Heilsutíminn

Page 1

52

heilsutíminn

Helgin 4.-6. september 2015

Heilsan að hausti

 MarkMiðasetning VeruM r aunhæf

Þ

PISTILL

Teitur Guðmundsson læknir

að er komið fram í september og sumarið sem aldrei kom er að skipta sér út og við öll að setja okkur í stellingar fyrir það sem koma skal. Það er næsta öruggt að það er kaldari tími framundan, en kannski erum við heppin og fáum einhverja framlengingu og milt veður næstu vikur. Það væri örugglega gott fyrir sálartetrið, en þessi tími er annars umvafinn dulúð, krafti og fegurð. Skólarnir eru byrjaðir og starfsemi fyrirtækja að komast á skrið með undirbúningi fyrir veturinn. Það er eitthvað ánægjulegt við haustið, maður er fullur af orku eftir sumarið og reiðubúinn að takast á við verkefni þau sem liggja fyrir með eftirvæntingu og þá er gott að komast aftur í rútínuna sína. Ég er hrifinn af þessum tíma, hann er fallegur, sérstaklega þegar litir umhverfisins breytast og næturfrost og norðurljós láta á sér kræla á ný. Annríkið eykst á þessum sama tíma, dagarnir verða skipulagðari og verkefnin fjölbreytt fram að næsta sumri, hvort heldur sem við erum í vinnu eða skóla. Margir eru staðráðnir að komast í gott form eftir sumarið, ætla að æfa af krafti að nýju og bæta mataræði sem oft vill versna í fríinu. Líkamsræktarstöðvarnar fyllast af fólki sem hefur „trassað“ hreyfingu sína um sumarið og vill ná af sér grillsteikunum. Í það minnsta að komast í kjólinn fyrir jólin, vera klúbb fitt, sjokkbylgja sig og svo framvegis. Það er allt gott og blessað og vonandi ná allir þeim markmiðum sem þeir hafa sett sér. Aðalatriðið er að fylgja almennum leiðbeiningum og fara ekki fram úr sjálfum sér með ofþjálfun eða rangri líkamsbeitingu, ofneyslu próteindrykkja og fæðubótarefna svo eitthvað sé nefnt. Þá er alltaf góð regla að láta fagfólk leiðbeina sér sem hefur þekkingu á starfsemi líkamans og getur sagt manni fyrir verkum í þjálfun og hvað næringu snertir. Mikilvægast er að horfa til þeirra þátta sem skipta okkur öll máli, en það eru reglubundin hreyfing, hollt mataræði, nægur svefn og hæfilegt álag. Allir ættu að eiga skilgreind verkefni við sitt hæfi og vera í góðum samskiptum við annað fólk. Þetta eru þeir þættir sem teljast til heilbrigðra lífshátta og skila sér í bættri heilsu og líðan. Á þessum tíma að hausti er mikilvægt að muna eftir þessum grundvallarþáttum, þeir sem eru undir miklu álagi og streitu og hugsa síður um sjálfan sig eru líklegri til að veikjast. Þá er einnig talið að sjúkdómar ýmis konar geti átt orsök sína í slíku ójafnvægi og hefur verið bent á flesta lífsstílssjúkdómana í því samhengi sem og krabbamein. Þá er skynsamlegt að verjast inflúensu með bólusetningu, en búast má við að hún stingi sér niður að venju seint í haust. Það er talið ráðlegt að nota bætiefni sem sannað hafa gildi sitt eins og lýsi eða D-vítamín sem okkur flest skortir yfir vetrartímabilið. Sértæk bætiefni ætti að skoða í samráði við sinn lækni. Þeir sem reykja ættu að stefna að því að hætta því, en víst er að reykingafólki er hættara við sjúkdómum í öndunarfærum svosem eins og berkjubólgu og lungnabólgu. Því er skynsamlegt að verja hæfilegum tíma til að rækta sjálfan sig og sína nánustu. Það er auðvitað ekki til nein töfraformúla þegar kemur að heilbrigði einstaklinga sem eru jafn mismunandi og þeir eru margir. Þó er ljóst að ef við náum því markmiði að halda góðu jafnvægi milli þeirra þátta sem ég taldi upp að ofan og hugsum jákvætt og uppbyggilega er líklegra en ekki að heilsa okkar verði góð. Tökum því á móti haustinu og komandi vetri með gleði og eftirvæntingu, fögnum fjölbreytileika þeirra verkefna sem fyrir okkur liggja og setjum markið hátt auk þess að muna eftir að njóta lífsins, því það mun svo sannarlega skila sér í bættri heilsu okkar.

Sýna þarf ákveðni og viljastyrk til að ná markmiðum. Ljósmyndir/NordicPhotos/Getty

Mikilvægt að setja sér markmið Aðalmálið með að setja sér markmið þegar kemur að ástundun líkamsræktar er að þau séu raunhæf, að þú trúir því að þú getir náð þeim og að þau séu mælanleg, t.d. að lækka hjartsláttinn, minnka fituprósentuna, léttast um ákveðið mörg kíló o.s.frv.

s

kammtímamarkmið eru frekar auðveld markmið sem koma okkur á sporið í átt að lokatakmarkinu. Skammtímamarkmiðin veita þér mikla gleði þegar þeim er náð og halda baráttuandanum við á leið þinni að stóra sigrinum. Reyndu að vera nokkuð nákvæm(ur) þegar þú setur þér skammtímamarkmiðin, hafðu þau það erfið að þú þurfir að hafa fyrir þeim en ekki þannig að þú gefist upp á þeim. Mundu að þú þarft að sýna ákveðni og viljastyrk, en ef þú gerir það færðu það þúsundfalt til baka. Skammtímamarkmið ættu að ná yfir u.þ.b. 4 - 6 vikur og geta t.d. verið að mæta 1 - 2 sinnum í ræktina, borða hollt allavega einu sinni á dag eða neita sér um einhverja freistingu. Miðtímamarkmiðin þín eru framlenging á skammtímamarkmiðunum og eiga að ná yfir 4 til 12 mánuði. Þar herðirðu aðeins á skemmri markmiðum þínum og getur farið enn lengra með þau. Á miðtímanum ertu farinn að sjá virkileg áhrif frá æfingunum og breytta mataræðinu, þú finnur mun á fötum, hvíldarpúlsinn er lægri, þú ert léttari og fituprósenta þín hefur lækkað. Þú finnur jafnvel fyrir skapferlisbreytingum eins og aukinni einbeitingu og þolinmæði og meira sjálfstrausti. Miðtímamarkmiðin þurfa að vera meira krefjandi en skammtímamarkmiðin en þó aldrei svo að þér finnist allt vera kvöð á þér, fyrst og fremst á þetta að vera gaman og þú átt að hlakka til næstu æfingar en ekki kvíða fyrir henni.

10 góð ráð til að létta byrði skólatöskunnar Skólarnir eru nú farnir á fullt og því rétt að huga að skólatöskum og öðrum fylgihlutum. Að mörgu er að hyggja þegar ný taska er keypt en einnig mikilvægt að vera meðvitaður um hvernig best er að nota skólatöskurnar. Hér má líta á 10 atriði sem vert er að hafa í huga til að létta byrðina:

1. Látið barnið aldrei bera meira en 15% af eigin líkamsþyngd. 2. Setjið þyngstu hlutina sem næst baki barnsins og raðið vel í töskuna þannig að bækurnar séu síður á ferðinni. 3. Nota alltaf báðar axlarólarnar. 4. Veljið bakpoka með vel fóðruðum axlarólum. 5. Veljið rétta stærð af tösku fyrir barnið jafnhliða því hve mikið pláss skóladótið þarf. 6. Stillið axlarólarnar þannig að

taskan passi vel að baki barnsins. Taskan ætti aldrei að ná lengra en 10 cm niður fyrir mitti. 7. Muna að nota mittisólina,

ef að hún er á skólatöskunni, en hún hjálpar við að dreifa þyngd töskunnar. 8. Skoðið hvað barnið er að bera í töskunni á milli skóla og heimilis. Verið viss um að það sé einungis það sem það þarf að nota þann daginn. 9. Ef skólataskan er of þung, íhugið að nota tösku á hjólum, ef barnið samþykkir. 10. Þá daga sem skólataskan er yfirhlaðin getur barnið borið bækur eða hluti í fanginu – það minnkar álagið á bakið. Heimild: doktor.is

Langtímamarkmiðin eru í raun fínpússuð miðtímamarkmið. Þau eiga að ná yfir lágmark eitt ár og helst að endast alla ævi. Langtímamarkmiðin eiga að vera þau að þú sért sáttur við eigin líkama og heilsu og að þú búir í líkama sem veitir þér sjálfstraust og gleði. Hollt mataræði og regluleg hreyfing eiga að vera orðin hluti af þínu nýja lífi og þú hefur nú þá þekkingu á þínum eigin líkama að þú veist hversu miklar æfingar og hversu strangt mataræði hann þarf til að virka eins og honum er ætlað. Þó að allt þetta hljómi vel og virki auðvelt er langt í frá að svo sé. Það munu koma upp hundruð augnablika þar sem þér mun finnast þetta mjög erfitt og það munu koma upp vandamál sem þér finnast jafnvel óyfirstíganleg. Þú munt freistast til að sleppa æfingu og þú munt freistast til að fá þér nammi þegar þú ættir að fá þér epli. Það mikilvægasta er að þú gerir þér grein fyrir þessu öllu frá upphafi og ætlir ekki að fara af stað án þess að falla nokkurn tíma af baki. Málið er ofur einfalt, Það falla nær allir einhvern tímann á markmiðum sínum, fyrstu vikuna, fyrsta daginn eða jafnvel fyrsta klukkutímann. Það er enginn fullkominn. Að þú sért að gera betur í dag en í gær og betur þessa vikuna en þá seinustu er það sem skiptir máli, aldrei gleyma því. Heimild fengin af www.thjalfun.is

Burt með lúsina Nú er lúsin farin að stinga sér niður eina ferðina enn í skólum landsmanna. Lúsin fer ekki í manngreinarálit, það geta allir smitast, en smit er algengast hjá 3-11 ára börnum. Lúsin er afar hvimleið, en hún er ekki á neinn hátt hættuleg. Meðferð er ekki alltaf einföld, sérstaklega ef ekki er nægjanlega vandað til hennar

í upphafi og oft þarf að meðhöndla aðra í fjölskyldunni eða nánasta umhverfi þess smitaða. Hægt er að fá lúsameðal án lyfseðils í næstu lyfjaverslun, þessi efni eru borin í hárið í þeim tilgangi að drepa lús og nit. Afar mikilvægt er að fara nákvæmlega eftir leiðbeiningum sem fylgja. Samhliða því þarf jafnframt að:

 Skoða aðra í nánasta umhverfi.  Meðhöndla þá sem eru með lús samtímis.  Kemba daginn eftir að meðferð var beitt til að athuga hvort meðferðin hafi heppnast og síðan er nauðsynlegt að kemba annan hvern dag í daga þar á eftir.

 Endurtaka meðferðina sjö dögum eftir upphaflegu meðferðina.  Frysta höfuðföt, kodda, tuskudýr og annað þvíumlíkt í að minnsta kosti 4 klukkustundir við –20°C. Heimild: doktor.is


LANDSINS

Bragðgóðir og svalandi drykkir, fullir af vítamínum, steinefnum, jurta og ávaxta extract og örlítið af ávaxtasykri. Fáanlegir í 4 bragðtegundum.

MESTA

ÚRVAL

fyrir heilsuna

Vitamin Well

Allir þurfa að upgrade-a sig. Eða næstum allir.

und Ný bragðteg

Gott verð 2.899 kr/stk

TILBOÐ

20% afsláttur á kassa

Amino Energy

TILBOÐ

20%

Ný tegund hefur bæst við fjölskylduna, bláberja.

afsláttur á kassa

Chia fræ + ávextir + grænmeti Án viðbætts sykurs 1200 mg af Omega -3 trefjar - og próteinríkir 70-80 hitaeinigar Glútenlaustir og vega

Rapunzel

Mamma Chia skvísur

Fáðu Rapunzel lífrænar vörur á tilboði í næstu verslun.

ljúffengir og afar hentugir chia grautar stútfullir af næringu fyrir unga sem aldna. Fullkomið orkuskot í amstri dagsins!

aup Nýtt í Hagk

aup Nýtt í Hagk

TILBOÐ

20% afsláttur á kassa

Gott verð 399 kr/stk QUEST prótein snakk

Ekta kartöfluflögur, 21g prótein, aðeins 5g kolvetni og engin fita. Brakandi og samviskulaust Quest!

ISOPURE prótein

Enginn sykur, Engin kolvetni. Hentar þeim sem hafa mjólkuróþol

VIT HIT vítamín drykkir

5 tegundir með mismunandi virkni og vítamínum.

Gildir til 13. september á meðan birgðir endast.

Gott verð 329 kr/stk

Baggu margnota innkaupapokar Margar litir og munstur.

Froosh ávaxtasmoothie Margar bragðtegundir.

TILBOÐ

20% afsláttur á kassa

NOW vítamín


54

heilsutíminn

Helgin 4.-6. september 2015

Léttleiki tilverunnar á Balí V 13 daga ferð til eyjarinnar í vetur. Vilborg mun taka á móti hópnum 1. nóvember og verða honum innanhandar. „Um sérferð er að ræða sem þýðir að takmarkaður fjöldi sæta er í boði. Þetta verður því einstaklingsmiðuð fararstjórn þar sem ég mun gera mitt besta til að aðstoða fólk við að finna afþreyingu í takt við áhuga,“ segir Vilborg. Balí er veisla fyrir augað, andann og líkamann og segir Vilborg lengd ferðalagsins vera vel þess virði. „Eyjan er lítil en hér er hægt að gera fjölbreytta hluti. Hér er mik-

il menning, fallegar byggingar og handverk, æðislegar strendur og fallegar gönguleiðir, að ógleymdum ferskum og góðum mat.“ Vilborg segir að Balí sé tilvalinn staður til að hreinsa hugann. „Auðvitað getur maður ræktað sjálfan sig og hugann heima, en stundum þarf maður ákveðna fjarlægð líka.“ Í ferðinni mun Vilborg bjóða upp á jóga í morgunsárið alla daga. „Við munum byrja daginn á því að teygja okkur mót deginum í gleði og hlýju, hleypa röddinni út og taka stríðsmanninn auk sjálfstyrkjandi leik-

Vilborg Halldórsdóttir sér um fararstjórn í draumaferðinni til Balí.

Mynd/Getty

ilborgu Halldórsdót tur hafði dreymt um að ferðast til Bali frá því hún samdi textann við lagið Húsið og ég, sem eiginmaður hennar, Helgi Björns, gerði frægt um árið. „Í textanum sem ég samdi árið 1978 segir meðal annars: „Einu sinni fórum við í bað og ferðuðumst til Balí,“ en það var ekki fyrr en síðasta haust sem draumurinn loksins rættist og nú er ég yfir mig ástfangin af þessari eyju guðanna,“ segir Vilborg, sem ætlar að dvelja á Balí frá og með haustinu. Úrval Útsýn býður upp á einstaka

listaræfinga.“ Allar fyrirspurnir má senda á gudny@uu.is sem tekur á móti þeim með bros á vör. Frestur til að bóka draumaferðina til Balí er

til 10. september. Unnið í samstarfi við Úrval Útsýn

Colonic Plus Kehonpuhdistaja

Netlu-, túnfífla- og birkilaufstöflur örva brennslu og meltingu og eru bjúglosandi. Sérstaklega er mælt með vörunni til að hreinsa líkamann.

www.birkiaska.is

Bodyflex Strong

Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika og verkjum í liðamótum og styrkir heilbrigði burðarvefja líkamans.

Morgunverðar Taco

www.birkiaska.is

Margir hafa borðað Burrito í morgunmat, en færri hafa fengið sér Taco, enda hefur það ekki haft hollustustimpil á sér hingað til. En þessi morgunverðar Taco uppskrift er full af trefjum, prótíni úr baunum og eggjum og hollri fitu úr avókadó. Það er ekki flókin samsetning eða langur innkaupalisti. Svo er þetta mjög fljótlegt að græja í morgunsárið.

Minnistöflur Bætir skammtímaminnið. Nýtist fólki sem er undir álagi og fæst við flókin verkefni. Hentar vel fyrir eldri borgara, lesblinda og nemendur í prófum. Dregur úr streitu, eykur ró og bætir skap.

www.birkiaska.is

t í m* s e f u aðófun t s ni pr k r Vi skum ní klí

Taco morgunverður fyrir 2 Hráefni 2 lífrænar tortillur, hitaðar ½ bolli svartar baunir (hellst án sódíum) 1 tsk malað kúmen 1 tsk túrmerik Salt og pipar eftir smekk 4 egg (2 heil og 2 eggjahvítur) 2 bollar spínat eða grænkál (eða blanda af hvoru tveggja) 4 tsk kókósolía eða extra virgin olía ½ avókadó, skorinn þunnt Steinselja til að setja punktinn yfir i-ið Taco sósa ef þú vilt krydda líf þitt aðeins fyrir daginn!

Aðferð Hrærðu saman 2 heil egg og eggjahvítu úr tveimur, settu til hliðar. Settu tortillurnar á góðan hita í ofninum þar til að þær eru orðnar vel stökkar. Hitaðu við lágan hita svörtu baunirnar, túrmerik, kúmen, salt og pipar. Á meðan þessi blanda er að hitna, settu þá 2 tsk af olíu í pott og hitaðu aðeins upp spínatið og grænkálið. Settu restina af olíunni á pönnu og steiktu nú eggin. Settu heitar tortillur á disk, settu baunirnar fyrst, spínat og svo egg. Toppar þetta með avókadó og steinselju.

Lúsasjampó

eyðir höfuðlús og nit

Öflugt - fljótvirkt - auðvelt í notkun Virkar í einni meðferð Fljótvirkt: Virkar á 10 mínútum 100% virkni gegn lús og nit Náttúrulegt, án eiturefna FÆST Í ÖLLUM APÓTEKUM Íslenskar upplýsingar er að finna á www.licener.com/IS

* Abdel-Ghaffar F et.al; Parasitol Res. 2012 Jan; 110(1):277-80. Epub 2011 Jun 11.

Fyrir 2 ára og eldri

Mjög auðvelt að skola úr hári!

Heimild af www.heilsutorg.is

2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.


Orka og næring

Lífrænt

fjölvítamín fjölskyldunnar „Ég get ekki hugsað mér að vera án Lifestream Spirulina sem hefur hjálpað mér í gegnum allt.“ Ásdís Einarsdóttir, verslunarstjóri hefur notað Lifestream Spirulina síðan á sinni fyrstu meðgöngu og brjóstagjöf. Hún velur Lifestream vörurnar fyrir fjölskyldu sína til að viðhalda góðri heilsu, orku og einbeitingu.

100 næringarefni „Spirulina frá Lifestream er lífrænt fjölvítamín fjölskyldunnar og eykur hjá okkur einbeitingu og orku út daginn. Okkur finnst það mjög gott hrist í appelsínusafa, eins bý ég oft til döðlunammi með Spirulina eða Veggies grænmetisduftinu. Þó við borðum mjög hollt fæði finnum við mikinn mun með Lifestream vörunum. Við erum ótrúlega heilbrigð öll og leggjumst ekki í flensur eða kvefpestir. “ Umboðsaðili: Celsus ehf Fæst í apótekum, heilsubúðum, Krónunni, Hagkaup og Nettó.


56

Listmunauppboð laugardaginn 22. ágúst 11–19

í Gallerí Fold mánudaginn 7. september og þriðjudaginn 8. september uppboðin hefjast kl. 18

heilsutíminn

Þarmaflóran hefur áhrif á skap og líkamsþyngd Rannsóknir sína í auknum mæli hversu mikilvæg þarmaflóran er heilsu okkar. Sýnt hefur verið fram á að fjölbreytileiki baktería í þörmum hefur ekki aðeins áhrif á líkamlega heilsu okkar heldur einnig andlega heilsu. Birna Ásbjörnsdóttir næringarfræðingur segir hollan og lítið unnan mat vera bestu leiðina til að viðhalda heilbrigði þarmaflórunnar.

Þ

eir sem eru með færri bakteríur í þörmunum og minni fjölbreytni eru líklegri til þess að vera of þungir eða með ákveðin krónísk vandamál. Því fjölbreyttari þarmaflóra, því minna af vandamálum,“ segir Birna Ásbjörnsdóttir næringarfræðingur sem vinnur um þessar mundir að meistarverkefni sem snýr að meltingarveginum og þarmaflórunni.

Áhrif á taugakerfið

Birna segir allar nýjustu rannsóknir benda til þess að fjölbreytileiki þarmaflórunnar jafnist á við heilt líffæri. „Þarmaflóran er stór hluti af ónæmiskerfi líkamans og hún hefur einnig mjög mikil áhrif á taugakerfið og þar með geðheilsu og líðan. Rannsóknirnar eru enn margar hverjar enn á frumstigi en það er samt farið að sýna fram á þetta samband og það eru stórar fréttir. Við vitum líka fyrir víst að þarmaflóran hefur mikil áhrif á hverskyns bólgur og sýkingar.“

Fæðumst án flórunnar Jóhannes S. Kjarval

Kristín Jónsdóttir Sæmundur Valdimarsson

Helgin 4.-6. september 2015

„Það sem gerir þetta líffæri öðruvísi en önnur er að það er áunnið, því við fæðumst án þarmaflóru,“ segir Birna. „Í fæðingunni byrjum við að fá í okkur bakteríur sem búa svo um sig í meltingarveginum til frambúðar. Fyrstu þrjú ár ævinnar eru mjög krítískur tími sem hefur mikil áhrif á það hvernig þessar bakteríur þróast og vaxa. Ef við t.d fáum mikið af sýklalyfjum á þessum árum getur það haft mikil áhrif á heilsu okkar til frambúðar. Auðvitað eru sýklalyf mjög góð og nauðsynleg en ofnotkun er áhyggjuefni því þau drepa bakteríur í þörmunum sem eru okkur nauðsynlegar og skilur okkur

Birna Ásbjörnsdóttir er að ljúka meistargráðu í næringarlæknisfræði frá Surrey-háskóla og meistaranámi í gagnreyndum heilbrigðisfræðum við Oxford-háskóla. Hún hefur starfað sem næringarráðgjafi um árabil og haldið fjölda námskeiða og fyrirlestra.

því eftir í ákveðnu ójafnvægi. Nýjustu rannsóknir sýna að það eru tengsl á milli lélegrar þarmaflóru og t.d ofnæmis og astma.“

Besta leiðin til að viðhalda heilbrigðri þarmaflóru n Almenna reglan er að borða sem minnst af unnum matvælum og sem mest af hreinu og óunnu fæði. „Þessi venjulegi heimilismatur er alltaf hollastur, matur þar sem innihaldslýsingin er helst engin eða mjög stutt.“ n Það er ekki nauðsynlegt að taka inn gerla ef við borðum fjölbreytt fæði. „Inntaka gerla eykur samt fjölbreytni flórunnar og getur því bara gert okkur gott.“ n Fæða sem hjálpar: Jógúrt og mjólkurvörur með AB-gerlum, gerjaðar og sýrðar afurðir eins og súrkál eru líka mjög góðar. „Við vorum alls ekki svo vitlaus í gamla daga því súrmaturinn er mjög góður til að brjóta niður fæðið fyrir okkur.“

Mikilvægt að borða lítið unnar matvörur

Birna segir hollt fæði skipta sköpum fyrir þarmaflóruna. „Ef við borðum fæði sem er ekki næringarríkt þá nærum við sveppi og óæskilegar örverur sem geta valdið bólgum og jafnvel öðrum sjúkdómum. Þess vegna þurfum við alltaf að huga að því þegar við borðum hvaða jarðveg við erum að rækta innvortis. Óhollur matur veikir kerfið okkar. Það er því ekki bara það að við förum á mis við góða næringu þegar við borðum óhollt, heldur erum við þá líka að næra það sem við viljum ekki næra. Við erum þá að næra veikleika okkar.“ -hh

Þessi venjulegi heimilismatur er alltaf hollastur, matur þar sem innihaldslýsingin er helst engin eða mjög stutt.

INDLAND Jógaferð í landi guðanna K

JÓGA & AYURVEDA

INDLAND

erala fylki, eða land guðanna, á Suður-Ind27. OKTÓBER – 10.ogNÓVEMBER 2015 landi er sannkölluð paradís fyrir líkama sál. Úrval Útsýn býður upp á tveggja vikna ferð til Kerala í lok október þar sem lögð verður áhersla á heilsu og vellíðan. Í boði verður sjö daga Ayurvedísk Pancha Karma hreinsun hjá hinum virta Dr. P. Sambhu sem rekur meðferðarstofu FARARSTJÓRAR við Kovalam ströndina. „Ayurveda fræðin eru þúsund ára gömul fræði 27. OKTÓBER – 10. NÓVEMBER 2015 og koma úr hinum fornu Veda-ritum á Indlandi, þeim sömu og jóga heimspekin kemur frá. Ayurveda þýðir í raun „Vísindi lífsins“ og hafa Indverjar notað þessa þekkFARARSTJÓRAR ingu í árþúsundir til að ná og við- Kristína Haraldsóttir Ólafía Wíum halda góðri heilsu,“ segir Kristína Haraldsdóttir, en hún mun sjá um Úrval Útsýn | Hlíðasmára fararstjórn í ferðinni ásamt Ólafíu 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is Wíum. Þær verða ferðalöngum innan handar og munu leiða þá í gegnum jógatíma daglega. Auk þess mun jógakennarinnKristína Jinu Vibhoothy Haraldsóttir Ólafía Wíum Kristín leiða jóga við sólarupprás valda Haraldsdóttir daga sem hentar öllum, bæði byrj- og Ólafía Wium Úrval Útsýn Hlíðasmára 19 | 201 Kópavogi | 585 4000 | uu.is endum og|lengra komnum. sjá um farar„Ayurveda hreinsunin felst í að stjórn afeitra líkamann og boðið verður upp á meðferðir á hverjum degi sem henta hverjum og einum, svo sem nudd, olíumeðferðir og fleira,“ segir Kristína. Í ferðinni verður lögð áhersla á að fólk hafi góðan tíma aflögu á milli meðferða til að njóta sín eftir eigin höfði enda lagt upp með að ferðin verði afslöppuð. Síðustu þremur dögunum verður eytt í sögulegu hafnarborginni Kochi. „Þar eru margar góðar verslanir og markaðir auk skraddara á hverju götuhorni. Hótelið okkar er við Forth Kochin ströndina svo fyrir þá sem það vilja er upplagt að slappa af á ströndinni, eða láta dekra við sig á einum af mörgum nuddeða spa-stöðum í nágrenninu,“ segir Ólafía. Nánari upplýsingar um ferðina og bókanir má nálgast á heimasíðu Úrval Útsýn, ww.uu.is

Louisa Matthíasdóttir

Á uppboðinu verður gott úrval verka samtímalistamanna svo og fjöldi frábærra verka gömlu meistaranna. Forsýning á verkunum alla helgina í Gallerí Fold föstudag kl. 10–18, laugardag kl. 11–17, sunnudag kl. 12–17, mánudag kl. 10–17, þriðjudag kl. 10–17 (þau verk sem boðin eru upp á þriðjudag)

Hægt er að skoða uppboðsskrána á myndlist.is Rau›arárstígur 14, sími 551 0400 · www.myndlist.is

Unnið í samstarfi við Úrval Útsýn

Mynd/Getty

JÓGA & AYURVEDA


ENNEMM / SÍA / NM69111

Holl, ristuð hafragrjón L RÓ

O

KA

K

L

HEI L K

VE

DU

RN

F RATREFJAR HA

KÓL E ST

E

SÓLSKIN BEINT Í HJARTASTAD-


58

heilsutíminn

Helgin 4.-6. september 2015

Fitubrennsla á náttúrulegan hátt Chili Burn töflurnar auka brennslu, örva meltingu og minnka sykurlöngun. Helene Jenssen hefur lagt af eftir að hún fór að taka Chili Burn reglulega.

Chili Burn töflurnar innihalda chili sem eykur brennslu með náttúrulegum hætti.

C

hili Burn töflurnar eru byltingarkenndar töflur sem hjálpa til við fitubrennslu á náttúrulegan hátt. Töflurnar innihalda chili jurtina sem eykur brennslu, grænt te sem örvar meltinguna, króm sem minnkar sykurlöngun, piparmyntuolíu sem dregur úr uppþembu og vindgangi ásamt Bvítamíni og magnesíum. Chili Burn virkar þannig með þreföldum hætti, það eykur brennslu, örvar meltinguna og minnkar sykurlöngunina.

Loksins fundið það sem virkar

Helene Jenssen hefur tekið Chili Burn töflurnar inn daglega í rúma tvo mánuði. „Ég hef lagt af og ekki bætt kílóunum á mig aftur. Ég nota minni fatastærðir og það er frábært.“ Hún segist hafa barist við hliðarspik og stóran maga í mörg ár, reynt allt til að grennast en ekkert gengið. „Þegar ég las að chili væri náttúrulega efnið í Chili Burn töflunum fór ég strax í næstu heilsuverslun og keypti mér pakka, og þá

fór eitthvað að gerast! Eftir að ég fór að taka Chili Burn inn hef ég minnkað matarskammtana aðeins. Mér líður betur í maganum og ég er ekki eins þrútin og útþanin eins og ég var áður eftir máltíðir. Ég var næstum búin að gleyma því hvað manni getur liðið vel þegar maður lítur vel út. Ég mun aldrei verða þybbin aftur og mun halda áfram að taka inn töflurnar.“

Framleitt og prófað í Skandínavíu

Sænskir sérfræðingar hjá New Nordic hafa þróað þessar nýju töflur byggðar á efnum úr chili plöntunni. Þykkninu hefur verið blandað saman við önnur náttúruleg efni sem innihalda catechins andoxunarefni.

Klínískar rannsóknir sem hafa verið birtar í vísindatímaritinu „Obesity“ sýna fram á að sama magn af þeim innihaldsefnum og eru í töflunum geta dregið úr líkamsfitu. Sérfræðingarnir bættu piparmyntuolíu við töfluna, sem dregur úr uppþembu og vindgangi. Sérstakar ráðstafanir hafa verið gerðar til að hámarka bestu gæðin bæði úr chilíinu og öðrum innihaldsefnum, allt frá vinnslu þar til neytandinn tekur við þeim. Chili Burn töflurnar eru fáanlegar í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaða. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is. Unnið í samstarfi við Icecare

Löngun í sætindi nánast horfin með Zuccarin Zuccarin töflurnar eru fæðubótarefni sem innihalda engin lyf. Töflurnar henta þeim sem þurfa að draga úr sykur­ notkun og minnka hættuna á sykursýki 2.

R

ósa Harðardóttir skólasafnskennari hefur gert margar tilraunir til að útiloka sykur úr daglegri fæðu sinni með misgóðum árangri. „Ekkert er eins gott og góður súkkulaðimoli eftir góða máltíð en ég hef átt erfitt með að standast sykur og sætindi. Sykurinn er nánast í öllum mat og því er erfitt að halda sig frá honum. Ég hef fundið fyrir vanlíðan eftir að hafa borðað sætindi og kökur, finn til í skrokknum og fæ höfuðverk. Oft hef ég fundið fyrir aukinni orku eftir að hafa fengið mér sætindi en verð orkulaus og þreytt fljótlega á eftir.“

Eftir að Rósa Harðardóttir byrjaði að taka Zuccarin töflurnar hvarf nánast öll löngun í sætindi og hún er mun kraftmeiri en áður.

Ekki lengur orkulaus

Rósa hefur í gegnum tíðina lagt sig fram við að borða hollan og næringarríkan mat og hreyfa sig daglega en sykurlöngunin er alltaf til staðar. „Ég hef talið að mig vanti viljastyrk til að neita mér um sætindi þegar þau eru á boðstólum. Eftir að ég fór að taka Zuccarin er þetta hins vegar ekkert mál. Ég hef nánast enga löngun í súkkulaði og önnur sætindi og finn að ég er öll kraftmeiri.“

Blóðsykurinn í jafnvægi Zuccarin töflurnar eru aðallega unnar úr laufum af japanska mórberstrénu. Einnig innihalda þær króm. Laufin innihalda sérstakt efni sem kallast DNJ en það getur komið í veg fyrir upptöku sykurs úr matnum sem við neytum. DNJ getur því haldið blóðsykrinum í jafnvægi og minnkað löngun í sykur. Króm getur hjálpað til við að viðhalda eðli-

legum efnaskiptum. Zuccarin er auðveld í notkun. Taktu eina töflu fyrir hverja máltíð og þú finnur fljótt muninn. Zuccarin er fáanlegt í öllum apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórmarkaðanna. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar á heimasíðu IceCare, www.icecare.is. Unnið í samstarfi við Icecare


Miðlungsbrennt malað kaffi úr 100% Arabica baunum

Rautt Merrild er miðlungsbrennt sígillt kaffi, fullkomið og bragðmikið. Miðlungsbrennsla þýðir að baunir eru ristaðar þar til þær fá ljósbrúnana lit, ljúfan og jafnan keim og notalegan ilm.

HÆG UPPÁHELLING BÝR TIL GÓÐAR STUNDIR – svona gerirðu betra kaffi

ENNEMM / SIA • NM67254

Settu kaffipoka í trektina.

2

Mældu sléttfulla matskeið í pokann fyrir hvern bolla eða 6-7 g á 1,5 dl. Örlítið meira ef þú vilt hafa kaffið sterkt.

3

Bíddu augnablik eftir að vatnið er búið að sjóða – best er að hitastigið sé u.þ.b. 93°C. Helltu dálitlu vatni yfir kaffið, rétt til að bleyta upp í því.

4

Haltu áfram að hella vatninu smám saman þar til kaffið er tilbúið.


60

heilsutíminn

Helgin 4.­6. september 2015

Millimálið skiptir máli Hjúkrunarfræðingurinn, einkaþjálfarinn, heilsumark­ þjálfinn og meistaraneminn Ásthildur Björnsdóttir heldur úti blogginu maturmillimala.com þar sem hún deilir heilsusamlegum uppskriftum og hugmyndum af millimálum með lesendum. Í tengslum við störf sín hefur hún tekið eftir því að fólk er oft að vandræðast með nesti og millimál og því ákvað hún að gefa út sérstakt uppskriftahefti sem inniheldur 40 mismunandi hugmyndir að hollum og góðum nestishugmyndum.

B HEILNÆMT OG NÁTTÚRULEGT

LJÓMANDI GOTT

loggið varð til þegar Ásthildur flutti til Hollands ásamt fjölskyldunni fyrir tveimur árum. „Ég hef verið viðloðandi bætta heilsu síðan ég lauk námi í hjúkrunarfræði við Háskólann á Akureyri 2001,“ segir Ásthildur, sem stundar nú meistaranám í geðheilbrigðisfræðum. „Þegar við fluttum til Hollands hafði ég meiri frítíma og þar sem ég hef mikið verið að vinna með fólk bæði í fjarþjálfun og eins í heilsumarkþjálfun þá var það alltaf að koma upp í samtölum mínum við fólkið mitt að millimálin væri eitthvað sem fólk ætti oft á tíðum í vandræðum með.“ Bloggið fékk því nafnið Matur milli mála.

Anti-sportisti sem gerðist einkaþjálfari

Ásthildur hefur þó ekki alltaf hugsað fyrst og fremst um heilsuna. „Sem unglingur var ég lítið að pæla í slíku. Ég sagðist vera anti-sportisti, elskaði franskar og það eina sem ég gat eldað var spaghetti með tómatsósu og sett franskar í ofninn.“ Hún er því afar stolt mamma í dag þegar hún fylgist með dætrum sínum elda sér dásamlega girnilegar og hollar máltíðir. „Áhuginn á heilsunni sjálfri hófst með hjúkrunarnáminu og heilsutengdi mataráhuginn kom svo þegar ég fór að sjá hvað hollt mataræði getur gert fyrir aukna orku, betri svefn og betri líðan. Ég trúi því einnig að við getum fyrirbyggt ansi marga sjúkdóma og slíkt með réttu mataræði,“ segir Ásthildur.

Ásthildur Björnsdóttir deilir heilsusamlegum uppskritum og hugmyndum af milli­ málum á blogginu www.maturmillimala.com

40 nestishugmyndir Á síðastliðnum tveimur árum hefur Ásthildur útbúið nokkur uppskriftahefti sem innihalda girnilegar uppskriftir. Nýjasta afurðin er Nestispakkinn. „Hann inniheldur rúmlega 40 einfaldar

nestishugmyndir, uppskriftir og myndir. Oft vantar fólk nýjar hugmyndir um hvað taka skal með sér í nesti, hvort sem það er í skólann eða í vinnuna.“ Fréttatíminn fékk Ásthildi til að deila einni glænýrri uppskrift úr Nestispakkanum.

Ásthildur tekur allar myndir fyrir bloggið sjálf og eru þær afar fallegar. „Það skiptir nefnilega mjög miklu máli að það sem við borðum líti vel út. Útlit, lykt, áferð og auðvitað bragð hefur áhrif á hvernig við njótum matarins.“

Ofurpróteinríka túnfisksalatið: (fyrir 2) Innihald: 1 dós kjúklingabaunir 1 dós túnfiskur í vatni 1 lítil rauð paprika – skorin í teninga ¼ bolli rauðlaukur – smátt saxaður ¼ bolli fersk steinselja – smátt söxuð

2 tsk kapers (litlu grænu kúlurnar) ½ tsk þurrt rósmarín­ krydd ¼ bolli sítrónusafi 2 msk extra virgin ólífuolía Sjávarsalt og nýmalaður svartur pipar eftir smekk

4 bollar blandað salat Aðferð: Blandaðu öllu saman nema salatinu í stóra skál. Settu salatið í botninn á ílátinu sem þú ætlar að nota fyrir nestið. Helltu blöndunni þar yfir.

Heimagerðir Bounty bitar Vörurnar frá Sólgæti eru hollar og góðar fyrir sælkera á öllum aldri sem vilja gera vel við sig. Líttu í kringum þig í næstu verslun. Þú kemur eflaust auga á eitthvað ljómandi gott.

heilsa.is

solgaeti.is

Innihald bitar: ½ bolli kókosmjöl (fínt) 2 msk kókosolía 1 msk hunang 1 msk vatn ¼ tsk vanillaextractdropar Nokkur korn af sjávarsalti Innihald súkkulaði: 2 msk lífrænt kakóduft 2 msk kókosolía 1 msk hunang Aðferð: Byrjaðu á því að setja kókosolíu og hunang saman í lítið glas og velgja t.d. í heitu vatni í vaskinum. Verður þægilegra að eiga við olíuna þannig. Kókosmjöli, kókosolíu, hunangi, vatni, vanilluextract og sjávarsalti blandað saman í skál.

Látið standa í 5-10 mínútur til að allt kókosmjölið verði örugglega blautt í gegn. Fínt að nota litla kúpta skeið til að móta bitana. Á þessum tímapunkti eru þeir mjög lausir í sér. Engar áhyggjur þeir munu harðna þegar olían harðnar í frystinum. Bitunum raðað á smjörpappír t.d. á lítið skurðarbretti sem kemst svo fyrir í frystinum. Sett í frysti í 15-20 mínútur. Á meðan bitarnir eru í frysti er súkkulaðið búið til. Það er einnig vel hægt að notast við tilbúið súkkulaði – þá er það bara brætt t.d. í potti eða vatnsbaði. Lífrænu kakódufti, kókosolíu og hunangi er blandað

saman í skál – hér er einnig gott að setja skálina ofan í eldhúsvaskinn með heitu vatni og hræra þessu saman þar. Passa bara að vatnið sullist ekki ofan í skálina. Bitarnir teknir úr frystinum. Ég setti nú bara bitana ofan í súkkulaðið og velti þeim þar svo þeir yrðu alveg þaktir. Aftur sett í frystinn í a.m.k. 10 mínútur. Hér getur verið spurning hvort þú viljir gera aðra

umferð af súkkulaðibaðinu. Ég gerði það allavega og þá varð þetta ennþá betra. Svo er fínt að sáldra kókosmjöli yfir síðasta lagið af súkkulaðinu – en þú verður að hafa ansi hraðar hendur því að súkkulaðið harðnar mjög fljótt þar sem bitarnir eru ískaldir. Aftur sett í frystinn og tekið út t.d. 5 mínútum áður en boðið er upp á bitana (þ.e.a.s. ef þeir eru þá ekki þegar búnir!).


heilsutíminn 61

Helgin 4.-6. september 2015

ÆVINTÝRI - VINÁTTA - ÚTILÍF - LEIKIR - ÞRAUTIR - ÚTSJÓNARSEMI

Komdu í skátana!

Er hugur þinn ótaminn eða ótakmarkaður?

Skátastarf er skemmtilegt ævintýri fyrir alla hressa krakka!

Hugurinn okkar er margbrotið og heillandi fyrirbæri. Þekkir þú þinn eigin huga og kanntu að hafa hemil á honum? Veistu að það eru mjög fáir með virkt meðvitað samband við eigin huga? Og veistu að ef þú ert ekki með samband við hugann þá er það hugurinn sem stjórnar þér – ekki öfugt? Hugleiðsla kennir okkur að byggja upp virkt samband við hugann. Með því að hugleiða getum við farið að velja meira hvernig okkur líður, við hvað hugurinn dvelur og við getum farið að velja okkar eigin viðbrögð.

Hér eru fimm atriði frá Guðrúnu Darshan Arnalds, jógakennarara hjá heilsu- og jógastöðinni Andartaki, sem gætu komið að gagni við að koma sér upp reglulegri hugleiðslu: 1. Veldu alltaf sama tímann að deginum, þá verður þessi nýja venja smám saman að vana og verður á endanum ómissandi hluti af deginum. 2. Kveiktu á kerti. Þú gætir sett á ljúfa jógatónlist til að undirbúa hugann fyrir það sem koma skal.

Það er auðvelt að byrja í skátunum

3. Það getur verið ágætt að byrja á nokkrum teygjum og eða öndunaræfingum. 4. Þetta þarf ekki að vera langur tími, þrjár mínútur gera heilmikið fyrir okkur. Ellefu mínútur er líka fín tímalengd á hugleiðslu.

Þessa dagana er skátastarfið að fara í gang um allt land. Finndu þitt skátafélag á vefnum okkar: www.skatarnir.is

5. Hugur þinn er gullnáma. Ef þú lærir að eiga sterkt samband við hugann þá áttu þar óendanlega öflugt tæki sem getur skapað þér bæði hamingju og velsæld.

- ávallt viðbúnir

Kírópraktorarnir Bobby og Jeannie hafa hafið störf hjá Kírópraktorstofu Íslands. Tímapantanir í síma 527 2277.

Magni

Jeannie

Bobby

Guðmundur

Jón Arnar

Hryggurinn þinn er grunnur að góðri heilsu. Láttu ekki verki og óþægindi koma í bakið á þér.

Sporthúsinu / Dalsmári 9-11 / 201 Kópavogur / www.kpi.is


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.