Heimili & hönnun

Page 1

40

heimili og hönnun

Eldhúsið er hjarta heimilisins Marta Rún Ársælsdóttir og Arnór Eyvar Ólafsson festu kaup á fallegri íbúð í Bryggjuhverfinu í sumar. Marta er mikil áhugamanneskja um mat og eyðir miklum tíma í eldhúsinu. Með dyggri aðstoð frá afa sínum gerði hún draumaeldhúsið að veruleika.

M

arta Rún Ársælsdóttir starfar í húsgagnaversluninni Norr11. „Þar næ ég að tengja saman mín tvö helstu áhugamál, hönnun og mat. Í frítíma mínum eyði ég svo óendanlegum tíma í að lesa uppskriftabækur, prófa nýjar uppskriftir og blogga um þær.“ Marta er einn af meðlimum bloggsíðunnar Femme. is þar sem hver bloggari hefur sitt sérsvið og er Marta iðin við að setja

inn uppskriftir af girnilegum réttum og kokteilum.

Handlaginn afi

Marta og Arnór keyptu íbúðina í sumar og fluttu inn fyrir tveimur mánuðum. „Fyrir mér er eldhúsið algjört aðalatriði og því fannst mér skipta miklu máli að taka það í gegn. Við höfðum hins vegar ekki alveg ráð á að skipta út eldhúsinnréttingunni svo við leituðum að

Helgin 4.-6. september 2015

Marta Rún er mikil áhugamanneskja um mat og prýða margar fallegar matreiðslubækur hillurnar í eldhúsinu. Nýjasta gersemin er nýútkomin bók Jamie Oliver: Everyday Super Food, en hann er í miklu uppáhaldi hjá Mörtu. Mynd/Hari.

ódýrari lausnum,“ segir Marta. Hún tók því til sinna mála og fór með einn skáp úr innréttingunni í Slippfélagið og fékk ráðgjöf frá varðandi málningu sem hentaði viðnum. Í framkvæmdunum fékk hún dygga aðstoð frá afa sínum, Gesti Guðnasyni. „Málningarvinnan var mikið þolinmæðisverk og áttum við afi dýrmætar samverustundir á meðan þessu stóð. Á milli umferða drukkum við svo ófáa kaffibolla.“ Marta hefur nú komið sér upp sérstökum kaffibar við gluggann. „Kaffivélin er án efa mest notaða eldhústækið.“

Veggfóður frá Hollandi

Marta hafði ákveðnar hugmyndir um hvernig hún vildi hafa vegginn fyrir neðan efri skápana. „Ég fæ mikinn innblástur á Pinterest og veggfóðrið fann ég þar. Mig langaði að flísaleggja vegginn, en það er bæði dýrt og óhentugt ef mig langar svo að breyta aftur. Ég fann hollenska netverslun á Pinterest, Behangfabriek, sem sendir ekki til Íslands, en ég ákvað að senda þeim tölvupóst og þeir bættu bara Íslandi við listann hjá sér.“ Veggfóðrið er hannað fyrir eldhús og á að þola hita og fituslettur. Það kemur sér vel

í Gallerí Fold mánudaginn 7. september og þriðjudaginn 8. september

Kristín Jónsdóttir

Listmunauppboð

Marta og Arnór máluðu innréttinguna og settu veggfóður á milli. Ljósin eru frá Lýsingu og hönnun og perurnar eru frá House Doctor og keyptar í Fakó. Við gluggann hefur Marta sett upp fallegan kaffibar. Mynd/Hari

uppboðin hefjast kl. 18 Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Forsýning alla helgina í Gallerí Fold

föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17 (þau verk sem boðin eru upp á þriðjudag) Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is

Rau›arárstígur 14 · sími 551 0400 · www.myndlist.is

Veggfóðrið er úr hollensku netversluninni Behangfabriek sem sendir nú til Íslands, þökk sé Mörtu. Mynd/Hari.

því Marta er dugleg að halda matarboð. Í þeim koma barstólarnir við eyjuna einnig að góðu gagni. „Þegar vinkonurnar eru mættar geta þær tyllt sér við eyjuna og sötrað rauðvín á

meðan ég klára að elda,“ segir matarbloggarinn Marta Rún. Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is


Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG

Allt að sjötíu prósenta afsláttur af sýningarvörum

ATH! 15% AFSLÁTTUR Í VEFVERSLUN epal.is* 4.-6. SEPTEMBER. HANS J. WEGNER, ARNE JACOBSEN, BORGE MOGENSSEN, PHILIPPE STARCK, ERIK MAGNUSSEN, OFL. Skeifan 6 / 5687733 / www.epal.is

*afsláttur á gjafavöru


Eik Cabin harðparket frá Balterio í planka stærðinni 189x1261x8mm. Hágæða harðparket með lokaðri fösun og framúrskarandi áferð, með slitþoli sem kemur verulega á óvart. Balterio er einn af virtustu framleiðendum heims á hágæða harðparketi sem stenst tímans tönn.

Suðurlandsbraut 20

108 Reykjavík

Sími: 595 0500

www.egillarnason.is


GERÐU KRÖFUR

Opnunartímar: mánudaga - föstudaga kl. 9–18 og laugardaga kl. 11–15


44

heimili og hönnun

Helgin 4.-6. september 2015

Vönduð húsgögn og falleg gjafavara Heimahúsið er fjölskyldurekið fyrirtæki sem flytur inn mikið úrval af húsgögnum alls staðar að úr heiminum. PB Home er sænskt hönnunarmerki sem á það sameiginlegt með Heimahúsinu að vera fjölskyldurekið fyrirtæki. Vönduð húsgögn og falleg gjafavara frá PB Home eru fáanleg í Heimhúsinu.

Fimm öpp fyrir heimilið

Tempere eldhúseða borðstofustóll frá PB Home.

Heima er best, það er einfaldlega bara þannig. En heimilin eru jafn misjöfn eins og þau eru mörg. Á sumum heimilum á hver hlutur sinn stað en á öðrum er sífellt verið að raða upp á nýtt, breyta og bæta. Ef þitt heimili tilheyrir seinni flokknum ættir þú að kíkja á eftirfarandi lista yfir fimm öpp sem eru kjörin fyrir áhugafólk um innanhúshönnun.

Riri hægindastóll ásamt fótskemli frá PB Home.

Color Snap Sniðug og skemmtileg lausn fyrir þá sem ætla að fara að mála til að máta hina ýmsu liti. Notast er við litagrunn frá Sherman-Williams. Appið getur einnig greint liti eftir myndum sem hlaðið er inn og virkar því á báða vegu. Color Snap inniheldur yfir 1500 liti sem má leika sér með á ýmsa vegu. Appið hefur nýlega verið uppfært og er því í toppstandi. Frítt fyrir Android og iOS

H

elst a ást r íða sænsk u hjónanna Pia og Benn er klassísk nútímahönnun. Árið 1991 varð PB Home til, en þannig náðu þau að tvinna saman áhugamál og störf sín. Þau líta þó ekki á fyrirtækið sem vinnu, heldur sem hluta af fjölskyldunni, sem hefur farið stækkandi með árunum. PB Home er nú alþjóðlegur heildsali fyrir innanhúshönnunarvörur ásamt því að vera með eigin framleiðslu. Tæp 25 ár eru frá því að Pia og Benn seldu sitt fyrsta húsgagn og eiga þau tryggan hóp viðskiptavina sem hefur fylgt þeim alla tíð. PB Home hefur hlotið ýmsar viðurkenningar fyrir vörur sínar, en fyrirtækið vann til dæmis til verðlauna fyrir bestu vöruna á alþjóðlegri hönnunarsýningu í Singapore. Húsgögn og gjafavörur frá PB Home eru fáanlegar hjá Heimahús-

Pinterest

inu í Ármúla 8. Meðal húsgagna má nefna skápa, sófaborð og stóla og meðal gjafavara má nefna lampa, spegla, bakka, ilmkerti, kertastjaka og fleiri smávörur. Í október á Heimahúsið von á stórri sendingu af gjafavörum frá PB Home og í desember mun verslunin fyllast af fallegum viðarhúsgögnum frá PB

Home. Heimahúsið hefur nú opnað glæsilega nýja heimasíðu þar sem hægt er að skoða vöruúrvalið og finna tengla á þau hönnunarmerki sem í boði eru. Nánari upplýsingar má nálgast á www.heimahusid.is Unnið í samstarfi við Heimahúsið

HAUSTTILBOÐ Á GESTAHÚSUM OG GARÐHÚSUM

TILBOÐ - BARNAHÚS 2,2m² kr. 149.900,- án fylgihluta

VH/14- 04

kr. 169.900,- m/fylgihlutum

50% afsláttur af flutningi á GARÐHÚSUM og GESTAHÚSUM á allar þjónustustöðvar Flytjanda.

Hvort sem þú ert að endurbyggja eða skreyta heimilið er Houzz app fyrir þig. Appið hefur að geyma yfir sjö milljónir mynda af fallegum heimilum og hægt er að flokka myndirnar eftir stíl, rýmum og staðsetningu. Myndirnar koma frá hinum og þessum fagaðilum úr innanhúsgeiranum, svo sem arkitektum, smiðum og hönnuðum. Houzz er á lista New York Times yfir bestu öppin fyrir heimilið. Frítt fyrir Android og iOS

Langar þig að sjá hvernig einstaka húsgögn og innanstokksmunir taka sig út í íbúðinni þinni áður en þú kaupir þau? Homestyler gerir þér það kleift auk fjölda annarra möguleika. Þú getur til dæmis tekið mynd af herbergi og hannað það algjörlega eftir þínu höfði í þrívídd með appinu og deildu því svo með öðrum notendum. Með því að skoða hönnun frá öðrum notendum er svo hægt að fá fjöldann allan af hugmyndum um hvernig hægt er að setja saman alls konar rými. Homestyler fær frábæra einkunn frá notendum sínum. Það komst til að mynda í hóp bestu „appanna“ frá Apple árið 2013 og tímaritið Architectural Digest telur Homestyler vera meðal innanhúsappa sem ekki sé hægt að lifa án. Frítt fyrir Android og iOS

70 mm bjálki / Tvöföld nótun

IKEA Catalogue

VERÐTILBOÐ - GESTAHÚS 25 m² með 9 m² yfirbyggðri verönd kr. 1.599.000,kr. 1.899.000,-

án fylgihluta.

með fylgihlutum og

byggingarnefndar teiknisetti.

34 mm bjálki / Tvöföld nótun

TILBOÐ - GARÐHÚS 9,9 m² - án gólfs kr. 299.900,- án fylgihluta

Grunnmynd og nánari

kr. 339.900,- m/fylgihlutum

upplýsingar á heimasíðu volundarhus.is GESTAHÚS og GARÐHÚS sérhönnuð fyrir íslenskar aðstæður

Nýi IKEA bæklingurinn datt inn um lúguna á heimilum landsins fyrir stuttu. Þeir sem vilja grípa í bæklinginn hvenær sem er geta glaðst yfir því að nú er hægt að sækja IKEA appið. Auk þess býður appið upp á aðra skemmtilega möguleika. Með því að skanna ákveðnar síður í prentaða bæklingum með appinu fæst aðgangur að fleiri myndum, myndböndum og hægt er að skoða rýmin í 360°. Með hjálp þrívíddartækni er svo mögulegt að sjá IKEA húsgögn fyrir sér í sínu eigin rými. Frítt fyrir Android og iOS

 Sveinbjörg kynnir

Litríkt haust

Sjá fleiri

28 mm bjálki / Einföld nótun

GESTAHÚS og GARÐHÚS á tilboði

á heimasíðunni volundarhus.is

Houzz

Homestyler

28 mm bjálki / Einföld nótun

www.volundarhus.is

Vinsældir Pinterest hafi vaxið hratt og keppir það nú við samfélagsmiðila líkt og Facebook og Instagram. Pinterest appið er algjör gullnáma fyrir fólk í framkvæmdaham því þar má finna fjöldann allan af myndrænum hugmyndum og tenglum á DIY (do it yourself) verkefni og með réttu leitarorðunum má finna innlit inn á dásamlega falleg heimili. Frítt fyrir Android og iOS

TILBOÐ - GARÐHÚS 9,7m² Vel valið fyrir húsið þitt volundarhus.is · Sími 864-2400

kr. 269.900,- án fylgihluta kr. 299.900,- m/fylgihlutum

Ný skemmtilega lífleg teppi úr merino ull og bómull frá Sveinbjörgu. Koma í stærð 140x100 cm og með tveimur mynstrum í fjórum litum. Lítil örsaga fylgir hverju teppi – kósí í stofuna sem og í barnaherbergið. Fást hjá Epal, Dúka, Kraum og Garðheimum sem og á sölustöðum um land allt. www.sveinbjorg.is


OPIÐ VIRKA DAGA KL. 11–18 LAUGARDAGA KL. 11–16

Jensen hægindastóll ⁄ Minotti

Anderson Quilt ⁄ Minotti

Perry sófaborð ⁄ Minotti

ÍTÖLSK GÆÐAHÖNNUN FRÁ MINOTTI Í rúm 60 ár hefur Minotti staðið í fremstu röð ítalskra húsgagnaframleiðenda og á þeim tíma átt stóran þátt í að móta og auka veg ítalskrar hönnunar og tísku. Gríðarleg tæknikunnátta og ómæld virðing fyrir handverki er galdurinn á bak við tímalausa hönnun Minotti þar sem listfengi, þægindi og gæði mynda eina heild.

HLÍÐASMÁRA 1

• 201 KÓPAVOGUR • 534 7777 • modern.is

ÞITT HEIMILI – ÞÍN STUND


B

Krókhálsi 4 110 Reykjavík

Sími 567 1010 www.parket.is

Opnunartímar: mánudaga - föstudaga kl. 10–18 og laugardaga kl. 11–15


Eik Impressive Vatnshelt harðparket með Hydra Seal. Meiri pressun í millikjarna og 100% lokuð fösun á milli borða. 25 ára ábyrgð. Allt að 10 sinnum meira rispuþol en áður.


48

heimili og hönnun

Helgin 4.-6. september 2015

Pyropet fjölskyldan stækkar Í tilefni hrekkjavökunnar verður Kisa fáanleg í svörtum lit í haust.

Kanínan Hoppa verður fáanleg í hvítu og bleiku. Myndir/Þórunn Árnadóttir.

Vöruhönnuðurinn Þórunn Árnadóttir hefur slegið í gegn með kertum sínum sem hún hannar ásamt Dan Koval undir merkjum Pyropet. Kisa og Bíbí hafa notið mikilla vinsælda á heimilum víðs vegar í heiminum og í vetur mun fjölga í Pyropet fjölskyldunni.

Hreindýrið Dýri verður fáanlegt í hvítu og bláu.

DEKA PROJEKT Þ INNIMÁLNING

I Á MÚRBÚÐARVERÐ

Deka Projekt 10, 10 lítrar (stofn A)

6.990

Deka Projekt 05, 10 lítrar (stofn A)

6.195

Deka Projekt 02, 10 lítrar (stofn A)

5.390

að var alltaf ætlunin að bæta fleiri dýrum við Pyropet fjölskylduna,“ segir Þórunn, en hún hannaði fyrsta kertið, Kisu, þegar hún var við nám við Royal College of Art í London árið 2011. Kertið lítur út eins og saklaus kettlingur við fyrstu sýn en inni í vaxinu er falin beinagrind sem birtist óvænt eftir að kveikt hefur verið á kertinu. Fuglinn Bíbí bættist svo við fyrr á þessu ári, en hann er til tveimur litum, gulum og grænum. Í vetur munu svo hreindýrið Dýri og kanín-

an Hoppa bætast í hópinn. PyroPet fjölskyldan verður því að kjarnafjölskyldu. „Hreindýrið er búið að vera frekar lengi á teikniborðinu, en það var frekar tæknilega flókið í framkvæmd vegna hornanna sem koma upp úr vaxinu,“ segir Þórunn. Fleiri nýjungar eru væntanlegar með haustinu, þar á meðal svört Kisa, en hún hefur hingað til aðeins verið fáanleg í bleikum og gráum lit. Svarta kisan mun koma í búðir um næstu mánaðamót í tilefni hrekkjavökunnar.

Finnska Búðin opnar í Kringlunni Finnska Búðin opnaði nýverið sína aðra verslun. Aðdáendur finnskrar hönnunar geta nú glaðst því að í nýju búðinni, sem staðsett er í Kringlunni, er boðið upp á enn meira úrval af vörum frá þekktum finnskum merkjum eins og Marimekko og Iittala. Upprunalega verslunin við Laugaveg mun starfa áfram og þar mun sama góða stemningin ráða ríkjum.

H Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

ugmyndin að Finnsku búðinni varð til í finnskri sögustund í Norræna húsinu fyrir rúmlega þremur árum,“ segir Maarit Kaipainen, einn af eigendum búðarinnar. „Við Satu Rämö hittumst þar með börnin okkar sem eru hálf-finnsk og hálfíslensk. Við erum báðar viðskiptafræðingar að mennt og erum auk þess vanar að gera hluti frekar en að hugsa um hluti. Búðin varð því fljótt að veruleika.“ Þriðji eigandinn, Piia Mettälä, bættist svo við fljótlega. Búðarreksturinn er meira og minna fjölskylduverkefni. „Við viljum alltaf gera allt sjálf og finnst mikilvægt að vera sýnileg í búðinni og skapa þannig hlýja og heimilislega stemningu,“ segir Maarit.

„Ég held að Íslendingar séu hrifnir af finnskri hönnun því þeir eiga margt sameiginlegt með Finnum, til dæmis smekk og húmor,“ segir Maarit Kaipainen, einn af eigendum Finnsku Búðarinnar sem opnaði nýverið sína aðra verslun sem staðsett er í Kringlunni. Mynd/Hari.

Vildu kynna finnska hönnun fyrir Íslendingum

Finnska Búðin hefur nú verið starfrækt á Laugavegi 27 í þrjú ár í fallegu bakhúsi. „Við seljum finnska hönnun sem okkur langaði að kynna fyrir Íslendingum, til dæmis glervöru, gjafavöru og fatnað,“ segir Maarit. Meðal merkja má nefna Marimekko sem er þekkt fyrir mikil gæði, litríka hönnun og klassísk og vel sniðinn fatnað. „Rýmið á Laugaveginum er lítið og þegar við tókum inn aukið úrval af fatnaði fórum við að horfa í kringum okkur eftir stærra húsnæði,“ segir Maarit. Finnska Búðin opnaði svo sína aðra verslun í Kringlunni í síðasta mánuði.

Múmínálfarnir alltaf vinsælastir

„Við erum staðsett á 3. hæð, á svokölluðum Bíógangi sem er verið

að endurhanna og betrumbæta um þessar mundir,“ segir Maarit. Nýja verslunin er rúmgóð og einkennist vöruúrvalið að mestu leyti af fatnaði og skóm. Auk þess má finna fallega fylgihluti, töskur, barnaföt og glervörur frá Iittala í versluninni. Í haust mun svo bætast jafnt og þétt við vöruúrvalið. „Við vorum að fá fallegar sendingar af trévörum og skarti frá Aarikka og lífrænum

skinnvörum frá Marita Huurinainen,“ segir Maarit. Múmínálfarnir verða svo að sjálfsögðu fyrirferðarmiklir í Finnsku Búðinni, enda algjört eftirlæti Íslendinga. Aðspurð um þennan mikla áhuga Íslendinga á finnskri hönnun segir Maarit það tengist líklega því hversu líkar þjóðirnar eru. „Íslendingar og Finnar eru með svipaðan húmor og smekk. Íslendingar treysta auk þess finnskri hönnun.“ Unnið í samstarfi við Finnsku Búðina


VÖNDUÐ NÝJUNG Í LESGLERAUGUM

KRAFTAVERK

Fæst núna líka í Pennanum frá Lyon í Frakklandi þróuðu þessa gleraugnalínu sem þjónar þörfum trend- og tískumeðvitaðra, beggja vegna Atlantsála. Gleraugun hafa slegið í gegn í hönnunarbúðum austan hafs og vestan, ekki síst í hinni trendsetjandi Colette í París sem og Selfridges og Conran í London. Sama er upp á teningnum hjá MoMA, verslun nýlistasafns New York borgar, þar segjast menn ekki hafa undan að fylla hillurnar af þessari skemmtilegu vöru. Gleraugun fást í styrkleikum +1 +1,5 +2 +2,5 og +3. Þau koma í klassískum og retró formtýpum og fást í fjölda glaðra lita, með silkimjúkri áferð. Þeim er pakkað í verklegt filthulstur sem síðan er í snotri öskju og sanngjarnt verð þessara trendý gleraugna kemur skemmtilega á óvart.

Sólgleraugu Á sólríkum sumardögum er notalegt að sitja utan dyra með kaffibolla eða annan góðan drykk, líta í blöðin, lesa bók eða sýsla við annað það sem krefst óskertrar sjónar. Því eru See Concept lesgleraugun jafnframt til sem sólgleraugu í öllum sömu styrkleikum. Að sjálfsögðu fást líka venjuleg sólgleraugu frá þessum ágætu drengjum.

Uppfinningarverðlaun Sem fyrr segir hófu 3 franskir námsmenn, þeir Xavier Aguera, Charles Brun og Quentin Couturier, að hanna eins konar loníettur fyrir foreldra sína til að nota þegar þeir fundu ekki gleraugun sín. Að námi loknu snéru þeir sér aftur að þessari hugmynd, svona með hálfum

huga og í einhverju bríaríi skröpuðu þeir saman fyrir 50 prótótýpum, sem þeir komu fyrir í bönkum og pósthúsum til að sjá hvernig þeim yrði tekið. Loníetturnar hreint út sagt slóu í gegn og færðu ungu mönnunum uppfinningarverðlaunin: Innover Entreprendre d‘ESCPEurope sem hjálpaði þeim að fjármagna næsta þrep, fjöldaframleiðslu vörunnar. Eitt leiddi af öðru og þessir athafnasömu menn byggðu á undraskömmum tíma upp fyrirtækið See Concept. Með flottri hönnun og skemmtilegu tvisti hafa þeir stýrt framleiðslu sinni beint inn í vinsælustu hönnunarbúðir heims, jafnframt því sem þeir hafa unnið til frekari verðlauna.

See Concept gleraugun fást í ÉgC í Hamraborg, Pennanum Kringlunni, Laugavegi 77 og Akureyri, sem og Minju á Skólavörðustíg.


Ti

ls

Helgin 4.-6. september 2015

öl

u

Opið hús sunndudaginn 6. september, kl. 15-15.30.

Glæsilegt einbýli Brekkutún 13, 200 Kópavogur Vel staðsett 288 m2 einbýlishús með góðri 90 m2 aukaíbúð og bílskúr, neðst Kópavogsmegin í Fossvogsdalnum. Staðsetningin er einstök með göngustíga í allar áttir en jafnframt í hjarta höfuðborgarsvæðisins. Um er að ræða fallegt fjölskylduhús með heitum potti og rúmgóðum palli. Góðar leigutekjur er hægt að hafa af aukaíbúðinni en henni fylgir sérinngangur og sérbílastæði. Tilboð óskast

Frekari upplýsingar á fasteignavef Mbl.

Kristín Guðmundsdóttir við vinnu á teiknistofunni á Laugarásvegi 71 árið 1960. Ljósmynd/Úr einkasafni Kristínar

Hugsýnn híbýlafræðingur og frumkvöðull

Einstök safari ferð til Tanzaniu á slóðir villtra dýra, ósnortinna náttúru og fornrar menningar.

Tanzania 22. janúar – 4. febrúar

Kristín Guðmundsdóttir var fyrst Íslendinga til að nema innanhússarkitektúr og færa það nýjasta í þeirri kunnáttu til Íslands. Nýverið kom út bók um feril hennar og framlag til íslenskrar hönnunar. Halldóra Arnardóttir listfræðingur ritstýrði bókinni sem ber heitið Kristín Guðmundsdóttir – híbýlafræðingur.

Við sjáum óviðjafnanlegt dýralíf í sínu náttúrulega umhverfi og kynnumst menningu heimamanna m.a. Masai þjóðflokknum. Ferðin er eitt ævintýri, einstök upplifun sem lætur engan ósnortin.

675.900.-* *Verð per mann í 2ja manna herbergi

Innifalið: AlltInnifalið: flug með sköttum og gjöldum. Allur flutningur milli staða með 5–7 manna safaríbílum. ogAllur íslenskur fararstjóri. Allt flug með sköttumInnlendur og gjöldum. flutningur milli staða með

588-8900 Transatlantic.is 588-8900 Transatlantic.is

Gisting og matur á upptöldum (eða sambæri-legum) 5–7 manna safaríbílum. Innlendur og íslenskur fararstjóri. gististöðum eins og er í ferðalýsingu. Gisting og matur á upptöldum (eða sambæri-legum) 588 8900 – transatlantic.is Öllgististöðum gjöld vegna aðgangs eins og lýst er. eins og erí þjóðgarða í ferðalýsingu. Fararstjóri Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, eigandi TanzaNice Farm í Tansaníu. Öll gjölder vegna aðgangs í þjóðgarða eins og lýst er. Fararstjóri er Dr. Anna Elísabet Ólafsdóttir, eigandi TanzaNice Farm í Tansaníu.

Eldhúsið í húsinu að Skildinganesi 32 (1960) er opið og tengist helstu umferðaræðum hússins, úr forstofu upp í svefnálmuna á efri hæð en einnig inn í dagstofurnar með útsýni út á hafið. Litasamsetning eldhússins er einföld en eitt af því sem einkenndi Kristínu var að nota fáa liti til að gera rýmið áhrifameira fremur en margbrotna litasamsetningu. Ljósmyndir/David Frutos.


heimili og hönnun 51

Helgin 4.-6. september 2015

H

ugmyndin að bókinni spratt út frá útvarpsviðtali sem ég tók við Kristínu Guðmundsdóttur árið 2006 fyrir RÚV í þáttaröðinni Borgin í hugskoti mannsins, segir Halldóra Árnadóttir.“ Í aðdraganda viðtalsins sagði Kristín við Halldóru: „Já, þetta kemur nú ekki oft fyrir, ég er ávallt annað hvort kona mannsins mín, móðir barnanna minna eða systir bróður míns.“ Halldóra komst að því í viðtalinu að hér væri á ferðinni fagmanneskja sem hafði frá mörgu að segja en hafði ekki endilega fengið hljómgrunn á sínum tíma. „Það var erfitt að hasla sér völl á sviði arkitektúrs og innanhússhönnunar í samfélagi sem stjórnað var af karlmönnum. Ég vildi því að gefa Kristínu rödd í gegnum bók sem myndi fjalla um hugmyndir hennar og innanhússinnréttingar og reyna að setja þær í samhengi við þær samfélagslegu aðstæður sem hún upplifði bæði í Chicago þar sem hún stundaði nám sitt og Íslandi,“ segir Halldóra. Upprunalega stóð til að bókin kæmi út á níræðisafmæli Kristínar, en vinnsla bókarinnar tók heldur lengri tíma en Halldóra gerði ráð fyrir í fyrstu, eða rúmlega tvö ár. „Það náðist því ekki, en hún fékk bókina á árinu sem hún varð 92 ára í staðinn,“ segir Halldóra.

Við, skólastelpur í Reykjavík, margar væntanlegir sérfræðingar í einhverju fínu, vildum í laumi allar verða eins og hún.

bæði varðandi tækjabúnað í eldhúsum og efnis-og litaval. Nú er gert ráð fyrir öllum þessum þáttum en nýjungarnar lágu líka í því að undirbúa eldhúsin fyrir nýja matreiðslu. Kristín kom með margar uppskriftir frá Bandaríkjunum og kenndi bæði húsmæðrum og Húsmæðraskólum að matreiða þær,“ segir Halldóra. Í bókinni má finna nokkrar þessara uppskrifta sem lesendur geta spreytt sig á. Þörfin fyrir þessa umræðu hefur greinilega þótt tímabær. Á meðan undirbúningur bókarinnar stóð yfir fékk Halldóra einstök viðbrögð hjá helstu rannsókna- og hönnunar-

Erla María Markúsdóttir erlamaria@frettatiminn.is

Kristín Guðmundsdóttir – híbýlafræðingur, er nýútkomin bók um feril híbýlafræðingsins og frumkvöðulsins Kristínar Guðmundsdóttur. Hið íslenska bókmenntafélag sér um útgáfu.

danskar

innréttingar

í öll herbergi heimilisins

Frú Vigdís leit upp til Kristínar

Kristín var aðeins tvítug þegar hún steig um borð í Brúarfoss árið 1943, í miðju stríði, sem sigldi síðan yfir Atlantshafið og lagðist að bryggju í New York 21. júlí. Hún stundaði nám í innanhússarkitektúr við Northwestern háskólann í Chicago og sneri heim til Íslands fjórum árum seinna. Talað er um að hún hafi komið heim með ameríska eldhúsið. „Kristín átti frumkvæði að mörgum nýjungum í innanhússarkitektúr, sérstaklega hvað varðar hönnun eldhúsinnréttinga og notkun litasamsetninga. Hún var fyrst til að halda þeim viðhorfum á loft að eldhúsið, sem þá var einkum vinnustaður kvenna, þarfnaðist heildstæðs skipulags þar sem tekið væri tillit til hagræðingar í fyrirkomulagi innréttinga, og innleiðingar vinnusparandi heimilistækja,“ segir Halldóra. Kristín innleiddi jafnframt nýjan hugsunarhátt gagnvart eldhúsinu og heimilinu. „Sú hugsun hefur haft áhrif á uppbyggingu bókarinnar og val á meðhöfundum allt eftir sérsviðum og þekkingu hvers og eins,“ segir Halldóra. Meðal höfunda sem eiga kafla í bókinni er Vigdís Finnbogadóttir. Hún talar meðal annars um hversu mikil fyrirmynd Kristín var. „Hún var falleg, flott og smart þegar hún kom heim frá Bandaríkjunum 1947 og við skólastelpur í Reykjavík, margar væntanlegir sérfræðingar í einhverju fínu, vildum í laumi allar verða eins og hún,“ skrifar Vigdís í aðfaraorðum bókarinnar.

þitt er valið

Þú velur að kaupa innréttinguna í ósamsettum einingum, eða lætur okkur um samsetninguna. Að sjálfsögðu önnumst við líka uppsetningu og endanlegan frágang fyrir þá sem þess óska – fullkomin þjónusta, eigið verkstæði.

Eldhús sem standast tímans tönn

Fjölbreytt úrval aF hurðum, Framhliðum, klæðningum og einingum, geFa þér endalausa möguleika á að setja saman þitt eigið rými.

sterkar og glæsilegar

við hönnum og teiknum Fyrir þig betri stoFan

Við gerð bókarinnar kom spænski ljósmyndarinn David Frutos sérstaklega til landsins til að taka ljósmyndir af völdum innréttingum Kristínar. „Þessi sjónræni þáttur er mikilvægur því eitt markmiða bókarinnar var að sýna fram á hversu nútímaleg eldhúsin eru enn, þrátt fyrir háan aldur. Þau eiga enn fullt erindi til komandi kynslóðar og fræða fólk enn um eiginleika eldhússins,“ segir Halldóra. Við nánari skoðun á verkum Kristínar sést hve stíllinn hennar á vel við þá strauma sem eru ríkjandi í innanhússhönnun í dag. „Þetta þýðir aðeins að Kristín var á undan sínum tíma. Hún bar hugmyndir heim frá Bandaríkjunum,

sjóðum. „Sem dæmi má nefna R ANNÍS, Hagþenki, Miðstöð íslenskra bókmennta, Húsfriðunarsjóð, Hönnunarsjóð Auroru og Hönnunarsjóð. Svo má ég til með að nefna Kristínu sjálfa og fjölskyldu hennar. Án trausts þeirra og stuðnings hefði bókin aldrei orðið til.“

Komdu með eða sendu okkur málin af eldhúsinu, baðinu, þvottahúsinu, anddyrinu eða svefnherberginu - og við hönnum, teiknum og gerum þér hagstætt tilboð í glæsilega danska innréttingu í hæsta gæðaflokki og vönduð raftæki á vægu verði.

Opið: Mán. - föst. kl. 09-18 Laugardaga kl. 11-15

Askalind 3 • 201 Kópavogur • Sími: 562 1500 • friform.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.