Vidhald 08 04 2016

Page 1

Viðhald húsa FRÉTTATÍMINN

Helgin 8.–10. apríl 2016 www.frettatiminn.is

Við getum tekið sem dæmi sólpalla þar sem algengasta aðferðin er að grafa holur og steypa hólka. Með þessum skrúfum er ferlið mun einfaldara, öruggara og kostnaðarminna. 17 Dýrleif Arna Guðmundsdóttir, verkfræðingur hjá Áltaki.

Húsið var hersetið af köngulóm Auður Ottesen og eiginmaður hennar keyptu sér hús á Selfossi eftir hrun. Þau þurftu að vinna bug á myglusveppi og heilum her af köngulóm en eru ánægð í endurbættu húsi í dag. Auk hússins hefur garðurinn fengið andlitslyftingu og nú eru þau að taka bílskúrinn í gegn. 8 Mynd | Páll Jökull Pétursson

Fjárfesting sem steinliggur • Steinsteypa • Mynstursteypa • Graníthellur • Viðhaldsefni • Stoðveggjakerfi • Múrkerfi • Einingar • Gólflausnir • Garðlausnir

Smiðjuvegi 870 Vík

Berghólabraut 9 230 Reykjanesbær

Hrísmýri 8 800 Selfoss

Hringhellu 2 221 Hafnarfjörður

Malarhöfða 10 110 Reykjavík

Sími 4 400 400 www.steypustodin.is

4 400 400 4 400 600 4 400 630 4 400 573 Hafðu samband í síma og láttu sérfræðinga okkar aðstoða þig við að finna réttu lausnina.

20 YFIR

TEGU N AF HE DIR LLUM


FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

2|

Viðhald húsa

AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANS S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is

Kannaðu ástand glugganna

6 heilræði til húsfélaga í framkvæmdaham 1 5 Fá hlutlausan sérfræðing til að meta ástand eignarinnar og viðgerðaþörf.

2

Þegar sumarið nálgast er tilvalið að huga að þeim verkum sem bíða fyrir sumarið. Á vorin er gott að gera ástandsskoðun á timbri og málningu á gluggum. Til að meta hvort tími sé kominn til að mála er best að bregða málningarsköfu (eða svipuðu áhaldi) á málninguna næst glerinu. Ef málningin lætur ekki undan þá er ástand gluggans í góðu lagi. Ef hún bólgnar upp er hins vegar þörf á viðhaldi.

Við minni verk er hægt að óska eftir tilboðum frá verktökum byggðum á magntölum og verklýsingu. Við stærri verk fer yfirleitt fram útboð.

3

Meta þarf tilboðin í samhengi við útboðsgögnin, heildar-

Stundum þarf maður bara smá frið hljóðlátu vifturnar

verð, einingaverð, uppsetningu tilboðsins og verktíma.

4

Þegar ákveðið hefur verið hvaða tilboði skal taka, er gengið til samninga við viðkomandi verktaka. Seint verður nægjanlega brýnt fyrir fólki mikilvægi þess að gera skriflegan samning við verktaka hvort sem er um lítil eða stór verk að ræða.

www.ishusid.is ∑ S:566 6000 ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur

ÞAKRENNUKERFI á öll hús – allsstaðar

FRUM - www.frum.is

Úrval lita á lager

6

Lokauppgjör fer fram eftir að verki telst lokið. Mikilvægt er að taka út framkvæmdina og frágang á verkinu áður en lokagreiðsla fer fram.

Mynd | Hari

Hagsmunagæsla fyrir húseigendur Húseigendafélagið hefur gætt hagsmuna húseigenda í rúma níu áratugi

íshúsið

Eftirlit með framkvæmd þarf að vera í vel skilgreint og föstum farvegi og oft er ráðinn til þess óháður aðili.

Húseigendafélagið var stofnað árið 1923 og er almennt hagsmunafélag fasteignaeigenda á Íslandi, hvort sem fasteignin er íbúð, einbýlishús, atvinnuhúsnæði, land eða jörð, leiguhúsnæði eða til eigin nota. Félagar eru bæði einstaklingar, fyrirtæki og félög, þ.m.t. húsfélög í fjöleignarhúsum. Upphaflega var félagið fyrst og fremst hagsmunavörður leigusala og stöndugra fasteignaeigenda í Reykjavík en í tímans rás hefur það orðið almennt landsfélag, meira í ætt við neytendasamtök og obbi félagsmanna er íbúðareigendur í fjöleignarhúsum. Félagsmenn eru um 10.000 og þar af eru nálægt 800 húsfélög. Félagsmönnum hefur fjölgað jafnt og þétt síðustu árin, einkum og sér í lagi húsfélögunum. Starfsemi Húseigendafélagsins er þríþætt, almenn hagsmunagæsla fyrir fasteignaeigendur, almenn fræðslustarfsemi og upplýsingamiðlun, sem og ráðgjöf og þjónusta

Húseigendafélagið

Húseigendafélagið er til húsa að Síðumúla 29 í Reykjavík. Sími: 588-9567. Netfang: postur@huseigendafelagid.is. Á skrifstofunni eru veittar nánari upplýsingar um félagið, starfsemi þess og þjónustu. Þar fást margvísleg gögn og upplýsingar, s.s. lög og reglugerðir, eyðublöð fyrir húsaleigusamninga og fræðsluefni af ýmsu tagi. www.huseigendafelagid.is Heimasíða félagsins er ný og endurbætt og hefur að geyma margvíslegar upplýsingar um Húseigendafélagið, starfsemi þess og viðfangsefni. Þar er m.a. yfirlit yfir fjölda greina sem lögfræðingar félagsins hafa ritað og félagsmenn geta fengi endurgjaldslaust. Þjónusta við félagsmenn Þjónusta félagsins er einskorðuð við félagsmenn enda standa þeir undir starfsemi þess með félagsgjöldum sínum. Félagið stendur á eigin fótum fjárhagslega og þiggur enga styrki. Félagsgjöldum er mjög í hóf stillt. Árgjald einstaklings er 5.500 krónur en 3.500 krónur fyrir hvern eignarhluta þegar um húsfélög er að ræða. Skráningargjald, 4.900 krónur, er greitt er við inngöngu og felst í því viðtalstími við lögfræðing. við félagsmenn. Húsfundaþjónusta félagsins felur í sér aðstoð og ráðgjöf við undirbúning funda, þ.e. dagskrá, tillögur, fundarboð og fundarstjórn og ritun fundargerða. Þá býður félagið einnig upp á húsaleiguþjónustu.

Húseigendafélagið rekur sérhæfða lögfræðiþjónustu fyrir félagsmenn sína á þeim réttarsviðum, sem varða fasteignir og eigendur þeirra. Lögfræðiþjónustan hefur verið þungamiðjan í starfsemi félagsins síðustu áratugi.

Þú nærð árangri með Plannja þakrennum

BLIKKÁS – Smiðjuvegi 74 – 200 Kópavogi – Sími 515 8700 www.funi.is – www.blikkas.is

Bryndís Guðjónsdóttir þjónustufulltrúi og Harpa Helgadóttir, skrifstofustjóri hjá Húseigendafélaginu.


BYGGJUM Á BETRA VERÐI Við teiknum pallinn fyrir þig í þrívídd Bjarnheiður Erlendsdóttir garðahönnuður teiknar sólpallinn fyrir þig í þrívídd.

PALLAEFNI Á BETRA VERÐI VERÐ FRÁ

215

kr/lm

VERÐ FRÁ:

Pallaklæðning AB gagnvarin fura 28x95mm

Pantaðu tíma í síma 525 3000

Pallaefni 45x95 mm 645600

628600

VERÐ FRÁ

Þannig sérð þú hvernig hann mun koma út fullsmíðaður. Sérfræðingar okkar gefa þér svo tilboð í efnið og ráðgjöf við pallasmíðina.

295 kr/lm

185

245 kr/lm

kr/lm

VERÐ FRÁ:

Pallaklæðning AB gagnvarin fura 28x120 mm 628700

Skjólveggjaklæðning 21x95 mm 621600

G lugga r se m e ndast ! Allir gluggar Rationel eru vottaðir og slagveðursprófaðir og henta því einstaklega vel fyrir íslenskar aðstæður. Gott og vandað gæðahandverk á mjög góðu verði. Nánari upplýsingar veita Tjörvi Skarphéðinsson og Ragnar Baldursson í síma 525 3000

AU R A TRÉ

11.900

129.900 kr

kr

Hvít, slétt, 60 cm, 70 cm, 80 cm eða 90 cm. Karmur fylgir ekki 93330-33

TRÉ/ÁL

m Sérpöntuliti marga slur r og útfæ

Innihurðir á betra verði

Innihurð

AU R A P L U S

VERÐ FRÁ:

Útihurðir

Byggjum á betra verði

Bílskúrshurðir w w w. h u s a . i s


FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

4|

Átt þú gamalt hús sem þarf að gera við - hvar á að byrja?

Viðhald húsa

Fræðslustofa um viðhald og viðgerðir eldri húsa. Ókeypis ráðgjöf í Árbæjarsafni miðvikudaga kl. 15 - 17 og á sama tíma í síma 411 6333.

HÚSVERNDARSTOFA

Hugsaðu vel um pallinn Nú er kominn tími til þess að huga að pallinum og skoða hvernig hann kemur undan vetri. Að ýmsu er að hyggja til þess að halda honum vel við. ■ Byrjið á því að sópa vel og taka allt af pallinum. ■ Skoðið allar skrúfur og nagla vel, skiptið um þá sem eru ryðgaðir eða fúnir. ■ Hreinsið pallinn vel, hægt er að nota viðarhreinsi og skrúbba vel með bursta með stífum hárum. ■ Látið pallinn þorna alveg ef þið ætlið að lakka hann eða bera á hann viðarvörn. ■ Pússið yfirborðið með sandpappír og sópið vel áður en þið hefjist handa við að bera á pallinn. ■ Passið ykkur að vera með hanska og klút fyrir vitum þegar þið eruð að nota lakk eða önnur sterk efni. ■ Ekki gleyma að skoða veðurspána áður en þið hefjist handa. Það er vont að það byrji að rigna á blautt lakk eða viðarvörn. ■ Þegar þú hefur gert pallinn hreinan og fínan má fara að huga að því hvernig þú ætlar að nýta hann í sumar. Grillið á væntanlega sinn stað sem og garðhúsgögnin. Það er um að gera að nota hugmyndaflugið til þess að gera pallinn að einstökum griðastað. ■ Hafið nóg af lifandi blómum og leyfið jafnvel börnunum að planta í eigin blómapott og leyfið þeim að sjá um þau sjálf. ■ Útbúið kryddjurtakassa. ■ Notið vörubretti til þess að búa til sófa eða jafnvel lítið eldstæði. Pinterest er uppfullt af frábærum hugmyndum hvernig má nota vörubretti. ■ Hengirúm eru alltaf skemmtileg og það má einnig nota Pinterest til þess að finna góða útfærslu á þeim.


Stigahúsateppi Mikið úrval! Viðurkennd gæðateppi, slitsterk, ofnæmisprófuð og samþykkt af Mannvirkjastofnun. Óhreinindavörn sem lengir líftíma teppanna og léttir þrif.

Mælum og gerum tilboð án skuldbindinga og kostnaðar

Sérverslun með teppi og parket

Ármúli 32, 108 Reykjavík Sími 568 1888

www.parketoggolf.is


FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

6|

Viðhald húsa

Góður undirbúningur er lykilatriði Sigurður Helgi Guðjónsson, formaður Húseigendafélagsins, segir að það sé skammgóður vermir að spara í undirbúningi framkvæmda. Góður undirbúningur í hvívetna er mjög mikilvægur og einnig það að velja góðan og ábyrgan verktaka. Of mörg dæmi eru um viðhaldsframkvæmdir sem farið hafa illa af stað og endað illa og í flestum tilfellum er um að kenna slælegum undirbúningi og einnig röngu vali á verktökum. Hvernig á að undirbúa?

Fyrir pallinn og stéttina

Ekki er til nein einhlít regla um það. Verk eru mismunandi og aðstæður sömuleiðis. Í fjöleignarhúsum þarf að liggja fyrir lögleg ákvörðum. Þegar hún er komin er rétt að fá hlutlausan sérfræðing til að meta ástand hússins og viðgerðarþörf. Í því ástandsmati felst yfirleitt gróf lýsing á ástandi ásamt sundurliðuðum verkliðum með áætluðum magntölum. Húseigendur eru hvattir til að snúa sér til tæknimanna og fyrirtækja sem framkvæma slíkt mat en framkvæma þau ekki sjálfir eða fá fúskara til þess. Sé um minni verk að ræða er hægt að óska eftir tilboðum frá verktaka, byggðum á magntölum og verklýsingu samkvæmt ástandsmati. Við stærri verk eru úttektaraðilarnir jafnan fegnir til að fullgera útboðsog verklýsingu og standa að útboði. æ Skýr, skriflegur verksamningur

Lavor Galaxy 140 Háþrýstidæla 140 Max Bar 450 lítrar/klst 1900W 9 kg

Bio Kleen pallahreinsir

19.990

895 5 lítrar kr. 3.295

ODEN EÐAL OLÍA á palla. Hágæða Silikonalkyd efni. 3 l.

4.390 Meister fúgubursti með krók #4360430

2.690

(með auka vírbursta)

Landora tréolía

2.690

Mako penslasett

590

Að velja verktaka er ekki auðvelt verk. Þannig er alls ekki víst að sá sem býður lægst sé með hagstæðasta boðið þegar upp er staðið. Líta þarf til fleiri atriða svo sem hvort verktaki hafi fullnægjandi fagréttindi, hvort af honum fari gott orðspor og hvort hann virðist fjárhagslega burðugur til að ljúka verki. Þegar verktaki hefur verið valinn er gengið til samninga við hann. Seint verður nægjanlega brýnt fyrir fólki mikilvægi þess að gera skriflegan samning við verktaka hvort sem er um lítil eða stór verk að ræða. Allt of algengt er að enginn skriflegur samningur sé gerður eða að ekki sé vandað til samningsgerðar að öðru leyti. Skapar það hættu á óþarfa ágreiningi og deilum síðar meir um atriði sem hæglega hefði mátt koma í veg fyrir með skýrum og ítarlegum samningsákvæðum. Svartir sauðir

Kletthálsi Reykjavík Reykjanesbæ

Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is

Í þessum geira eða bransa eru því miður margir svartir sauðir sem oft

hafa enga eða takmarkaða fagþekkingu á viðgerðum. Þessir aðilar bjóða gjarnan töfralausnir, bæði í efnum og aðferðum. Húseigendur þurfa að varast þessa aðila. Yfirleitt stenst fátt og enginn verksamningur gerður og jafnvel um vinnu að ræða án reiknings, sem er ekki eingöngu ólöglegt heldur stórvarasamt. Án fullgilds reiknings hefur húseigandi ekkert í höndunum sem sannar hvað var gert eða að viðeigandi verktaki hafi yfirleitt komið nálægt verki og húsinu. Reikningslaus viðskipti lögbrot Því miður eru töluverð brögð að reikningslausum viðskiptum og virðast sumir húseigendur telja sig spara á því. Rétt er að ítreka að yfirleitt ofmetur verkkaupi hag sinn í þeim viðskiptum. Verkkaupi stendur eftir án nokkurs eða veikburða réttar gagnvart verktaka og ábyrgð á verki er engin. Einnig er mikilvægt að benda á að virðisaukaskattur fæst aðeins endurgreiddur af vinnu við nýsmíði, endurbætur og viðgerðir á húsnæði, ef reikningar frá verktaka eru fullgildir. Aðkoma byggingarfulltrúa Vegna steypuviðgerða, sem hafa í för með sér niðurbrot og endurgerð hluta burðarvirkja, klæðninga og gluggaskipta verður að afla byggingarleyfis. Ef fyrirhugaðar eru viðgerðir á sprungum og múr nægir að tilkynna það til byggingarfulltrúa með skriflegri greinagerð um eðli verksins, hver hafi með því eftirlit og sjái um framkvæmd þess. Þess er krafist að iðnmeistarar standi fyrir framkvæmdum slíkra viðhaldsverka. Þeir skulu hafa sérþekkingu á viðhaldsvinnu og árita yfirlýsingu hjá byggingafulltrúa um ábyrgð sína.

PORCELANOSA

flísar fyrir vandláta

Skútuvogi 6 - Sími 568 6755

Sigurður Helgi Guðjónsson.

Uppgjör og eftirmál Í minni verkum er oft svo um samið að fasteignareigandi inni verkkaup af hendi í einni greiðslu þegar verki er lokið. Í stærri verkum tíðkast það hins vegar að greitt er eftir framvindu verksins. Þá er nauðsynlegt að fasteignareigandi fylgist sem best með framvindu verksins og að reikningar verktaka séu sundurliðaðir og skýrir. Lokauppgjör á síðan að fara fram eftir að verki telst lokið. Mikilvægt er að taka út framkvæmdina og frágang á verkinu áður en lokagreiðsla fer fram. Komi þá fram við skoðun að verk sé að einhverju leyti gallað getur fasteignareigandi skorað á verktaka að bæta úr og ljúka verkinu á fullnægjandi hátt. Gallar Jafnvel þótt fasteignareigandi eða eftirlitsaðili á hans vegum hafi tekið verkið út nákvæmlega við verklok geta síðar komið í ljós gallar á verkinu. Lög mæla svo fyrir um að fasteignareigandi skuli í síðasta lagi tveimur árum eftir að verki lauk að hafa uppi athugasemdir um galla því eftir þann tíma er réttur hans til að bera þá fyrir sig fallinn niður. Réttur til að bera fyrir sig galla á verki getur þó fallið niður fyrr þar sem lög áskilja að verktaka sé tilkynnt án verulegs dráttar um gallanna eftir að fasteignareigandi varð þeirra var. Tryggilegast er að hafa uppi slíkar athugasemdir skriflega.



FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

8|

Viðhald húsa

Í sumarkjól á skurðgröfu í garðinum Auður I. Ottesen og eiginmaður hennar fluttu á Selfoss eftir hrun. Þau keyptu gamalt funkishús og hreinsuðu allt út úr því. Þau hafa síðan tekið allan garðinn í gegn og vinna nú að endurbótum á bílskúrnum. „Ég er að verða sextug og þetta er afmælisgjöf til mín, að fara að smíða aftur,“ segir Auður I. Ottesen, garðyrkjufræðingur og ritstjóri tímaritsins Sumarhúsið og garðurinn. Auður vinnur þessa dagana að endurbótum á bílskúr við hús sitt á Fossheiði á Selfossi. Hún og eiginmaður hennar, Páll Jökull Pétursson, hyggjast nýta bílskúrinn, sem er 36 fermetrar, vel því þar á að vera lagergeymsla, smíðaverkstæði fyrir Auði og salur þar sem Auður getur haldið námskeið og Páll sýnt myndir sínar. Í kjól á gröfunni Auður lætur ekki sitt eftir liggja í framkvæmdunum enda er hún menntaður smiður og starfaði við smíðar áður en hún sneri sér að garðyrkju. „Ég múra líka og legg rafmagnsleiðslur og geri bara það sem þarf að gera,“ segir hún en fólk sem þekkir til Auðar segir að framkvæmdagleðin sé slík að hún sé alltaf að og gangi jafnvel til verka klædd í kjól. „Já, ég er mikið í kjólum á sumrin og berfætt. Svo var það eitt sumarið þegar kallinn fór í ljósmyndaferð að ég tók framgarðinn alveg í gegn. Ég setti bara á mig svuntu og mokaði allan garðinn með gröfu. Þarna var ég í ellefu daga. Það fannst mörgum skrítið að sjá miðaldra konu í kjól og með svuntu á gröfu. Ég tók gröfupróf fyrir löngu og það er voða lítið mál. Maður þarf bara að samræma fjórar hreyfingar og svo er helsta áskorunin að brjóta engar rúður.“ Hún er vön því að sumum finnist skrítið að sjá hana í hefðbundnum karlastörfum. „Þegar ég var að smíða árið 1981 áttu þeir það til að taka af mér hamarinn, alveg ósjálfrátt. Og ef ég er á loftpressu vilja þeir taka hana af mér líka,“ segir hún í léttum dúr.

Þjónustuauglýsingar

Hreinsuðu allt út úr húsinu Auður og eiginmaður hennar bjuggu í Reykjavík en fóru að hugsa sér til hreyfings í kjölfar hrunsins. „Við vildum byrja upp á nýtt og við erum bæði Sunnlendingar. Við fundum þetta fína fúnkis-hús og fengum það á góðu verði frá banka. Það var reyndar ekki að ástæðulausu því það var sveppur í húsinu og 1.100 köngulær, það var alveg hersetið af köngulóm. Við sáum strax möguleikana við þetta hús og stærsti kosturinn var að það var ekkert búið að gera í garðinum, hann var mjög vanhirtur,“ segir Auður. Auður og Páll hreinsuðu allt út úr húsinu þegar þau fengu það afhent. Þau skiptu um lagnir og endurnýjuðu bókstaflega allt. „Við vorum í þrjá mánuði að gera húsið íbúðarhæft. Ég braut sjálf allt niður með loftpressunni,“ segir Auður. Hún segir að síðan þau fluttu inn hafi þau ekki ráðist í stórar framkvæmdir í húsinu, umfang þeirra hafi einfaldlega ráðist af því hvað þau hafi átt af peningum hverju sinni. „Okkur finnst gaman að það sé ekki allt fullkomið hjá okkur. Við fengum okkur til dæmis heitan pott áður en við fengum sturtu og baðherbergið var ekki tilbúið fyrr en á þriðja sumri. Svo hef ég ekki sett gereftin á dyrakarmana þó ég eigi efnið tilbúið. Við erum bara með fullt af blómum til að gera þetta heimilislegt. Það verður líka að

Auður er nú á fullu við að taka bílskúrinn hjá sér í gegn. Hér er hún að byrja á millivegg sem lokar af smíðaherbergið hennar í skúrnum.

Myndir | Páll Jökull

Auður gengur í öll störf við smíðar og garðvinnu. Hér er hún á skurðgröfunni úti í garði.

segjast að við höfum látið garðinn ganga fyrir. Framkvæmdir í húsinu hafa goldið fyrir hann enda er garðurinn nú nánast fullkominn.“ Drekkur eigið kaffi á afmælinu Eins og áður sagði verður Auður sextug í sumar og eitt af því sem hún hefur einsett sér að gera af því tilefni er að drekka kaffi sem hún framleiðir sjálf. Auður og Páll fengu kaffiplöntu að gjöf þegar þau fluttu inn í húsið og er plantan nú farin að

gefa af sér dýrindis kaffibaunir. „Plantan var 40 sentímetrar á hæð en er nú að nálgast 1,5 metra. Á öðru ári gaf hún af sér 6-7 baunir en nú er hún farin að blómstra á mismunandi tímum árs. Berin eru fyrst græn, svo gul og loks brún að lit og svo kroppar maður utan af henni. Þessar baunir ætla ég að brenna og mala og drekka svo á afmælisdaginn.“ Þessi kaffiplanta gefur ágæta hugmynd um umfang ræktunarinnar

Hjónin Páll Jökull og Auður í kaffipásu í framkvæmdum.

sem Auður og Páll eru með heima hjá sér. Þar eru þau bæði með heitt og kalt gróðurhús og rækta bæði hefðbundnar tegundir en líka ætiþistla, apríkósur og sitthvað fleira sem flestir kaupa sér bara úti í búð. „Ég hyggst vera nokkuð sjálfbær með ávexti, ber, grænmeti og krydd í framtíðinni.“ | hdm

 Fleiri myndir á frettatiminn.is

Kaffiplanta Auðar er orðin stór og myndarleg. Á sextugsafmæli sínu í sumar ætlar Auður að drekka kaffi úr baunum af plöntunni.


VÖNDUÐ & VISTVÆN VIÐARGÓLF KÄHRS PARKET BORÐLEGGJANDI GÆÐI

TEGUND: EIK STURE

Ármúli 8 I 108 Reykjavík I Sími 516 0600 I www.birgisson.is


TEGUND: ROOMS LOFT R1006


HÖRKU PLANKA HARÐPARKET FYRIR SUMARHÚS, FYRIRTÆKI HÓTEL OG HEIMILI

VERÐ FRÁ 1.495 kr. m² MARGAR NÝIR LITIR OG YFIR 50 TEGUNDIR 10 - 12 og 14 mm þykkt. 25-35 ára ábyrgð


FLÍSAR FYRIR FAGURKERA ÍTÖLSK GÆÐI OG GLÆSILEIKI

Sími 516 0600 - www.birgisson.is

LJÚKTU UPP

STERKAR OG HLJÓÐEINANGRANDI INNIHURÐIR Einfaldar í uppsetningu - fjölbreytt úrval. Gæði og gott verð!


FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

Viðhald húsa

Hresstu upp á garðhúsgögnin Með smá vinnu geta garðhúsgögnin litið út eins og ný Garðhúsgögnin eiga það til að missa sjarmann með árunum ef þau fá ekki sæmilegt viðhald. Þetta á sér í lagi við ef þau standa úti yfir veturinn. Með smá vinnu má hressa upp á þau og gera viðarhúsgögnin fín að nýju. ■ Gott er að setja undirbreiðslu undir viðarhúsgögnin til að vernda svæði fyrir óæskilegum efnum. ■ Við byrjum á að spreyja viðarhreinsi á allan viðarflötinn. Athugið að mismunandi efni geta verið með mislanga virkni.

■ ■ ■ ■ ■ ■ ■

Lesið því allar leiðbeiningar vel áður en efnin eru notuð. Skrúbbum húsgögnin með stífum bursta og sköfum grámann í burtu. Skolum af með vatni, ef háþrýstidæla er til staðar er fínt að notast við hana. Látum viðinn þorna vel. Slípum létt yfir með sandpappír. Setjum undirbreiðslu undir til að verja pallinn fyrir viðarolíunni. Tökum viðarolíuna og berum hana á með pensli eða svampi. Þurrkum umframolíuna af borðinu með tusku eða bómullarklút. Heimild: Byko.is.

10 ára ábyrgð

Mest seldu ofnar á Norðurlöndum Hjá okkur eru ofnar hitamál

www.isleifur.is


FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

14 |

Kynningar | Viðhald húsa

Fagþekking og vönduð ráðgjöf Hjá Verksýn starfa sérfræðingar sem hafa yfirgripsmikla þekkingu og reynslu af viðhaldi og endurbótum Unnið í samstarfi við Verksýn

V

erksýn ehf. er tækniþjónusta með sérhæfingu á sviði viðhalds og endurbóta á mannvirkjum, innandyra sem utan. Við höfum einnig sinnt fjölbreyttum verkefnum sem snúa að eftirliti og annarri ráðgjöf með nýframkvæmdum. Þá starfar fyrirtækið við almenna framkvæmdaráðgjöf, við álitsgerðir, byggingastjórnun og hönnun mannvirkja. Frá stofnun fyrirtækisins árið 2006 hefur starfsmönnum fjölgað jafnt og þétt og í dag starfa 8 starfsmenn hjá Verksýn. Viðskiptavinir okkar eru t.d. einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, fasteignafélög og húsfélög. Markmið okkar er að mæta þörfum viðskiptavina okkar á besta mögulega hátt með nýtingu þeirrar þekkingar og þess mannauðs sem við búum yfir. Hjá Verksýn starfa sérfræðingar með áratuga reynslu af störfum við mannvirkjagerð og við viðhald og endurbætur mannvirkja. Verksýn starfar eftir gæðakerfi sem vottað er af Mannvirkjastofnun. Fagþekking Starfsmenn Verksýnar hafa víðtæka reynslu af ráðgjöf um viðhald fasteigna. Þeir búa yfir mikilli fagþekkingu á iðngreinum, sem er ein af helstu undirstöðum vandaðrar og faglegrar ráðgjafar. Verksýn hefur á að skipa fjölda byggingafræðinga og iðnmeistara. Sérstök hæfni þeirra í greiningu á byggingarskemmdum og þekking á byggingatækni tryggir gæði í skipulagningu, útfærslu, rekstri og viðhaldi fasteigna. Ástandsskoðun Verksýnar Ástandsskýrsla er það tæki sem fasteignaeigendur og forsvarsmenn húsfélaga hafa til að leggja mat á viðhaldsþörf á hverjum tíma. Ástandsskýrslan gefur glögga mynd af viðhaldsþörf næstu árin og er áreiðanlegur grundvöllur ákvarðanatöku. Árleg viðhaldsþörf fasteigna Út frá reynslutölum er áætlað að 1-2% af verðmæti fasteigna þurfi til að mæta eðlilegu viðhaldi þeirra á hverju ári. Með því að grípa tímanlega inn í óhjákvæmilegt „hrörnunarferli“ er hægt að minnka framkvæmdakostnað verulega. Lagnir Viðhald lagna krefst vandaðs undirbúnings, enda er oft um mjög kostnaðarsamar framkvæmdir að ræða. Við veitum ráðgjöf varðandi: grunn- og jarðlagnir hita- og neysluvatnslagnir. Ókeypis námskeið Verksýn býður stjórnum húsfélaga til námskeiðs í undirbúningi viðhaldsframkvæmda. Farið er yfir feril viðhaldsframkvæmda á fjölbýlishúsum. Námskeiðin eru haldin að Síðumúla 1, Reykjavík og eru opin öllum stjórnarmönnum húsfélaga, þeim að kostnaðarlausu. Skráning með tölvupósti á verksyn@verksyn.is eða í síma 517 6300. Útboðsgögn Útboðsgögn eru lykilgögn eigenda þegar kemur að framkvæmdum. Verksýn býður út tugi framkvæmda á hverju ári. Með útboðsgögnum er tryggt að verktakar bjóði í verkið á sama grundvelli, að eigendur eigi auðvelt með að meta tilboðin og eftirlit með verklegum framkvæmdum.

Verksýn býður stjórnum húsfélaga til námskeiðs í undirbúningi viðhaldsframkvæmda. Farið er yfir feril viðhaldsframkvæmda á fjölbýlishúsum.

Átta starfsmenn eru nú hjá Verksýn.

Reyndur umsjónaraðili Þegar ráðist er í viðhaldsframkvæmdir er nauðsynlegt að hafa reyndan umsjónar- og eftirlitsaðila með verkinu. Sem eftirlitsaðili tryggir Verksýn að verktaki sinni þeim skyldum sem á hann eru lagðar samkvæmt ákvæðum útboðsgagna: 1. Að ábyrgir iðnmeistarar séu skráðir á viðeigandi verkliði 2. Fer yfir allar tryggingar verktaka 3. Yfirfer tæknilegar upplýsingar 4. Yfirfer verkáætlanir 5. Eftirlit með framgangi framkvæmda 6. Eftirlit með vinnubrögðum og umgengni 7. Leysir úr óvissuatriðum 8. Stjórnar verkfundum 9. Ritar fundargerðir 10. Fer yfir reikninga frá verktaka 11. Hefur umsjón með úttektum 12. Samskipti við íbúa 13. Varðveitir gögn í 10 ár eftir verklok Kostnaður við umsjón og eftirlit skilar sér til eigenda í hagkvæmni og meiri gæðum framkvæmda.

Reynir Kristjánsson stofnaði Verksýn árið 2006 og hefur stýrt fyrirtækinu síðan.


• Ástandsskýrslur • Útboðsgögn • Teikningar / hönnun • Verksamningar • Umsjón og eftirlit • Verkefnastjórnun

Við leggjum áherslu á virðingu fyrir eldri hönnun og teljum það skyldu okkar að stuðla að varðveislu íslenskrar byggingasögu.


FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

16 |

Kynningar | Viðhald húsa

AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANS S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is

Hvenær er „rétti tíminn“ fyrir viðhald? Eignaumsjón er leiðandi í heildarþjónustu í rekstrarumsjón bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis Unnið í samstarfi við Eignaumsjón

Eignaumsjón –þjónusta við eigendur fasteigna

Þ

að er því miður staðreynd að viðhaldi fasteigna á Íslandi er víða mjög ábótavant og oftar en ekki er beðið of lengi með að framkvæma eðlilegt viðhald þeirra. Starfsfólk Eignaumsjónar kannast vel við þetta og segir að algengt sé að til þess komi húsfélög þar sem ástand fasteignar er orðið mjög slæmt. Íslenska aðferðin hefur lengi verið sú að bíða með viðhald og viðgerðir þangað til í óefni er komið með tilheyrandi aukakostnaði og raski sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir með reglubundnu viðhaldi. Langtíma viðhaldsáætlun En hvað er þá reglubundið viðhald og hvernig er best að sinna og framkvæma eðlilegt viðhald? Ein leið, að mati starfsfólks Eignaumsjónar, er að gera viðhaldsáætlun til lengri tíma. Í viðhaldsáætlun er sett upp skilmerkilega hvaða verkefni þarf að framkvæma einu sinni á ári, hvaða verkefnum þarf að sinna á 1-3 ára fresti, 3-5 ára á fresti og svo framvegis. Hjá nágrönnum okkar á Norðurlöndum hafa slíkar viðhaldsáætlanir verið gerðar mjög lengi með góðum árangri og sýnir reynslan að góð langtímaáætlun í viðhaldi fasteigna leiðir til lægri kostnaðar. Starfsfólk Eignaumsjónar leggur nú ríkari áherslu á að viðskiptavinir fyrirtækisins fari að hugsa um viðhald fasteigna sinna til lengri tíma.

Eignaumsjón hefur verið leiðandi í heildarþjónustu í rekstrarumsjón bæði atvinnu- og íbúðarhúsnæðis. Í raun er Eignaumsjón skrifstofa húsfélags og heldur utan um fjármál og bókhald, sér til þess að aðal- og húsfundir séu haldnir ásamt útvegun og öflun tilboða í aðkeypta þjónustu og útvegun verktaka í minniháttar viðhaldsverk. En einnig er mikilvægt að koma viðhaldsframkvæmdum í farveg með öflun tilboða frá fagaðilum í gerð á ástandsskýrslum og kostnaðarmati við gerð viðhaldsáætlana. Eignaumsjón hefur þróað öflugan hugbúnað sem er sérsniðinn að þörfum hús- og rekstrarfélaga sem miðar m.a. að því að safna saman dýrmætum gögnum og sögu viðkomandi fasteignar. Með þessum búnaði, ásamt öflugu starfsfólki með haldgóða menntun og reynslu, mun Eignaumsjón áfram leitast við að aðstoða eigendur fasteigna af fremsta megni. Samráð eigenda Eigendur í fjölbýli þurfa að koma sér saman um rekstur, viðhald og fjármál á löglega boðuðum fundum. Mál sem tengjast viðhaldi fasteignar eru því, eins og áður sagði, oft ekki rædd eða skilgreind nógu vel enda skortir oftar en ekki þekkingu. Nokkrar leiðir eru í stöðunni en hér að neðan er einfalt dæmi sem Eignaumsjón notar til að ráðleggja viðskiptavinum sínum: Boða til löglegs húsfundar með eigendum þar sem fundarefni er t.d „Viðhaldsáætlun næstu 7-10 ára“. Fá samþykkt fundarins til þess að ráða sérfróðan aðila til þess að gera ástandsskýrslu og kostnaðarmat á viðgerðum og viðhaldi. Viðhaldsáætlun næstu 7-10 ára lögð fram á húsfundi með sundurliðun á aðgerðum og kostnaði vegna þeirra. Nauðsynlegar aðgerðir og viðhald sem strax þarf að framkvæma.

• • • •

• Viðhald og viðgerðir næstu 1-3 ára. • Næstu 3-5 ára. • Næstu 5-10 ára.

Þegar slíkar áætlanir eru gerðar minnka líkur á óvæntum viðhaldskostnaði, verðgildi eignarinnar heldur sér, heildarmynd fæst á allan rekstur og viðhald hússins ásamt því að greiðsludreifing í framkvæmdasjóð verður jafnari. Þannig helst fasteign í góðu og stöðugu ástandi. Þetta er í raun ekki eins flókið og margir ætla. Einnig þarf að vanda vel til verka um efnisval og gæði þeirra vöru sem notuð er til viðhalds og viðgerða í dag. Oft eru notaðir of ódýrir kostir við viðhald og viðgerðir á húsum sem eru í raun einskonar „einnota“ aðgerðir. Staðreyndin er sú að betra er að fjárfesta í góðum vörum sem oft eru dýrari í innkaupum en hafa lengri og betri endingartíma og verða þarf af leiðandi hagkvæmari þegar til lengri tíma er litið.

Starfsfólk Eignaumsjónar leggur ríka áherslu á að viðskiptavinir sínir hugsi um viðhald fasteigna til lengri tíma.

Í GARÐINN OG SUMARBÚSTAÐINN Bjóðum við upp á endingargóðar og hentugar kerrur, bæði íslenskar og frá Ifor Williams Höfum kerrur á staðnum til sýnis

Hyrjarhöfði 8 110 Reykjavík Sími 577-1090 Netfang: sala@vikurvagnar. is www.vikurvagnar.is

Seljum einnig og setjum undir dráttarbeisli á allar gerðir bíla


FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

Kynningar | Viðhald húsa

|17 AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANS S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is

Hægt að byrja á pallinum strax Jarðvegsskrúfur frá Áltaki henta vel fyrir t.d. skilti, sólpalla, fánastangir, smáhýsi, skýli, göngustíga og jafnvel trampólín Unnið í samstarfi við Áltak

Þ

essari vöru fylgir nær ekkert umhverfisrask og hægt er að fjarlægja jarðvegsskrúfurnar án nokkurrar fyrirhafnar. Þetta sparar tíma og kostnað í tengslum við uppgröft og steypuvinnu,“ segir Hildur Sigurðardóttir verkfræðingur um þessa nýjung sem einfaldar verulega ferlið sem fylgir því að hefja framkvæmdir. Skrúfurnar koma í öllum stærðum og gerðum en það fer eftir hvers konar jarðveg er verið að vinna með og hvers lags framkvæmdir. Dýrleif Arna Guðmundsdóttir, sem einnig starfar sem verkfræðingur hjá Áltaki, segir jarðvegsskrúfurnar afar hentugar fyrir sólpalla, til að mynda. „Við getum tekið sem dæmi sólpalla þar sem algengasta aðferðin er að grafa holur og steypa hólka. Þetta tekur tíma og steypan þarf að harðna. Með þessum skrúfum er ferlið mun einfaldara, öruggara og kostnaðarminna.“ Skrúfurnar í skottið og í sveitina Sumarbústaðaeigendur margir hverjir þekkja vel brasið með að aka með steypu og hólka þegar byggja á pall. Jarðvegsskúfurnar útiloka þessa snúninga sem fyrir sumum hafa letjandi áhrif á framkvæmdagleðina. „Með þessu þarf ekki alltaf að vera að keyra á milli. Þú tekur bara skrúfurnar og vélina með, getur jafnvel bara skellt því í skottið. Svo er bara brunað í sveitina, skrúfurnar boraðar niður og byrjað að smíða pall,“ segir Hildur.

Festa niður trampólín Jarðvegsskrúfurnar eru til ýmissa hluta nytsamlegar, ekki bara sem undirstöður fyrir stærri framkvæmdir. „Við erum með minni skrúfur til þess að festa trampólín niður þannig að í óveðri eru þau ekki fjúkandi um allan bæinn og valda tjóni. Það þarf ekki nema tvær til þrjár skrúfur og kostar skrúfan 2.500 krónur,“ segir Dýrleif og bætir Hildur við að þetta sé frábær lausn fyrir þau sem ekki hafa kost á því að geyma trampólínin inni þegar veður geisa. Tólf á innan við klukkustund Það er afar einfalt að koma skrúfunum fyrir og fólk getur komið í Áltak og sótt bæði skrúfurnar og skrúfvélina og fengið grunnkennslu í notkun vélarinnar. Síðan er mælt fyrir skrúfunum og það eina sem þarf að gera er að bora skrúfurnar niður og undirstöðurnar eru tilbúnar. „Við settum upp sýningarpall hér hjá okkur sem í þurfti 12 skrúfur. Á innan við klukkustund voru allar 12 skrúfurnar komnar niður og hægt var að byrja á pallinum,“ segir Dýrleif. Áltak og Rekverk Ef um stærri framkvæmdir er að ræða, eða ef fólk vill nýta sér þægindin, bendir Áltak á Rekverk sem veitir afar fagmannlega þjónustu við að koma skrúfunum fyrir. „Þeir eru okkur innan handar og eru að þjónusta bæði stór og smá verk. Þar er mikil fagmennska til staðar og við mælum með þeim þegar um stærri framkvæmdir er að ræða.“

Áltak bendir á Rekverk sem veitir afar fagmannlega þjónustu við að koma skrúfunum fyrir.

Dýrleif, t.v. og Hildur eru verkfræðingar hjá Áltaki sem sérhæfir sig meðal annars í jarðvegsskrúfunum.

Jarðvegsskrúfurnar auðvelda hvers kyns framkvæmdir til muna.


FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

18 |

Kynningar | Viðhald húsa

AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANS S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is

Alhliða hreinsun á teppum, mottum og húsgögnum Bjarni Árnason tók við rekstri Skúfs af föður sínum og sérhæfir sig í mottuhreinsun Unnið í samstarfi við Skúf

S

kúfur mottuhreinsun tekur að sér að hreinsa teppi, steinteppi, rúmdýnur, húsgögn og mottur og leggur meðal annars áherslu á heildarlausnir fyrir hótel og fyrirtæki varðandi þrif á teppum og húsgögnum. „Við erum sérhæfðir í mottuhreinsun og erum með mottuhreinsunarstöð okkar í Vesturvör 22, þar sem er opið alla virka daga milli klukkan 16 og 18,“ segir Bjarni Árnason, eigandi Skúfs. Faðir hans stofnaði fyrirtækið fyrir 30 árum en Bjarni rekur það í dag og er með tvo starfsmenn. Skúfur hreinsar einnig teppi, steinteppi og húsgögn fyrir fyrirtæki. „Við getum unnið á öllum tímum sé eftir því óskað, líka um helgar og á kvöldin. Við gerum tilboð í stærri verkin og notum blauthreinsiaðferðir. Einnig höfum við nýlega byrjað með þurrhreinsiaðferð sem virkar vel fyrir hótel og fyrirtæki sem má ekki trufla mikið vegna hávaða,“ segir Bjarni. Þó að fyrirtækjaþjónusta sé stór hluti viðskiptavina Skúfs eru einstaklingar farnir að nýta sér þjónustuna í sífellt meira mæli. „Starfsfólk okkar mætir á heimili og hreinsar húsgögn eða rúmdýnur með sem minnstri truflun og fyrirhöfn. Einnig hreinsum við leðurhúsgögn og þá er leðrið bæði hreinsað og olíuborið.

Mynd | Rut

Okkar mottó er að viðskiptavinum okkar finnist þægilegt að fá okkur inn á heimili sín og vingjarnlegt viðmót skili sér.“ Símanúmer Skúfs er 663 0553 og vefsíðan www.skufur.is. Einnig leita að Skúfur Mottuhreinsun á Facebook

Nota eingöngu viðurkennd hreinsiefni Carpet and Rug Institute, CRI, gefur út viðurkenningu á hreinsiefnum sem stofnunin mælir með og standast kröfur í Bandaríkjunum. Skúfur notar eingöngu efni sem hafa fengið þessa viðurkenningu eða aðrar sambærilegar viðurkenningar.

Bjarni Árnason, eigandi Skúfs, tekur að sér að hreinsa teppi og ýmislegt fleira.

Alhliða lásaviðgerðir og lyklasmíði Unnið í samstarfi við Lásaþjónustuna ehf.

L

Fjallað verður um mismunandi efni og aðferðir við að hreinsa, verja, grunna og mála hús.

Ókeypis fræðsla um húsamálun

Húsverndarstofa stendur fyrir fræðslufundi um viðhald og viðgerðir eldri húsa 18. maí næstkomandi í Kornhúsinu í Árbæjasafni. Á fundinum verður fjallað um yfirborðsmeðhöndlun utan húss, málun útveggja, hurða, glugga og þaka. Fjallað verður um málun á timbri, steinsteypu, múr og málmum. Á fundinum munu sérfræðingar á sviði málunar og utanhússviðhalds fjalla um verndun yfirborðs byggingarefna fyrir tæringu, fúa og öðru niðurbroti. Fjallað verður um mismunandi efni og aðferðir við að hreinsa, verja, grunna og mála hús. Þá munu framleiðendur og söluaðilar málningar kynna þau efni sem þeir hafa á boðstólum og mun gestum gefast kostur á að prófa efni. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Hann stendur frá klukkan 16-18.

ásaþjónustan ehf. veitir ráðgjöf á heimilum fólks og er með neyðarþjónustu þegar fólk læsir sig úti eða lendir í vandræðum Lásaþjónustan ehf. sérhæfir sig í lásaviðgerðum og lyklasmíði. Fyrirtækið var stofnað árið 2007 og starfrækir það verslun og verkstæði á Grensásvegi 16. Auk þess er fyrirtækið með neyðarþjónustu. „Við hjálpum fólki að opna hús, bíla og hirslur. Þá hjálpum við líka fólki í vandræðum, þegar lyklar eru fastir í eða brotnir og lögum læsingar og fleira á staðnum,“ segir Arnar Freyr Jónsson, starfsmaður Lásaþjónustunnar. „Við erum mjög lausnamiðað fyrirtæki og með ríka þjónustulund.“ Arnar og félagar hafa tekið að sér að yfirfara og stilla hurðarpumpur og þjónusta mörg húsfélög. Þeir bjóða einnig upp á ráðgjöf á heimilum fólks. „Við getum komið og ráðlagt fólki hvað er best að gera í sambandi við glugga og hurðir. Nú, í þessari innbrotaöldu, skiptir máli að lásabúnaðurinn sé í lagi. Hann er veikasti hlekkurinn og oft það sem er verst gengið frá. Ef þú ert með lélega hurð eða glugga er ekkert mál að komast inn hjá þér. Við getum ráðlagt fólki hvað þarf að gera til að heimilið verði öruggara.“ Lásaþjónustan býður alhliða lyklasmíði og lásaviðgerðir. „Við sjáum bæði um húslykla og bíllykla og höfum til að mynda verið

Mynd | Rut

Arnar Freyr Jónsson og félagar hans hjá Lásaþjónustunni bjóða upp á alhliða lyklasmíði og lásaviðgerðir. Auk þess veita þeir ráðgjöf á heimilum fólks.

að útbúa þessa forrituðu bíllykla og þjónusta fjarstýringar,“ segir Arnar Freyr. Auk þess eru allskonar handverkfæri til sölu í verslun Lásaþjónustunnar. Hjá Lásaþjónustunni vinna í dag fjórir starfsmenn og hafa nóg að gera, að sögn Arnars Freys. „Þetta er sveiflukenndur bransi, eins og annað á Íslandi, en okkur hefur gengið vel. Við erum hægt og hægt að byggja okkur meira og meira upp.“ Nánari upplýsingar um fyrirtækið má finna á Lyklasmidur.is.

Lásaþjónustan ehf. sérhæfir sig í lásaviðgerðum og lyklasmíði. Lásaþjónustan býður alhliða lyklasmíði og lásaviðgerðir. „Við sjáum bæði um húslykla og bíllykla


FRÉTTATÍMINN | HELGIN 8. APRÍL–10. APRÍL 2016

|19

Kynningar | Viðhald húsa

AUGLÝSINGADEILD FRÉTTATÍMANS S. 531 33 00 | auglysingar@frettatiminn.is

Íspan hefur verið starfandi sleitulaust frá árinu 1969 og byggt upp góðan orðstír á þeim tíma.

Myndir | Rut

Gler í hvað sem er Íspan hefur starfað sleitulaust frá árinu 1969 og státar af glæsilegu úrvali af gleri af öllum gerðum Unnið í samstarfi við Íspan

G

ler er notað í sívaxandi mæli í ýmsum tilgangi. Hjá Íspan er úrvalið af gleri nánast óþrjótandi og þar má til dæmis nefna spegla, lakkað gler, sólvarnargler, tvöfalt gler, sandblásið gler, hljóðvarnargler, öryggisgler, litað gler og svona mætti lengi telja. „Það er hægt að nota gler í nánast hvað sem er í dag. Við bjóðum upp á gler í glugga en það er aðeins brot af því sem hægt er að nota glerið í. Það er til dæmis gler í handrið og skjólveggi sem margir eru að huga að þessa dagana,“ segir Ólafur Ragnar Hilmarsson, gæðastjóri hjá Íspan. Gler í sturtuna og eldhúsið Það færist sífellt í aukana að fólk noti gler inni á heimilum sínum. „Já þetta er mjög vaxandi, að fólk hafi gler milli innréttinga til dæmis í eldhúsinu hjá sér í staðinn fyrir flísar og fúgu og það kemur mjög huggulega út. Það er hægt að vera með gamalt eldhús og fríska upp á það með því að setja gler á milli skápa, meira að segja er hægt að setja gler yfir gamlar flísar og spara sér vinnu við að fjarlægja þær það getur flokkast sem gott viðhaldsverkefni,“ segir Ólafur Ragnar. Það eru líka dæmi um að fólk setji gler inni í sturtuklefa, á vegginn, í staðinn fyrir flísar, svo möguleikarnir eru endalausir.

Hágæða gler frá 1969 Ólafur Ragnar segir að gler sé hægt að nota fyrir nánast hvað sem er í dag.

Þann 14. ágúst 1969 hóf Íspan starfsemi sína í 250 fermetra húsnæði í Skeifunni. Markmið fyrirtækisins var frá fyrsta degi að framleiða hágæða einangrunargler og leitaðist í hvívetna við að búa verksmiðjuna fullkomnustu tækjum sem völ var á. Fyrirtækið dafnaði vel í Skeifunni og svo vel tóku iðnaðarmenn og húsbyggjendur framleiðslu Íspan að á vormánuðum árið 1971 var hafist handa við byggingu nýs verksmiðjuhúss að Smiðjuvegi 7, þar sem við vorum frumbyggjar þess tíma, og þar erum við til húsa enn í dag. Á 110 dögum reis þar 2000 fermetra húsnæði sem hefur allt frá þeim tíma hýst framleiðslu og söludeild Íspan, en gegnum árin hefur verið byggt við og ýmsar aðrar breytingar gerðar á húsnæðinu til að aðlaga það breyttum tímum og aukinni starfsemi.

Fagmenn til ísetninga og uppsetninga Stúdentagarðarnir við Sæmundargötu hafa til að mynda vakið mjög mikla athygli fyrir svalirnar sem skarta einmitt gleri frá Íspan, en það er í öllum regnbogans litum.

Íspan leggur mikinn metnað í þjónustu við viðskiptavini sína. Meðal þjónustuþátta eru t.d. mælingar, tilboðsgerð, heimsendingar, leiga á sogskálum og öðrum búnaði til glerjunar. Seljum glerísetningarefni, þéttilista, skrúfur, kítti o.fl. Auk þess bjóðum við ýmsar festingar og aukahluti til uppsetninga á gleri og speglum. Íspan útvegar fagmenn til ísetninga og uppsetninga á öllu gleri og speglum og sérfræðiráðgjöf varðandi allt sem snýr að gleri og glerjun. Úrval glers og spegla er yfirgripsmikið, einnig hert gler og öryggisgler.


Opiรฐ virka daga frรก kl. 9:00 - 18:00 Opiรฐ laugardaga frรก kl. 11:00 - 16:00


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.