8 minute read

Við myndum rúlla þeim upp, það er nokkuð ljóst!

Frá vinstri: Svenni, Alli, Gísli, Eddi, Gaui, Gunni, Bjarni og Jón.

Heldri kylfingar GG, karlarnir og jafnvel stundum kallaðir gömlu karlarnir, er hópur flottra manna sem flestir áttu þátt í stofnun klúbbsins fyrir 40 árum. Þeir eru duglegir við að spila allan ársins hring, hafa t.d. spilað á Gamlársdegi! Ég ákvað að taka viðtal við þessa frumherja GG og áttu þeir allir að mæta kl. 13 í golfskálann. Degi fyrr hafði ég hitt Gauja frænda (Guðjón Einarsson, 74 ára) og hann sagðist boða sína félaga í skálann daginn eftir.

Kl. 13 voru mættir þeir Halldór Ingvason (81 árs), Edvard Júlíusson (87 ára), Sveinn Ísaksson (76 ára), Aðalgeir Jóhannsson (70 ára) og Gísli Jónsson (82 ára). Ekkert bólaði á Guðjóni og þeim sem hann átti að boða… Ég hringdi og hugsanlega er ellikerling farin að klípa Gauja eitthvað í rassinn en hann sagðist varla hafa verið farinn út úr skálanum þegar hann gleymdi að boða félaga sína…

Nú voru góð ráð dýr, átti að fresta viðtalinu? Nei aldeilis ekki sögðu þeir sem voru mættir! Það væri líka bara fínt að taka viðtölin í tveimur hollum því þeir sem ekki mættu væru hvort sem er ekki oft að spila á sama tíma, væru í raun ungir kettlingar og ættu ekkert erindi við þetta heldri-manna-borð! (Undirritaður tók að sjálfsögðu strax eftir kímninni og skynjaði strax að nettur metingur væri á milli þessara golfsveita).

Hvenær byrjuðu þessir karlar að spila svona eins og þeir gera flesta daga ársins?

Halldór tók fyrstur til máls: „Ætli séu ekki orðin einhver 15 – 20 ár síðan við byrjuðum að spila golf á þennan máta en í talsvert langan tíma hefur tíðkast hjá okkur eldri kynslóðinni, að hittast úti á golfvelli kl. 13 og svo er spilað. Helga konan mín, Margrét hans Gísla og fleiri konur koma oft líka og þá eru þær annað hvort á undan eða eftir, þeim finnst skemmtilegra að spila saman og við karlarnir viljum hafa gaman hjá okkur…“

Svenni Ísaks bætti við: „Ég hélt áfram á sjónum eftir að ég varð 67 ára gamall en á milli túra reyndi ég alltaf að hitta á karlana og spila, það hefur gefið mér mikið. Eftir að ég lenti í heilablóðfalli fyrir nokkrum árum þá hafa hinir karlarnir nálgast mig aðeins í getu en ég finn hvernig ég styrkist hægt og býtandi og sé ekki fyrir mér að þeir muni ná mér!“ Alltaf er keppni þegar karlarnir spila, venjulega tveir og tveir saman og samanlagður punktafjöldi ræður úrslitum og spilað er upp á kaffi – stundum fylgir kaka með. Þeir voru sammála um að Svenni sé þeirra bestur og þá sérstaklega áður en hann lenti í heilablóðfallinu en hver þeirra skyldi vera með fallegustu sveifluna? Alli á Eyri vissi að spurningunni væri lúmkst beint að sér og tók til máls: „Ég þykist vita að þessari spurningu sé beint að mér, ég get víst ekki státað af fallegri sveiflu en mér er minnisstætt þegar ég var eitt sinn að spila með nýliða, manni nokk eldri en ég, sem var búinn að vera hjá kennara. Eftir fyrsta upphafshöggið mitt glotti hann við tönn en ég fékk nú samt par á holuna á meðan hann eðlilega sem nýliði, sló rúm 10 högg. Ég átti teiginn á næstu og eftir upphafshöggið þá sprakk þessi ágæti maður úr hlátri og sagði hátt og skýrt; „sjá hvernig þú slærð!“ Félagar mínir gauka þessum frasa stundum að mér í góðu tómi.“

Er eitthvað eftirminnilegt frá þessum árum, einhver góð högg t.d.?

Gísli: „Ætli ég eigi ekki besta höggið, fór holu í höggi 18. holu um daginn! Ég ætti kannski að skrá mig í Einherjaklúbbinn! Í minningunni þarf ég nú oftast að reiða fram veskið og kaupa kaffið í lok dags en mér hefði nú fundist eðlilegt að félagarnir hefðu verðlaunað mig fyrir þetta draumahögg en allt kom fyrir ekki! “ sagði Gísli kíminn. Svenni var fljótur að bæta um betur: „Ég get toppað þetta! Ég fór 6. holuna á Albatros um daginn! [fyrir þá sem ekki vita þá er Albatros þegar slegin eru tvö högg á par fimm holu - innskot blaðamanns]

Ekki sjást margir kylfingar á sterkustu mótaröðum heims, mikið yfir fimmtudagsaldri en hvenær tóku þessir heiðurskylfingar eftir því að aldurinn væri farinn að hafa áhrif? Aldursforsetinn Eddi vildi svara þessari:

„Ég hef nú aldrei verið högglangur og hef ekkert spáð í hvort drævin mín séu farin að styttast, golfið gengur ekki út á hver drævar lengst, heldur á hversu fáum höggum boltinn fer ofan í holuna! Minn styrkur liggur í stutta spilinu og ég hika ekki við að taka pútterinn upp talsvert fyrir utan grín og t.d. náði ég góðu birdie þannig um daginn, var laglega fljótur að taka upp birdiepelann!“

Mér tókst ekki að ná í heiðursmennina Willard Fiske Ólason (85 ára) og Reyni Jóhannsson (81 ára) í fyrstu atrennu og hitti þá eftir að ég var búinn að hitta hin gengin tvö en þeir eru nú meira í golfinu upp á gleðina, hafa ekki tekið þátt í móti og stefna ekki á það. Þess vegna vildu þeir einfaldlega leyfa hinum fuglunum að glíma sín á milli, þeir ætluðu bara að halda áfram að spila sér til gamans en leyfa hinum að vera í sinni pissukeppni… Undanfarið hefur bróðir Willards, Garðar bæst í hópinn en þeir eru báðir Grímseyingar en það voru bara Willard og Reynir sem mættu í viðtal og Reynir var fyrri til að taka til máls: „Það er nú ansi langt síðan ég sveiflaði fyrst kylfu en ég var alltaf á sjó og gaf mér aldrei tíma til að byrja af fullum krafti. Fór svo að spila meira eftir að ég eignaðist hús í Florida og er vanari að spila við þannig aðstæður en það má segja að við Willard höfum byrjað að spila saman þá.“ Willdard bætti við: „Við höfum nánast náð að halda okkur í Florida gírnum því það er svo hlýtt og gott inni í golfbílnum hans Reynis, við erum alltaf sólarmegin í tilverunni.“ Reynir byrjaði mun fyrr að spila en Willard og hefur því verið betri en Willard dregur hratt og örugglega á félaga sinn, Reyni: „Til að byrja með gaf ég Willa eitt högg í forgjöf á öllum holum nema par 3 en honum hefur farið svo mikið fram að ég er hættur að gefa honum nokkurn skapaðan hlut!“

En víkur þá sögunni aftur að Gauja og hans félögum en Gauja tókst að muna að mæta nokkrum dögum seinna og voru mættir með honum þeir Jón Gíslason (78 ára) og Gunnar Oddgeir Sigurðsson (72 ára) en Bjarni Andrésson sem líka er 72 ára var vant við látinn því Gaui gleymdi að boða hann…

tók fyrstur til máls: „Ég er nú bara nýlega hættur að vinna, hætti fyrir áramótin þarsíðustu en var þó í smá lausamennsku í COVID-fárinu fyrir Þorbjörn. Mér tókst að spila meira í fyrra en það hentar okkur Gauja og Bjarna betur að spila um miðjan dag eða seinni partinn, þess vegna hef ég t.d. ekki dottið inn í spilamennskuna með heiðursmönnunum sem hittast alltaf kl. 13 en hver veit nema ég eigi eftir að spila með þeim í framtíðinni. Ég er ekki frá því að Willard og Reynir

Það var völlur á þessum meisturum og þeir byrjuðu á að lýsa yfir að þeir væru ekkert gamlir! Þeir hafa ekki verið að mæta kl. 13 ásamt hinum og Jón Gísla sem er 78 ára eins og áður kom fram

þessi auka spilamennska í fyrra hafi skilað sér en ég náði að verða Stigamótsmeistari GG í fyrra.“ [Betur er fjallað um stigamótin í grein á blaðsíðu 53.]

Þegar ég spurði þremenningana um hver þeirra væri bestur þá stóð ekki á svari allra í einum kór; „ég er bestur!“ og glottu við tönn en svo drógu þeir aðeins í land og voru sammála um að Bjarni sé þeirra bestur. Meðal annars hefur Bjarni farið tvisvar sinnum holu í höggi og sem betur fer fyrir hann var Jón Gísla vinur hans ekki eina vitnið… Gaui segist líka hafa farið holu í höggi en þar sem Geiri vinur hans á Vörinni var eina vitnið, þá er það hér með dregið í efa… Gunni bætti við: „Ég ólíkt þessum kálfum, var með fullt af vitnum þegar ég fór holu í höggi á 5. holunni fyrir nokkrum árum. Að sjálfsögðu tók ég draumahöggið í móti, ekki bara í einhverju leikgolfi með mínum bestu vinum…“

Ég spurði þá hvernig Ryder-einvígi færi á milli hópanna:

Gaui: „Við myndum rúlla þeim upp, það er nokkuð ljóst. Þeir spila svo frjálslegt golf og ættu kannski séns þannig en ég skora þá bara á hólm hér með, við skipuleggjum bara Ryder-einvígi, ég er til í að leggja undir!“

Gaui gaf lítið fyrir skot félaganna í hinum hópnum um að hann og hans liðsfélagar væru óttalegir forgjafasvindlarar og því yrði erfitt að leggja þá á velli í svona einvígi…

Ég held að grindvískt golfáhugafólk og bara golfáhugafólk yfir höfuð, geti farið að hlakka til þessa einvígis en ljóst er að eitthvað þarf að stokka spilin upp því í raun er um sex á móti þremur að ræða. Gunni „Best“ eins og hann er alltaf kallaður, spilaði oft með Gauja, Bjarna og Jóni en færði sig yfir í golfið kl. 13 því það hentaði honum betur tímalega séð, hon- um leist vel á að ganga í þetta lið: „Ég hef spilað með þeim áður, ég byrjaði í golfi á undan þeim og lít því á mig sem fyrirliða liðsins. Ég tel mig vera bestan í liðinu enda kallaður Gunni Best. Ég er farinn að hlakka til að taka við sigurlaununum í þessu móti!“

Samningaviðræður standa yfir við Golf Channel um að sýna beint frá þessu móti en ljóst er að selt verður inn á það og kæmi ekki á óvart ef færri komast að en vilja…

This article is from: