3 minute read

Boltarnir voru hvor sínum megin við holuna, héngu báðir á bláþræði!

Ritstjóri blaðsins bað mig um að setja niður á blað, mínar „hole in one“ – sögur. Þar kennir ýmissa grasa má segja…

Ég myndi segja að ég hafi komist ágætlega upp á golfíþróttina strax á unga aldri á Akranesi en ég var kominn í unglingalandsliðið þegar ég var 14 ára. Í mínum huga er augljóst að þeim mun betri kylfingur sem maður er, þeim mun meiri líkur eru á því að fara holu í höggi. Öll þau skipti sem ég var nálægt, setti boltann í stöngina eða hvað þá, lenti boltanum ofan í holuna en hann skoppaði upp úr, gæti nánast fyllt heilt svona blað en ég ætla að hlífa þér við því kæri lesandi. Ætla frekar að lýsa einu magnaðasta atvikinu en þar vorum við tveir saman í holli sem upplifðum sömu vonbrigðin!

Ég var að spila með Akureyringnum Sigurpáli Geir Sveinssyni í Íslandsmótinu á Hellu einhvern tímann á síðustu öld. Á öðrum degi á holu tvö, sló ég fyrst. Við Siggi Palli vorum sammála um að höggið væri gott, jafnvel frábært og ágætis líkur væru á holu í höggi! Siggi Palli stillti sér upp og sló högg sem við töldum, jafnvel ennþá betra en mitt! Holan er blind svo við sáum ekki boltana fyrr en við komum á flötina – og trúðum ekki okkar eigin augum! Boltarnir voru hvor sínum megin við holuna, héngu báðir á bláþræði!

Eftir öll þessi „næstum því hola í höggi“ skipti þá var ég nokkurn veginn búinn að segja sjálfum mér að þetta ætti einfaldlega ekki fyrir mér að liggja. Því kom það ansi vel á óvart þegar draumurinn loksins rættist – á par 4 holu!!

Þetta var á Akranesi og ég var að spila í Greensome móti með mági mínum, Einari Guðberg Einarssyni. 10. holan á Akranesi er um 250 metrar og það var smá hliðarmótvindur. Ég náði mjög góðu höggi með dræver og við sáum boltann lenda inn á flöt. Þegar við komum að holunni þá sá ég djúpt boltafar og línu sem stefndi beint á holuna… Ég sagði við Einar að annað hvort væri þessi bolti ofan í eða í djúpu röffi fyrir aftan flötina og þá værum við í slæmum málum! Eftir öll vonbrigðin í gegnum tíðina neitaði ég að fara að holunni til að skoða svo mágur minn fór í verkefnið. Hann stóð í nokkrar sekúndur yfir holunni og gaf mér svo það fallegasta bros sem ég nokkurn tímann fengið frá honum.

Helgi Dan Steinsson

Skriðið inn á flöt og bolta laumað í holun!

Leifur Guðjónsson hefur komið fyrir í þessu blaði en hann er einn stjórarfólks GG. Leifur er einn af betri kylfingum klúbbsins og kann líka að slá á þá léttu og hér áður fyrr var hann óttarlegur prakkari!

Áður en völlurinn varð 9 holu völlur, þá var önnur holan uppi á efri velli par 3 hola – blind…

Það var unglingamót í gangi og Leifur að spila og var í hollinu á undan Birni Skúlasyni. Bolti Bjössa lenti ekki langt frá Leifi og púkinn kom upp í honum… Hann náði í boltann, skreið inn á flötina og setti boltann í holuna!

Leifur kannaðist ekkert við að hafa heyrt í boltanum né sé hann lenda og upphófst leit. Eftir þónokkra leit fannst boltinn og voru fagnaðarlæti Bjössa gífurleg en auðvitað er það draumur golfarans að fara holu í höggi, Bjössi lýsti fagnaðarlátunum: “High Five og faðmlög með öllum sem voru á staðnum!”

Um það leyti sem átti að fara skrá Bjössa í Einherjaklúbbinn þá lagði Leifur spilin á borðið – við mikil vonbrigði Bjössa!

Bjössi annar frá vinstri í miðröð, með u.þ.b. 25% brosins þegar "draumahöggið" kom. Leifur standandi hægra megin við flaggstöngina, strax kominn með prakkarasvip!

This article is from: