

MASTERPIECE TRANSFORM MASKARI

Nýr maskarabursti með smáum, stuttum hárum sem auðveldar honum að ná til allra augnháranna. Þéttir, lengir og þykkir hvert einasta augnhár. Gefur fullkomna útkomu.

Fullkomnaðu útlitið með MAX FACTOR Sölustaðir: Fríhöfnin Keflavíkurflugvelli. HAGKAUP – Holtagörðum, Kringlunni, Smáralind, Skeifunni. Lyf og heilsa: Austurveri, Eiðistorgi, Hringbraut, Kringlunni. Apótek Hafnarfjarðar, Apótek Garðabæjar, Árbæjarapótek, Garðsapótek, Lyfjaver, Lyfjaval Bílaapótek, Nana Hólagarði, Lyfsalinn Glæsibæ, Urðarapótek. Landið: Lyf og Heilsa: Glerártorgi, Hrísalundi, Hverargerði og Vestmannaeyjum. KS Sauðarkróki, Apótek Suðurnesja.

Létt og einstaklega frískandi gel sem gengur samstundis inn í húðina. Áferð án fitu og klístrar ekki. Léttur og karlmannlegur ilmur. Gelið lagfærir og styrkir húðina og verndar hana gegn utanaðkomandi áreiti. Hátækni formúla sem inniheldur Spiruline, blá-grænn smáþörungur. Fyrir alla karlmenn.

Lait corporel frá Biotherm Létt og frískandi húðmjólk sem rakafyllir húðina og veitir silkimjúka áferð. Góð lína sem unnin er úr náttúrulegum efnum, vítamínum, ólífuolíu sem næra og veita húðinni einstaka mýkt. Án parabena.

Húðvatn sem styrkir, nærir og þéttir húðina. Inniheldur 4 dýrmætar olíur sem djúpnæra húðina og gefa henni fallegan ljóma.

Visionnaire frá Lancôme Endurbætt formúla af þessum vinsælu viðgerðaserum dropum. Þeir innihalda núna tvöfalt magn Jasmonite ásamt LR 2412, sem eru virku efnin í formúlunni. Serumið er núna helmingi betra í að gera við húðina, laga fínar línur, þétta húðholur og jafna áferð húðarinnar. Má nota kvölds og morgna.

Forever light creator Fljótandi serum með perluáferð fyrir jafna, ljómandi og mjúka húð. Serumið lagfærir öll húðlýti tengd litarhætti. Forever línan inniheldur Glycanactif wt samsetningu ásamt ACTIL C-10. Serumið er frábært undir farða.


EINFALDLEGA

FR ÁBÆRIR

FULLKOMIÐ LITARAFT GERIR ÞIG SANNARLEGA FALLEGA

NÁTTÚRULEG FÖRÐUN LJÓMAÁFERÐ LÉTT ÞEKJA

FULLKOMIN ENDING MÖTT ÁFERÐ MEÐAL ÞEKJA

LÝTALAUS FARÐATVENNA ENGAR MISFELLUR MIKIL ÞEKJA

30 LITIR . ALLAR HÚÐGERÐIR . ALLAR ÞARFIR Lancôme farðabursti að verðmæti 5.500 kr. fylgir hverjum farða á kynningunni.

SPENNANDI LANCÔME HAUST Í LYFJUM & HEILSU KRINGLUNNI FIMMTUDAG TIL SUNNUDAGS NÝR

GRANDIÔSE

WIDE-ANGLE FAN EFFECT MASCARA ÁBERANDI AUGNHÁR, HRÍFANDI AUGU.

TILKOMUMIKIL BREYTING: LENGIR OG ÞYKKIR AUGNHÁRIN SEM BLÆVÆNGUR, GEFUR UNDURFAGRA SVEIGJU.

Þegar þú kaupir Lancôme vörur fyrir 8.900 eða meira færum* við þér snyrtibuddu fulla af spennandi vörum

20% KYNNINGARAFSLÁTTUR AF ÖLLUM LANCÔME VÖRUM.


52

3 - IN - 1 MICELLAR WATER

Helgin 3.-5. október 2014 KYNNING

HREINSAR FJARLÆGIR FARÐA VEITIR RAKA ALLT MEÐ 1 HREINSIVöRu

Smokey förðun É

g byrjaði á því að bera Touche Éclat gullpennann á augnlok fyrirsætunnar til að fá fallegri og endingarbetri áferð á augnskugga, næst notaði ég augnblýant númer 7 til að grunna augnlokin og nuddaði blýantinum vel inn í augnhárin. Augnskuggapallettan sem ég notaði er nýjung hjá Yves Saint Laurent og heitir Couture Palette númer 1 eða Tuxedo pallettan. Skuggarnir eru einstaklega mjúkir, með miklum litarefnum og mjög endingargóðir. Ég byrjaði á að nota base litinn til að gera mjúka skyggingu undir augnbeinin, því næst bar ég dökkgráan lit alveg yfir augnlokin og lét hann deyja út í base litinn sem var borinn á í upphafi. Í augnkrókana setti ég hvítsilfraðan lit og að lokum bar ég svartan vatnsheldan blýant í vatnslínuna. Til þess að fullkomna augnförð-

Masterpiece Transform Nýr maskarabursti með örstuttum hárum sem auðveldar honum að ná til allra augnháranna og þekja hvert einasta hár. Maskarinn þykkir, lengir og er svartari en hefðbundnir svartir maskarar. Gefur sannkallað „WOW look“.

NIVEA SENSITIVE FYRIR VIÐKVÆMA HÚÐ:

0%

PARABEN LITAREFNI ILMEFNI

Farði sem inniheldur örsmáar spegil öreindir sem endurkasta birtu og dregur þannig fram þinn náttúrulega húðljóma. Niðurstaðan er fallegur, heilbrigður húðljómi sem gefur fullkomna, jafna áferð þannig að húðin geislar. Inniheldur einnig raka sem hjálpar til við að viðhalda heilbrigðu útliti.

Mascara Volume effet faux cils maskari frá YSL Eykur þykkt augnháranna til muna. Umlykur hvert augnhár án þess að klessast. Fæst í 6 litum: svartur, brúnn, bjartur blár, fjólublár, burgundy og dökkblár.

unina var BabyDoll maskarinn borinn á augnhárin og augabrúnalit númer 4 nuddað í augabrúnir í öfuga átt til að fá náttúrulegt lúkk. Til að fá fullkomna förðun á húðina notaði ég nýja Fushion Ink farðann í lit B30. Þessi farði er einstaklega léttur en gefur þó góða þekju, mikla endingu og einstök þægindi. Touche Éclat gullpennann notaði ég undir augun, ofan á kinnbeinin og í kringum varirnar. Undir kinnbeinin, til að skyggja andlitið, notaði ég BabyDoll Kiss&Blush vara- og kinnalit og til að gefa húðinni frísklegt yfirbragð notaði ég BabyDoll Kiss&Blush nr.7 á epli kinna. Að lokum var svo Rouge Pur Couture Vernis a Lévres REBEL NUDES litur númer 106 borinn á varirnar. Þessir litir haldast eins og lakk, gefa lit eins og varalitir og glansa eins og gloss.

Lash queen mystic blacks maskari frá Helena Rubeinstein Nýr maskari sem þéttir og eykur áherslu á augnlínuna. Nýr tvöfaldur bursti sem framkallar fíngerða línu á augnlínuna á milli augnháranna. Endi burstans hefur lengjandi áhrif og nær í litlu augnhárin. Extra svört formúla framkallar djúpan svartan lit og mikla þéttingu.

Skin Luminizer Foundation

Grandíose frá Lancôme Fyrsti maskarinn með svansháls sem auðveldar að lita öll augnhárin. Gúmmíbursti sem greiðir vel úr augnhárunum, hann þykkir, lengir, sveigir og nærir augnhárin.

Mynd: Módel: Eva Árnadóttir. Förðun: Björg Alfreðsdóttir, make up artist Yves Saint Laurent á Íslandi.

Base paupieres pro frá Lancôme Vatnsheldur augnskugga grunnur sem skerpir litinn á augnskugganum og lætur hann endast allan daginn án þess að renna til. Kemur í 3 litum.

French idole haust look palletta 2014 frá Lancôme Fallegir, klassískir haustlitir sem auðvelt er að nota. Lancôme augnskuggana má bleyta og þá verður áferðin þéttari og líka hægt að nota þá sem eyeliner.

Color clone frá Helena Rubenstein Nýr color clone farði. Létt og mjúk áferð sem gefur náttúrlegan ljóma. Ný gyllt litarefni sem jafna húðlit og veita líflegan blæ. Inniheldur SPF 15


Shock up 60 UPP

ÞÆGILEGAR ÞEKJANDI SOKKABUXUR • Lyfta upp rassinum, grenna magann, læri og mjaðmir. • Strengurinn er breiður, þægilegur, situr kyrr og rúllast ekki niður. Mittislína skerst ekki. • Falla fullkomlega að allan daginn. • Einstaklega falleg áferð, flatir saumar og skrefbót úr bómull.


tíska & snyrtivörur

54

Helgin 3.-5. október 2014

Nýju haustlitirnir Nú þegar haustið skellur á er ekki seinna vænna en að lífga upp á tilveruna með skemmtilegum tískulitum í hárið frá PAUL MITCHELL hárvörum. Mikið ber á pasteltónum, sérstaklega bleikum og fjólubláum, í öllu hárinu. Nokkrar strípur eru settar í hárið eða hluti af hárinu litað til að lífga upp á heildarútlit þess. Einnig er mikið um fallega, náttúrulega glansmikla tóna, svo sem brúna, kopar og ljósa. Í XG litunum frá PAUL MITCHELL er að finna flotta flóru af glansmiklum náttúrulegum litum og pasteltónum og er hársnyrtifólk sérhæft í litavali til að finna þann lit sem hentar best litarhafti, augnlit og hárgerð hvers og eins.

„Dirty pastel blond“ er litatækni hönnuð af Grétu sem hún notaði í módel sitt. Dökk skygging í rótina, sem rennur út í „Dirty bleik-pastel blond“ lit í endana, gefa frábærlega töff útlit og draga fram týpuna á módelinu. Gréta notaði EXTRA BODY BOOST rótarlyftingu til að fá góða lyftingu í hárið og svo spreyjaði hún spreyvaxi létt í endana til að fá meira hald án þess að hafa hárið hart.

Gréta segir að herraklippingar fyrir haustið séu frekar stuttar, rakað er stutt í hliðum en sídd látin halda sér að ofan og töff sé að greiða hárið til hliðar. Hún notaði ESP LAB trefjavax frá PAUL MITCHELL til að ná fram fallegri áferð á herrann og góðu haldi sem endist út daginn.

V

ið fengum fagfólkið Björn Berg Pálsson og Grétu Jónsteinsdóttir á hársnyrtistofunni Sjoppunni til að útfæra fyrir okkur tískustraumana á módelum fyrir haustið. Þau sérvöldu litasamsetningarnar í módelin sem hér sjást ásamt greiðslum og klippingum. Unnið í samstarfi við Artic Trading Company

Björn, eða Böddi eins og hann er kallaður, sérblandaði lit í sitt módel og útkoman var fallegur hunangslitur sem passar einstaklega vel við litarhaft og augu módelsins. Til að móta hárið eftir litun setti hann næringarfroðu sem gefur hald og lyftingu í hárið. Hann notaði einnig hitavörnina HOT OFF THE PRESS til að gera liðina í hárið. Þannig fékk hann létt hald og vernd fyrir sléttujárninu sem hann notaði til að liða hárið.

Töff er að poppa upp fallega ljósa tóna með því að setja pasteltón í endana, segir Björn, það gefur skemmtilegan blæ í hárið. Hann litaði hár módelsins í ljósum köldum tóni og setti pastelfjólubláan lit í endana til að lífga upp litinn. Hann notaði rótarlyftingarsprey til að blása hárið. Hitavörn spreyjaði hann í endana til að verja hárið gegn hitaskemmdum frá sléttujárni sem hann notaði til að liða endana. Einnig notaði hann allra nýjasta efnið frá PAUL MITCHELL sem er hárlakk sem heldur hárinu vel og gefur flottan glans. Nafn þess er STAY STRONG.

Notaður var steinefnafarði frá Young Blood við förðun á módelunum og var það Thelma Rut Egilsdóttir á Sjoppunni sem farðaði.

STAY STRONG Aukið álag Frábært þurrt hárlakk með á húðina góðu haldi. yfir veturinn DRY WASH B Þurrsjampó, frábært milli þvotta.

ergþóra Rós Lárusdóttir snyrtifræðingur segir það mjög mikilvægt að huga vel að umhirðu húðarinnar yfir veturinn. „Húðin er okkar stærsta líffæri og sér meðal annars um temprun líkamans, því hefur hiti og kuldi veruleg áhrif á hana. Álagið við að reyna bregðast við miklum hitabreytingum verður þess valdandi að húðin verður þurr og viðkvæm. Því er nauðsynlegt að næra húðina, gefa henni bæði raka og fitu. Þess má einnig geta að farði er góður kostur á veturnar því hann er ekki einungis gerður til þess að jafna húðlit og gefa fallega áferð heldur getur hann einnig verið nærandi, uppbyggjandi og svo er hann góð vörn gegn frosti og kulda.“

Bergþóra Rós Lárusdóttir, snyrtifræðingur og kennari í RFA.

Það er mikilvægt að húðin fái nægan raka yfir vetrartímann. Mynd: Getty

Bergþóra gefur okkur sex einföld ráð til að viðhalda heilbrigði húðarinnar allt árið um kring: 1. Drekktu vel af vatni. Vatnið er okkur lífsnauðsynlegt, það eykur útskilnað úrgangsefna úr líkamanum og eykur þannig hreinsun líkamans sem skilar sér í bjartari og fallegri húð. 2. Hreyfðu þig. Að hreyfa sig 3-4 sinnum í viku eykur bæði efnaskipti og blóðflæði líkamans, sem styrkir húðina og gefur henni fallegan ljóma. 3. Borðaðu hollt. Það skiptir máli hvað við látum ofan í okkur, mikilvægt er að borða fæðu sem er góð fyrir líkamann og ekki síst húðina. Sem dæmi um góða fæðu fyrir húðina má nefna spínat, hörfræ, hempfræ eða chia-fræ, ber, avocado, sítrónu og mangó, svo eitthvað sé nefnt, þetta er allt frábær fæða fyrir húðina. 4. Gefðu þér tíma til að sofa og hvílast. Þreyta, streita og áhyggjur auka gráma og hrukkumyndun í húð. 5. Skrúbbaðu eða burstaðu húðina reglulega (1-2 sinnum í viku) því það örvar bæði blóðflæðið og sogæðakerfið sem gefur húðinni yndislegan ljóma. 6. Gefðu húðinni næringu. Það þarf að næra húðina með dag/næturkremi, serum og maska til að viðhalda m.a góðum raka, teygjanleika, og fyrirbyggja ótímabæra öldrun.

Paul Mitchell hárvörur fást einungis á hársnyrtistofum.

Gerðu þetta að lífsstíl og þú siglir geislandi falleg/ur inn í veturinn.


ÞAÐ BYRJAR HJÁ ÞÉR

ANDLITIÐ ÞITT HEFUR ÞURFT AÐ ÞOLA MARGT

GEFÐU ÞVÍ EITTHVAÐ TILBAKA Haltu andlitinu í formi með nýja NIVEA MEN ACTIVE AGE kreminu sem hefur sexfalda virkni, er rakagefandi í allt að 24 klst, verndar húðina frá þurrki, eykur teygjanleika húðarinnar, stinnir, styður við frumuendurnýjun og minnkar hrukkur sjáanlega. Andlitskrem sem styrkir og verndar andlitið allan daginn.

niveamen.com


tíska & snyrtivörur Ert þú búin að prófa?

56

Helgin 3.-5. október 2014

Nýjar sveiflur í hártískunni Skiptingar í miðju, koparlitir, styttra hár og fléttur til hátíðabrigða er það sem vekur hvað mesta athygli í hártísku vetrarins.

A

rndís Guðjónsdóttir, hárgreiðslumeistari á Skugga, Hverfisgötu 37, er ekki hrifin af reglum þegar kemur að því að velja sér klippingu eða liti. Allt er leyfilegt. „Maður á að setja sér reglur sjálfur,“ segir Arndís. „En það sem mér persónulega finnst fallegt úr haustlínum hönnuðanna í ár er vel greitt hár með „wet-looki“. Arndís Þá er hárið sleikt Guðjónsdóttir. niður með geli og skiptingin gerð áberandi. Svo er hárið oft tekið saman í lágt tagl eða snúð. Það er mjög mikið um axlarsítt hár sem er skipt í miðju, mér finnst það mjög látlaust og smart. Hárið er að styttast en svo eru flétturnar, sem voru alveg dottnar út, mjög áberandi á tískupöllunum þetta haustið. Mínir kúnnar eru farnir að vilja styttra hár, stytturnar eru að hverfa og kaldir tónar eru að víkja fyrir heitari gylltum og kopartónum þegar kemur að litum. Svo er gaman að því hvað konur eru óhræddar við að leyfa gráu hárunum að njóta sín.“ Arndís segir það sérstaklega mikilvægt að hugsa vel um heilsu hársins yfir vetrartímann. Þá er loftið þurrara og því nauðsynlegt að gefa því auka raka. „Gott er að nota rakagefandi sjampó en einnig er gott að nota djúpnæringu einu sinni í viku og svo eru olíur líka mjög góðar fyrir hárið yfir veturinn. Það er ekki gott að þvo hárið of oft með sjampói því það þurrkar hárið. Svo má alls ekki gleyma góðri hitavörn áður en maður notar blásara eða önnur hitatæki.“

NIVEA Q10 Anti-Wrinkle CC Cream Dagkrem sem fellur að þínum húðlit, jafnar húðtón og sléttir misfellur, inniheldur Q10 og kreatín sem minnka hrukkur sjáanlega og vinna gegn myndun nýrra. Sólarvörn 15.

Fléttur eru málið í vetur. Skiptingar í miðju og sleikt hár voru áberandi hjá Prada.

Skiptingar í miðju og afslappaðar greiðslur hjá YSL.

Eucerin AtoControl Bath & Shower Róandi bað- og sturtusápa fyrir daglegan notkun. Hentar vel fyrir þurra og pirraða húð. Inniheldur 62% náttúrulegar olíur. Er án ilm- litar- og rotvarnarefna. Hentar ungbörnum. Virkni og þolanleiki er klínískt staðfestur.

Eucerin Aquaphor

Útsölustaðir: Apótek, Hagkaup og Fjarðarkaup

Mjög græðandi alhliða krem sem er án vatns og hentar því jafnvel sem kuldakrem. Hentar líka vel eftir meðferðir húðsjúkdómalækna, eftir húðflúr, á sprungna húð eða minniháttar brunasár eða sár. Flýtir fyrir endurnýjun húðarinnar. Er án ilm-, rotvarnar- og litarefna. Hentar jafnvel fyrir ungbörn.

Eucerin AtoControl Acute Cream Róandi húðkrem sem hentar vel þegar mild kláðaköst blossa upp. Hentar ungbörnum.

Eucerin In-Shower Body Lotion Ný húðmjólk frá Eucerin sem notuð er í sturtunni, einstaklega rakagefandi, gerir húðina mjúka og slétta, vottuð af húðsjúkdómalæknum.

Vitamin E Overnight Serum-In-Oil 28 ml Ný vörutegund frá The Body Shop sem eykur rakabirgðir húðarinnar meðan þú sefur og tryggir að húðin verði vel nærð, frísk og mjúk þegar þú vaknar. Verð: 3590 kr.

Vitamin E Aqua Boost Sorbet 50 ml Ný vörutegund frá The Body Shop. Létt krem sem veitir þyrstri húð kærkomna rakagjöf og kælingu í allt að sólarhring í einu. Verð: 2990 kr.


ENDurhEIMtu

uNglEgt gt útlIt útl húðArINNAr.

HJÁLPAR húðFruMuNuM AÐ ENDurNÝJA SIG hrAðAr NIVEA.com


tíska & snyrtivörur

58

Helgin 3.-5. október 2014

Máttur olíunnar Síðustu misseri hefur olía verið mun meira áberandi í snyrtivörum en áður. Áður fyrr var mælt með því að konur forðuðust vörur sem innihéldu olíu en nú er sagan önnur þar sem það virðist eins og snyrtivörumerki hafi uppgötvað mátt olíunnar og róandi áhrifin sem hún hefur á húðina. Olíur eru ríkar af lífsnauðsynlegum fitusýrum sem við fáum í fæðunni til að halda líkamanum heilbrigðum. Þá eru olíur sem eru hannaðar fyrir húðina okkar nauðsynlegar til að öðlast heilbrigða og glóandi húð. Við tókum Heiðar Jónsson tali og spurðum hann út í olíur og olíuæðið sem er komið hér heima og erlendis.

Á meðgöngu er sérstaklega algengt að konur verði varar við umfram olíuframleiðslu í húðinni þó þær hafi aldrei átt við það vandamál að stríða. Með því að nota góðan olíuhreinsi á meðgöngunni er hægt að koma í veg fyrir þetta og halda húðinni í góðu jafnvægi alla meðgönguna. Það má þó ekki gleyma restinni af húðinni og olíuvörur fyrir líkamann hafa verið vinsælar í sumar. Olíur mýkja að sjálfsögðu húðina vel en einnig gefa þær fallega og ljómandi áferð.

Sublime Body Royal Nutrition

Nýtt olíusprey fyrir líkamann sem gefur húðinni þægilega tilfinningu. Olían gefur húðinni góða næringu og viðheldur góðu rakamagni í húðinni. Að bera olíu á húðina eftir sturtu getur haft góð áhrif á hana. Leggið áherslu á að bera olíu á þurr svæði húðarinnar eins og olnboga, hné og hæla. Olíu má bera á húðina eins oft og ykkur finnst þurfa yfir húðina. Að nudda olíu yfir húðina rétt fyrir svefn getur einnig hjálpað ykkur að slaka vel á og sofa þar af leiðandi betur. Eftir hárþvott getur einnig verið gott að næra hárið með góðri olíu eins og líkamann. Hárolíur hafa notið gríðarlegra vinsælda og á stuttum tíma hefur þessi hárvara orðið skyldueign íslenskra kvenna. Hárið okkar mætir alls kyns utanaðkomandi áhrifum á hverjum degi sem getur orðið til þess að skemmdir myndist í hárinu, það þornað og slitnað. L’Oreal býður upp á tvær tegundir hárolía sem eru hugsaðar fyrir allar hártýpur og svo er sérstök olía fyrir litað hár. Extraordinary Oil fyrir hárið: Hárolíurnar frá L’Oreal gefa húðinni kærkominn raka í formi olíu. Olían mýkir hárið og gefur því fallega ljómandi áferð. Olíuna má bera í rakt hárið eftir hárþvott en það auðveldar það þegar þið greiðið úr hárinu. Olíuna má nota sem hitavörn þegar þið blásið á ykkur hárið. Einnig má nota hana í þurrt hár til að lífga upp á hárið áður en þið farið eitthvað fínt út eða bara í skóla og vinnu. Hárolíurnar sem eru nú þegar til eru með pumpu og það þarf lítið magn til að olían dreifi vel úr sér í hárið.

H

eiðar Jónsson sagði að miklar framfarir hefðu orðið í notkun olíu í snyrtivörum. Þær eru ekki þykkar eins og margir halda heldur hafa snyrtivörumerki þróað léttar og þunnar olíur sem fara hratt inn í húðina og skilja lítið annað eftir sig en mjúka og þægilega húð. Þegar húðin er ungleg, geislandi og í sínu besta formi eru húðfrumurnar tengdar saman með gnægð af olíum. En þegar við eldumst þá framleiðir húðin okkar minna af olíum sem gefa okkur hina fullkomnu húð sem er full af glóð. Þegar olíur eru bornar á húðina dragast þær strax inn undir efsta lag húðarinnar þar sem þær hefjast strax handa að betrumbæta blóðflæðið. Yfirleitt strax við fyrstu notkun sérð þú gríðarlegan árgangur á húðinni. Eftir mánaðar notkun hefur húðin fengið á sig geislandi yfirbragð og verður heilbrigð. Heiðar segist alltaf verið svolítið umdeildur að tala fyrir því að bera olíu á húð sem er olíurík fyrir og á þetta einnig við um hár. Ástæðan er að ofmata olíumettaðan flöt með meiri olíu. Að mati Heiðars þá eru olíu serum og krem er eitt það besta í kuldanum. Þessi olíu andlitskrem eru fyrir alla húð, nema hvað þurra húðin þarf þau oftar og meira. Munum að vatn og olía blandast ekki saman. Það þýðir að feit húð verður fyrir jafn miklu rakatapi í kulda og sú þurra. Olíukremið myndar verndandi húð gegn því að rakinn gufi upp og svo má bara hreinsa það sem eftir er af því, þegar inn er komið. Olíukremin eru einnig frábær á unglingana í kuldanum og fyrir þá sem þola illa klórinn í sundlaugunum. Margir viðskiptavinir spyrja mig einnig, „er þetta oilfree?“. Finnst þetta alltaf dálítið erfitt, því að ég veit að svo margar olíur, sem eru í dag hreinar af öllum þessum ertandi efnum, sem verið hafa í eldri minna hreinsuðum olíum, væru svo góðar fyrir margt af þessu fólki. Allar olíur, sem bara sitja utan á húðinni passa vel fyrir sjósund, til kuldavarnar. Í dag eru til olíur sem smjúga inn í húðina eins og fínasta silki og hverfa alveg af yfirborðinu, á augnabliki. Þessar fínu olíur eru byltingin, sem við erum að ræða um. Þessar nýjustu olíur eru fullkomnum í vöru úr náttúrunni, sem verður enn fullkomnari við kemíska meðhöndlun. Heiðar sagði okkur einnig að L’Oreal væri með á markaði hárolíur en hefur nú einnig á stuttum tíma sett í sölu fjórar nýjar vörur sem eru alveg einstakar. Þær innihalda allar olíu og leitast við að koma jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar, hreinsa húðina, næra hana og hægja á öldrun hennar.

Nutri Gold Extroaordinary

Nýleg húðvörulína frá L’Oreal sem einkennist af olíum. Hún er stútfull af náttúrulegum olíum unnin úr rósmarín, lavender, arganolíu, sheabutter, royal jelly og hvítu jasmín og rós. Bæði er fáanleg olía fyrir húðina sem er mælt með að sé notuð undir krem en einnig er rakakrem sem má nota sem dagog næturkrem en kremið inniheldur örfínar olíuagnir sem næra húðina vel. Olía getur nýst sem gott andoxunarefni fyrir húðina en þau efni leysa upp sindurefni í húðinni sem geta verið slæm fyrir hana og t.d. hraðað öldrun hennar. Nuddið nokkrum dropum af olíu yfir hreina húð á morgnana og berið svo á ykkur krem eða sólarvörn. Olíur geta einnig róað húðina sem þurrkast auðveldlega upp. Auðvitað á þetta við um fólk með mjög þurra húð en einnig konur sem nota mjög virk krem til að hægja á öldrun húðarinnar. Að nota olíu á undan virkum kremum getur komið í veg fyrir óþægindi af völdum þeirra. Einnig hefur það að setja fyrst olíu á húðina reynst vel þegar virk krem eru notuð þar sem olían greiðir leið fyrir virku kremin að komast lengra inn í húðina. Svo það má segja að það að nota olíur hægi á öldrun húðarinnar.

Unnið í samstarfi við L’Oreal og Heiðar Jónsson

Þegar fínar línur fara að dýpka þýðir það að það er að hægjast á olíuframleiðslu húðarinnar og hún er að missa raka. Með því að nota krem sem innihalda meiri olíu en önnur getið þið komið jafnvægi á húðina með því að auka olíurnar í henni. Olíuagnirnar sem Nutri Gold kremið inniheldur gerir það að verkum að olían kemst lengra inn í húðina og þegar agnirnar hitna ná þær yfir stærri svæði og næra því húðina betur en önnur krem.

Sublime Glow Cleansing Oil

Hreinsiolían frá L’Oreal er einföld í notkun. Þið þurfið lítið magn af henni, spautið smá af olíunni í lófann ykkar og nuddið olíunni saman við húðina. Gefið ykkur góðan tíma og hreinsið olíuna svo vel af húðinni. Eftir notkun er húðin mjúk og þægileg áferðar og eins og nafn vörunnar gefur til kynna þá er hún ljómandi. Mörgum finnst ef til vill undarlegt að notast við olíuhreinsi þegar þrífa á húðina og ef til vill halda margir að það að nota olíu muni auka olíumagn húðarinnar. Þvert á móti þá leitast olía í húðvörum við að koma jafnvægi á olíuframleiðslu húðarinnar og koma húðinni um leið í gott jafnvægi. Með því að nudda olíu saman við húðina mýkið þið og leysið upp olíu sem situr föst í húðinni. Hitinn sem myndast þegar þið nuddið húðina opnar svitaholurnar og þið náið að leysa upp olíu sem liggur langt inní húðinni. Ef þið notið rétta olíu til að hreinsa húðina þá náið þið að skipta út óhreinni olíu sem er að valda óhreinindum í húðinni með betri olíu sem nærir húðina. Eftir að hafa hreinsað húðina með olíuhreinsi á ekki að þurfa að nota nærandi krem. En ef þið finnið fyrir þurrk í húðinni þá er mælt með því að nota næringarríkt krem stuttu seinna. Þá liggur augum uppi að mæla með notkun á Nutri Gold Extraordinary rakakreminu.


FINNST ÞAÐ BESTA FYRIR ÞÍNA HÚÐ Í OLÍU? BECAUSE YOU´RE WORTH IT.

NÆRING,

ÞRÓTTUR,

LJÓMI

■ VEITIR HÚÐINNI NÆRINGU ■ GEFUR FRÍSKANDI LJÓMA ■ LÉTT OG FLAUELSMJÚK ÁFERÐ

Ytri áhrif og sífelldar veðrabreytingar í okkar norræna veðurfari geta verið þess valdandi að húðin virkar stíf og þurr. Þess vegna hefur L´Oreal skapað nýju Nutri Gold línuna með einstaklega endurnærandi jurtaolíum. Fullkomin húðumhirða, sem gefur þér flauelsmjúka húð sem geislar af þrótti.

NUTRI GOLD EXTRAORDINARY FACE OIL 3 dropar kvölds eða morgna ein og sér eða áður en þú berð á þig dagkrem. Olían smýgur létt inn í húðina án þess að skilja eftir sig fitutilfinningu og húð þín fær ljóma og öfluga næringu. NUTRI GOLD OIL-CREAM Inniheldur örsmáa einangraða dropa af olíu, sem bráðna á húðinni. Kremið gefur ríkulega næringu og raka allan daginn. Dekraðu við húðina með einstakri húðumhirðulínu.

NÝJUNG


tíska & snyrtivörur

60

Helgin 3.-5. október 2014

Smart að hugsa vel um skóna sína Höfuðhandklæðin frá Sif eru saumuð úr gæðabómull. Létt og þægileg í notkun og henta jafnt síðu sem stuttu hári og dömum á öllum aldri.

Fáanleg í 12 litum

Nánar um sölustaði á facebook

Sterkir leðurskór eru málið í vetur fyrir karla og henta vel í kuldanum og slabbinu. Að sögn Ragnars Ísleifs Bragasonar hjá Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar er gríðarlega mikilvægt að hugsa vel um skóna sína. „Það er mjög gott að bera leðurkrem á skóna. Ef maður er í skóm sem illa er hugsað um verður maður blautur í lappirnar og jafnvel veikur daginn eftir.“ Ragnar ber alltaf litlaust leðurkrem á sína skó og segir það gefast vel.

Starfsfólk Herrafataverzlunar Kormáks & Skjaldar, þau Björn Stefánsson, trommari í Mínus og Stones, Ragnar Ísleifur Bragason, smávörukóngur verslunarinnar og Margrét Erla Maack, sirkuslistakona með meiru. Ljósmynd/Hari

DIPLOMA • BACHELOR • MASTER

Brúnir skór

Brúnir leðurskór eru í tísku í vetur, frekar en svartir. Ragnar segir það vera hentugt því hvíta saltröndin sem kemur í snjónum sé miklu meira áberandi á svörtum skóm. Mikilvægt er að skórnir nái aðeins upp á ökklann, yfir kúluna. Svartklæddir þurfa þó ekki að örvænta því Ragnar segir mjög smart að vera í brúnum skóm við svartar buxur.

Fashion Marketing Fashion Design Event Management Fashion styling Luxury Marketing Management Fashion Communication

Háskólanám erlendis

Stígvél

á sviði skapandi gre in a

Í alþjóðlegum fagháskólum gefst nemendum einstakt tækifæri til að kynnast suðupotti hugmynda, með stefnum og straumum víða að úr heiminum. Í boði er hagnýtt nám, sem sameinar frumkvæði, hugmyndir og tækni og er í góðum tengslum við alþjóðleg fyrirtæki á sviði skapandi greina.

Strigaskór

Þegar veður leyfir í vetur er kjörið að breyta til að klæðast strigaskóm.

Svo mjúkar!

Skór fyrir alla

Kakíbuxur á 13.900 kr. Efni: bómull / polyester / stretch. Háar í mittið. Stærð 34 - 52 (54) Litur: blátt og svart.

Laugavegi 178 ( Bolholtsmegin ) l S. 555 1516 l Kíktu á Opnunartími: Virka daga kl. 11-18 Laugard. kl. 10-16

G

aborbúðin Fákafeni býður upp á fjölbreytt úrval skófatnaðar frá þýska fjölskyldufyrirtækinu Gabor. Saga fyrirtækisins hófst með slagorðinu „skór fyrir alla“ árið 1949. Meginmarkmið Gabor er að framleiða þægilega, vandaða og fallega skó fyrir allar konur. Skórnir eru þekktir fyrir gæði, glæsileika og síðast en ekki síst þægindi. Slagorðið „skór f yrir alla“ á einkar vel við þar sem Gabor framleiðir skó í stærðum 35 - 44 og einnig í hálfum númerum. Ennfremur eru skórnir framleiddir í þremur breiddum (f, g og h). Enn ein sérstaðan við Gabor eru stígvélin þeirra sem framleidd eru í mismunandi kálfavíddum, allt frá xs - xl.

síðuna okkar

Unnið í samstarfi við Gaborbúðina

Nú til dags þykir einstaklega töff að klæðast stígvélum í rigningu. Ragnar kveðst nota hvert einasta tækifæri sem gefst til að nota stígvélin sín, enda sé gaman að vera í þeim. „Þetta er svipað með stígvélin og reiðhjólahjálmana. Áður fyrr þótti hallærislegt að nota hjálm en núna er það ekkert tiltökumál. Það er eins með stígvélin, ef það rignir er rökrétt að klæðast stígvélum.“



62

Helgin 3.-5. október 2014

 KventísK a K ápur, úlpur, peysur og ponsjó

Veturinn skemmtilegasta tískutímabilið Kventískan í vetur er ótrúlega skemmtileg, að mati Evu Daggar Sigurgeirsdóttur hjá vefnum Tíska.is. „Veturinn er að margra mati skemmtilegasta tískutímabil ársins og það á klárlega við um okkur Íslendinga. Nú í haust er mikið um prjón, skinn og kápur. Um jólin verður svo mikið um gull og glitrandi tísku sem er svo skemmtileg.“

Sérsaumuðu fiðrildakjólarnir komnir í fleiri litum.

Káputískan er áberandi í haust að mati Evu. „Það er mikið um grófar og síðar kápur en maður sér í raun allar síddir. Það má segja að hver einasta kona ætti að geta fundið flotta kápu við hæfi.“ (Stella McCartney)

kr. 8.900 Frábær verð, smart vörur, góð þjónusta

Áberandi töskur, flottir klútar, stór hálsmen og armbönd verða númer eitt tvö og þrjú í vetur. (Dreis Van Noten)

Skyrtukjólar yfir buxur hafa rutt sér til rúms á ný. „Ég elska þennan stíl og hann virðist vera að ná miklu flugi.“ (Ann Demeulemeester)

Bláu húsin Faxafeni · S. 588 4499 ∙ Opið mán.- fös. 12-18 ∙ laug. 11-16

Glæsilegt fyrir brjóstagjöfina. Teg Brillant fæst C-G skálar á kr. 8.990,-

OPIÐ: Mán. - fös. 10 - 18, Laugardaga 10 - 14

Laugavegi 178 Sími 551-3366 www.misty.is

Ponsjó eru komin aftur í tísku. „Ponsjó eru algjör snilld á köldum haustdegi yfir gallajakka, leðurjakka eða hvað sem er. Þau eru til í mörgum útfærslum og geta komið í formi yfirhafna eða sem þunn flík innandyra. Allt virðist ganga þegar kemur að ponsjó trendinu hvort sem þau minna á stóran trefil, teppi eða eru prjónuð með kögri.“ (Vivienne Westwood)

Klassískar svartar buxur verða áberandi í vetur. „Þær fylgja eflaust því trendi að dragtir og jakkaföt á konur eru mikið í tísku og þá fylgir því oft svona klassískt trend eins og flottar klæðaskerasniðnar buxur og toppur.“ Gallabuxur eru alltaf klassískar. „Það eina sem breytist er auðvitað litir, þvottur og hvort þær séu rifnar, tættar eða bara heilar og fínar. (Yves Saint Laurant)


tíska & snyrtivörur

63

Helgin 3.-5. október 2014 Stígvélin verða vinsæl í vetur. „Það er líka gaman að segja frá því að hælarnir eru að þykkna og fylltu hælarnir á undanhaldi. Líka er mikið um flatbotna skó sem er gleðiefni.“ (Chanel)

Grófar peysur eru klárlega málið í vetur og það skemmtilega við þær er að þær koma í öllum stærðum og gerðum. (Pucci)

EyeSlices augnpúðar Ferskari augu á 5 mínútum Púðana má nota í 10 skipti

Úlpur voru mikið í tísku í fyrra og mátti víða sjá stuttar og þunnar dúnúlpur. „Þessi tíska er hvergi nærri hætt sem er gott fyrir okkur hér á landi, þar sem við þurfum jú allar að eiga eina flotta úlpu. Íslensk hönnun á borð við Cintamani og 66° Norður hjálpa líka til og hafa komið því til leiðar að útivistartískan er komin til að vera. (Hunter)

28.990 kr.

21.990 kr.

Upplýsingar um sölustaði:

32.990 kr.

NÝJAR VÖRUR

21.990 kr.

við

kó s m u elsk

VELKOMIN Í

facebook.com/Eyeslices/Iceland

28.990 kr.

32.990 kr.

23.990 kr.

19.990 kr.

19.990 kr.

19.990 kr.

SMÁRALIND

Vertu vinur á


tíska & snyrtivörur

64

Helgin 3.-5. október 2014

Marco Tuzzi

Stretch gallabuxur

Stærðir 36 - 41. Verð 15.995 kr.

Skóhöllin Eurosko Fjarðargötu 13 - 15

Stærðir 16-22. Verð 7.990 kr.

Firðinum Hafnarfirði. S. 555 4420

Curvy Fákafeni 9 S. 581 1552

Peysukjóll Stærðir 16-26. Verð 7.990 kr. Curvy Fákafeni 9 S. 581 1552

Flottur haustfatnaður X-TWO leðurjakki Fæst aðeins í svörtu. Stærðir 42-56. Verð 19. 980 kr. Belladonna Skeifunni 8 S. 517 6460

Silkikjóll

Peysukjólar vinsælir í vetur

Kemur einnig einlitur svartur og svartog hvítmunstraður. Stærðir: 36-44. Verð 37.990 kr. Stíll Síðumúla 34. S. 551 4884

Peysukjólar eru áberandi í tískuverslunum um þessar mundir. Hægt er að fá þá í ýmsum mynstrum og dökkum haustlitum eins og búrgúndí.

Marco Tuzzi Særðir 36 - 41 Verð 19.995 kr.

Skóhöllin Eurosko Fjarðargötu 13 - 15 Firðinum Hafnarfirði. S. 555 4420

Smart föt fyrir smart skvísur

DeLuca – peysukjóll Fæst aðeins í steingráu. Stærðir 38-54. Verð 17.990 kr. My Style Bæjarlind 1-3 S. 571 5464

Sí frá Armani Nýr ilmur í Sí línunni frá Armani. Ilmurinn er dýpri en sá fyrri með sýprusilmi. Toppnótan opnar með sólberjum, mandarínu og bergamot ásamt silkimjúkum keim af fresíu. Hjartað springur út með maírós og neróli. Botnnótan er dularfull og seiðandi patchouli, vanilla og viður.

Armani code ice frá Armani Ný og fersk túlkun á Armani code homme línunni. Austurlenskur kryddilmur með mintu þrennu, engifer og sítrónu, salvíu, lofnarblómi, blágresi og amber við. Ferskur og kraftmikill.

Bonbon frá Viktor&Rolf

Only the brave frá Diesel

Nýr ilmur frá Viktor&Rolf. Ilmurinn er eftirminnilegur með sprengju af ávaxtanótum, sólberjum og appelsínu blossom. Glasið er einstök hönnun sem er í slaufuformi. Eingöngu í völdum verslunum.

Nýr ilmur frá Diesel. Villtur og djarfur ilmur. Í grunntónum er olía úr greipaldin, sítrónugrasi og svörtum pipar. Í hjartanu er lavender, múskat, geraníum and kúmarín. Topptónar eru sedrusviður, vetiver og mosi með kókoshnetumjólkur ívafi.

Midnight romance frá Ralph Lauren Nýr mildur blómailmur úr bleikri bóndarós, hindberjum og svartri vanillu.


65

Helgin 3.-5. október 2014

Anna Kristín Magnúsdóttir sem rekur verslunina Kjólar og konfekt á Laugavegi 92 ásamt samstarfskonu sinni Lovísu Tómasdóttur sem hannar, sníðar og saumar í versluninni.

Yfir 20 mismunandi snið af „little black dress“ V ið leggjum áherslu á kvenleg snið í öllum stærðum. Það á að vera gaman að vera í kjólunum og okkur á einnig að líða vel í þeim,“ segir Anna Kristín Magnúsdóttir sem rekur verslunina Kjólar og konfekt á Laugavegi. Mikið er lagt upp úr úrvali af fallegum kjólum í versluninni. „Við erum mikið fyrir liti og eigum auk þess allskyns mynstur í ýmsum sniðum. Við eigum til dæmis yfir 20 mismunandi snið af hinum klassíska „little black dress“ en þar vísar Anna í svarta kjólinn sem Audrey Hepburn gerði ódauðlegan í myndinni Breakfast at Tiffany’s. Ásamt því að vera með yfir 20 vörumerki í versluninni sauma þær sjálfar kjóla. Þó verslunin sé þekkt fyrir gott framboð af kjólum er ýmislegt fleira á boðstólum, eins og snyrtivörur, skór, fylgihlutir, skartgripir, sokkabux-

Audrey "Bright Blue" stærðir 8-26

10.990,-

12.990,-

Fever" Gracie"

stærðir 8-18

Unnið í samstarfi við Kjólar og konfekt.

8.990,-

Desigual kjóll stærðir S-XXL

Fever "GEO PRINT"

stærðir 8-18

19.990,-

9.990,-

Unicorn "Sirkus"

Íslenskt merki Stærðir XS/S, S/M, M/L & L/XL

16.990,-

BYOUNG "Wine"

einnig til í svörtu stærðir S-XXL

12.990,-

ur, gollur og jakkar svo eitthvað sé nefnt. „Við fáum mjög oft nýjar vörur og erum duglegar að prófa eitthvað nýtt,“ segir Anna. Eins og nafn verslunarinnar gefur til kynna er einnig boðið upp á konfekt. „Við erum með konfekt frá Hafliða súkkulaðimeistara úr Mosfellsbakaríi. Hann er með besta konfektið á íslenska markaðnum í dag. Við seljum úrval af konfekti frá honum en við erum aðallega með súkkulaðikynningar þar sem við bjóðum upp á freyðivín með súkkulaðinu.“ Hópar geta tekið sig saman og fengið skemmtilegar kynningar og kennslu í séropnunum. „Það er margt skemmtilegt í boði eins og súkkulaðikynningarnar, vínkynningar, förðunarkennsla, eye-liner kennsla og ýmislegt fleira.“ Anna lýsir andrúmsloftinu í versluninni sem ævintýralegu og þægilegu. „Hingað á alltaf að vera gott að koma. Við leggjum okkur mikið fram við að veita ljúfa og persónulega þjónustu. Það er alltaf heitt á könnunni og smá sætt með því sem gestir og gangandi geta gætt sér á. Það er svo mikil orka og gleði hér á Laugaveginum og við bjóðum alla velkomna í heimsókn.“ Hægt er að nálgast meiri upplýsingar um Kjóla og konfekt á kjolar. is sem er facebook-síða verslunarinnar. Hægt er að panta kynningu fyrir hópa í gegnum netfangið kjolar@kjolar.is eða í síma 517-0200.

MARLA "green"

einnig til svartur stærðir 8-22

L.I.M.B "flower"

Stærðir 8-20

23.990,-

Kjólar & Konfekt Opnunartími: mánudaga-föstudaga 11:00-18:00 laugardaga 11:00-17:00 sunnudaga:12:00-16:00


tíska & snyrtivörur

66

Moroccanoil með nýja alþjóðlega herferð, innblásna af konum

Helgin 3.-5. október 2014 ryðjandanum Carmen Tal sem leitaði stöðugt að vörum sem gerðu hárið heilbrigt, fallegt og náttúrulegt. Einstök olíuformúlan virkar bæði til að mýkja hárið og undirbúa það fyrir efnameðferðir ásamt því að gefa hárinu fallegan heilbrigðan glans sem lokaáferð. Þessi vara gjörbylti hárvöruiðnaðinum og af sjálfsdáðum hefur vakið heimsathygli á arganolíu með því að kynna nýjan flokk af hárvörum með olíu, segir Fríða Moroccanoil er framleidd með innblæstri frá Miðjarðarhafinu og einkennist vörulínan af hinu velþekkta blágræna, appelsínugula og hvíta merki

ásamt hinum einstaka ilm. Margir telja að Moroccanoil sé olía en þetta er í rauninni hárvörumerki með olíuríkri og nærandi argan olíu, segir Fríða. Moroccanoil hárvörumerkið hefur stækkað línuna og í dag stendur hún sem heilt hárvörumerki sem þjónar öllum hárþörfum og nú í næstu viku setjum við á markað í fríhöfninni Moroccanoil Body línu sem er með argan olíuna að leiðarljósi sem er einstaklega spennandi, segir Fríða. Unnið í samvinnu við Regalo

M

oroccanoil er ávallt með puttann á púlsinum á nýsköpun og er í stöðugri leit að einföldum hágæðavörum,“ segir Fríða Rut Heimisdóttir, hárgreiðslumeistari og eigandi hjá Regalo sem er umboðsaðili fyrir Moroccanoil á Íslandi. Það sem byrjaði sem byltingarkennd vara hefur vaxið og dafnað með miklum vinsældum um allan heim og stimplað sig inn sem hágæðavara á innan við áratug. Moroccanoil er elskuð og dáð af stórstjörnum, á tískupöllunum, hjá stílistum kvikmynda- og sjónvarpsbransans, ásamt ritstjórum og konum víðsvegar um heiminn, segir Fríða. Kjarninn að velgengni okkar er gæði. Fyrsta varan okkar, upprunarlega Moroccanoil Treatment olían, var uppgötvuð af kanadíska braut-

Styrkjum starfsemi Krabbameinsfélagsins

Tökum bleikan bíl!

PRESENTED BY

moroccanoil.com

Konur veita innblástur

Fyrirtækið hleypti nýverið af stokkunum herferðinni Inspired By Women sem þýða má sem Konur veita innblástur. Andlit herferðarinnar er breska ofurfyrisætan og leikkonan Rosie Huntington-Whitely og er markmiðið með herferðinni að efla konur um allan heim og veita þeim innblástur. Hjarta herferðarinnar er stuttmyndaserían Inspired, eða innblásin, sem kvikmyndagerðarmaðurinn Bryce Dallas Howard hefur yfirumsjón með. Serían segir frá fimm mögnuðum konum sem hafa það að markmiði að bæta heiminn. Fyrir þá sem hafa áhuga á að kynna sér þetta einstaka verkefni eru myndbönd á netinu með þessu flotta verkefni á vefslóðinni www.inspiredbywomen. com og á www.youtube.com/moroccanoil.

Hreyfill / Bæjarleiðir er styrktaraðili árvekni átaks Krabbameinsfélagsins í október og nóvember Með hverri pantaðri ferð styrkir þú verkefni Krabbameinsfélagsins til að berjast gegn krabbameinum hjá konum. Af því tilefni höfum við sérmerkt bílana okkar enn á ný með bleikum taxaljósum og munu bílstjórarnir taka fagnandi á móti þér.

Taktu bleikan bíl næst þegar þú pantar leigubíl!

Kemur næst út 10. október

„Bleika slaufan” er til sölu í bílunum okkar frá 1. – 15. október.

Nánari upplýsingar veitir Gígja Þórðardóttir, gigja@frettatiminn.is, í síma 531-3312.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.