1 minute read
Golfreglur - Boltamerki
Ef þú notar boltamerki til að merkja legu bolta verður þú að fjarlægja boltamerkið áður en boltanum er leikið.
Þrengri skorður eru nú settar við því hvað megi nota sem boltamerki. Nota verður kylfu eða einhvern annan manngerðan hlut.
Ekki má lengur t.d. nota lausung eða að skrapa línu í flötina.
SJÁ REGLU 14.1A OG SKILGREININGU Á BOLTAMERKI