4 minute read
Nándin hans Gauja – svindlið STÓRA!
Nándin hans Gauja – svindlið STÓRA!
Guðjón Einarsson eða Gaui í Ásgarði eins og hann er betur þekktur meðal Grindvíkinga, er einn frumkvöðlanna í Golfklúbbi Grindavíkur og hefði ekki verið fyrir sjósókn 14. maí 1981, þá væri nafn hans í stofnfundargerðinni sem er að finna í blaðinu á bls. 36. Gaui sem er föðurbróðir minn, er langt í frá besti kylfingur GG, er alls ekki með fallegustu sveifluna en er klárlega einn af litríkari karakterunum í klúbbnum!
Árið 2007 lenti hann í að vera TEKINN og var það elsti sonur hans, Ingvar sem átti hugmyndina.
Ingvar: „Þetta gerðist þegar Húsatóftavöllur var bara 13 holur, ég var staddur á 14. teig sem í leiðinni var 1. teigur. Pabbi, Bjarni Andrésar og Jón Gísla voru komnir á 13. holuna sem var par 3 en þar voru nándarverðlaun í boði. Pabbi gengur undir nafninu „Radíó“ á meðal grindvískra golfara sökum háværs tals á golfvellinum en aldrei hafði ég heyrt hann jafn háværan eins og á þessari stundu! Það var greinilegt að hann var að gæla við að fá nándina. Ég og félagar mínir í hollinu þurftum að bíða með upphafshöggin okkar á 14. holu á meðan ærslabelgirnir luku mælingunni á 13. holu og slökktu á útvörpunum sínum, þvílík læti!
Hugmyndin kviknaði í raun þarna og fyrsti parturinn í leikfléttunni var að fá þáverandi formann, Gunnar Má Gunnarsson til að spila með.“
Gunnar Már sem er umboðsmaður Sjóvá í Grindavík, hringdi í Gauja og sagði honum að kvörtun hefði borist eftir mótið og hann hefði verið sakaður um að hafa verið með frjálslega mælingu á nándinni, hann yrði að gjöra svo vel að skila nándarverðlaununum á meðan fundið væri út úr þessu.
Oft er talað um að veifa beitu og ekki þurfti mikið að hafa fyrir því við Gauja, hann kokgleypti þetta um leið og eftirleikurinn var í raun auðveldur! Samdægurs kom hann arkandi inn á skrifstofu Sjóvár í Grindavík, sagði nánast ekki orð við formanninn, grýtti umslaginu með nándarverðlaununum í Gunna og sagði að viðkomandi gæti stungið þessari nánd þar sem sólin myndi ekki skína!
Sama kvöld kíkti Ingvar á foreldra sína og þetta svindlmál bar að sjálfsögðu á góma og Ellu heitinni hans Gauja, fannst ansi illa að sinni elsku vegið og var jafnvel aðeins tortryggin á meðan ekki vottaði fyrir efa hjá fórnarlambinu! Ingvar tók því mömmu sína afsíðis og setti hana inn í hrekkinn og átti Ella nánast leiksigur þegar hún spurði Gauja: „Getur kannski verið Gaui minn að þú hafir gert eitthvað misjafnt?“ Við það varð Gaui alveg brjálaður, að hafa ekki fullan stuðning sinnar heittelskuðu og festi sig ennþá betur í netinu!
Daginn eftir barst Gauja þetta bréf:
Alltaf gaman þegar tvær flugur eru slegnar í sama högginu og því náði Ingvar því Bjarni Andrésson sem var með Gauja í hollinu, beit líka á en eftir að hafa verið skemmt yfir fyrri partinum í bréfinu, þá runnu á hann tvær grímur þegar hann var líka vændur um svindl!
Fljótlega voru samt Bjarni og Jón Gísla látnir vita af tökunni og Jón kíkti svo í kaffi til vinar síns þar sem þetta mál var rætt fram og til baka. Jón átti ansi bágt með að halda niðri í sér hlátrinum, slíkur var atgangurinn í Gauja yfir þessu óréttlæti sem hann taldi sig beittan!
Næsta dag kíktu Bjarni og Ingvar í heimsókn til Gauja og lögðu hart að honum að hringja bara í manninn sem sendi honum bréfið, Gunnar Jóhann Sveinsson framhaldsskólakennara úr Kópavogi.
Einn af betri vinum Ingvars er Gunnar Gunnarsson, oft kallaður Gassi en hann hefur tekið þátt í ófáum hrekkjunum í gegnum tíðina með Ingvari og var viðbúinn símtali frá Gauja. Það kom á besta, já eða versta hugsanlega tíma því Gassi var staddur í Bakaríi á Akureyri og þurfti nánast að halda símanum í metersfjarlægð á meðan Gaui las framhaldsskólakennaranum pistilinn:
Gassi: „Klukkan var tíu mínútur í tólf 9. september árið 2007 og ég var nýkominn inn í bakarí þegar síminn hringdi og ég svaraði: „Gunnar Jóhann“.
Eftir 10 sekúndur þurfti ég að færa símann fjarri eyranu á meðan ég var spurður hvað ég hefði verið að saka hann um, hvað ég teldi mig vera o.s.frv. Ég var rólegur og yfirvegaður, sagðist vera menntaskólakennari og þá fékk ég að heyra að ég væri menntasnobbari og eitthvað fleira en Guðjón sprakk endanlega þegar ég sakaði hann um að vera Framsóknarmann og frægan kvótasvindlara! Ekki urðu orðaskiptin neitt miklu fleiri áður en Guðjón skellti á mig.“
Ingvar er góðhjartaður maður og vildi ekki halda pabba sínum mikið lengur í spennutreyjunni svo Gaui fékk nándarverðlaunin sín aftur og nýtti þau vel!
Gaui á eftir að segja þetta sem allir verða að segja þegar þeir eru teknir:
„Ég heiti Guðjón og ég var TEKINN!“