Heimili & hönnun Kynningarblað
Helgin 2.-5. apríl 2015
Marokkóskur leirpottur uppáhalds eldhúsáhaldið Matgæðingarnir Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson eiga sér uppáhalds eldhúsáhald: Marokkóskan leirpott, eða tagínu, sem þeir keyptu í París. Þeim finnast eldhúsverkin skemmtileg og njóta þess að elda á 73 ára gamalli bandarískri eldavél.
A
lbert og Bergþór búa í sjarmerandi húsi við Lindargötu 12 í Reykjavík. Sælgætisgerðin Freyja lét byggja húsið á fimmta áratug síðustu aldar og flutti þá inn sérstakar eldavélar frá Bandaríkjunum með tvöföldum ofni. Albert og Bergþór hafa eina slíka í eldhúsinu hjá sér og er hún nánast í stöðugri notkun. „Hún bilaði að vísu ein jólin og það var enginn rafvirki sem treysti sér til að gera við hana,“ segir Albert. Þeir voru því eldavélalausir þau jólin og grilluðu á aðfangadag.
Eftir jólin komust þeir hins vegar í kynni við rafvirkja sem hafði starfað á herstöðinni í Keflavík og hann gat gert við hana og er vélin því enn í fullu fjöri.
Marokkóskur leirpottur í uppáhaldi
Aðspurðir um uppáhalds eldhúsáhald nefna þeir tagínu, sem er leirpottur ættaður frá norður-Afríku. Albert og Bergþór eru báðir miklir mataráhugamenn og hafa gaman af því að elda og prófa nýja rétti. „Ofan
á pottinn fer eins konar hattur sem þrengist eftir því sem ofar dregur og minnir svolítið á stromp. Tagínur eru til í ýmsum stærðum og gerðum og hægt er að elda nánast hvað sem er í þeim,“ segir Albert, en þeir Bergþór nota pottinn aðallega í marokkóska kjöt- og grænmetisrétti. „Mikil gufa myndast sem stígur svo upp, þéttist og fellur að lokum niður aftur. Þetta gerir það að verkum að allt sem er eldað í tagínunni verður afskaplega mjúkt og bragðgott,“ segir Albert.
Tagína í handfarangri
Albert og Bergþór keyptu tagínuna í París fyrir nokkrum árum. „Hún er frekar stór og þurftum við að burðast með hana heim í handfarangri,“ segir Albert, en það var vel þess virði. „Við notum okkar mjög
Matgæðingarnir Albert Eiríksson og Bergþór Pálsson halda mikið upp á marokkóskan leirpott, svokallaða tagínu, sem þeir keyptu í París fyrir nokkrum árum. Mynd/ Hari.
mikið fyrir alls konar rétti og leyfum þá réttinum gjarnan að malla í tvo til þrjá tíma á hellunni. Þó svo að ofninn okkar sé tvöfaldur er hann því miður ekki nógu stór fyrir tagínuna þannig við notumst við eldavélarhelluna.“
Væn páskaterta
Albert segist ekki viss um hvort tagínan verði notuð við páska-
matseldina. „Eina páskahefðin sem við höfum tengda eldhúsinu er að ég baka væna tertu sem við höfum með páskakaffinu.“ Tertan í ár mun meðal annars innihalda nutella. „Svo munum við án efa bregða undir okkur betri fætinum um páskahelgina og ferðast aðeins um landið,“ segir Albert að lokum
Plöntur lífga upp á eldhúsið
Plöntur í öllum stærðum og gerðum lífga upp á eldhúsið. Fyrir suma reynist hins vegar ómögulegt að halda lífi í plöntunum, enda er ekki til nein ákveðin regla um það hvenær á að vökva því þættir eins og stærð potta, birta og hitastig hafa allir áhrif. Ágætt er þó að miða við blómstrandi plöntur þurfa meira vatn en blaðplöntur og blaðplöntur meira vatn en kaktusar. Þegar sól tekur að hækka á lofti er einnig tilvalið að rækta kryddjurtir í eldhúsglugganum. Þær eru auðveldar í ræktun ásamt því að vera nytsamlegar í matargerð. Margar þeirra hafa þá eiginleika að ilma einstaklega vel. Ef plássið er mikið er sniðugt að prófa sem flestar tegundir og finna hvað bragðast og virkar vel, annars er betra að velja eitthvað sem að maður notar mikið, til dæmis basiliku.
limtrevirnet.is
Andlit hússins er bílskúrshurð frá Límtré Vírnet
Stuttur afgreiðslutími – uppsetningarþjónusta Söluaðili:
Aðalnúmer: 412 5300 | Söludeild: 412 5350 Aðalskrifstofa - Borgarbraut 74 - 310 Borgarnes Aðalskrifstofa Aðalskrifstof Söluskrifstofa Söluskrifstof Söluskrifsto fa - Vesturvör 29 - 200 Kópavogur Netfang - sala@limtrevirnet.is
Frábært úrval
20% afsláttur
af öllum kæliog frystiskápum!!