Heilsa Kynningarblað
móðir & barn Helgin 24.-26. janúar 2014
Hugsaðu vel um þig eftir fæðingu Að verða foreldri er einn mest spennandi tíminn í lífi fólks. Það hefði líklega ekki mörgum dottið í hug að svona lítil mannvera gæti þurft svona mikla umönnun. En á meðan þú hugsar um nýja barnið þitt skaltu gefa þér tíma til að hugsa um sjálfa þig líka. Ef þú gefur þér tíma til að hugsa um sjálfa þig ertu betur í stakk búin til að hugsa um barnið þitt. Það er mikilvægt að nýta þá aðstoð sem býðst frá fjölskyldu og vinum. Athugaðu hvort þú getur beðið þau um aðstoð við þrifin, eldamennskuna, þvottinn eða hvort þau geti passað barnið.
Nokkur heilræði: Svefn Þú munt líklega ekki fá mikinn svefn fyrstu vikurnar og mánuði eftir að barnið fæðist. Reyndu að leggja þig á meðan barnið sefur. Reyndu að vera virk yfir daginn og ekki reykja eða drekka. Fæðingarþunglyndi Suma daga gætir þú verið pirruð, uppstökk og niðurdregin en það er eðlilegur partur af því að takast á við nýtt hlutverk. Ef þér líður hins vegar illa flesta daga skaltu tala við lækni eða ljósmóður.
Hreyfing Nýttu tækifærið og reyndu að ganga eins mikið og þú getur.
Forðastu salt Ekki innbyrða meira en 6 g, eða u.þ.b. teskeið, af salti á dag.
Áfengi Ekki drekka áfengi ef þú ert með barn á brjósti því áfengið gæti farið í brjóstamjólkina. Forðastu að nota áfengi til að slaka á og reyndu frekar að fara í bað, spjalla við vin eða eyða tíma með makanum.
Næringarríkur matur Það er sérstaklega mikilvægt að borða hollan og næringarríkan mat þegar þú ert með barn á brjósti.
5 á dag Reyndu að borða að minnsta kosti fimm skammta af ávöxtum og grænmeti á dag.
Vítamín Mundu að taka D-vítamín ef þú ert með barn á brjósti.
PIPAR\TBWA • SÍA • 142616
Mynd/Getty Images
Bambo Nature bleiurnar eru einstaklega mjúkar og þægilegar. Þær eru afar rakadrægar og ofnæmisprófaðar auk þess sem gott snið og teygjur í hliðum gera það að verkum að þær passa barninu fullkomlega.
Sölustaðir Bambo Nature