STILLIR VÆNTINGUM Í HÓF VEGNA EM-MYNDAR LAMBALUNDIR LÆKNISINS AÐ FLJÓTA ER ÁVÍSUN Á RÓLEGRA LÍF
HLÍN EINARS HERINN VAR LÍFLÍNA
SÍÐASTA VÍGI HOMMAFÓBÍUNNAR LAUGARDAGUR
28.05.16
Mynd | Hari
Á FERÐ UM VESTURLAND KINNALITUR VERÐUR AÐ VERA Í SNYRTITÖSKUNNI
6
Murray sláttuvélar frá Hvelli Loksins eru gæða sláttuvélarnar aftur fáanlegar á Íslandi, allar vélarnar eru framleiddar í Evrópu með nýjustu umhverfisvænum gæðamótorum frá Briggs og Stratton.
Varist eftilíkingar!!
Heimilisvélin. Verð kr. 69.739,-
Stóra heimilisvélin með drifi. Verð kr. 89.362,-
Fyrir Atvinnumannin og Sveitarfélög. Verð kr. 125.771,-
Murray EQ400 Briggs & Stratton 450E Series 125cc OHV bensínmótor. Sláttubreidd 46 cm Afturkast með 60 l poka og möguleika á “Mulching” 6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 cm 18 cm hjól Tvær saþátta hæðarstillingar
Murray EQ500X Ready Start Briggs & Stratton 575EX Series 140cc OHV bensínmótor. Sláttubreidd 46 cm Sjálfkeyrandi drif 3.6 km/t. Afturkast með 60 l poka og “Mulching” (hökkun) 6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 cm 18 og 28 cm hjól Ein saþátta hæðarstilling fyrir öll hjól.
Murray EQ700X Ready Start Briggs & Stratton 750EX Series 161cc DOV bensínmótor. Sláttubreidd 53 cm Sjálfkeyrandi drif 3.6 km/t. Afturkast með 70 l poka og “Mulching” (hökkun) 6 hæðarstillingar, klippir 28 - 92 cm 20 og 28 cm hjól Ein saþátta hæðarstilling fyrir öll hjól.
Hvellur • Smiðjuveg 30, 200 Kópavogur • www.hvellur.com • s: 577 6400 Opið virka daga 9:00 - 18:00 og 12:00 - 16:00 á laugardögum.
…viðtal
2 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Hjálpræðisherinn var stökkpallur aftur út í lífið
Hlín Einarsdóttir veit enn ekki hvort hún verður ákærð fyrir að senda fyrrverandi forsætisráðherra fjárkúgunarbréf á síðasta ári. Hún reynir að hugsa ekki of mikið um hvernig málið fer. Hægt og rólega hefur hún fikrað sig aftur út í lífið og er nú aftur farin að vinna við það sem hún elskar Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is
É
g er á mjög góðum stað í dag. En ég var virkilega veik á þessum tíma og mjög langt niðri andlega. Ég glími við jaðar persónuleikaröskun sem getur orðið mjög slæm. En það er samt alls ekki afsökun,“ segir Hlín Einarsdóttir, ritstjóri Sykur.is, og vísar þar til atburðarásar sem átti sér stað fyrir ári þegar hún og Malín Brand sendu Sigmundi Davíð Gunnlaugssyni, þáverandi forsætisráðherra, fjárkúgunarbréf. Þær voru handteknar í kjölfarið og bíða þess nú hvort ákært verði í málinu eða ekki.
Langaði til að gera eitthvað
Skömmu síðar kom svo upp annað mál í tengslum við nauðgun sem Hlín segist hafa orðið fyrir af hálfu fyrrum samstarfsfélaga síns. Hinn meinti nauðgari kærði þær systur fyrir fjárkúgun en hann greiddi þeim sjö hundruð þúsund krónur fyrir að kæra sig ekki. Hlín lagði þó að lokum fram nauðgunarkæru á hendur honum. Bæði málin eru enn til rannsóknar. Hlín hefur hins vegar ekki setið auðum höndum og beðið eftir málalyktum. Fyrst um sinn dró hún sig reyndar alveg í hlé, horfði ekki á fréttir og útilokaði sig alveg frá samfélaginu, en vissi að það gat ekki gengið til lengdar. Eftir að hafa dvalið á geðdeild í viku og fengið viðeigandi aðstoð fór hún á endurhæfingarlífeyri, enda metin óvinnufær. Hún hafði samt löngun til að gera eitthvað og leitaði sér að verkefnum.
Fékk ástæðu til að fara á fætur
„Það sem bjargaði mér í rauninni var að í september 2015 fór ég niður í Hertex, sem er nytjamarkaður Hjálpræðishersins, staðsettur rétt hjá heimili mínu, og bauð fram krafta mína. Ég veit ekki ennþá af hverju ég fór þangað, en verkefnastjórinn tók mér fagnandi og bauð mig velkomna. Ég hef nú verið í sjálfboðavinnu
Steindi hafði samband við mig og þetta er bara fyndið. Ég verð að geta hlegið að þessu. Ég hef mikinn húmor og hlæ mikið alla daga. Ef ég get gert grín að sjálfri mér svona þá er það bara gott
þar í marga mánuði og sinnt ýmsum verkefnum. Það var það sem kom mér aftur af stað. Ég hafði ástæðu til að fara á fætur og fara út úr húsi. Hjálpræðisherinn var minn stökkpallur aftur út í lífið. Svo þróaðist þetta þannig að ég fór meira að sinna markaðsstörfum heldur en að vera í versluninni. Út frá því fór ég svo að skrifa á Sykur. is, hjá Kvennablaðinu og nú er ég orðin ritstjóri þar,“ segir Hlín sem er mjög þakklát Steinunni Ólínu Þorsteinsdóttur, ritstjóra Kvennablaðsins, fyrir að hafa trú á sér og hafa treyst henni fyrir þessu verkefni.
Dómari í spurningaþætti
„Ég er aftur farin að vinna við það sem ég elska. Vinnutíminn minn er sveigjanlegur og ég vinn mikið heima, sem styrkir sambandið við börnin mín. Ég held ég myndi ekki treysta mér í að vinna hefðbundinn vinnutíma, frá 9 til 5, ekki í dag,“ viðurkennir Hlín sem tekur jafnframt fram að hún sé dugleg að vinna í sjálfri sér og þiggja þá hjálp sem henni býðst. Hlín tekur annars öllum verkefnum fagnandi og þau hafa ýmsum toga komið inn á borð til hennar á síðustu mánuðum. Hún fer til að mynda með hlutverk dómara í nýjum spurningaþáttum sem nefnast Ghettó betur og eru í umsjón Steinda jr. og verða sýndir á Stöð 2 í sumar, en í þáttunum gerir Hlín svolítið grín að sjálfri sér.
Þetta var auðvitað ég, en samt ekki.“
Þorir ekki aftur í samband
Hlín hefur verið á lyfjum vegna veikindanna en er nú hægt og rólega að minnka skammtinn. „Ég vil helst ekki taka lyf. Dagsdaglega er ég ekki lasin. Þetta brýst fram þegar ég þarf að takast á við erfiðar tilfinningar. Þá veikist ég. Ég held ég fari aldrei aftur í samband. Ég er mjög hrædd við það. Stundum fer ég inn á Tinder en spyr
sjálfa mig strax hvað ég sé eiginlega að gera. Ég hef engan áhuga á þessu. Það hentar mér mjög vel að vera einhleyp þó vissulega sé það stundum erfitt fjárhagslega.“ Hlín á tvö börn, 10 og 12 ára, sem eru að mestu leyti hjá henni. Hún segir þau hafa verið ótrúlega skilningsrík vegna veikinda móður sinnar. „Börnin mín hafa lítið þurft að finna fyrir þessu, sem betur fer. Það tækluðu allir í kringum mig þetta mál rosalega vel og ég og börnin mín erum bestu vinir.“
„Steindi hafði samband við mig og þetta er bara fyndið. Ég verð að geta hlegið að þessu. Ég hef mikinn húmor og hlæ mikið alla daga. Ef ég get gert grín að sjálfri mér svona þá er það bara gott.“
„Fólk horfir ekki undarlega“
Aðspurð hvernig viðmóti hún hafi mætt frá fólki eftir atburðina síðasta sumar, segir Hlín ekki nokkurn mann hafa minnst á málið við sig. „Það er eiginlega alveg ótrúlegt. Sama hvar ég kem þá eru allir ótrúlega almennilegir og fólk horfir ekki undarlega á mig,“ segir Hlín og brosir. „Góður vinur minn ráðlagði mér að bera höfuðið átt og brosa framan í alla. Og ég hef gert það. Ég vil bara reyna að halda áfram.“ Hlín veit sjálf ekki hver staðan á málum hennar er hjá lögreglunni, en hún segist ekki óttast niðurstöðuna, hver sem hún verður. „Ég verð að taka því sem koma skal. Ég get ekki breytt neinu, nema sjálfri mér og reynt að verða betri manneskja. Leggja mitt af mörkum til samfélagsins. Ég er að gera það mikið af frábærum hlutum núna að ég hugsa ekki of mikið um þetta. Fyrir sex til átta mánuðum fór ég ekki út úr húsi en hingað er ég komin í dag. Það er eiginlega alveg ótrúlegt.“
Missti alla tengingu
Hlín hafði verið veik í þó nokkurn tíma áður en atburðarásin með bréfið fór af stað. En veikindin ágerðust mjög hratt síðasta vor. „Ég var búin að vera í sambandi með manni um tíma og ég var mjög lasin í því sambandi. Virkilega lasin. Sambandinu lauk en svo var mér nauðgað í apríl og þá missti ég alla tengingu við raunveruleikann. Þegar ég lít til baka þá veit ég ekki hvaða kona þetta var. Mér finnst ég vera að horfa á bíómynd.
Líður vel Hlín segist vera á mjög góðum stað í dag, en fyrir ári var hún virkilega veik af jaðar persónuleikaröskun. Mynd | Hari
Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 • ritstjorn@amk.is Útgefandi: Gunnar Smári Egilsson. Blaðamenn: Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, gudrunveiga@amk.is; Kidda Svarfdal, kidda@amk.is og Sólrún Lilja Ragnarsdóttir, solrunlilja@amk.is. Framkvæmdastjóri og auglýsingastjóri: Valdimar Birgisson. amk… er gefið út af Morgundegi ehf. og er prentað í 83.000 eintökum í Landsprenti.
4 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Láttu varalitinn endast allan daginn Það er ferlega þreytandi að þurfa sífellt að vera að laga og passa upp á varalitinn. Hægt er að nota ýmsar leiðir til þess að láta varalitinn endast betur, þar á meðal þessi þrjú skref.
1
Skrúbbaðu varirnar létt með hringlaga hreyfingum og notaðu svo góðan varasalva. Þannig fjarlægir þú dautt skinn og nærir varirnar, sem gerir það að verkum að áferð varalitarins verður fallegri. Settu örlítið af fljótandi farða eða hyljara yfir varirnar. Þetta dempar bleika litinn á vörunum þannig að ef þú velur ljósan varalit þá nýtur hann sín betur. Einnig nýtist farðinn sem grunnur fyrir varalitinn þannig að hann helst frekar á vörunum. Notaðu rakagefandi varalit, farðu eina umferð og púðraðu létt yfir varirnar. Farðu svo aðra umferð með varalit. Þerraðu varirnar í lokin með pappírsþurrku.
2
50%
40% 60%
LÁGMARKSAFLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM NÚ
40%
Markaður Smáratorgi
Smáratorgi, Kópavogi
Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-18.00 Sunnudaga 12.00-18.00
60% 40%
3
50%
Outlet Grafarvogi
Vínlandsleið, Grafarholti
Opið virka daga 11.00-18.00 Laugardaga 11.00-16.00 Sunnudaga 13.00-17.00
Dove brúnkukrem er gott fyrir húðina og frábært fyrir útlitið Rakagefandi húðkrem sem byggir smám saman upp fallega brúnan húðlit. Inniheldur náttúrulega litarefnið DHA og Cell-Moisturisers® sem næra húðina og metta hana af raka.
Augnförðun í björtum, bláum litum er vinsæl.
Aðaláherslan verður á húðina í förðunartísku sumarsins
Fallegur kinnalitur er nauðsynlegur í snyrtibudduna á þessum árstíma
Þ
að er rosalega margt í gangi en svona samkvæmt því sem ég hef séð á tískupöllunum erlendis er mikil áhersla á húðina og að leyfa henni að njóta sín. Ljómandi húð verður mjög áberandi, „highlight“ og léttar skyggingar,“ segir Sara Dögg Johansen sem er þekkt nafn í förðunarbransanum á Íslandi og annar eigenda Reykjavík Make Up School, þegar hún er spurð að því hverju við megum eiga von á í förðunartískunni í sumar. Samhliða ljómandi húð eigum við annað hvort eftir að sjá áberandi augnförðun eða æpandi varaliti. „Ef við tökum áfram mið af tískupöllunum þá erum við að tala um létta og náttúrulega augnförðun með til dæmis rauðum vörum eða alveg öfugt, áberandi augnförðun og „nude“ varir.“ Sara segir bjarta, bláa liti vera vinsæla á augun núna, bæði í formi augnskugga og „eyeliner“ og að þá sé slík förðun pöruð með minna áberandi varalit. „Lykilatriði í sumar er að leggja áherslu á annað hvort varir eða augu, ekki bæði,“ segir Sara sem þorir þó ekki að lofa að trendin af tískupöllunum nái endilega alla leið til Íslands. Gerviaugnhár hafa verið mjög vinsæl á meðal íslenskra kvenna undanfarið og virðast vinsældir þeirra ekkert vera að dvína. „Gerviaugnhár hafa komið rosalega sterkt inn upp á síðkastið og þeirri tísku er hvergi nærri lokið, það eru eiginlega bara allir með slík augnhár í dag,“ segir Sara. „Við eigum eftir að sjá íslenskar stelpur leggja mikla áherslu á augnhárin í sumar, úrvalið af
Rauðar varir verða áberandi í sumar.
augnhárum er orðið mjög fjölbreytt og hægt að fá svo falleg náttúruleg augnhár. Þú getur fengið stök augnhár, hálf og heil þannig að allir geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Augnhárin munu fá að njóta sín í sumar og alveg óþarfi að hafa augnskugga eða „eyliner“ með. Ljómandi húð og falleg augnhár eru alveg nóg. Og láta svo fallegt gloss setja punktinn yfir i-ið.“ Sara segir glossið yfirleitt detta út yfir vetrartímann en koma svo aftur þegar sólin fer að skína. „Glossið dettur alltaf inn þegar líða fer að sumri. Ferskjulitað gloss er vinsælt núna og svo gloss í rauðum tónum. Það er einmitt mjög gaman að sjá hvað rauðar varir eru að koma sterkt inn núna, af því þær eru yfirleitt frekar tengdar jólunum.“ Það sem er nauðsynlegt í snyrtibudduna í sumar, að mati Söru, er fallegur kinnalitur. „Kinnalitur verður alltaf rosalega vinsæll á sumrin. Hann gefur andlitinu ákveðinn frískleika og ljóma. Bæði „highlight“ og kinnalitur gefa andlitinu líf og bjartara yfirlit. Kinnalitur er algjört „möst“ yfir sumartímann.“
Tveir styrkleikar – fyrir ljósa/miðlungsdökka húð og fyrir miðlungsdökka/dökka húð.
#sönnfegurð Nú renna 8 kr. af öllum seldum Dove vörum til The Body Project sem vinnur að bættri líkamsmynd stúlkna á Íslandi. Lesið meira um verkefnið á www.sonnfegurd.is Sara Dögg Johansen, annar eigenda Reykjavík Make Up School.
Vítamín og bætiefni Gula miðans eru sérstaklega valin og þróuð fyrir íslenskar aðstæður. Þess vegna hefur Guli miðinn verið hluti af daglegu lífi Íslendinga í 25 ár. Kynntu þér úrvalið á gulimidinn.is
VERTU MEMM! LYO N
…heilsa
6 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
frá
9.999 kr.
*
júní - sept.
E D I NBORG
frá
9.999 kr.
*
júlí - okt.
á Tenerife með GamanFerðum!
D U B LI N
frá
7.999 kr.
*
júní - des.
NICE
9.999 kr.
*
júní - sept.
S TOKKHÓLM UR
frá
7.999 kr.
*
maí - júní
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
Að fljóta í þyngdarleysi er góð leið til þess að slaka á og hugleiða.
Að láta sig fljóta hefur magnaða kosti Hefur sýnt sig að þeir sem stunda flot reglulega eru miklu rólegri í daglegu lífi og láta streituna síður ná til sín
E
itt stærsta heilsufarsvandamál nútímans er streita og flot er mjög gott svar við því. Að fljóta í þyngdarleysi í vatni losar um streitu og veitir gífurlega vellíðan,“ segir Guðrún Kristjánsdóttir, sem á og rekur heilsuhofið Systrasamlagið á Seltjarnarnesi, ásamt systur sinni Jóhönnu Kristjánsdóttur. Þegar systurnar opnuðu Systrasamlagið fyrir þremur árum var eitt af því fyrsta sem þær gerðu að efna til samflota. „Við byrjuðum nú bara eins og hverjir aðrir nördar upp í Neslaug,“ segir Guðrún og hlær. „Okkur fannst vöruhönnuðurinn Unnur Valdís Kristjánsdóttir vera með gullmola í höndunum en hún hannaði flothettu og fótaflot sem gerir það að verkum að þú getur gjörsamlega sleppt þér og flotið í laug. Við prófuðum hönnunina og sáum strax að þarna var eitthvað sem við þyrftum að koma á framfæri við almenning, þannig að við fórum að efna til samflota þar sem fólk gat fengið lánaðar hettur og prófað.“ Að sögn Guðrúnar hefur orðið sannkölluð sprenging síðan þær systur voru fyrst að láta sig fljóta fyrir þremur árum. „Það hefur orðið sprenging hvað vinsældir flotsins varðar, það hefur eiginlega orðið einhverskonar vakning og að láta sig fljóta hefur aldrei verið vinsælla. Núna eru þó nokkrar sundlaugar farnar að bjóða upp á samflot og við finnum ótrúlegan áhuga allsstaðar frá, bæði frá Íslendingum og ferðamönnum.“ Mikið hefur verið rannsakað hvaða áhrif flot hefur á heilann. „Svokallaðir flottankar hafa verið mjög vinsælir í Bandaríkjunum og víðar. Þá fer fólk inn í flot og lætur sig fljóta í söltuðu vatni í klukkutíma og eru vísindamenn mikið að rannsaka núna hvaða áhrif það hefur á heilann að fljóta um í þyngdarleysi. Þessar rannsóknir hafa verið að koma alveg rosalega vel út. Vísbendingar eru um að fólk sé að ná svo mikilli slökun í
„Við byrjuðum nú bara eins ir r og hverjir að í p p u nördar Neslaug,“
Flot hefur aldrei verið vinsælla.
flotinu að það geti til dæmis unnið á áfallastreituröskun og þyngri málum.“ Guðrún segir flot hafa ótal marga og magnaða kosti. „Það fyrsta sem fólk upplifir yfirleitt að loknu floti er rosalega góður nætursvefn. Að láta sig fljóta í þyngdarleysi er líka verkjastillandi og tekur álag af hryggnum. Flotið jafnar blóðþrýsting, getur hjálpað þeim sem eiga við námsörðugleika að stríða, dregið úr mígreni og haft góð áhrif á andlega sjúkdóma á borð við þunglyndi. Guðrún á erfitt með að lýsa því
hversu dásamlegt það er að láta sig fljóta í laug eða potti utandyra og horfa upp í himininn. „Þetta er svo góð leið til þess að slaka á, hugleiða og fá hlé frá daglegu amstri. Flot kemur á jafnvægi á milli heilahvela og gagnast mjög til dæmis skapandi fólki og íþróttamönnum til þess að sjá hluti fyrir sér. Með því að koma á jafnvægi á milli heilahvela getur flot meðal annars eflt hugmyndaflæði. Það hefur einnig sýnt sig að þeir sem stunda flot reglulega eru miklu rólegri í daglegu lífi og láta streituna síður ná til sín.“
…heilsa
7 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Bio-Kult og jafnvægi líkamans Góðgerlar, hvítlaukur og grape fruit seed Unnið í samstarfi við Icecare
Í
ris Ásmundardóttir er á fullu í framhaldsskólanámi og æfir ballett í rúmlega tuttugu klukkustundir á viku ásamt því að vinna sem aðstoðarkennari í ballett fyrir þau sem eru að taka fyrstu sporin. „Þegar ég lærði að stærsti hluti ónæmiskerfisins væri í meltingarfærunum ákvað ég að gera eins og ég gæti til að stuðla að eðlilegri meltingu og jafnvægi. Ég ætla mér langt í ballettinum og mér hefur undanfarin tvö ár hlotnast sá heiður að fá að stunda nám við sumarskóla Boston Ballet ásamt því að hafa tekið tíma bæði í Steps on Broadway og í London. Ég tek Bio-Kult Candéa á hverjum degi samhliða heilsusamlegu mataræði og er sjaldan þreytt og hlakka nær undantekningarlaust að takast á við verkefni dagsins”. Guðbjörg Gísladóttir ber Bio-Kult einnig vel söguna. „Eftir að ég komst á ákveðinn aldur fór ég að finna í auknum mæli fyrir óþægindum vegna
breytinga í slímhúðinni, en eftir að ég byrjaði að nota Bio-Kult Candéa fann ég stórkostlegan mun á mér. Í gegnum tíðina hef ég einnig glímt við allskonar vandamál tengt ójafnvægi í flóru líkamans og finn ég að Bio-Kult Candeá er að virka rosalega vel fyrir mig,“ segir Guðbjörg.
Íris Ásmundardóttir ballerína er mjög hraust, sjaldan þreytt og með góða einbeitingu.
Bio-Kult fyrir alla
Innihald Bio-Kult Candéa-hylkjanna er öflug blanda af vinveittum gerlum ásamt hvítlauk og grape seed extract. Bio-Kult Candéa hylkin stuðla að eðlilegu flórujafnvægi og stuðla að eðlilegri meltingu. Vinnur meðal annars á brjóstsviða, húðvandamálum og roða í húð. Bio-Kult Original er einnig öflug blanda af vinveittum gerlum sem styrkja þarmaflóruna. Bio- -Kult Candéa og Bio-Kult Original henta vel fyrir alla, einnig fyrir barnshafandi konur, mjólkandi mæður og börn. Fólk með mjólkur- og sojaóþol má nota vörurnar. Mælt er með Bio-Kult í bókinni Meltingarvegurinn og geðheilsa eftir Dr. Natasha Campbell-McBride.
Guðbjörg Gísladóttir losnaði við óþægindi breytinga í slímhúðinni eftir að hún byrjaði að taka Bio-Kult Candeá.
Hvítari tennur með Gum Original White
Tennurnar verða hvítari með Gum Original White munnskoli og tannkremi. Vörurnar innihalda flúor, veita vörn og hreinsa burt bletti og óhreinindi. Unnið í samstarfi við Icecare
G
um Original White munnskol og tannkrem hreinsa burt bletti og óhreinindi og veita tönnunum vernd. Tannlæknar mæla með Gum vörunum. „Vörulínan er breið og góð og í henni má finna allt frá tannburstum og Soft Picks tannstönglum til tannhvíttunarefna. Sérfræðingar Gum eru fljótir að tileinka sér nýjungar og mæta þörfum fólks sem er virkilega gott í þessum geira,“ segir Sólveig Guðlín Sigurðardóttir, vörumerkjastjóri hjá Icecare.
Engin bleikiefni
Gum Original White munnskol og tannkrem hreinsa burt bletti og óhreinindi og tennurnar fá sinn upprunalega lit. Báðar vörurnar innihalda flúor og má nota að staðaldri. Þær hafa ekki skaðleg áhrif á almenna tannheilsu og innihalda ekki bleikiefni sem geta skaðað náttúrulega vörn tannanna. „Hvíttunarlínan, Original White, er mjög góð því hún virkar vel en fólk fær samt sem áður ekki tannkul. Slípimassinn er agnarsmár svo hann rispar ekki upp glerunginn eins og oft vill verða þegar notuð eru hvíttunartannkrem.“ Sólveig segir það einnig kost að Original
White línan viðhaldi árangri eftir lýsingarmeðferð á tannlæknastofu. „Soft Picks tannstönglarnir eru mitt uppáhald því þeir komast vel á milli tannanna og innihalda engan vír og eru ríkir af flúori. Þetta eru frábærir einnota tannstönglar sem virka eins og millitannburstar en þá er hægt að hafa í veskinu eða heima fyrir framan sjónvarpið.“ Hvíttunarvörurnar innihalda sérstaka blöndu sem Gum hefur einkaleyfi á og hreinsar betur en bleikiefni. Vörurnar eru fáanlegar í Lyfju, Apótekinu og að auki í flestum öðrum apótekum og í hillum heilsuverslana.
Vörulínan frá Gum Original White inniheldur allt sem þarf til að viðhalda hvítum og heilbrigðum tönnum.
Sólveig Guðlín Sigurðardóttir, vörumerkjastjóri hjá Icecare. Mynd | Hari.
…matur
WOW ALLA LEI Ð ! BOSTON
frá
15.999 kr.
Lambalundir í hvítlauk, sambal oelek og límónu
*
okt. - des.
WASHI NGTON D.C .
15.999 kr.
Læknirinn í eldhúsinu töfrar fram ljúffengar lambalundir með áhrifum frá Austurlöndum fjær frá
*
okt. - des.
TO RONTO
frá
15.999 kr. *
sept. - des.
MONT RÉAL
frá
15.999 kr. *
sept. - des.
TE NERI FE
8 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
frá
17.999 kr. *
maí - júní
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
Lambalundir eru gjarnan taldar besti bitinn af lambinu, en það fer auðvitað alveg eftir því hvernig farið er með hráefnið. Kjöt af hálsinum getur líka verið algert sælgæti ef kokkurinn vandar sig. En lambalundirnar er vissulega fyrirhafnarlítið að gera dásamlegar og svo þurfa þær ekki langan tíma á grillinu áður en þær eru tilbúnar á matarborðið. Sambal er sterk sósa frá Austurlöndum fjær, algengust er hún frá Indónesíu og Malasíu. Hún er mestmegnis gerð úr rauðu chili og síðan bragðbætt m.a. með lauk, sítrónusafa og fleiri kryddtegundum. Hvert svæði á síðan sína gerð af sambal með mismunandi áferð og viðbótarhráefnum.
Fyrir fjóra: 800 g lambalundir 2 msk sambal oelek 2 msk jómfrúarolía
4 hvítlauksrif ½ rauður chilipipar börkur af heilli límónu safi úr límónu salt og pipar Aðferð: 1. Skolið og þerrið lambalundir og setjið í skál. 2. Hellið jómfrúarolíu saman við ásamt sambal. 3. Brytjið hvítlauk og chili smátt og setjið saman við. 4. Skafið börkinn af límónunni (bara græna hlutann, ekki þann hvíta), saxið mjög smátt og sáldrið yfir kjötið. 5. Kreistið límónusafa yfir og bragðbætið með salti og pipar. 6. Blandið öllum hráefnunum vandlega saman og marínerið í minnst klukkustund (helst lengur). 7. Grillið á háum hita í tvær mín-
útur á hvorri hlið (háð þykkt kjötsins). 8. Hvílið í nokkrar mínútur áður en lundirnar eru sneiddar niður svo þær nái að jafna sig.
Bulgursalat með papríkum, fetaosti og þurrkuðum apríkósum Bulgur er hveitiafurð sem er algeng í matargerð Miðausturlanda. Það er oftast gert úr durum hveiti þó að hægt sé að framleiða það úr öðrum hveititegundum. Þetta hráefni á sér langa sögu og hefur verið framleitt síðan 2800 árum fyrir Krist. Þó að þetta sé kannski fyrsta framleidda matvaran þá hefur það ágæta kosti eins og að innihalda mikið af trefjum þar sem hismið er að miklu leyti notað við framleiðsluna. Annar augljós kostur er að það er ljúffengt og að auki skemmtileg tilbreyting frá því að nota kartöflur, hrísgrjón eða kúskús.
Fyrir fjóra: 3 dl bulgur 6 dl kjúklingasoð 1 rauð paprika 1 græn paprika 1 rauðlaukur 2 hvítlauksrif 50 g þurrkaðar apríkósur 100 g fetaostur 2 msk fersk sítrónumelissa 2 msk fersk mynta safi úr einni límónu 4 msk góð jómfrúarolía salt og pipar
Aðferð: 1. Útbúið bulgur eftir leiðbeiningum á pakkanum nema í staðinn fyrir vatn er það eldað upp úr kjúklingasoði. 2. Skerið paprikurnar og rauðlaukinn í bita og blandið við bulgur ásamt maukuðum hvítlauk. 3. Skerið apríkósurnar gróft niður
og bætið í bulgursalatið. 4. Skerið fetaostinn í bita og blandið saman við. 5. Saxið myntuna og sítrónumelissuna gróflega og sáldrið yfir salatið. 6. Blandið saman jómfrúarolíunni og límónusafanum, smakkið til með salti og pipar og dreifið yfir herlegheitin.
ferรฐir
ร ferรฐ um Vesturland
... alla fรถstudaga og laugardaga auglysingar@frettatiminn.is
10
16
…ferðir
10 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Áhugaverðir staðir á Vesturlandi
Það geta allir fundið eitthvað við sitt hæfi á Vesturlandi, bæði útivist og náttúrufegurð, eða hvort tveggja
Á
Vesturlandi eru margir sögufrægir staðir og náttúruperlur sem vert er að skoða. Auðvitað er ekkert gaman skoða alltaf bara þessa klassísku túristastaði en sumir þeirra eru einfaldlega þannig að maður verður að berja þá augum, að minnsta kosti einu sinni um ævina. Þó það sé ekki nema bara til að geta sagst hafa komið þangað. Svo er um að gera að ferðast og skoða meira út frá þessum stöðum og upplifa ósnortna íslenska náttúru eins og hún gerist best.
Breiðafjörður
Breiðafjörðurinn nær á milli Vestfjarðakjálkans og Snæfellsness og er vistkerfið þar er einstakt fyrir margra hluta sakir. Fuglalífið er fjölskrúðugt og selir sjást víða. Aðalheimkynni hafarnarins, sjaldgæfasta og langstærsta íslenska ránfuglsins, eru við Breiðafjörð en þar halda nú til um 40 pör. Sagt er að eyjarnar á Breiðafirði séu óteljandi, en víða eru þær þétt saman og mynda eyjaklasa sem
hafa fengið sér nöfn. Til dæmis Svefneyjar, Bjarnareyjar og Skáleyjar. Vinsælt er hjá ferðamönnum að fara í siglingu um eyjarnar með viðkomu í Flatey þar sem fólk upplifir gjarnan sem það fari aftur í tímann, enda nútímaþægindi þar af skornum skammti.
Deildartunguhver
Um er að ræða vatnsmesta hver í Evrópu en hann er samheiti yfir nokkra hveri sem ná yfir um fimmtíu metra svæði. Deildartunguhver er í Reykholtsdal, um 37 kílómetra frá Borgarnesi. Úr hverunum koma um 180 lítrar af 100 gráðu heitu vatni á hverri sekúndu. Hverinn er friðaður en vatni úr honum er dælt til Borgarness og Akraness.
Eiríksstaðir
Eiríkur rauði og kona hans, Þjóðhildur, reistu sér bú að Eiríksstöðum í Haukadal ef marka má Eiríks sögu rauða. Talið er að Leifur heppni sé þar fæddur. Rústir Eiríksstaða voru kannaðar fyrir miðja síðustu öld og aftur á
árunum 1997 til 1999. Þá kom í ljós skáli frá tíundu öld og eru rústir hans sýnilegar. Reist hefur verið tilgátuhús á Eiríksstöðum og var lögð áhersla á að styðjast við rústirnar, rannsóknir og fornt verklag. Þar er lifandi safn þar sem leiðsögumenn eru klæddir að fornum sið og leiða gesti um söguna.
Glymur
Glymur í Botnsdal í Hvalfirði er hæsti foss Íslands. Botnsdalur er að miklu leyti skógi vaxinn og þar er notalegt að fara í lautarferðir á góðvirðisdögum. Vinsælt er að ganga upp að Glymi og tekur gangan um þrjá
Sundlaugin í Ólafsvík
til fjóra klukkutíma, en gengið er frá bílastæðinu inni í Botnsdal. Gönguleiðin er ekki fyrir alla enda er hún torfarin á sumum stöðum. Í fyrstu er gengið eftir merktum stíg og síðar troðnum slóða. Farið er í gegnum hellisskúta og gengið niður að Botnsá, en til að komast yfir ána þarf fólk að fikra sig eftir viðardrumbi og styðjast við vír. Í framhaldinu tekur við brött brekka með lausri möl en þegar upp er komið er gönguleiðin þokkalega greið þangað sem fossinn sést.
Hraunfossar
Ótal fossar spretta úr hraunjaðrinum og falla í Hvítá. Einstaklega falleg náttúruperla og margar gönguleiðir eru í boði um svæðið.
Meðal annars er hægt að ganga að Barnafossum. Sagan segir steinbogi frá náttúrunnar hendi hafi hér áður fyrr verið sem brú yfir Hvítá, en eftir að tvö börn féllu í ána við að fara yfir brúna hafi móðir þeirra höggvið niður bogann. Barnafoss er talinn draga nafn sitt af þessu atviki.
Snæfellsjökull
Margir telja sig finna fyrir sterkum áhrifum frá jöklinum og telja að hann sé ein af sjö stærstu orkustöðvum jarðar. Aðrir vilja einfaldlega njóta fegurðar Snæfellsjökuls í góðu veðri. Þeir sem hyggja á ferðir á jökulinn þurfa að kynna sér vel aðstæður og ástand hans. Þá er óvönu fólki ráðlagt að ganga á jökulinn með leiðsögumanni.
Vesturland: Sniðugt að sjá... 20.30. Fyrirlesturinn fjallar um frú Önnu Bjarnadóttur kennara, kennslubókahöfund og prestsfrú Reykholti, en hún lést árið 1991, 94 ára að aldri.
Opnunartími sundlaugar:
ATH.: hætt er að hleypa ofan í laugina 30 mínútum fyrir lokun
Mánudagar: kl. 07:30-21:00 Þriðjudagar: kl. 07:30-21:00 Miðvikudagar: kl. 07:30-21:00 Fimmtudagar: kl. 07:30-21:00 Föstudagar: kl. 07:30-21:00 Laugardagar: kl. 10:00-17:00 Sunnudagar: kl. 10:00-17:00
Börnum yngi en tíu ára er óheimilt að fara í sund nema í fylgd með syndum einstaklingi sem er fimmtán ára eða eldri. Ábyrgðarmaður tekur fulla ábyrgð á barni og fylgir því alltaf hvort sem er í lauginni eða í pottunum.
Ennisbraut 11 355 Snæfellsbær Sími: 433-9910
...ljósmyndasýninguna Skorradalur allt árið – eyðibýli sem er sýning utanhúss við eyðibýlið Stálpastaði í Skorradal. Myndasmiður er Kristín Jónsdóttir á Hálsum og verður sýningin opnuð 11. júní næstkomandi. ...fyrirlestur Kristrúnar Heimisdóttur lögfræðings sem ber nafnið „Heimsborgari gerist sveitakona“ í Snorrastofu í Reykholti, þriðjudaginn 31. maí klukkan
...ljósmyndasýningu Sigurjóns Einarssonar, Refir og menn, sem unnin er í samstarfi við Safnahús. Hún mun standa yfir frá 21. apríl til 11. nóvember 2016 í Safnahúsi Borgarfjarðar. Fram til 1. maí verður opið á virkum dögum 13-18, en í maí, júní, júlí og ágúst verður einnig opið 13-17 um helgar og á hátíðisdögum. Eftir 1. september tekur vetrartími aftur við þar sem lokað verður um helgar. Sýndar eru ljósmyndir Sigurjóns Einarssonar af refaveiðimönnum við vetrarveiði.
Svamlaðu í ölkelduvatni á Lýsuhóli Það er fátt skemmtilegra að gera yfir sumartímann en að skella sér í sund í góðu veðri. Það ættu að vera hæg heimatökin að komast í sund á Vesturlandi, en fimmtán sundlaugar eru skráðar á því svæði á sundlaugar.is. Sumar þeirra eru reyndar kennslulaugar fyrir skólasund og því aðeins opnar á skólatíma. Sérlega skemmtileg er Lýsuhólslaug en í henni er náttúrulega heitt ölkelduvatn beint úr jörðu. Ölkelduvatnið er mjög steinefna-
ríkt og talið afar hollt og græðandi. Engum efnum er blandað í vatnið. Á Lýsuhóli er að finna sundlaug og tvo heita potta. Þeir sem hyggja á langa sundspretti ættu þó líkleg að leita annað, enda er laugin lítil og kannski frekar ætluð til þess að njóta útiverunnar og töfra ölkelduvatnsins í fallegu umhverfi.
www.fi.is FERÐAÁÆTLUN 2016
Ferðir við allra hæfi andir Hornstr
FERÐAÁÆTLUN 2016
FERÐAÁÆTLUN 2016
FERÐAÁÆTLUN 2016
nn
eguri v a g u a L
rsmörk
L
ur - Þó angidal
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
- Dagsferðir
- Lengri ferðir
- Fjallaskíðaferðir
- Hjólaferðir
- Ferðafélag barnanna
- Ferðafélag unga fólksins
FERÐAFÉLAG ÍSLANDS
Samstarfsaðili FÍ
Skráðu þig inn – drífðu þig út
…ferðir kynningar
12 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Fatnaður
Pumpur
Hjálmar
Fatnaður
Fjallahjól
Grábrók er stærsti gígurinn af þremur í stuttri gossprungu. Göngustígar liggja upp á Grábrók. Gangan er við flestra hæfi og einstakt útsýni er af Grábrók yfir Borgarfjarðarhérað.
GÆÐA FJALLAHJÓL Á FRÁBÆRUM VERÐUM
Pumpur
Hjálmar
188.900
129.000
Focus Whistler Pro 29r
Focus Whistler Evo 29r
Shimano XT 20gíra, Tektro glussa-diskabremsur og RockShox dempari með læsingu í stýri.
Shimano Alivio 27gíra, Tektro glussa-diskabremsur og dempari með læsingu í stýri.
3 skemmtilegir staðir til gönguferða á Vesturlandi Vesturland býður upp á ótal möguleika til gönguferða
Fatnaður
Pumpur
89.900
99.900
Focus Whistler Core Donna 27r
Focus Whistler Elite 29r 99.900 kr.
Shimano Altus 21gíra, Shimano diskabremsur og dempari.
Shimano Acera 27gíra, Tektro Auriga glussa-diskabremsur og læsanlegur dempari.
FOCUS FJALLAHJÓL, ÞÝSK GÆÐI Í GEGN Hjálmar
hjolasprettur.is Dalshrauni 13 Hafnarfjörður 565 2292 hjolasprettur@hjolasprettur.is
Húsafell má kalla draumaland göngumannsins. Allt um kring eru heillandi gönguleiðir, þar sem alltaf ber eitthvað nýtt fyrir augu. Þéttir skógar, hraunmyndanir, kristaltærar uppsprettur, stórbrotin gil, jöklar, hvítfyssandi jökulár, fjölbreytt dýra-og fuglalíf auk merkra fornminja og annarra mannvistarleifa, sem segja ótal sögur um liðna tíð og sambýli manns og náttúru. Einnig gengur ferðalangurinn víða fram á sérkennilegar höggmyndir Páls Guðmundssonar myndhöggvara, sem skerpa oft svip landsins á nærgætinn hátt við náttúruna. Hægt er að finna auðveldar gönguleiðir fyrir alla fjölskylduna, eins og leiðirnar um skóginn og einnig eru áhugaverðar leiðir fyrir þá brattgengu. Þar má nefna há fjöll eins og Eiríksjökul og Ok.
Akrafjall. Einkar formfagurt fjall séð frá Akranesi, mjög víðsýnt er af fjallinu. Vinsælar gönguleiðir upp á Háahnúk (555m) sem er syðri tindurinn eða Geirmundartind (643 m). Gestabók er á Háahnúki. Akrafjall er eitt þeirra fjalla sem er tiltölulega auðvelt að ganga á og hentar því fjölskyldufólki sérstaklega vel. Það þarf ekki mikla reynslu eða dýran útbúnað til að ganga á Akrafjall þó nauðsynlegur hlífðarfatnaður og lágmarks þrek verði að vera til staðar. Þegar göngunni lýkur er tilvalið að fara niður á Langasand, gera þar teygjuæfingar og láta svo þreytuna líða úr sér í sundi og slökun eða í heita pottinum í Jaðarsbakkalaug
Náttúruperlur Úr ferð Hálendisferða um Kerlingarfjöll og Þjórsáver.
Hálendi Íslands er fyrir alla, unga sem aldna Kynning í samstarfi við Hálendisferðir
H
álendisferðir gera sem flestum kleift að kynnast náttúruperlum Íslands „Ég stofnaði Hálendisferðir með það að markmiði að kynna á aðgengilegan hátt, fólki á öllum aldri, lítt þekktar en magnaðar náttúruperlur utan alfaraleiðar. Til dæmis Þjórsáver, Kerlingarfjöll og Torfajökulssvæðið (utan Laugavegar). Ísland er að vaxa svo hratt sem ferðamannaland og margir vinsælustu ferðamannastaðir landsins eru að verða yfirfullir af fólki. Það er sannarlega áhugavert
að kynnast því sem er þar fyrir utan,“ segir Ósk Vilhjálmsdóttir, stofnandi og eigandi Hálendisferða. Ósk segir hálendi Íslands ekki vera aðeins fyrir þrautþjálfað útivistarfólk heldur fyrir alla, bæði konur og karla, unga sem aldna. „Okkar markmið er að gera sem flestum kleift að kynnast náttúruperlum Íslands. Ferðirnar eru iðulega með farangurstrússi og þurfa ferðafélagar því ekki að bera þungar byrgðar.“ Í samvinnu við Margréti H. Blöndal hefur Ósk einnig þróað sérstakar fjölskylduferðir á forsendum barna og unglinga. Gönguferðir í Þjórsárver og um háhitasvæði Torfajökuls eru hins
vegar ekki ætlaðar börnum. „Í þessar ferðir hafa stálpaðir unglingar fengið að koma með. Svo eru hlaupaferðirnar okkar alveg frábærar því þar er yfirferðin meiri og maður nær að sjá svo mikið. Í þeim er hægt að sjá svæði sem tæplega er hægt að skoða fótgangandi nema með því að bera tjald og vistir.“ Að sögn Óskar upplifir fólk mikla kyrrð og fegurð í hálendisferðum. „Við leggjum einnig mikið upp úr samveru og dekstrum við fólk með ljúffengum krásum á hverju kvöldi úr vönduðu hráefni.“ Nánari upplýsingar um Hálendisferðir má nálgast á heimasíðu þeirra, www.halendisferdir.is
…ferðir kynningar
13 | amk… FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016
Kaffihús sem breytist í veitingastað þegar rökkva tekur Fjölskyldufyrirtæki á Vegamótum leggur sál sína í þjónustuna Unnið í samstarfi við Hótel Rjúkanda
V
ið Vegamót á Snæfellsnesi er Hótel Rjúkandi, 14 herbergja vistvænt hótel með kaffihúsi sem breytist í glæsilegan veitingastað þegar rökkva tekur. Staðurinn er yfir 70 ára gamall en hefur verið rekinn af hjónunum Gísla og Hrefnu síðan 1998, fyrst sem búð og bensínafgreiðsla, síðan sem sjoppa og loks frá árinu 2013 sem hótel og hugguleg matstofa – kaffihús á daginn og veitingastaður á kvöldin. „Þetta er fjölskyldufyrirtæki þar sem allir leggja hönd á plóginn,“ segir Sigrún Erla Eyjólfsdóttir. Hún kom heim frá Barcelona árið 2013 og skellti sér í rekstur-
Hótel Rjúkandi, við Vegamót á Snæfellsnesi
Veitingasalurinn á Hótel Rjúkanda er glæsilegur.
inn ásamt systur sinni Ólöfu og mökum þeirra. „Við skiptum út pylsupottinum fyrir almennilega kaffivél þannig að kaffiþyrstir
Það er samhentur hópur sem vinnur á Hótel Rjúkanda.
ferðalangar geta fengið nýmalað kaffi á ferð sinni um Snæfellsnesið,“ segir Sigrún Erla. Á daginn er staðurinn kaffihús þar sem boðið er upp á súpur, heimabakað focaccia-brauð og bakkelsi sem frú Hrefna bakar af mikilli alúð í eldhúsinu. Á kvöldin er síðan boðið upp á a la carté matseðill þar sem áhersla er lögð á íslenskt hráefni af Snæfellsnesinu. „Okkar markmið er að skapa persónulegan stað þar sem eigendur koma að öllum þáttum starfseminnar ásamt frábæru starfsfólki. Við fáum allt hráefni úr næsta nágrenni. Fisk-
Pylsupottinum var skipt út fyrir kaffivél. Klattarnir eru heimabakaðir og einstaklega lystugir.
Sími: 7889100 Tölvupóstur: info@rjukandi.com Heimasíða: rjukandi.com Facebook: Hotel Rjúkandi Twitter: @Rjukandi Instagram: Rjukandi Kaffihúsið er opið frá klukkan 10 til 18 alla daga og veitingastaðurinn frá 18 til 21.30
Fiskur dagsins á Hótel Rjúkanda.
inn sækjum við út á nes, bláskelin kemur úr Stykkishólmi, kjötið frá nágrönnum okkar á bóndabæjum í kring og grænmetið, kryddjurtirnar og blómin frá garðyrkjumiðstöð hérna skammt frá. Hjá okkur er íslenskt hráefni í öndvegi en við erum með spænska kokka þannig að maturinn verður aldrei rammíslenskur að framsetningu heldur virkilega
ljúffengur og fallega framsettur,“ segir Sigrún Erla. Ferðamenn eru stærstur hluti viðskiptavina en að sögn Sigrúnar Erlu eykst fjöldi Íslendinga á veitingastaðnum stöðugt. „Það gleður hjarta okkar að Íslendingar komi og fái sér að borða góðan mat við Vegamót í stað pylsunnar eða rækjusamlokanna á öðrum stöðum.“
Falinn fjársjóður við þjóðveginn
Munaðarnes Restaurant er staðsettur á milli Baulu og Bifrastar, aðeins 600 metra frá þjóðveginum. Þeir Siggi og Raggi bjóða upp á fjölbreyttan matseðil þar sem humarsúpan er flaggskipið og brauð og kökur baka þeir sjálfir Kynning í samstarfi við Munaðarnes Restaurant
R
étt við þjóðveginn á milli Baulu og Bifrastar er Munaðarnes Restaurant, falinn fjársjóður, þar sem hægt er að borða góðan mat og njóta Borgarfjarðar í kyrrð og ró í fallegu umhverfi. „Þetta er ótrúlega vel varðveittur staður sem fáir vita af. Við erum ekki nema um 600 metra frá þjóðveginum,“ segir Sigurður Karlsson, annar eigenda staðarins. Hann tók við rekstrinum á síðasta ári, ásamt félaga sínum, Ragnari Kristinssyni, en þeir eru þekktir í sveitinni sem Siggi og Raggi enda aldrei kallaðir annað. „Við tókum við hérna í flýti og höfum ekki séð eftir því eina einustu mínútu. Munaðarnes er fullt af orku og þegar maður þarf að skreppa til Reykjavíkur þá langar mann alltaf bara að drífa sig heim,“ bætir Siggi við.
Allt heimabakað
Munaðarnes Restaurant er opinn frá klukkan 10 á morgnana til 21 á kvöldin. Matseðillinn er fjölbreyttur og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. Boðið er upp á allt frá salötum upp í steikur og allir skammtar eru vel úti látnir. „Flaggskipið okkar á matseðlinum er humarsúpan. Svo erum við með allt heimabakað. Við bökum sjálfir bæði brauð og kökur og það hefur mælst mjög vel fyrir. Mottóið okkar er að fólk fari glatt og satt frá okkur.“ Á Munaðarnesi Restaurant er einnig ráðstefnusalur sem tekur 100 manns í sæti og get-
Munaðarnes Restaurant Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um Munaðarnes Restaurant á heimasíðunni www.munadarnesrestaurant.is og á facebook-síðu veitingastaðarins: www.facebook.com/ MunadarnesRestaurant/ ur veitingastaðurinn því tekið á móti stórum hópum. Við höfum til dæmis fengið til okkar kóra í æfingabúðir yfir heila helgi og svo höfum við verið að fá stærri hópa í mat, 50 til 70 manns. Ætli hámarkið sé ekki 110 til 120 manns. Svo ætlum við að vera með EM í beinni í sumar.“
Hostel opnað
En það er ekki eina afþreyingin á staðnum því búið er setja upp sýninguna Goðheima, 25 fermetra
líkan eftir Hauk Halldórsson, þar sem hægt er að fá hljóðleiðsögn um híbýli goðanna gegn vægu gjaldi. Á næstu vikum verður svo opnað hostel við veitingastaðinn,
en um er að ræða svefnsal með rúmum fyrir tíu manns. „Þetta er frábær staður til að koma á og njóta þess að sitja á pallinum í góðu sumarveðri. Við
erum með stóran suðurpall og í fyrra fór hitinn hjá okkur nokkra daga í röð upp í 30 gráður. Svo erum við Raggi líka svo skemmtilegir,“ segir Siggi.
…ferðir kynningar
14 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Sæferðir í Stykkishólmi reka tvo báta, Baldur og Særúnu.
Sæferðir bjóða upp á fjölbreyttar og ævintýralegar siglingar Einstök upplifun fyrir alla fjölskylduna Unnið í samstarfi við Sæferðir
S
æferðir í Stykkishólmi eiga og reka tvo báta í Breiðafirði. „Við erum með tvo báta, það er ferjan Baldur sem fer yfir til Vestfjarða og líka í dagsferðir til Flateyjar. Einnig erum við með Særúnu, sem fer í útsýnisferðir í kringum Suðureyjar,“ segir Nadine Walter, sölu- og markaðsstjóri Sæferða. Nadine segir það vera ótrúlega skemmtilega upplifun að koma út í Flatey, sérstaklega fyrir fjölskyldur. „Flatey er auðvitað ein af náttúruperlum landsins og þekkt fyrir sitt einstaka tímaleysi. Að rölta um eyjuna er eins og að fara aftur til fortíðar. Húsin í gamla þorpinu hafa verðið gerð upp í litskrúðugum gömlum stíl og þau er virkilega gaman að skoða. Sömuleiðis er kirkjan ákaflega áhugaverður viðkomustaður en loft hennar er í raun eitt stórt málverk eftir Baltasar Samper. Náttúran í Flatey er líka einstök og fuglalífið sérstaklega fjölbreytt.“ Sæferðir leggja mikla áherslu á að bjóða upp á eitthvað fyrir alla og er þetta nú þriðja sum-
Farþegum gefst tækifæri á að smakka ferskt sjávarfang.
arið sem fyrirtækið gefur út sérstök Flateyjar-fjársjóðskort fyrir börnin. Í raun er um að ræða einskonar ratleik og hefur það vakið mikla kátínu hjá yngri kynslóðinni. „Hægt er að nálgast kortin í miðasölu Sæferða áður en haldið er út í ferjuna. Kortinu fylgir einnig sjónauki, enda væri seint hægt að tala um alvöru fjársjóðsleit án þess háttar tækjabúnaðar,“ segir Nadine og hlær við. Kortunum er síðan skilað inn útfylltum í veitingasölu Baldurs og er aldrei að vita nema þar leynist einhver glaðningur. Siglingin út í Flatey tekur einn og hálfan tíma, gestir hafa svo tvo og hálfan tíma eða lengur til þess að skoða sig um og njóta. Siglt er tvisvar á dag á sumrNáttúran in, frá 1. júní - 31. ágúst. Um borð í Flatey er í Baldri er góður líka einstök veitingastaður og og fuglalífið frábær aðstaða fyrir farþega sem érstaklega s notið geta útsýnisfjölbreytt.“ borð af botni sjávar ins á meðan siglingu stendur. „Síðan má ekki og farþegum boðið að gleyma Vestfjörðunum, smakka á þessu ferska en Vestfirðirnir þykja algjörlega sjávarfangi. Boðið er upp á viðeinstakir með öll sín fögru fjöll eigandi sósur með kræsingunum og firði,“ bætir Nadine við. – meðal annars soya, wasabi og Skemmtisiglingaskipið Særún engifer og köllum við þetta Víkfer í útsýnisferðir í kringum ingasushi.“ Suðureyjar sem hafa verið geysiÚtsýnisferðirnar eru misjafnlega vinsælar. „Í þessum ferðum lega langar, hægt er að fara er siglt um eyjarnar í Breiðafirði. styttri ferðir og svo ferðir sem Skipstjórinn okkar er leiðsögutaka yfir tvo tíma. Nadine segir maður og segir hann farþegferðirnar skemmtilega upplifun um frá umhverfinu. Eins er sagt fyrir alla fjölskylduna. „Kannaðir frá þjóðsögum og ævintýrum af eru sterkustu sjávarfallastraumvíkingum úr norðri, skelfilegum ar við Íslandsstrendur og svo er skessum og hafmeyjum úr djúpalveg einstaklega gaman fyrir inu. Dularfullt bergið er skoðað börnin að upplifa og smakka það og ásamt fjölskrúðugu fuglalífsem kemur beint úr sjónum.“ inu,“ útskýrir Nadine. Sæferðir bjóða einnig upp á Svæðið í kringum Suðureyjar veisluferðir fyrir hópa. „Þá er iðar af fuglalífi á sumrin. „Það siglt með hópa hring um Suðurmá meðal annars sjá toppskarfa, eyjar Breiðafjarðar, fuglalíf og ritu, kríu, fýl, æðarkollu og ýmis náttúrufyrirbrigði skoðuð. stundum jafnvel haförninn, konSvo er boðið upp á glæsilegt ung íslenskra fugla. Hápunktur hlaðborð á heimleiðinni. Svona ferðanna er svo þegar skeldýr ferðir eru tilvaldar fyrir alls konlíkt og hörpuskel, ígulker, krabbar viðburði, til dæmis afmæli, ar og krossfiskar eru dregin um bekkjarmót og starfsmannafé-
Fólki gefst nægur tími til þess að skoða sig um í Flatey.
Særún siglir útsýnisferðir í kringum Suðureyjar.
lög, svo eitthvað sé nefnt. Við bjóðum upp á að sérsníða ferðir að þörfum hvers og eins hóps,“ segir Nadine. Frekar upplýsingar um siglingar á vegum Sæferða og bókanir má nálgast á saeferdir.is, undanfarin ár hefur fyrirtækið einnig verið með leik í gangi á Facebooksíðu sinni, Seatoursiceland, þar sem viðskiptavinir geta nælt sér í stéttarfélagsafslátt og verður sá leikur aftur í gangi núna í sumar.
Svæðið í kringum Suðureyjar iðar af fuglalífi á sumrin.
…ferðir kynningar
15 | amk… FÖSTUDAGUR 13. MAÍ 2016
Krauma – náttúrulaugar opnaðar um miðjan júlí næstkomandi Langþráður draumur loksins að verða að veruleika Unnið í samstarfi við Krauma-náttúrulaugar
T
vær fjölskyldur hófu, árið 2015, uppbyggingu við Deildartunguhver, bræðurnir Dagur og Sveinn Andréssynir, og eiginkonur þeirra, Bára Einarsdóttir og Jóna Ester Kristjánsdóttir. Dagur og Sveinn eru uppaldir í Deildartungu og slitu barnsskónum í nágrenni við þennan vatnsmesta hver Evrópu. „Það var búinn að vera draumur hjá okkur í yfir 10 ár að byggja eitthvað upp við Deildartunguhver, en það var svo fyrir tæplega þremur árum sem við fórum að tala um þetta af fullri alvöru,“ segir Bára Einarsdóttir, einn eigenda Krauma náttúrulauga sem byggðar eru á bernskuslóðum bræðranna Dags og Sveins. Jörðin Deildartunga hefur verið í eigu sömu ættar í yfir 200 ár. Síðasta eigandi Deildartunguhvers hét Sigurbjörg Björnsdóttir (1886-1984) og var hún amma tveggja eiganda Krauma. Hún var lengst af húsfreyja í Deildartungu og stýrði þar stóru heimili. Sigurbjörg þekkti vel hversu góð áhrif heita vatnið hafði á sál og líkama og bauð ítrekað bæði heitt vatn og land til uppbyggingar á heilsulind við Deildartunguhver. Því miður varð aldrei neitt af slíkri uppbyggingu á meðan hún lifði. „Nú er þessi draumur okkar allra loksins að verða að veruleika en Krauma – náttúrulaugar verða opnaðar um miðjan júlí næstkomandi og almenningi þannig gert kleift að baða sig í þessu heilnæma steinefnaríka vatni Deildartunguhvers,“ segir Bára. Laugarnar eru sex talsins, fimm heitar og ein köld. „Tvær lauganna eru stórar og rúmgóð-
Krauma – náttúrulaugar verða opnaðar um miðjan júlí næstkomandi.
ar, aðrar tvær eru kuðungslaga og ein er stór diskur þar sem gestir geta bæði slakað á í vatni og baðað sig í sólinni á sama tíma. Síðast en ekki síst er kaldur pottur, 5-8 °C, fyrir þá sem vilja koma blóðinu almennilega á hreyfingu. Laugarnar okkar innihalda hreint og ómengað vatn beint úr Deildartunguhver sem kælt er með vatni úr Rauðsgili, upprunnið í heiðum undan öxlum Oks, minnsta jökuls á Íslandi,“ segir Bára.
Engum sótthreinsandi efnum er bætt í vatnið, heldur er hreinleiki þess tryggður með miklu vatnsrennsli í laugarnar. Allar laugarnar eru byggðar úr svartri slípaðri steypu með hófstilltri lýsingu í vatninu. Þrep og handrið tryggja öruggt aðgengi og hellulagnir eru allar upphitaðar. Gufuböð Krauma eru tvö, í aðskildum byggingum. „Timburbekkir eru í húsunum og er gufan fengin með því að úða hveravatni inn í rýmin undir bekkjunum. Sóley Organics mun svo útbúa fyrir okkur ilmolíur til þess að hafa í gufunum, annars vegar olíu með slakandi ilmi og svo aðra örvandi.“ Til þess að fá fullkomna slökun stendur gestum til boða dvöl í hvíldarherbergi á laugasvæðinu. „Þar verða þægilegir legubekkir frá GÁ húsgögnum þar sem gestir geta slakað á við ljúfa tónlist og snark frá arineldi,“ segir Bára. Að sögn Báru taka búningsklefar fyrir laugarnar 140 manns alls. „Læstur skápur er í boði fyrir hvern og einn og svo bjóðum við upp á rúmgóð snyrtiborð
Eigendur Krauma, Dagur og Sveinn Andréssynir, ásamt eiginkonum sínum, Báru Einarsdóttur og Jónu Ester Kristjánsdóttur.
með stórum speglum og góðri lýsingu.“ Byggingar Krauma eru alls rúmlega 600 fermetrar. „Í aðalbyggingunni er veitingastaður sem rúmar 60 manns í sæti og
annað eins á útisvæði. Við ætlum að bjóða upp á sem mest af mat úr héraði og ferskt hráefni. Svo er setustofa þar sem gestir geta látið fara vel um sig og keypt veitingar af barnum.“
Sigurbjörg Björnsdóttir, síðasti eigandi Deildartunguhvers, með hverinn í baksýn.
Það var búinn að vera draumur hjá okkur í yfir 10 ár að byggja eitthvað upp við Deildartunguhver, en það var svo fyrir tæplega þremur árum sem við fórum að tala um þetta af fullri alvöru Þrívíddarmynd af því hvernig Krauma – náttúrulaugar koma til með að líta út.
Gönguferðin þín er á utivist.is
www.utivist.is
Fjölbreyttar ferðir bíða þín Gönguferðir Hjólaferðir Jeppaferðir
Langar ferðir Stuttar ferðir Jöklaferðir
Bækistöðvaferðir Fjallaferðir Fjöruferðir Opið alla virka daga kl. 12-17
Laugavegi 178 - 105 Reykjavík - Sími 562 1000 - utivist@utivist.is
17 | amk… LAUGARDAGUR 21. MAÍ 2016
Vörubretti bjóða upp á ótrúlega marga möguleika
… heimili og hönnun
Hægt er að útbúa virkilega skemmtilega hluti úr vörubrettum, allt frá grilli yfir í garðhúsgögn
S
íðastliðin ár hefur það verið vinsælt að föndra hina ýmsu hluti úr vörubrettum. Vörubretti er víða hægt að fá gefins, hjá til dæmis heildsölum og stærri verslunum, þau geta þess vegna verið bæði ódýr og skemmtileg lausn - það eina sem þú þarft er svolítið hugmyndaflug. Þær Ágústa, Harpa og Tanja Maren hafa allar útbúið virkilega skemmtilega hluti úr vörubrettum, allt frá grilli yfir í garðhúsgögn. „Vörubrettin fékk ég í gegnum fjölskylduna og dýnurnar keypti ég í Góða hirðinum, svo nældi ég mér bara í lök úr Rúmfatalagernum sem ég setti utan um. Þannig að þetta kostaði nú bara nánast ekki neitt,“ segir Harpa Ólafsdóttir félagsráðgjafi sem tók sig til og útbjó glæsileg garðhúsgögn úr vörubrettum. Að sögn Hörpu var lítið vesen að búa til sín eigin garðhúsgögn. „Ég bara rétt pússaði brettin svo enginn fengi flís. Ætli mesta vesenið hafi ekki verið að mála þau, ég sé kannski svolítið eftir því. Núna eru brettin orðin dálítið veðruð og ég þarf sennilega að mála þau aftur, sem er eiginlega kvíðvænlegt,“ segir Harpa hlæjandi. Harpa vill nú ekki eigna sér hugmyndina og segist nokkuð viss um að hún hafi rekið augun í hana á Pinterest og er afar ánægð með að hafa framkvæmt hana. „Við notum
húsgögnin ótrúlega mikið, svo komast líka bara svo margir fyrir á þeim. Við höfum haldið heilu partíin á pallinum.“ Tanja Maren er námsmaður sem býr í lítilli íbúð á Stúdentagörðunum. „Ég er í dýru námi og bý í lítilli íbúð þannig að mig vantaði ódýr húsgögn í stofuna sem tækju ekki of mikið pláss,“ segir Tanja sem útbjó skenk úr vörubrettum og götuhellum með hjálp föður síns. „Mig hefur alltaf langað að gera eitthvað úr vörubrettum, þannig að ég skoðaði mig mikið um á netinu og þá kviknaði hugmyndin að skenknum. Það eru ótrúlega margar hugmyndir bæði á Instagram og Pinterest.“ Tanja segir skenkinn hafa kostað nánast ekki neitt og vekur hann mikla athygli allra sem koma í heimsókn. „Við pússuðum brettin og máluðum, það eina sem kostaði okkur eitthvað var málningin. Svo settum við hellur ofan á þannig að hægt væri að raða hlutum á skenkinn. Ég er alveg rosalega ánægð með hann og allir sem ég fæ í heimsókn koma strax auga á hann. Það eru meira að segja þó nokkrir búnir að búa til sinn eigin skenk og senda mér myndir.“ Ágústa Jónsdóttir nemi á hönnunarbraut í Tækniskólanum útbjó hvorki meira né minna en eitt stykki grill úr vörubrettum og götuhellum. „Ég hafði séð svona borð, þar sem
Vel nýtt Ágústa vildi nýta plássið á svölunum sínum betur og bjó til grill úr vörubrettum
Skenkur T anja Maren málaði brettin, setti hellur ofan á og úr varð þessi glæsilegi skenkur
Ekkert mál Harpa segir lítið vesen að búa til sín eigin garðhúsgögn
Lífgaðu upp á rýmið með fallegum blómapottum Grænar inniplöntur og hvers kyns hengiplöntur hafa átt miklum vinsældum að fagna undanfarin misseri. Það er mikil prýði að fallegum og vel hirtum plöntum, þær gefa hvaða rými sem er svolítinn lit, líf og hlýju. Að koma plöntunum fyrir í fallegum pottum er svo það sem setur punktinn yfir i-ið og er úrvalið af blómapottum orðið virkilega skemmtilegt og fjölbreytt.
Kopar Koparpotta er hægt að fá í alls konar stærðum og gerðum. Þeir eru fallegir og njóta sín vel með græna litnum.
Upplyfting Plöntustandur frá Ferm Living gerir plöntuna nánast að fallegu húsgagni.
Hangandi Hægt er að fá ílát undir hengiplöntur í mörgum skemmtilegum útgáfum.
Stílhreint Hvítir pottar eru alltaf klassískir og sóma sér vel í hvaða rými sem er.
alla föstudaga og laugardaga
vörubretti eru sett upp á hlið og hellur ofan á og það var hugmyndin sem ég lagði upp með til að byrja með. Þetta átti bara að vera borð undir blóm og dúllerí á svölunum hjá mér. Svo langaði mig agalega að hafa grill en svalirnar hjá mér eru rosalega litlar þannig að hefðbundið grill hefði bara tekið allt plássið. Ég þurfti að finna leið til þess að nýta svalirnar sem best og lagði höfuðið því í bleyti og þannig kviknaði þessi hugmynd,“ segir Ágústa. Ágústa hefur gaman að því að finna sniðugar lausnir og leiðir til þess að nýta gamla hluti. „Ég hef sérstaklega gaman að vörubrettum, þau bjóða nefnilega upp á svo ótrúlega marga möguleika sem þurfa ekki að kosta mikið. Eini kostaðurinn við þetta grill var grindin og bakkinn undir kolin. Bæði keypti ég í Góða hirðinum á einhverjar 600 krónur. Vörubrettin fékk ég gefins hjá Bónus í Skeifunni og svo auglýsti ég bara eftir einhverjum sem var að losa sig við hellur.“ Grillið er búið til úr tveimur vörubrettum og kærastinn hennar Ágústu sá um að saga úr fyrir grillinu. „Það eina sem við gerðum var að saga bút úr og svo leggja hellurnar á, en þær eru 30x30 og smellpassa þess vegna á svona bretti. Svo grillum við á þessu bæði hamborgara og pylsur og þetta er bara alveg eins og hið besta kolagrill.“
…heilabrot
18 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Sudoku miðlungs
Krossgátan
5
8 9 2 7 3 4 7
6 3 8 5
1 8 5 1
295
SKJÓTUR
KÚASKÍTUR
STAGL
STERTUR
ÓNEFNDUR
LITAREFNI
KVK NAFN SAMSVÖRUN
6
ÁN AÐA
1 9 7
5
3
Sudoku þung 5 9
2
8 5 2
3 5 1 6
3 4 9 5
8 2
Lausn síðustu krossgátu 294
mynd: Renaud d'avout d'aueRstaedt (CC By-sa 2.5)
SKOTMARK LYFSALI
A ÓÐ
NET GRÁTUR ERFIÐI
L S G L O T T L Á G U R G E T A I R Ú S T A N S A U M U S Á G J A R N N Á L A A A F R U S S A L L A O S A F R I T N Í Ð Ó G R I M M A G Ð A BRENNA
SNJÓHRÚGA
MESSING
Í RÖÐ
KÍMA
SLÆMA
GÖSLA
SVARA
FREKUR
NARSL
ALDINLÖGUR
SAMÞYKKI
FLÝTIR
HOLUFISKUR ÞEI
FORM
SUÐURÁLFA
GIMSTEINN
MJÖG
GERST
ÖRLÁTUR
LAND Í ASÍU
AUÐ
EFTIRRIT SVÍVIRÐING
ÓVILJUGUR PRÓFGRÁÐA
ÓVÆGINN FLATORMUR
KORN
STARFSGREIN
KRAFS
AUR
STAÐFESTA
LÖGUR
GARGA
ÓÞURFT
HEILU
STORKUN
DRULLA
MAÐUR
TVEIR EINS
FARMRÚM
SAFNA SAMAN
HLJÓÐFÆRI
DEYJA
STUTTUR
STOÐGRIND
VERÐUR
POT
FRESTUR
BOLMAGN
ÓREIÐA
VIÐLAG
MATJURT
VISNA
ÞRÁTTA
DUGLAUS
MUN
EYÐILEGGJA TUNNUR KÆKUR
SKJÓLA
KVK NAFN
Í RÖÐ
KULNA
MÆLIEINING
ÖGN
ÁNA
F A I F S T A O R F I N V G I Ú Ð A T N A Ó L ÓNN
SAMTAL
VÖRUMERKI
TENGILL
GLATA SKÍTA
HVÍLD
SÝNISHORN
PRETTA
TREYSTA SPRIKL
UNG
VIÐSKIPTI
FAG
FÆÐA
ÚT
Á FÆTI
RÍKI Í ARABÍU
AFTURENDI
TÍMABIL
SÍLL
VARKÁRNI
FLATORMUR
TEIP
MOLA
YFIRSTÉTT
STOPPA Í
RÓTA MJAKA
TVEIR EINS
HEIMSÁLFA
NÝR
STÓ
HEILA
ÉTANDI
SLANGA
SKILABOÐ
FLAN
ELDHÚSÁHALD
FORMÓÐIR ÁBURÐUR
HANKI
SAMHYGÐ STILLA
FÆÐU
FJANDSKAPUR
TVEIR EINS
FUGL
TRÉ
KK NAFN
TÚNA
FÆDDI
GEYMSLUTURN
TEMUR
TÓNN
MATJURT
NUDDA
KOSTUR
ÁTT
SVALL
HRYGGJA
TÆTA
BORG
SAMTALS
BLÖKK
SJÓ
FÁLM
Í VIÐBÓT
BLÍSTUR SJÚKDÓMUR
REMMUJURT
HALLI
DYLGJUR
ALVELDI
G L Ó S U R Á
A L M Æ T T I
TÁLKNBLÖÐ
SÖNGLA
BERIST TIL
TÓNLEIKAR
HÁÐ
KJAFTUR
VÆTA
SKORDÝR
TVEIR EINS
VELTA
BAKTAL
ÁTT
SLAPPUR
ÞÖRF
TEGUND
SKÝLI
BYLGJAST VESKI
DYGGUR
HINN SEINNI
FASTA STÆRÐ
VERNDAÐUR
BRODDUR
RÖST
S L S K O T S K Í P Ó T E K A R Æ R F A R A N Ó T L L S N Ö K T F K A F L S A A Ó G A G Ö G R U N L L A S N A E L L S A M S U L L A M T O O H A E N G J A S I N Ó T A Í K A N U G L S V R A Ó S P A R R T A L Í A F Ú S F L A M A L U U R M A Í S S K
TUNGUMÁL GULLHÚFA
SJÓN
NÖLDRA
KALDUR
Allar gáturnar á netinu Allar krossgátur Fréttatímans frá upphafi er hægt að nálgast á vefnum krossgatur.gatur.net
STELA
FÝSN
VÉLRÁÐ
NEFNIST
Í RÖÐ
MAR
FUGL
3
Í RÖÐ
MISSA
ÁN
9 5 4 7 6
LAGFÆRA
HOLA
7
3
GEISLA
FJANDANS
1
6
REIPI
BLÁSA
Nýbýlavegur 8. - 200 Kópavogur - S: 527 1717 - domusnova@domusnova.is - www.domusnova.is
Fasteignasala venjulega fólksins...
Haukur Hdl.Lgf
Hrund
Þórir
Guðný
Sveinn
Guðný Lögfr.Lgf
Ágústa
Vera
Diðrik
Björgvin
Magnús Hrl.Lgf
Sigurberg Hdl.Lgf
Víðir
Agnar
Páll
Hafdís
Ármann
Kristín
Hrafn
Óskar
Vilborg Lgf
…sjónvarp
20 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Þjóðbraut Sigurjóns Hringbraut Þjóðbraut á sunnudegi, kl. 10. Sigurjón M. Egilsson er kominn yfir á Hringbraut og stjórnar spennandi umræðuþætti um málefni líðandi stundar, bæði á sjónvarpstöðinni Hringbraut og útvarpsstöðinni sem er á bylgjulengd 89,1.
Heimildarmynd um íslenska refinn
RÚV Refurinn sunnudag kl. 20.25. Ný og áhugaverð heimildarmynd um íslenska refinn í leikstjórn Guðbergs Davíðssonar. Myndin fjallar um ævintýralegan lífsferil refsins, líf refafjölskyldu og örlög hennar í harðbýlu landi.
RÚV Humarsúpa innifalin sunnudag kl. 14.10. Skemmtileg heimildarmynd um ferð Þorsteins Guðmundssonar til Hríseyjar þar sem hann á að vera með uppistand. Fylgst er með skrautlegu ferðalagi grínistans frá Reykjavík til Hríseyjar þar sem hann syngur lög, borðar skyndibita og hugsar upphátt um kynlíf og jólin.
Fróðlegir þættir um eyðibýli RÚV Eyðibýli sunnudag kl. 19.45. Áhugaverð þáttaröð um eyðibýli á Íslandi í umsjón Guðna Kolbeinssonar. Rætt er um byggingu býlanna og spjallað við fólk sem tengist svæðunum á einn eða annan hátt. Þættirnir byggja að hluta á bókunum Eyðibýli á Íslandi, virkilega fróðlegir þættir sem áhugafólk um eyðibýli ætti ekki að láta framhjá sér fara.
FÉKKSTU EKKI BLAÐIÐ Í DAG?
HAFÐU ÞÁ SAMBAND VIÐ DREIFING@FRETTATIMINN.IS RÚMFÖT | BARNADÚNSÆNGUR | ILMVÖRUR | ELDHÚSVÖRUR | BARNAFÖT | O.M.FL.
40% AFSLÁTTUR
LÝKUR
N U G R Á MO
RÝMUM FYRIR NÝJUM VÖRUM
Laugardagur 28.05.16 rúv 07.00 KrakkaRÚV 10.35 Leiðin til Frakklands (6:12) Í þættinum er farið yfir lið allra þátttökuþjóðanna á Evrópumótinu í knattspynu í sumar, styrkleika þeirra og veikleika og helstu stjörnur kynntar til leiks. e. 11.05 Menningin (37:50) Brot úr menningarumfjöllun liðinnar viku. 11.25 Í garðinum með Gurrý (4:6) e. 11.55 Hæpið (2:2) (Landamæri 2) e. 12.25 Vestfjarðarvíkingurinn e. 13.30 Kvöldstund með Jools Holland e. 14.35 Íslensku björgunarsveitirnar (Fjallabjörgun) e. 15.20 Lottóhópurinn (1:6) (The Syndicate) e. 16.20 Vísindahorn Ævars (Galileo Galilei) 16.30 Ævar vísindamaður e. 16.55 Sterkasti maður Íslands 17.45 Táknmálsfréttir 17.55 KrakkaRÚV (146:300) 18.05 Krakkafréttir vikunnar 18.25 Íþróttaafrek Íslendinga (2:2) e. 18.54 Lottó (40:70) 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Áramótaskaup 2009 20.40 Vatnarisinn (Mee-Shee: The Water Giant) 22.20 The Guilt Trip (Með mömmu í för) Bráðfyndin gamanmynd með Barböru Streisand og Seth Rogen í aðalhlutverkum. 23.55 The Carnage (Illdeilur) e. 01.10 Útvarpsfréttir í dagskrárlok (70)
skjár 1 11:15 Dr. Phil 11:55 The Tonight Show with Jimmy Fallon 13:55 The Voice (25:26) 15:25 Survivor (13:15) 16:10 Kitchen Nightmares (3:4)
16:55 Top Gear (5:8) 17:45 Black-ish (19:24) 18:10 Saga Evrópumótsins (11:13) 19:05 Difficult People (7:8) 19:30 Life Unexpected (8:13) 20:15 The Voice (26:26) 21:45 Waiting… 23:20 The 40 Year Old Virgin 01:20 Edison 03:00 Law & Order: UK (6:8) 03:45 CSI (14:18) 04:30 The Late Late Show with James Corden 05:10 The Late Late Show with James Corden 05:50 Pepsi MAX tónlist
Stöð 2 18:30 Fréttir 18:55 Sportpakkinn
Hringbraut 12:00 Umræðan/30 mínútur e. 13:00 Umræðan/Kjörklefinn e. 14:00 Lífið/Ég bara spyr e. 15:00 Lóa og lífið 15:30 Bankað upp á 16:00 Lífið/Mannamál e. 17:00 Olísdeildin e. 18:00 Atvinnulífið e. 18:30 Matjurtir e. 18:45 Allt er nú til e. 19:00 Umræðan / Ritstjórarnir e. 20:00 Lóa og lífið 20:30 Bankað upp á 21:00 Lífið/Ég bara spyr 22:00 Lífið/Mannamál 23:00 Umræðan/Þinghóll
N4 16:30 Hvítir mávar 17:00 Að norðan 17:30 Mótorhaus (e) 18:00 Milli himins og jarðar 18:30 Að austan 19:00 Að Norðan 19:30 Föstudagsþáttur 20:30 Íslendingasögur 21:00 Að vestan 21:30 Hvítir mávar 22:00 Að norðan 22:30 Mótorhaus (e) 23:00 Að austan
Á SLÓÐIR MAYA INDÍÁNA
MEXICO, BELIZE & GUATEMALA 04
-
19
Október
2016
Við kynnumst stórkostlegri náttúru, dýralíf og hinum forna menningarheimi Maya indíána. Skoðum m.a. píramída,gamlar menningaborgir, syndum í sjónum við næst stærsta kóralrif heims og upplifum regnskóginn. Endum svo á lúxus hóteli við Karabíska, þar sem allt er innifalið.
568.320.á mann í 2ja manna herbergi
Innifalið: Flug, skattar, hótel með morgunmat, islenskur fararstjóri, allar ferðir og aðgangur þar sem við á.
WWW.TRANSATLANTIC.IS
SÍMI: 588 8900
Þorsteinn Guðmundsson fer til Hríseyjar
Sunnudagur 29.05.16 rúv 07.00 KrakkaRÚV 10.10 Áramótaskaup 2009 11.10 Augnablik - úr 50 ára sögu sjónvarps (21:50) e. 11.25 Eyðibýli (3:6) e. 12.05 Börn eru rót alls ills (Børn er roden til alt ondt) Ný heimildarmynd frá DR. e. 13.25 Halldór Ásgeirsson Heimildarmynd um Halldór Ásgeirsson myndlistarmann. e. 14.10 Humarsúpa innifalin e. 15.00 Konur rokka e. 16.05 Á sömu torfu (Common Ground) e. 16.20 Attenborough: maðurinn á bakvið myndavélina e. 17.15 Basl er búskapur (11:11) 17.45 Táknmálsfréttir 17.55 KrakkaRÚV (147:300) 18.00 Stundin okkar (9:22) e. 18.25 Leiðin til Frakklands (8:12) 19.00 Fréttir 19.25 Íþróttir 19.35 Veður 19.45 Eyðibýli (4:6) Ný þáttaröð um eyðibýli á Íslandi. 20.25 Refurinn Ný íslensk heimildarmynd um íslenska refinn. 21.00 Indian Summers (2:10) 21.50 Borða, sofa, deyja (Äta sova dö) Sænsk verðlaunamynd. Ung kona frá austur Evrópu sem vinnur í verksmiðju í Svíþjóð, þarf að taka afdrifaríka ákvörðun þegar henni er sagt upp í hagræðingarskyni. Leikstjóri: Gabriel Pichler. Leikarar: Nermina Lukac, Milan Dragisic og Jonathan Lampinen. 23.35 Vitnin (1:6) (Øyevitne) e. 00.35 Útvarpsfréttir í dagskrárlok (71)
skjár 1 15:30 Growing Up Fisher (9:13) 15:50 Philly (21:22) 16:35 Life is Wild (3:13) 17:20 Parenthood (11:22) 18:05 Stjörnurnar á EM 2016 (10:12) 18:35 Leiðin á EM 2016 (12:12)
19:05 Parks & Recreation (7:13) 19:25 Top Gear: The Races (7:7) 20:15 Scorpion (24:25) 21:00 Law & Order: Special Victims Unit (12:23) 21:45 The Family (7:12) Dramatísk þáttaröð með frábærum leikurum. Drengur sem hvarf sporlaust fyrir áratug snýr óvænt aftur til fjölskyldu sinnar. 22:30 American Crime (7:10) 23:15 Penny Dreadful (1:10) 00:00 Hawaii Five-0 (24:25) 00:45 Limitless (7:22) Dramatísk þáttaröð sem byggð er á samnefndri kvikmynd sem skartaði Bradley Cooper í aðalhlutverki. 01:30 Law & Order: Special Victims Unit (12:23)
Stöð 2 18:30 Fréttir 18:55 Sportpakkinn
Hringbraut 12:00 Þjóðbraut á sunnudegi 14:00 Bankað upp á e. 14:30 Lóa og lífið e. 15:00 Lífið/Fólk með Sirrý e. 16:00 Lífið/Ég bara spyr e. 17:00 Atvinnulífið e. 17:30 Matjurtir e. 17:45 Allt er nú til e. 18:00 Lífið/Mannamál e. 19:00 Umræðan/30 mínútur e. 20:00 Heimilið/Afsal 21:00 Okkar fólk 21:30 Kokkasögur 22:00 Heimilið/Afsal e. 23:00 Okkar fólk e. 23:30 Kokkasögur e.
N4 16:30 Íslendingasögur 17:00 Að vestan 17:30 Hvítir mávar 18:00 Að norðan 18:30 Mótorhaus (e) 19:00 Milli himins og jarðar 19:30 Að austan 20:00 Skeifnasprettur 20:30 Að Norðan 21:00 Skeifnasprettur 21:30 Íslendingasögur
…sjónvarp
21 | amk… LAUGARDAGUR 28.MAÍ 2016
Líður best undir teppi að horfa á krimma Sófakartaflan
Helga Dís Björgúlfsdóttir, þjóðfræðingur og blaðamaður
Hvernig á að losa sig við gæjann? Netflix How to Lose a Guy in 10 Days. Sykursæt rómantísk gamanmynd með Kate Hudson og Matthew McConaughey í aðalhlutverkum. Blaðamaðurinn Andie Anderson ákveður að skrifa grein um það hvernig á að losa sig við kærastann á 10 dögum. Þegar hún fer á stúfana eftir kærasta verður Benjamin Barry á vegi hennar – en hann er nýbúinn að veðja við vini sína um að hann geti gert hvaða konu sem er ástfangna af sér. Úr verður ótrúlega skemmtileg atburðarás sem allir geta hlegið að.
„Mér finnst ég aldrei hafa tíma til að horfa á alla þættina sem mig langar að horfa á en það er fátt betra en að hlamma sér í sófann og horfa á góðan krimma. Skiptir litlu hvort þeir eru breskir eða bandarískir en ég hef enn ekki komið mér í að horfa á þessa skandinavísku. Þessa dagana er ég að horfa á Elementary, The Blacklist, Criminal Minds og White Collar á milli þess sem ég horfi á George Gentley, Midsomer Murders og Endeavour. Þegar ég er ekki að horfa á venjulega krimma horfi ég aðallega á
þætti eins og Daredevil, Supernatural og Preacher, sem mætti kalla krimma á öðru „leveli“. Uppáhaldskrimmarnir mínir eru þeir sem ég get horft á aftur og aftur. Poirot, Miss Marple og Miss Fisher‘s Murder Mysteries eru þar á meðal og eiga búningarnir og hið einfalda en skemmtilega „whodunit“ stóran þátt í því. Þrátt fyrir ást mína á þessari tegund þátta fíla ég ekki nærri því alla og gekk til dæmis Bones gjörsamlega fram af mér í vitleysunni og „one-linerar“ hans Horatio í CSI: Miami voru fyrir neðan allar hellur. En, uppi í sófa, undir teppi með góðan krimma í imbanum, þá líður mér einna best.“
Mynd | Hari
Gömul klassík með Juliu Roberts Stöð 2 My Best Friend´s Wedding laugardag kl. 19.55. Stórskemmtileg mynd með Julia Roberts, Cameron Diaz, Rupert Everett og Dermot Mulroney í aðalhlutverkum. Julianne og Michael gerðu með sér samning þegar þau voru ung um að ef þau væru bæði ennþá á lausu þegar þau yrðu 28 ára myndu þau giftast hvort öðru. Nú eru þau orðin 28 ára og Michael hyggur á hjónaband með annarri konu. Í sömu andrá áttar Julianne sig á að Michael er stóra ástin í lífi hennar og einsetur sér að stöðva yfirvofandi brúðkaup.
Þú átt póst
Netflix You´ve got Mail. Ljúf og notalega mynd með Tom Hanks og Meg Ryan í aðalhlutverkum. Kathleen Kelly á í dularfullum tölvupóstsamskiptum við nafnlausan netverja og leynir því fyrir sambýlismanni sínum. Á sama tíma stendur hún í ströngu í starfi en Kathleen rekur litla sæta bókabúð sem á undir högg að sækja eftir að stór bókaverslanakeðja opnaði hinumegin við götuna. Kathleen leitar ráða hjá dularfulla pennavini sínum og hann gefur henni góð ráð. Á endanum ákveða þau að hittast og málin taka óvænta stefnu.
Matilda
Netflix Matilda. Skemmtileg mynd fyrir alla fjölskylduna að horfa á. Matilda er ljúf og klár stúlka sem er talsvert ólík dónalegum og leiðinlegum foreldrum sínum. Matilda getur ekki beðið eftir því að byrja í skóla en þar bíður hennar ekki mikið betra umhverfi en heima hjá henni. Það er ekki fyrr en Matilda uppgötvar yfirnáttúrulega krafta sína að hlutirnir fara að snúast henni í hag. Með aðalhlutverk fara Danny Devito, Rita Pearlman og Mara Wilson.
Íslensk náttúra. Ilmandi mosi og ægifögur fjallasýn. Þú kastar mæðinni og virðir fyrir þér fegurðina; Kirkjufell, þetta sérstæða, hnarreista flaggskip Snæfellsnessins. Við höfum nýtt okkur íslensk fjallagrös frá upphafi byggðar. Heilnæm og frískandi hafa þau haft áhrif til góðs á líkama og sál, handtínd í íslenskri náttúru. Tópas hefur sömuleiðis fylgt okkur gegnum tíðina. Saman munu þau gera það áfram.
Af nýrri gamanþáttum eru Broad City, 30 Rock og Parks & Rec í miklu uppáhaldi og rosalega ferskt að fá sjónvarpsefni frá sjónarhorni kvenna.
…fólk
22 | amk… LAUGARDAGUR 28. MAÍ 2016
Lausmáll lífvörður í bobba Kim og Kanye hóta lögsókn Ofurhjónin Kim Kardashian og Kanye West hafa hótað fyrrverandi lífverði þeirra 10 milljón dollara lögsókn ef hann beygir sig ekki og biðst afsökunar. Lífvörðurinn Steve Stanulis komst í fréttirnar þegar hann opnaði sig við hvern sem á vegi hans varð um ástæður brottrekstrar hans frá hjónunum sem að hans sögn var vegna þess að hann hafði heillað Kim upp úr skónum og Kanye hafi orðið afbrýðisamur. Hjónakornin neita þessu alfarið og segja Stanulis ljúga. Vandamál
lífvarðarins lausmálga er að hann skrifaði undir trúnaðaryfirlýsingu þar sem hann sór þess eið að segja aldrei nokkurn tíma nokkuð um Kim, Kanye eða Kardashian-klanið. Þetta hafa lögfræðingar hjónanna bent honÚpps! Steve Stanulis hefði sennilega betur sleppt því að tala um Kim og Kanye. Nordic Photos/Getty Images
Gefur út bók um kynni sín af Michael Jackson Sjö árum eftir andlát Michael Jackson gefur Shana Mangatal út bók um kynni sín af Michael og mun bókin heita „Michael and Me“. Bókin kemur út á þessu ári og mun Shana segja frá rómantísku sambandi þeirra, misheppnuðum hjónaböndum söngvarans og ásökunum sem á hann bárust um kynferðisofbeldi gegn börnum. Shana segist aðeins nýlega hafa getað skoðað myndir af Michael og segir að dauði hans hafi reynst sér mjög erfiður. Hún fór svo að lesa dagbækur sínar frá þeim tíma sem þau voru saman og ákvað að gefa út bók. Henni finnst fólk ekki minnast Michael á þann hátt sem hann eigi skilið. „Michael hafði alveg áhuga á konum og var alls ekki „kynlaus“, eins og oft er sagt um hann,“ segir Shana.
um á með því að minna hann á að í trúnaðaryfirlýsingunni er gert ráð fyrir 10 milljón dollara (1,3 milljörðum íslenskra króna) í skaðabætur ef hann opnar munninn um hjúin. Stanulis stendur því frammi fyrir þeim kostum að verða gjaldþrota eða biðjast afsökunar opinberlega. Samkvæmt erlendum miðlum þarf hann ekki einu sinni að viðurkenna að hann hafi logið – aðeins að biðjast afsökunar. Og hversu erfitt er það?
Þögnin er gullin Ofurhjónin Kim Kardashian og Kanye West vilja ekki láta blaðra um einkalífið sitt. Nordic Photos/Getty Images
Íþróttaheimurinn er síðasta vígið
María Helga Guðmundsdóttir lýsti reynslu sinni af því að vera hinsegin í íþróttum. Hún þekkir fordóma af eigin raun og þótti erfitt að hlusta á fólk sem hún lítur upp til segja hommabrandara í hennar viðurvist Sólrún Lilja Ragnarsdóttir solrunlilja@amk.is
S
tór þáttur í því sem gerir hinsegin fólki erfitt fyrir í íþróttum er þögn. Stundum fer þögnin jafnvel út þöggun. Þá er skortur á fyrirmyndum og umhverfi þar sem búið er að afgreiða þetta upp á yfirborðið með skilaboðum um það sé allt í lagi að vera samkynhneigður eða trans, eða þar fram eftir götunum,“ segir María Helga Guðmundsdóttir, landsliðskona í karate og jafningjafræðari á vegum Samtakanna '78.
Mikilvægt frumkvæði
Kim Kardashian nakin á ný Kim Kardashian er ekki hætt að taka af sér nektarmyndir en hún er þekkt fyrir að vera langt frá því að vera feimin við að fækka fötum. Nú er 6 mánuðir síðan Kim átti sitt seinna barn og hún telur sig meira en tilbúna til að láta taka af sér nektarmyndir. Hún hefur grennst mikið og í næstu myndatöku ætlar hún að vera allsnakin. Fólk virðist ekki fá nóg af Kim en allar nektarmyndir sem af henni birtast leggja internetið á hliðina og hún elskar athyglina svo allir eru að græða.
Eva Longoria giftist Eva Longoria og José „Pepe“ Bastón gengu í hjónaband um síðustu helgi í Valle de Bravo í Mexíkó en það er heimabær José „Pepe“. Eva bauð auðvitað frægu og flottu vinum sínum í veisluna en meðal viðstaddra voru Ricky Martin, Victoria og David Beckham, Melanie Griffith, Vanessa Williams og Mario Lopez. Mikið var um dýrðir og viðstaddir skemmtu sér konunglega fram á rauða nótt og margir birtu æðislegar myndir á Instagram.
Hún hélt fyrirlestur á hádegisfundi á vegum ÍSÍ, KSÍ og Samtakanna '78 um málefni hinsegin fólks innan íþrótta, sem haldinn var á miðvikudag, og lýsti meðal annars reynslu sinni af því að vera hinsegin íþróttamanneskja á Íslandi í dag. „Fyrir mér snýst þetta um að búa til vettvang til að ræða þessi mál opinskátt. Það er mikilvægt að við hjá íþróttahreyfingunni tökum frumkvæði og búum til gott umhverfi fyrir alla okkar skjólstæðinga og félaga. Svona umræða tekur sig ekki sjálf og það er mikill vilji til að gera vel.“
Hefur upplifað fordóma
Sjálf hefur María lent í aðstæðum þar sem hún hefur upplifað óvissu og óöryggi með það hvernig því yrði tekið ef hún segði frá því að hún væri hinsegin og að henni þætti óþægilegt að hlusta á endalausa hommabrandara. „Þar var um að ræða fólk sem ég lít mikið upp til í minni grein og þorði ekki að opna á mér munninn. Sem betur fer hef ég aldrei upplifað slíkt í mínu félagi eða íþróttasambandi. Ég kem úr lítilli íþróttagrein þar sem við erum öll náin og miklir uppeldisfélagar. En ég hef til dæmis verið á erlendum vettvangi þar sem allt er ópersónulegra, þar sem
Hrökklast burt María segir það almennt viðurkennt að töluvert brottfall hinsegin fólks sé úr íþróttum vegna fordóma í þeirra garð og óvinsamlegs umhverfis. Mynd | Hari
ég hef persónulega upplifað fordóma,“ segir María sem einnig hefur heyrt margar reynslusögur frá félögum sínum í öðrum íþróttagreinum sem hafa orðið fyrir mjög slæmu aðkasti. Þá þekkir hún dæmi þess að efnilegt íþróttafólk hafi hrökklast
Það er almennt viðurkennt að töluvert er um brottfall hinsegin fólks úr íþróttum. En það er eitthvað sem ætti ekki að vera erfitt að taka á með góðu forvarnarstarfi og með því að bjóða upp á góðar fyrirmyndir.
frá íþrótt sinni vegna fordóma. „Það er almennt viðurkennt að töluvert er um brottfall hinsegin fólks úr íþróttum. En það er eitthvað sem ætti ekki að vera erfitt að taka á með góðu forvarnarstarfi og með því að bjóða upp á góðar fyrirmyndir og vinsamlegt umhverfi,“ segir María.
Allt á réttri leið
„Það er stundum talað um að íþróttaheimurinn sé síðasta vígið,“ segir hún aðspurð hvort þetta hafi ekki breyst til batnaðar á síðustu árum. „Sérstaklega í knattspyrnunni, strákamegin. Þeir eru teljandi á fingrum annarrar handar sem hafa verið hreinskilnir með það hverjir þeir eru meðan á keppnisferlinum stendur. Ég held samt, að minnsta kosti í okkar samfélagi, þá sé þetta allt á leið í rétta átt.“
3 milljónir fékk fatahönnuðurinn Magnea Einarsdóttir í styrk úr Hönnunarsjóði til að þróa áfram fatamerki sitt MAGNEA.
alla föstudaga og laugardaga
Bilaðir dagar í gangi
Sölvi Tryggvason er að leggja lokahönd á myndina Jökullinn logar, sem fjallar um leið íslenska landsliðsins á EM í knattspyrnu „Það verður örugglega æðislegt þegar maður fer á forsýninguna á sinni eigin mynd, þó þetta séu dálítið bilaðir dagar sem eru í gangi akkúrat núna,“ segir Sölvi Tryggvason, höfundur og framleiðandi myndarinnar Jökullinn logar, sem fjallar um leið íslenska landsliðsins í knattspyrnu á EM í Frakklandi. Sölvi er nú að leggja lokahönd á myndina, sem frumsýnd verður 3. júní næstkomandi, og er að dag og nótt. „Á sama tíma
og við erum að kynna myndina og skipuleggja það að koma henni í bíó þá erum við að leggja lokahönd á sjálfa myndina,“ útskýrir hann. Um er að ræða fyrstu mynd Sölva og þó hann hafi töluverða reynslu af þáttagerð þá er heilmargt sem hefur komið honum á óvart. „Það eru svo mörg smáatriði við gerð bíómyndar sem eru öðruvísi en þegar maður er að gera sjónvarpsþætti. Margt mun flóknara. Þegar fram í sótti fór ég
líka í hlutverk framleiðandans, þannig þetta hefur verið góður skóli fyrir mig.“ Aðspurður hvort hann hafi gert sér grein fyrir því þegar hann lagði af stað í þetta verkefni árið 2014, hve mikil vinna biði hans, er svarið einfalt: „Nei.“ Sölvi er nokkuð viss um að þeim hafi tekist að gera góða mynd og viðtökurnar við stiklu úr henni hafa verið mjög góðar. „Það er hins vegar ótrúlega erfitt að spá fyrir um hvernig gengur og ég
hef í gegnum tíðina lært að stilla væntingum í hóf.“ En hvað tekur við hjá honum þegar allri vinnu við myndina er lokið? „Ég er á þeim stað núna að ég ætla að klára þetta verkefni þannig að ég geti sagt að ég hafi lagt allt í þetta. Og ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætla að gera svo,“ segir Sölvi sem gerir þó ráð fyrir að smá hvíld verði kærkomin. | slr
Nóg að gera Sölvi er viss um að tekist hafi að gera góða mynd
Hildur skoðar tilboð Söngkonan Hildur, sem sló í gegn með laginu I’ll Walk with You, skoðar nú atvinnutilboð sem henni hafa borist að undanförnu. Hildur var ein þeirra sem var látin fara í fjöldauppsögnum hjá Plain Vanilla í síðasta mánuði eftir þriggja ára starf hjá fyrirtækinu sem er þekktast fyrir spurningaleikinn Quiz Up. Hildur hefur þó nóg að gera því að hún er leggja lokahönd á nýtt lag og myndband með því.
Kringlunni | sími 534 0066
Nýjar peysur frá Júníform Mikið úrval Forsetabók frestast Útgáfu bókar Guðna Th. Jóhannessonar, sagnfræðings og forsetaframbjóðanda, um sögu forsetaembættisins sem koma átti út á vegum Forlagsins, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Ástæðan er einföld: Guðni er sjálfur í framboði og langlíklegustur til að verða næsti forseti, ef eitthvað er að marka skoðanakannanir. Forlagsmenn eru þó rólegir – sjálfsagt alveg til í að bíða í átta ár með útgáfu bókarinnar.
Ný tónlist væntanleg Söngkonan Svala Björgvinsdóttir og maður hennar, Einar Egilsson, hafa verið að semja og taka upp nýja tónlist frá því í október á síðasta ári, fyrir nýtt tónlistarverkefni sem heitir Blissful. Efnið mun líta dagsins ljós á næstu vikum en þau hafa stofnað Instagram-reikning þar sem þau birta myndir sem tengjast verkefninu og aðdáendur geta því gert sér einhverja hugarlund um hvers má vænta. Hjónin hafa verið búsett í Los Angeles um árabil og ljóst er að þau eru að gera góða hluti í borg englanna.
Nýjar gallabuxur Margir litir og margar gerðir Verð frá 8.990 kr.-