Hjólreiðar
Hjólreiðahópurinn Hjólakraftur stefnir á WOW Cyclothon Bls. 48 Tómas Ingi Ragnarsson hjólar án spandexgallans Bls. 52 Uppáhalds hjólaleiðir hjólaleiðsögumannsins Bls. 44 Gullhringurinn: Hjólakeppni fyrir byrjendur og lengra komna Bls. 42
Helgin 1.-3. maí 2015
Hjólað innan um ljón í lengstu fjallahjólakepni heims Emil Þór Guðmundsson, hjólagarpur fór ásamt fimm félögum sínum til SuðurAfríku í mars síðastliðnum til að taka þátt í Cape Epic, lengstu fjallahjólakeppni heims. Hjólaleiðin er alls 748 kílómetrar og einkennist meðal annars af fjallgörðum, eyðimörkum og vínekrum.
SÍÐA 42
ROUBAIX C2
DOLCE ELITE DISC
HJÓLIÐ HANS Meiri hraði, minni þreyta og meiri ferskleiki hvort sem þú ætlar að skjótast austur fyrir fjall eða niður í bæ. Roubaix er hannað til að auka þægindi í lengri hjólaferðum á grófu malbiki og hörðu undirlagi með FACT carbon 8r stelli og zertz eiginleika.
Verð: 309.990 kr.
HJÓLIÐ HENNAR Sérhannað fyrir konur eins og þig sem láta ekkert stoppa sig, hvort sem þú vilt komast hratt eða njóta útiverunnar mjúklega allan ársins hring. Alvöru hjól með Shimano Tiagra skiptingum, diskabremsum, E5 álramma og koltrefjagaffli.
Kría hjól ehf // Grandagarði 7 // 101 Reykjavík // S: 534 9164 // kriahjol.is
Verð: 229.990 kr.
hjólreiðar
42
Helgin 1.-3. maí 2015
„Eins og að hjóla Laugaveginn fram og til baka í 40 gráðum“ Gullhringurinn heldur áfram að vaxa Kia Gullhringurinn er ein aðgengilegasta hjólakeppni sumarsins. Keppnin samanstendur af þremur hringjum; 45 kílómetra hring, 60 kílómetra hring og 106 kílómetra hring og því geta byrjendur og afreksfólk fundið eitthvað við sitt hæfi. Kia Gullhringurinn hefur því oftar en ekki orðið fyrir valinu sem fyrsta keppni hjólreiðafólks sem er að stíga sín fyrstu skref. Hjólað er frá Laugarvatni í gegnum stórbrotna náttúru og magnaðar söguslóðir uppsveita Árnessýslu. Í lok keppninnar er boðið upp á mat, drykk og skemmtun.
Allir vinna
Keppnin var fyrst haldin sumarið 2012 og verður því haldin í fjórða sinn í sumar. Mottó keppninnar er „Allir hjóla, allir vinna og allir eru velkomnir,“ og er það vísun í að með þátttöku í keppninni er í raun hálfur sigurinn unninn. Gullhringurinn er auk þess annálaður fyrir glæsilega brautarvinninga. „Brautarvinningar eru þannig að númer þeirra sem klára keppnina eru dregin út í lok keppninnar og þannig geta allir unnið glæsileg verðlaun þó þeir lendi ekki í efstu sætum og það er það sem gerir Kia Gullhringinn svo aðgengilegan og skemmtilegan,” segir Freyja
Leópoldsdóttir, markaðsstjóri Öskju, sem er umboðsaðili Kia Íslandi, en Askja er helsti bakhjarl keppninnar.
Fyrir byrjendur og lengra komna
Síðustu tvö ár hefur það haldist í hendur að sigurvegarar í 106 kílómetrunum í karla og kvennaflokki hafa verið valdir hjólreiðamaður og hjólreiðakona ársins þannig að fremstu hjólarar landsins leggja metnað í að sigra í Kia Gullhringnum. Keppnin er þó að sjálfsögðu opin öllum og er ekki hluti af Íslandsmeistararmótinu. Áslaug Einarsdóttir, ein af skipuleggjendum keppninnar segir að öryggi keppenda sé þeim ofarlega í huga. „Við erum með lækni á vakt í mótsstjórninni, sex brautarbíla og reynum eftir fremsta megni að hafa umgjörðina sem vandaðasta.“ Skráning er hafin á www.gullhringurinn.is. „Nú þarf að hafa hraðar hendur því forskráningartilboðið gildir út 2. maí og þá hækkar verðið úr 5.500 krónum í 6.900 krónur. Keppendur fá glæsilega gjafapoka hjá okkur þegar þeir sækja skráningarnúmerin fyrir keppni. Auk þess er fjöldinn allur af frábærum vinningum í boði, ekki bara fyrir efstu sætin,“ segir Freyja.
Emil Þór Guðmundsson, hjólagarpur og eigandi hjólareiðaverslunarinnar Kríu, fór ásamt fimm félögum sínum til Suður-Afríku í mars síðastliðnum til að taka þátt í Cape Epic, lengstu fjallahjólakeppni heims.
O
kkur er líklega best lýst sem hjólanördum. Við höfum verið að vinna að því að byggja upp hjólreiðamenninguna hér á landi og partur af því er að fara í ævintýri erlendis og öðlast reynslu,“ segir Emil Þór Guðmundsson hjólagarpur. Keppnin, sem nefnist Cape Epic, nýtur mikilla vinsælda meðal hjólreiðafólks og árlega taka um 1200 hjólreiðamenn þátt. Þegar opnað var fyrir skráningu í keppnina sem fram fer að ári tók einungis níu sekúndur að fylla öll pláss sem í boði eru.
11 brotin viðbein á fyrsta keppnisdegi
„Hópurinn sem ég fór með var búinn að skrá sig fyrir löngu og ég kom inn sem varamaður þegar einn datt út,“ segir Emil. Liðsfélagi Emils var Ingi Már Helgason. Í hinum liðunum tveimur voru annars vegar Arnþór Pálsson og Guðmundur Gíslason, og hins vegar Björn Ólafsson og Stefán Ákason. „Það hefur alltaf verið draumur hjá mér að taka þátt og ljúka þessari keppni,“ segir Emil, en það er alls ekki sjálfgefið að klára keppnisdagana átta. „Á fyrsta degi brotnuðu til að mynda 11 viðbein í keppendum,“ segir Emil. Einn íslensku keppendanna þurfti svo að hætta keppni samkvæmt læknisráði á þriðja degi. „Liðsfélagi hans kláraði þó keppnina einn síns liðs, en ég veit að þá langar að fara aftur og klára þetta verkefni saman,“ segir Egill. Hann og Ingi Már enduðu í 106. sæti og eru nokkuð sáttir með þann árangur. „Við fórum ekki í keppnina til að vinna heldur til að klára verkefnið.“
Tour de France fjallahjólanna
Cape Epic hjólreiðakeppnin er ein erfiðasta hjólakeppni í heimi og jafnfram sú lengsta, en alls eru
hjólaðir 748 kílómetrar á átta dögum. Báðir liðsmenn hjóla alla leiðina og liggur hjólaleiðin um fjöll og firnindi. Hjólaleiðin hefst í Cape Town og endar í Durbanville. „Keppninni hefur verið líkt við Tour de France, en segja má að þetta sé eins konar fjallahjólaútgfáfa af þeirri keppni,“ segir Emil. Það eru ýmis verkefni og vandamál sem geta komið upp á keppnisleiðinni. Emil segir að hitinn hafi helst sett strik í reikninginn hjá þeim félögum. „Við hjóluðum að meðaltali sex klukkustundir á dag og lengst yfir átta stundir, en það var akkúrat heitasti dagurinn. Hitinn fór upp í 42 gráður og við kuldabeltisdýrin erum ekki gerð fyrir þetta,“ segir Emil, en hann líkir þessum degi við að hjóla Laugaveginn fram og til baka, í miklum hita, en þessi hluti leiðarinnar var 130 kílómetrar.
Ljón á veginum
Emil og félagar hjóluðu í gegnum ýmsa bæi, fjallgarða, eyðimerkur og vínekrur á leið sinni. „Landið er einstaklega fallegt og það var mögnuð upplifun að hjóla þessa leið og ólíkt því sem maður þekkir.“ Í keppninni var hjólað í 40-50 manna hópum á 40-50 km hraða. „Við tölum saman okkar á milli og þeir sem fremstir eru segja hvað er fram undan á veginum. Það óvæntasta var líklega þegar ég heyrði kallað: Ljón! Þá var ljón hægra megin við okkur á veginum,“ segir Emil. Nú tekur við íslenskt hjólasumar en þeir félagar eru þó farnir að huga að næstu keppnum, annað hvort í Brasilíu eða Mongólíu. Erla María erlamaria@frettatiminn.is
Cape Epic er lengsta fjallahjólakeppni í heimi. Alls eru hjólaðir 748 kílómetrar átta dögum við erfiðar aðstæður. Ljósyndir/Emil Þór Gunnarsson.
AÐEINS BR O T A F ÚRVALIN U!
BARNAHJÓL 29.590,-
29.590,24.880,-
24.880,-
KROSS GRAND KID TOLA 12"
KROSS GRAND KID TOLA 12"
44.900,-
KROSS HEAXAGON MINI 20”
KROSS GRAND KID LOLA 16"
44.900,-
KROSS GRAND KID KRIS 16"
51.900,-
KROSS MODO 24"
KROSS LEVEL MINI 20”
52.900,-
KROSS HEXAGON REPLIC 24"
FULLORÐINS HJÓL
119.900,KROSS SETO
114.900,KROSS REALE
MONGOOSE REFORM COMP
KROSS TRESSE
109.900,-
127.900,-
89.900,-
79.990,KROSS MODERATO
93.900,-
KROSS VENTO 1.0
KROSS EVADO 3.0
229.900,KROSS TRANS SOLAR
...OG EKKI MÁ GLEYMA AUKAHLUTUNUM!
18.674,HAMAX KISS BARNASTÓLL
7.895,GÓLFPUMPA BETO
6.490,ÍÞRÓTTASÓLGLERAUGU
HJÓLA- OG SPORTVÖRUVERSLUNIN · FAXAFENI 7 · REYKJAVÍK · SÍMI 5 200 200
7.895,M-WAVE TASKA TVÖFÖLD
8.990,ETTO MOTIROLO
VERSLAÐU Á
WWW.GÁP.IS
hjólreiðar
44
„Sólarvörnin helst þrátt fyrir langar æfingar“
Uppáhalds hjólaleiðir Önnu Kristínar
Proderm er sænsk sólarvörn sem er sérstaklega þróuð fyrir viðkvæma húð og verndar fyrir sterkum sólargeislum við erfiðustu kringumstæður.
Andreas Danielsson, fyrirliði hjólreiðalandsliðs Svíþjóðar, notar Proderm sólarvörn líkt og landsliðið allt.
P
roderm er mikið notuð við íþróttaiðkun, í siglingakeppnum, hjólreiðakeppnum, blaki og af sundfólki. Við hjólreiðar er mikilvægt að vernda húðina vel og brenna ekki. Hjólreiðamenn gefa Proderm mikið lof. Í löngum hjólaferðum er mikilvægt að sólarvörnin haldi og það gerir Proderm.
Keppnisfólk notar Proderm
Andreas Danielsson, fyrirliði hjólreiðalandsliðs Svíþjóðar, hefur góða reynslu af notkun Proderm. „Ég hjóla tímunum saman í sólinni og þarf sólarvörn sem ekki rennur af húðinni í ströngum æfingum. Proderm er eina sólarvörnin sem virkar fyrir mig. Ég útbý allt mitt hjólreiðakeppnisfólk með Proderm á sólríkum keppnisdögum. Fyrstu kynni mín af vörninni voru í stórri keppni og Proderm var eina vörnin sem ekki rann af enninu
niður í augu. Við keppum um allan heim og nýlega í Nepal þar sem sólin er gríðarsterk og besta tegund af sólarvörn var algjör nauðsyn.“
Langvirk vörn
Eygló Ósk Gústafsdóttir sundafrekskona og f leira sundkeppnisfólk hefur notarð Proderm með góðum árangri. „Með Proderm brennur húðin ekki þó æft sé tímunum saman í sundlaug í glampandi sól. Húðin verði mjúk og rakafyllt, fallega brún og laus við þurrk. Engir taumar eða hvít himna myndast við notkun varnarinnar,“ segir Eygló. Í keppnum er mikils virði að vera með góða sólarvörn eins og
Hentar öllum húðgerðum
Sólarvörnin frá Proderm inniheldur ekki fitu og veitir ekki glansáferð. Vörnin smýgur hratt inn í húðina og sérlega þægilegt er að bera á sig mjúka þétta froðuna sem er afar drjúg. Proderm er einnig afar vinsæl af fjölskyldufólki. Vörnin fær meðmæli frá húðlæknum og hentar öllum húðgerðum. Proderm er laus við öll ilmefni, paraben eða nanotækni. Proderm sólarvörnin fæst í apótekum, Hagkaupum, Fjarðarkaupum, Grænni heilsu og Fríhöfninni. Unnið í samstarfi við Celsus
Hjólum • Göngum • Hlaupum • Tökum strætó
6.–26. maí
Vinnustaðakeppni Skráning og nánari upplýsingar á Taktu þátt í Instagram-leik #hjólaðívinnuna
A
nna Kristín Ásbjörnsdóttir starfar sem framkvæmdastjóri hjólreiðaferðaskrifstofunnar Bike Company sem leigir götu-og fjallahjól en býður einnig upp á stuttar og langar hjólaferðir fyrir hópa og einstaklinga. Anna hefur ferðast mikið með Frakka því hún bjó í tíu ár í Lyon þar sem hún rak ævintýra-ferðaskrifstofu sem sérhæfði sig í göngu-og
1 – Stóri Reykjavíkurhringurinn Hjólaður hringur í kringum Reykjavík og alltaf hægt að vera á stíg. 25 km. Um 2-3 klukkustundir. Nauthóll – Ægisíða – Grótta – Grandi – Sæbraut – Elliðaárdalur – Fossvogur – Nauthóll
Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands kynnir:
hjoladivinnuna.is
Anna Kristín Ásbjörnsdóttir hefur starfað sem fjallaleið sögumaður til fjölda ára og alla tíð verið mikil hjóla garpur. Í dag sameinar hún þessar tvær ástríður með því að skipuleggja hjóla ferðir. Hún deilir með okkur nokkrum góðum hugmynd um að hjólaleiðum í Reykjavík og nágrenni.
Proderm sem myndar eins konar varnarhimnu í hornlagi húðarinnar. Vörnin rennur ekki af húðinni og þolir vel saltan sjó.
Notum virkan ferðamáta!
ÍSLENSKA SIA.IS ISI 73837 04/15
Helgin 1.-3. maí 2015
2 – Meistara Áttan 35 km. Um 5-6 klukkustundir. Hjóluð átta um höfuðborgarsvæðið. Farið frá Hallgrímskirkju. Farið með Sæbraut og inn í Elliðaárdal. Hjólað upp að Elliðavatni og Rauðavatni. Hjólað um Golfvöllinn inn í Grafarholt. Niður í Grafarvog og undir brúna í gegnum Bryggjuhverfið. Í gegn hjá Elliðaárdalnum og niður Fossvogsdalinn í Nauthólsvík og svo í miðbæinn. Sjá kort á vef Fréttatímans.
fjallaskíðaferðum á Íslandi fyrir Frakka. „Þegar ég bjó í Frakklandi hætti ég að hjóla á fjöllum og notaði hjólið mest sem samgöngutæki en þar var stolið af mér minnst þremur hjólum. Þegar ég svo flutti heim stofnuðum við 10 vinkonur fjallahjóla og fjallaskíðaklúbb. Við höfum ferðast saman í „hard-core“ fjallahjólaferðum um Ísland en líka farið til Tyrklands í fjallahjólaferð.“
3 – Útivistarsvæðin í Öskjuhlíðinni og í Heiðmörk. Þessi svæði bjóða upp á úrval góðra stíga fyrir styttri og lengri hjólaleiðir. 4 – Sveifluháls 40 km. Um 8 klst. Hluti af Bláa lóns-þrautinni. Skemmtileg og falleg leið sem byrjar í Hafnarfirði og fer um malarveg að Kleifarvatni og inn í Krýsuvík. Þú getur annaðhvort endað í Bláa lóninu eða farið til baka í gegnum fjöllin. Sjá kort á vef Fréttatímans. 5 – Hengilssvæðið. Þetta svæði er stórkostlegt og nú hefur Orkuveitan gert fyrstu stikuðu hjólreiðaleið landsins á svæðinu. Þannig að það er hægt að keyra upp í Hengilssvæði og fara stikaða leið án þess að trufla göngufólk.
KIAGULL HRINGURINN KIA Á ÍSLANDI KYNNIR Í SAMVINNU VIÐ FONTANA LAUGARVATNI
LAUGARVATN GULLFOSS GEYSIR ÞINGVELLIR
Brandenburg
Skráningargjaldinu fylgir KIA Gullhrings 2015 gjafapoki með stuttermabol, Snickers, orkudrykk og fleiri glaðningum. Frímiði í Fontana laugarnar að lokinni keppni. Ávísun á eldgrillaðar bratwurst- og beikonpylsur að keppni lokinni.
FLOKKAR A 106KM B 60KM C 46 KM START KL 18:00
hjólreiðar
46
Helgin 1.-3. maí 2015
Hjól fyrir alla hjá GÁP Nú fer hjólavertíðin að fara á fullt og þá skiptir öllu máli að vera á góðu hjóli og með rétta útbúnaðinn. Í verslun GÁP í Faxafeni má finna margs konar hjól og fylgihluti sem henta fyrir hinar ýmsu aðstæður.
M
ogens Markússon, verslunarstjóri hjá hjólabúðinni GÁ P, hefur verið í hjólabransanum í 30 ár og segir hann hjólamenninguna bæði hafa breyst og aukist í gegnum árin. „Gríðarleg aukning hefur verið í götuhjólum. Hér áður fyrr vildu allir kaupa fjallahjól, en almenn hjólamennska hefur verið að aukast í takt við fjölgun hjólastíga og almennrar heilsuvitundar landans.“
Hjól af öllum stærðum og gerðum
GÁP er umfram allt reiðhjólaverslun, en býður auk þess upp á vörur fyrir þá sem stunda alhliða líkamsrækt. Hjólaúrvalið hefur verið að aukast jafnt og þétt og nú býður GÁP upp á ýmis götuhjól, fjallahjól, krakkahjól, Cyclocross, Racer, Hybrid, Triathlon, BMX og Street hjól og fulldempuð hjól. Meðal merkja má nefna Mongoose, Cannondale og Kross. „Mongoose hefur verið burðurinn í þessu hjá okkur í gegnum árin, en við erum einnig dugleg að taka inn ný merki og þar ber hæst Kross, sem er evrópskt merki sem framleiðir allt frá ótrúlega flottum barnareiðhjólum upp í keppnis
Mogens Markússon, verslunarstjóri hjá hjólabúðinni GÁP.
götureiðhjól og allt þar á milli, götuhjól, fjallahjól, hybrid hjól og glæsileg frúarhjól,“ segir Mogens.
Fyrir byrjendur og lengra komna
Hjá GÁP geta allir fundið alvöruhjól við sitt hæfi. Byrjendur fá faglega leiðsögn frá starfsmönnum og keppnisfólk getur fengið allar helstu upplýsingar um keppnishjól og búnað þeim tengdum. „Við
hjálpum fólki að velja rétta hjólið, hvort sem það er þríhjól eða keppnishjól,“ segir Mogens. Þegar kemur að auka- og fylgihlutum segir hann að hjálmurinn skipti höfuðmáli. GÁP býður upp á Etto hjálma sem er norsk gæðavara. „Lásinn er einnig mikilvægur, maður á yfirleitt hjólið lengur ef maður kaupir almennilegan lás.“ Hraðamælar eru vinsælir fylgihlutir. „Við bjóðum til dæmis upp á hraðamæli þar sem hægt er
að slá inn hver bensíneyðslan er á bílnum og þannig er hægt að sjá hversu mikið maður sparar með því að hjóla.“
Hjólað í vinnuna og WOW-cyclothon fram undan
Margir skemmtilegir hjólaviðburðir, svo sem Hjólað í vinnuna, eru fram undan og býst Mogens við því að líf og fjör verði í versluninni á næstunni. „Við eigum til dæmis
von á sérsendingum fyrir heilu liðin sem taka þátt í WOW-cyclothoninu í sumar. En það er einmitt algjör metþátttaka í wow-inu núna“ GÁP rekur fullbúið verkstæði og varahlutaþjónustu fyrir sín hjól. Frelsistilfinningin sem maður fær við að fara af stað á nýju hjóli er hins vegar alveg ólýsanleg,“ segir Mogens. Unnið í samstarfi við GÁP
Allt fyrir hjólreiðarnar! Hvert sem leið þín liggur Heelen er stór íslensk vörulína sem býður uppá einfaldar lausnir við algengum fótavandamálum. Heelen vörurnar má allar þvo og nota aftur og aftur, þær taka ekki óþarfa pláss í skófatnaði, eru afar einfaldar í notkun og koma með góðum íslenskum leiðbeiningum. Ekki þjást að óþörfu, taktu Heelen með í ferðalagið og njóttu dagsins.
Í samvinnu við Félag íslenskra fótaaðgerðafræðinga
Fæst í apótekum og Flexor stoðtækjaverslun.
Margnota hlífðarhúð Með sjálflímandi yfirborði. Hægt að sníða eftir þörfum, þvo og nota aftur og aftur.
Klædd tábergshlíf Mjúkur gelpúði hlífir táberginu gegn álagi og núningi.
Gelhettur fyrir tær Þunnar til hliðanna en þykkari fremst til að taka við álagi.
Gelhlíf fyrir hæl
Frábær margnota vörn gegn hælsæri. Mjúkur gelpúði hlífir hæl og hásin.
Liðhlíf fyrir litlutá Liggur þétt við fótinn og hlífir gegn núningi frá skófatnaði.
Voltaren-3saman-5x38 copy.pdf
1
31/01/15
16:25
Voltaren Gel
50
%
ag
150g
n!
Nú í enn STÆRRI pakka!
m e ir a m
Verkjastillandi og bólgueyðandi! Fæst án lyfseðils Inniheldur 11,6 mg af díklófenaktvíetýlamíni. Ábendingar: Staðbundnir bólgukvillar. Skammtar og lyfjagjöf Fullorðnir og börn 14 ára og eldri: 2-4 g af hlaupi borið á aumt svæði 3-4 sinnum á sólarhring. Mælt er með handþvotti eftir notkun, nema verið sé að meðhöndla hendur. Ef meðhöndla á bráð, minniháttar meiðsli í stoðkerfi skal ekki nota Voltaren lengur en 7 daga án samráðs við lækni. Hafið samband við lækninn ef einkenni eru viðvarandi eða versna eftir meðferð í 7 sólarhringa. Frábendingar: Ofnæmi fyrir einhverju innihaldsefnanna, asetýlsalisýlsýru og öðrum bólgueyðandi gigtarlyfjum (NSAID). Sjúklingar sem hafa fengið astma, ofsakláða eða bráða nefslímubólgu af völdum asetýlsalisýlsýru eða annarra bólgueyðandi gigtarlyfja (NSAID) eiga ekki að nota lyfið. Má ekki nota á síðustu 3 mánuðum meðgöngu. Má ekki nota handa börnum og unglingum 14 ára og yngri. Sérstök varnaðarorð: Má eingöngu bera á heila og heilbrigða húð og alls ekki á slímhúðir, augu, sár, exem, vessandi húðbólgu. Getur valdið húðertingu. Varast skal mikið sólarljós, notkun samhliða bólgueyðandi lyfjum eða að hylja notkunarsvæðið með loftþéttum umbúðum. Gæta skal sérstakrar varúðar hjá öldruðum eða astma-/ofnæmis-sjúklingum (hefur valdið berkjukrampa). Hætta á meðferð ef útbrot koma fram eftir notkun. Við notkun á stór húðsvæði eykst hættan á altækum aukaverkunum, t.d. á nýru. Við brjóstagjöf eða meðgöngu má eingöngu nota lyfið í samráði við lækni. Getur dregið úr frjósemi en þau áhrif ganga til baka. Lesið leiðbeiningar á umbúðum og í fylgiseðli fyrir notkun. Geymið þar sem börn hvorki ná til né sjá. Markaðsleyfis hafi: Novartis Healthcare A/S. Umboð á Íslandi: Artasan ehf., Suðurhrauni 12a, 210 Garðabæ.
hjólreiðar
48
Helgin 1.-3. maí 2015
Frá vanvirkni til virkni
H
jólakraftur er hjólahópur fyrir alla, en er þó sérstaklega hugsaður fyrir krakka á aldrinum 12-18 ára, sem finna sig ekki endilega í hinu hefðbundna íþróttastarfi. „Við erum með hópa af ungu fólki og við skiptum hópunum eftir aldri,“ segir Þorvaldur Daníelsson, forsprakki verkefnisins. Nú eru meðlimir Hjólakrafts í kringum 50 og eru hópar starfandi á höfuðborgarsvæðinu, Grindavík og í Árnessýslu.
Snýst um að sigrast á sjálfum sér
„Í Hjólakrafti hjólum við og hreyfum okkur. Við erum ekki í neinni keppni hvert við annað, síður en svo, en við veitum hvert öðru ágætt aðhald.“ Hópurinn hittist tvisvar, stundum þrisvar, í viku við Háskólann í Reykjavík við Öskjuhlíð eða Nauthólsvík. Eitt af markmiðum hópsins er að taka þátt í WOW-cyclothoninu. „Við viljum helst vera með mörg lið,“ segir Þorvaldur. Fyrsta Hjólakrafts-liðið tók þátt sumarið 2014 og vann þar áheita-
Hjólakraftur stefnir á WOW cyclothon-ið í ár líkt og í fyrra. „Þegar krakkarnir kláruðu hringinn í fyrra sáu þeir og fólkið í kringum þá að allt er mögulegt þegar unnið er saman. Við þurfum hvert á öðru að halda,“ segir Þorvaldur Daníelsson, forsprakki Hjólakrafts.
keppnina og hlaut að launum flugmiða frá WOW-air og fór í nokkurra daga hjólaferð til Lyon í Frakklandi í byrjun september 2014.
Hvatning og stuðningur
Þorvaldur segir að hópurinn fylgi einfaldri hugmyndafræði. „Við spáum bara í hvað það er sem þátttakendur langar til að geta gert og við spyrjum hvað viðkomandi er tilbúinn að leggja á sig til þess að láta það rætast.“ Áhersla er lögð á jákvætt andrúmsloft, gleði og hvatningu. „Ef eitthvað sem maður er að gera er ekki gefandi eða skemmtilegt þá er óvíst að mann langi til þess að halda því áfram mikið lengur, ekki satt? Þess vegna eru gleðin og hvatningin svo mikilvægir þættir hjá okkur,“ segir Þorvaldur. Stuðningur er einnig mikilvægur þáttur í starfi Hjólakrafts. „Foreldrarnir eru mikill og góður stuðningur við unga fólkið okkar og hópinn í heild. Við förum til dæmis af og til saman öll út að hjóla og gerum eitthvað skemmtilegt.“
„Alveg ótrúlegt hvað spreyið virkar hratt“ Halldóra Matthíasdóttir þríþrautarkona er mjög ánægð með Magnesíum Sport spreyið frá Better You og notar það eftir allar æfingar. Hún finnur sérstaklega mikinn mun á endurheimt vöðva og bata eftir æfingar.
H
alldóra Matthíasdóttir útibússtjóri breytti um lífsstíl árið 2008 með því að breyta algerlega um matarræði. Því næst tók hún á hreyfingunni og byrjaði á því að hlaupa. Hún hljóp sitt fyrsta maraþon árið 2011 og hefur síðan hlaupið bæði Laugavegshlaupið og Jökulsárhlaupið ásamt því að hafa undanfarin ár tekið þátt í Ironman keppninni bæði í Mexíkó, Frankfurt og Svíþjóð.
Þreytan hvarf eins og dögg fyrir sólu
Göngugreining Vandamál sem göngugreining Flexor getur hjálpað til við að leysa eru til dæmis:
•
þreytuverkir og pirringur í fótum
•
verkir í hnjám
•
sársauki eða eymsli í hælum (hælspori, „plantar fasciitis“ o.fl.)
•
beinhimnubólga
•
óþægindi eða verkir í baki og/eða mjöðmum
•
verkir í tábergi og/eða iljum
•
hásinavandamál
•
óþægindi í ökklum
•
þreytu- og álagsverkir hjá börnum og unglingum
Pantaðu tíma í síma 5173900 Orkhúsinu / Suðurlandsbraut 34 / 517 3900
Halldóra æfir að meðaltali níu sinnum í viku, þrisvar sinnum í hverri grein, það er hjólreiðum, hlaupi og sundi. „Eftir æfingar nota ég alltaf Magnesíum Sport spreyið því það hefur hjálpað mér verulega við endurheimt vöðva og minnkar líkurnar á krampa og harðsperrum.“ Í fyrra hljóp Halldóra frekar langt hlaup eftir að hafa verið frá í nokkurn tíma vegna handleggsbrots. „Eftir hlaupið fékk ég mikla pirrings- og þreytuverki á sköflunga og í læri. Ég nuddaði vöðvana með Magnesíum Sport spreyinu og fann strax þreytuna og pirringinn líða hjá. Það var eiginlega alveg ótrúlegt hvað það virkaði hratt. Ég notaði líka Magnesíum Orginal spreyið á úlnliðinn, það er svæðið þar sem ég handleggsbrotnaði og mér finnst það hafa hjálpað mér verulega í batanum.“
Útsölustaðir
Magnesíum Sport er fáanlegt í Lyfju, Lyf og heilsu, flestum apótekum, Fjarðarkaupum, Heilsuhúsinu, TRI verslun, Systrasamlaginu, völdum Hagkaupsverslunum, Þinni verslun Seljabraut, Blómavali, Garðheimum, Crossfit Reykjavík og Lyfjaveri/Heilsuveri. Nánari upplýsingar má finna á www.gengurvel.is. Unnið í samstarfi við Gengur vel
Halldóra Matthíasdóttir þríþrautarkona: „Ég mæli eindregið með Magnesíum Sport spreyinu því það hefur hjálpað mér við endurheimt vöðva, þreytuverki og til að koma í veg fyrir krampa og harðsperrur.“
hjólreiðar
49
Helgin 1.-3. maí 2015
WOW Cyclothon fer fram dagana 23.-26. júní. Ljósmynd/Kristinn Magnússon
Tour de Ormurinn hjólreiðakeppni á Héraði 15. ágúst 2015.
Ævintýraleg keppni, umhverfis Lagarfljót, í ægifagurri náttúru.
Tvær vegalengdir í boði: Ormurinn langi: 68 km
Inn til fjalla: 103 km.
Glæsileg austfirsk verðlaun eru í boði fyrir sigurvegara í hverjum flokki og útdráttarverðlaun veitt heppnum keppendum. Nánari upplýsingar á www.tourdeormurinn.is
Helmingi fleiri keppendur en á síðasta ári Hjólreiðakeppnin WOW Cyclothon fer fram í fjórða skipti í sumar. Keppnin hefur farið ört stækkandi og er orðin stærsta hjólreiðakeppnin hér á landi. Hjólað er í kringum Ísland á rúmum tveimur sólarhringum og áheitum safnað til styrktar góðu málefni. Benedikt Tómasson, einn skipuleggjenda WOW Cyclothon, segir að skráning gangi vonum framar. „Fjöldi þátttakenda hefur tvöfaldast á hverju ári og á því verður engin breyting í ár.“ Um 400 keppendur tóku þátt í fyrra og nú hafa tæplega 1000 manns skráð sig til leiks. Skráningu lýkur á miðnætti 1. maí. Keppnin fer fram dagana 23.-26. júní og verður með svipuðu fyrirkomulagi og áður. Hjólað er hringinn í kring um landið með boðsveitarformi í þremur flokkum, ýmist 1, 4 eða 10 hjólreiðamenn skipta með sér kílómetrunum 1332. „Í ár verður fjórða keppnisflokknum bætt við og verður hann kynntur á allra næstu dögum,“ segir Benedikt. Sem fyrr mun keppnin einkennast af sönnum keppnisanda, stórbrotinni náttúru og ótrúlegri stemningu.
Ný sending af blómapottum frá Skjalm P
Design By Us spegill 49.900.-
Skjalm P svartur lampi 20.900.-
Síðumúla 21 S: 537-5101 snuran.is
Pyro Pet kerti 4.900.-
Design By Us ljós, margir litir 39.900.-
MIKIÐ ÚRVAL!
AUTHOR
REIÐHJÓL Í HÚSASMIÐJUNNI í fremstu röð
Author Trophy 26"
Bremsur: V- brake Gírar: 18 Gírskipting: Shimano Revoshift 3899989
35.900 kr FRÁBÆRT VERÐ!
Author Matrix 24"
Bremsur: Tektro 55AL Gírar: 18 Gírskipting: Shimano Revoshift
39.900 kr
3899972
Author Matrix 24"
Bremsur: Tektro 55AL Gírar: 18 Gírskipting: Shimano Revoshift
39.900 kr
3899972
Author Vectra 26"
Bremsur: V- brake Gírar: 18 Gírskipting: Shimano Revoshift
35.900 kr
3899998
Author Compact 28"
Stell: 20" og 22" Bremsur: Tektro 855 AL Gírar: 21 Gírskipting: Shimano Revoshift Þyngd: 12.2 kg
49.900 kr
Bremsur: Tektro 855 AL Gírar: 21 Gírskipting: Shimano Revoshift Þyngd: 12.2 kg
Bremsur: Tektro 45AL Gírar: 6 Gírskipting: Shimano Revoshift
33.900 kr
3899947
3899922
Author Thema 26"
Author Energy 20"
49.900 kr
3899924
Author Outset 26"
Stell: 19" og 21" Bremsur: Tektro 55AL Gírar: 21 Gírskipting: Shimano Revoshift
Author Energy 20"
Bremsur: Tektro 45AL Gírar: 6 Gírskipting: Shimano Revoshift
33.900 kr
3899969
48.900 kr
Author Unica 26"
Bremsur: Tektro 837AL Gírar: 21 Gírskipting: Shimano Revoshift
48.900 kr
3899978
3899985-86
9.900 kr REIÐHJÓLAREKKI 5 HJÓL
5.990 kr REIÐHJÓLAREKKI 3 HJÓL Reiðhjólarekki fyrir fimm eða þrjú hjól 5797470/69
Author Orbit 16"
Bremsur: Tektro 855 AL Fótbremsur Þyngd: 9.1 kg
26.690 kr
3899961
Author Rapid 26"
Bremsur: Tektro 855 Gírar: 24 Gírskipting: Shimano Acera Þyngd: 15.4 kg
69.900 kr
3899943/44
AUTHOR REIÐHJÓL - EVRÓPSK GÆÐI Í FREMSTU RÖÐ Author er einn af leiðandi framleiðendum reiðhjóla og fylgihluta í Evrópu. Author framleiðir vönduð reiðhjól á frábæru verði fyrir hinn almenna hjólreiðamann og atvinnumenn. Keppendur á reiðhjólum frá Author hafa verið í fremstu röð í keppnum í Evrópu í mörg ár. Komdu og kynntu þér Author gæðahjól á hreint út sagt frábæru verði. HLUTI AF BYGMA
ALLT FRÁ GRUNNI AÐ GÓÐU HEIMILI SÍÐAN 1956
hjólreiðar
52
Helgin 1.-3. maí 2015
Cube hjá TRI Verslun #TRIVERSLUN / #TEAMCUBE / #TRI.IS / #BIKEFITTING
T
RI verslun er innflutningsog smásölufyrirtæki sem sérhæfir sig í sölu og þjónustu á reiðhjólum frá Cube. Einnig er boðið upp á ýmis önnur merki þegar kemur að fylgihlutum fyrir hjól, svo sem hjálmum, fatnaði og öðrum aukahlutum fyrir hjólreiðar. „Cube er þýskt hjólreiðamerki og hefur það stækkað mjög ört á hinum alþjóðlega hjólreiðamarkaði síðastliðin fimm ár. Við höfum því vaxið með merkinu hérna heima á sama tíma og merkið hefur vaxið erlendis,“ segir Valur Rafn, markaðsstjóri
hjá TRI. Framleiðendur Cube eru framarlega á sviði keppnishjóla en eru einnig að bæta við sig í framleiðslu, til dæmis í hjólum fyrir þá sem vilja cyclocross eða hybrid reiðhjól. „Merkið er að fá mjög góða dóma á heimsvísu og hefur einnig reynst mjög vel við íslenskar aðstæður,“ segir Valur.
Veldu rétta hjólið
TRI verslun hefur verið að auka við vöruúrvalið upp á síðkastið og býður nú í fyrsta skipti upp á sérstakan aukahlutapakka frá Cube. „Við erum til dæmis aða selja Cube hjálma í fyrsta skipti og erum einnig að fá mikið af nýjum hjólaskóm,
arþjónustu tökum við nagladekkin af hjólinu og setjum sumardekkin undir. Þar að auki fær hjólið léttan þvott, stillingu á gírum og bremsum, keðjan er smurð og yfirfarin, auk þess sem farið er yfir dekk og gjarðir.“
TRI verkstæði
Þýsk gæði á góðu verði
TRI verslun er á Suðurlandsbraut 32 og þar er einnig að finna verkstæði. „Við tökum á móti hjólum af öllum tegundum, stærðum og gerðum,“ segir Valur. Boðið er upp á þjónustu í nokkrum flokkum og nú stendur yfir sérstök sumarþjónusta þar sem viðskiptavinir fá mikið fyrir lítið. „Með því að velja sum-
Á heimasíðu TRI, www.tri.is má finna allar nánari upplýsingar um Cube hjólin og aðrar vörur. Einnig er hægt að finna TRI verslun á Facebook, Twitter og Instagram undir nafninu #TRIVERSLUN Unnið í samstarfi við TRI verslun
Tómas Ingi Ragnarsson hefur notað hjól sem samgöngutæki í 25 ár. Ástæðuna segir hann ekki vera flókin vísindi. Að hjóla í vinnuna er hollt, ódýrt, umhverfisvænt og síðast en ekki síst þá er það gaman. Tómas lítur ekki á hjólreiðar sem sport og mun því aldrei fara í spandexgalla.
Meiri orka, þrek, úthald
1 skot 30 mín. fyrir æfingar / keppnir. Blandað í 100 - 150 ml af vatni. Endist 6 tíma í líkamanum. Bætt blóðflæði og súrefnis upptaka 30 mín. eftir inntöku. Fæst í öllum Heilsuhúsum - Heilsuveri og sumum apótekum. Upplýsingar í síma 896 6949.
BEETELITE leyndarmál þeirra sem skara framúr. - www.neogenissport.com vitex.is
Eitt skot = 1 líter af rauðrófusafa eða 6 rauðrófur. 100% lífrænt
Valur. Menningarhlutinn í kringum hjólin skiptir okkur einnig miklu máli. „Með auknu vöruúrvali viljum við stuðla að aukinni og bættri hjólamenningu hér á landi. Komdu endilega við hjá okkur og fáðu þér kaffi það kostar ekkert!“ #cube_your_life
Sér ekkert neikvætt við hjólreiðar
Betra blóðflæði
WE BEET THE COMPETITION
bakpokum, ljósum og fatnaði. Samhliða aukningu á vöruúrvali býður TRI verslun upp á mælingu fyrir þá sem vilja kaupa rétta hjólið. „Það þarf að huga að mörgu við kaup á hjóli. Í mælingunni tökum við tillit til þátta eins og hvert viðkomandi ætlar að fara á hjólinu og í hvaða tilgangi,“ segir Valur. „Ertu að fara að hjóla í bænum, á hjólastígum eða úti á landi? Á að nota hjólið til að keppa í reiðhjólakeppnum eða á að nota reiðhjólið sem líkamsræktartæki?“ Starfsfólk TRI hjálpar viðskiptavinum að svara þessum spurningum og finna rétta hjólið. „Ef þig vantar upplýsingar um hjólreiðar getur þú haft samband við starfsfólk TRI,“segir
Tommi býr í Eikjuvogi en hjólar í Guðrúnartún á hverjum degi þar sem hann vinnur sem grafískur hönnuður. Hann er á hybrid-hjóli sem er blanda af fjalla- og götuhjóli. Mynd/Hari
É
g byrjaði að hjóla þegar ég flutti frá Blönduósi í bæinn á framhaldsskólaldri,“ segir Tómas Ingi Ragnarsson sem hefur hjólað allar götur síðan. „Það komu reyndar þarna tvö ár þar sem ég tók nokkur letiköst og freistaðist til að nota bíl en fyrir utan það þá hef ég alltaf notað hjól til að ferðast á milli staða.“
Tvisvar verið keyrður niður
Tómas, eða Tommi, hjólar 9 kílómetra á dag til og frá vinnu. Alla daga, allan ársins hring í hvaða veðri sem er. En hann hefur aldrei keypt sér hjólaföt eða spandexgalla. „Ég fer aldrei þangað því ég lít ekki á hjólreiðar sem sport. Fyrir mér er þetta samgöngumáti. Þetta snýst bara um að komast frá A til B og til þess þarf maður ekki ný föt. Maður
passar sig bara að hjóla á temmilegum hraða svo maður svitni ekki,“ segir Tommi sem notar þó alltaf hjálm, af fenginni reynslu. „Ég hef oft komist í hann krappan og hef verið keyrður niður tvisvar sinnum. Það var sem betur fer ekki alvarlegt, ég meiddi mig ekkert mikið heldur fékk bara nokkrar skrámur og marbletti.“
Gaman að hjóla í slabbi
„Það er svo margt sem er skemmtilegt við hjólreiðar. Mér finnst mjög
gaman að fá smá hreyfingu á blóðið á morgnana, þetta er gott fyrir heilsuna og svo er þetta miklu ódýrara en að keyra bíl, og umhverfisvænna. Ég get bara ekki séð neitt neikvætt við hjólreiðar.“ Ekki einu sinni íslenska veðráttu? „Nei, mér finnst gaman að slabbinu. Þá setur maður bara naglana á dekkin og fer í pollagalla. Það er gott að hafa bara gallann í töskunni því maður getur átt von á hverju sem er á Íslandi.“ -hh
Kíktu við á golfdaga Golfdagar í verslun okkar í Kringlunni laugardaginn 2. maí. Sjúkraþjálfarar Eirbergs verða á staðnum frá kl. 12:00-16:00 og veita ráðgjöf varðandi stuðningshlífar og innlegg sem nýtast í golfið. Þeir sem panta tíma í göngugreiningu á staðnum fá 25% afslátt.
Compression sokkar
Genutrain hnéhlíf
ErgoPad gönguinnlegg
LumboTrain mjóbaksbelti
Stuðningur við ökkla og kálfa. Auka úthald í fótleggjum við langar göngur.
Fyrir álagseinkenni og verki í hnjám.
Einstaklega þunn og fyrirferðalítil. Góður stuðningur sem minnkar álag á fætur.
Virkur stuðningur við mjóbak. Dregur úr vöðvaspennu og örvar vöðvavinnu.
10% afsláttur af stuðningshlífum og innleggjum, 20% afsláttur af Compression sokkum.
Eirberg Lífstíll, Kringlunni 1. hæð • Sími 569 3100 • eirberg.is