Halendi 02 07 2016

Page 1

Sérblað um hálendisferðir sumarið 2016

Sögur af óbyggðinni

Ferðamenn sjá fegurðina í okkar hversdags­ leika. Það er ekki nema nokkurra klukkustunda akstur að ógleymanlegum náttúruperlum sem Íslendingar verða að heimsækja.

@mmkwock á Instagram

Næturganga um Hornvík Hornstrandir – Matt Kwock „Hornstrandir er ótrúlega fallegur staður. Ég ferðaðist með hópi ljósmyndara og við gengum heila nótt til árla morguns. Það var hlýtt í veðri þetta júníkvöld og við nutum útsýnisins yfir stórbrotnu landslagi Hornvíkurklettanna. Við vorum heppin með veður og gátum notið miðnætursólarinnar setjast og rísa aftur um morguninn á meðan við könnuðum svæðið. Ég mun aldrei gleyma fegurðinni og kyrrðinni á svæðinu. Það er einstök og öflug tilfinning að vera fjarri byggð og samfélagi manni í slíkri náttúruperlu.“

Sjö heimsóknir til Íslands Eldgjá – Volker Jähnke „Þetta er í annað skiptið sem ég heimsæki Eldgjá en í fyrra skiptið gafst mér ekki tækifæri til að ganga að Ófærufossi. Þegar ég heimsótti Ísland í sjöunda skiptið ferðaðist ég með fjölskyldunni um hálendið. Við heimsóttum Hrauneyjar í nokkra daga og í kjölfarið Fjallabaksleið nyrðri að Eldgjá. Leiðin var stórkostleg og veðrið sömuleiðis, svo við héldum að Ófærufossi fótgangandi. Veðrið tók skyndilegum breytingum en við vorum ekki klædd fyrir slíka rigningu sem tók við okkur. Það voru allir dálítið svekktir út í mig fyrir að hafa dregið sig þangað upp, orðin blaut í gegn. Það hinsvegar gleymdist allt þegar þessi fagri regnbogi lét sjá sig. Þetta er ein af mínu bestu minningum frá Íslandi, þessi afskekkti staður og fegurðin var ógleymanleg.“

@volkerjahnke á Instagram

EKKI FLÆKJA FERÐINA TAKTU RÚTU!

Trex er eitt af stærstu rútufyrirtækjum landsins með áratuga reynslu í þjónustu við hópa. Eigum bíla fyrir litla og stóra hópa allt frá 14 sæta bílum upp í 69 sæta bíla. Hafið samband og látið okkur um aksturinn! N upp ánari lýsi nga rá

trex

.is

Sími: 587 6000 - Netfang: info@trex.is

@joshuaarrgh á Instagram

Fékk loksins að sjá fossinn Dettifoss – Joshua Robertson „Í gegnum árin sem ég hef heimsótt Ísland hefur mér ekki gefist tækifæri til að heimsækja Dettifoss. Það hefur ýmist verið ófært vegna rigningar eða þungs snjós. Í ár fékk ég loksins drauminn uppfylltan og upplifði krafta þessa stórkostlega foss. Ótrúleg tilfinning sem ég mun aldrei gleyma.“


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.