
4 minute read
Bjögga er sú sigursælasta í kvennaflokki með sjö klúbbmeistaratitla
Ingibjörg Grétarsdóttir eða Bjögga eins og hún er oft kölluð, er sigursælasti kvenkylfingur GG en hún hefur hampað titlinum í Meistaramóti GG alls sjö sinnum. Mörgum gæti þótt það magnað afrek þar sem Bjögga hóf ekki golfiðkun fyrr en hún var 25 ára gömul en hvernig hófst golfferillinn?

„Ég er frá Þingeyri og þegar ég kom þangað eitt sumarið þegar ég var 25 ára gömul, þá plataði Rúrik [Rúrik Hreinsson, eða Rikki eins og margir í Grindavík þekkja hann – innskot blaðamanns] bróðir mig með sér í golfmót og þá hafði ég aldrei áður sveiflað kylfu. Áður en við mættum í mótið þá slógum við nokkra bolta á grasbletti fyrir ofan húsið þar sem foreldrar mínu bjuggu og það gekk ekki betur en svo að ég sló boltanum í jörðina þannig að hann skaust upp og í munninn á mér og tönnin dó (varð svört með árunum)! Mótið gekk vel og við systkinin unnum og ég fann að þetta myndi ég vilja gera meira af og strax sumarið eftir byrjaði ég á fullum krafti með konunum í Grindavík, Sjana og Sigrún tóku mig að sér og kenndu mér og ég spilaði mikið með þeim.“
Hvenær kom fyrsti titillinn og var hann s?
„Ég byrjaði í GG 1995 ef ég man rétt og náði fljótt fínum tökum á íþróttinni og vann minn fyrsta klúbbmeistaratitil 1998. Ég man ekkert sérstaklega eftir þessum fyrsta sigri en man að það var gaman að hampa titlinum og mikið stuð var á lokahófinu.“
„Jú jú, þetta var alltaf hörkukeppni en einhvern veginn tókst mér að vinna og það var auðvitað gaman. Á þessum tíma var ég að spila nokkuð stöðugt og gott golf og það skilaði mér í efsta sætið.“ Ingibjörg tók ekki þátt í næstu þremur meistaramótum, þau Viktor maðurinn hennar fóru að ferðast meira um landið og spila aðra velli en bara í Grindavík. Það stefndi allt í að Bjögga yrði ekki með 2009 en sonur hennar ýtti henni af stað: „Hluti ástæðunnar fyrir því að ég tók ekki þátt 2006-2008 var vinna, ferðalög og fjölskyldan, m.a. vorum við dugleg að fylgja syni okkar í hin og þessi fótboltamót og þegar illa gekk hjá honum og liðið mátti þola stórt tap, þá reyndi ég að peppa hann upp og sagði honum að það væri ekki aðalatriðið að vinna, bara vera með. Fyrir meistaramótið 2009 var hann að spyrja mig af hverju ég ætlaði ekki að taka þátt og ég bar því við að ég væri ekki í nógu góðri æfingu og eitthvað en þá stakk hann upp í mig, sagði að það væri ekki aðalatriðið að vinna heldur vera með! Ég varð því að mæta og spilaði mitt besta golf í þessu móti, náði erni og einhverjum fuglum og endaði á að vinna mótið með 39 högga mun!“
Bjögga hefur ekki tekið þátt síðan 2009, hvað veldur og er von á henni í Meistaramót GG á afmælisárinu?
„Áhugamálin hafa breyst á undanförnum árum, við Viktor elskum að ferðast um landið okkar og reynum alltaf að spila golf en ég lenti í brjósklosi í baki og það er ekki gott fyrir golfið svo heilsan er líka ástæða þess að ég hef ekki mætt á undanförnum árum. Er ekki viss hvernig mér myndi ganga að spila fjóra daga í röð en eigum við ekki að segja að stefnan sé sett á að mæta til leiks í ár, á afmælisárinu. Gaman ef gamlir meistarar eins og Sigrún hans Jonna mætir, Gulli Sævars o.fl. Segjum að stefnan sé sett á þetta!“
Ertu með góð ráð til golfkvenna?
„Ég er lýsandi dæmi um að það er aldrei of seint að byrja! Auðvitað hefði verið betra að byrja fyrr en sem betur fer byrjaði ég og náði svo að draga Viktor með mér í golfið og það er frábært! Ég hvet þær stelpur og konur sem eru að byrja, til að hitta strax kennara til að læra réttu handtökin. Rúrik bróðir er nú örugglega ekki besti kennarinn en hann kenndi mér fyrstu handtökin en sem betur fer fékk ég fljótlega góða leiðsögn sem hjálpaði mér mikið. Sigrún reyndi að kenna mér að pútta en það gekk ekki mjög vel og hún sagði að ég púttaði eins og fífl og því miður er ég ennþá að pútta eins og fífl, en er að vinna í þessu núna því Karen Sævars golfkennari er með púttáskorun á Facebook og maður þarf að klára visst mörg pútt á dag svo vonandi kem ég vel undirbúin fyrir sumarið!“

Bjögga í góðum félagsskap með Kristínu Mogensen og Hildi