SÚGANDI - Sumarblað 2015

Page 1

SUMARBLAÐ

1


SÚGANDI 2015

2


SUMARBLAÐ

EFNISYFIRLIT Bls. 4 Stjórnarspjall Bls. 5 Hallvarður og hesturinn Bls. 8 Á Skothólnum Heimir Hávarðsson Bls. 10 Pub Quiz Bls. 11 Vísnahornið Bls. 12 Ættfræðikvöld Bls. 14 Dagskráin framundan Bls. 15 Á Skothólnum Sveinbjörn Yngvi Gestsson Bls. 16 Blómlegt starf Fornminjafélags Súgandafjarðar Bls. 18 Act Alone 2015 Bls. 19 Á Skothólnum Þröstur Karlsson Bls. 20 Súgfirðingaskálin 2015 Bls. 22 Dagskrá Sæluhelgarinnar 2015 Bls. 24 Súgfirðingur utan landsteinanna Bls. 27 Aðalfundur Súgfirðingafélagsins Bls. 28 Spurningakeppni átthagafélaganna Bls. 29 Ljóð eftir Guðríði Gyðu Halldórsdóttur Bls. 30 Súgfirðingagleði Bls. 34 Súgfirðingur í sviðsljósinu Bls. 38 Golfmót Súgfirðingafélagsins

Útgefandi: Súgfirðingafélagið í Reykjavík Vefsíða: www.sugandi.is Ábyrgðarmaður: Elsa Eðvarðsdóttir Ljósmynd á forsíðu: Ingrid Kuhlman Skothóllinn – umsjón: Ellert Guðmundsson Prófarkalesari: Ingrid Kuhlman Stjórn Súgfirðingafélagsins skipa: Formaður: Eyþór Eðvarðsson GSM: 892 1987 eythor@thekkingarmidlun.is Varaformaður: Elsa Eðvarðsdóttir GSM: 868 1379 elsaedv@gmail.com Gjaldkeri: Björk Birkisdóttir GSM: 852 8282 bjork0604@gmail.com Ritari: Steinunn Mar GSM: 697 7121 steinunn7okt@gmail.com Meðstjórnendur: Kristján Pálsson GSM: 859 7899 kristjanpalsson@hotmail.com Pálína Björg Snorradóttir GSM: 840 1774 palinab@gmail.com Elín Bragadóttir GSM: 662 2600 elinbraga@internet.is Umbrot: Grétar Örn Eiríksson - grafiskhonnun.is Prentun: Prentmiðlun ehf

3


SÚGANDI 2015

Stjórnarspjall

Félagsstarfið síðasta vetur var blómlegt en það er í höndunum á góðu fólki sem tryggir að allt gangi vel sbr. Súgfirðingaskálin í briddsinu, Kirkjukaffið, blaðaútgáfan og Pub Quiz. Góð mæting var á fyrirlestur Arnbjörns Jóhannessonar um súgfirskar ættir í lok apríl. Við héldum sveitaball á Hótel Sögu undir nafninu “Alltaf fór ég vestur” ásamt vinum okkar Önfirðingum og Dýrfirðingum. Súgfirðingar létu ekki sitt eftir liggja og fjölmenntu. Framundan eru góðir tímar hjá Súgfirðingafélaginu. Við erum skuldlaust félag og getum nú einhent okkur í að verja peningunum í að styrkja innviðina í félaginu enn frekar og huga að endurbótum og viðhaldi á okkar fallegu íbúð á Suðureyri. Núna í haust verður farin vinnuferð í Súgfirðingasetrið. Ætlunin er að breyta eldhúsinu í herbergi og gera hluta stofunnar að eldhúsi. Þannig viljum við opna sameiginina meira og gera samverustundirnar í íbúðinni enn skemmtilegri. Með þessum hætti verður hægt að elda, borða, horfa á sjónvarp og spjalla í stofunni. Þvottavél verður sett upp í íbúðinni og tæki endurnýjuð. Unnið verður í viðhaldi á íbúðinni í sumar og m.a. gert við sprungur við svalir sem valda því að vatn lekur inn í íbúð á neðri hæð. Einnig er leki inn í kjallara frá útidyratröppunum sem þarf að laga. Umgengni um íbúðina hefur verið ágæt en því er ekki að neita að stundum hefur vantað aðeins uppá. En meirihlutinn stendur algjörlega við sitt. Ekki er hægt að fela það ef ekki er 4

þrifið eftir heimsókn í setrið því næsti aðili lætur vita af því ef ekki hefur verið vel gengið frá. Rætt hefur verið um það í stjórninni að finna aðila á Suðureyri sem gæti haft yfirumsjón með ástandi íbúðarinnar. Oft eru einföld atriði flókin í framkvæmd því enginn er á staðnum. Dæmi um það er að skipta um perur, tékka á slökkvitækinu, skipta um rafhlöður eða loka gluggum. Frá og með haustinu verður hægt að bóka íbúðina með því að greiða rafrænt í gegnum heimasíðuna www.sugandi.is. Þar er einnig hægt að sjá hvaða helgar eru lausar. Sá fyrirvari er settur við greiðslunni að kennitala skráðs félagsmanns verður að fylgja með en það er gert til að tryggja að engir aðrir en félagsmenn séu að bóka íbúðina. Enda gilda strangar reglur um hótelrekstur og við erum ekki í þannig rekstri. Við eigum hinsvegar ánægjulegt samstarf við ferðaþjónustuaðila á Suðureyri. Framundan er grill í Súgfirðingalundinum ef veður og hentugur dagur fara saman. Næsta vetur verður blómlegt starf og til viðbótar við fasta liði eins og Súganda blaðið okkar, bridds og kirkjukaffið verður hugað að súgfirskri sögu og menningu og m.a. sögð saga nokkurra súgfirskra kvenna. Meira um það síðar. Sumarið er tíminn og eins og einhver sagði, „smá rigning hefur aldrei neinn skaðað“. Eyþór Eðvarðsson Formaður Súgfirðingafélagsins


SUMARBLAÐ

HALLVARÐUR OG HESTURINN

Leikhópurinn í Hr.Kolbert.María Dögg Þrastardóttir, Jóhann Daníelsson, Magnús Traustason, Ástrós Þóra Valsdóttir og Bergrós Eva Valsdóttir.

Hallvarður Súgandi setti upp leikverkið Hr. Kolbert, eftir Þjóðverjann David Gieselmann, síðastliðinn vetur. Æfingar fóru fram í Bjarnaborg til að byrja með því Góukarlar voru með æfingar í Félagsheimilinu. Þegar þeim var lokið færðum við okkur yfir í hús andanna. Ég leyfi mér að segja þetta í léttu gríni. Húsið hefur nefnilega að geyma marga anda. Jólaanda, vínanda, skemmtianda og sorgaranda. Félagsheimilið skipar stóran sess í lífi okkar og getum við verið þakklát fyrir stofnun Hollvinasamtaka Félagsheimilis Súgfirðinga. Ég held að án þeirra væri húsið ekki til. Á æfingartímabilinu sem voru sex vikur var margt um alls kyns viðburði. Það var Sólarkaffi kvenfélagsins Ársólar, starfsmannapartý Íslandssögu, fjölskyldubingó Ársólar, árshátíðarsýning grunnskólans, auk þess sem bæjarbúar komu saman í erfidrykkju eftir að kjarnakonan Unnur Kristjánsdóttir var borin til grafar.

Eins og sjá má á þessari upptalningu er hlutverk félagsheimilisins mjög mikilvægt í samfélagi eins og okkar. Leikfélagið bauð þetta árið upp á kolsvartan og drepfyndinn gamanleik með blóðslettum ætluðum fullorðnum. Við settum 16 ára aldurstakmark. Það var alveg tilvalið að detta í einn kaldan af barnum og hlæja hressilega með fullum sal af fólki. Síðastliðin ár hafa leikfélagar reynt eftir bestu getu að gleyma ekki að fóðra hestinn sem er undir sviðinu. Sögur segja (sumir vilja kannast við þetta og aðrir ekki) að áður fyrr hafi verið hesthús eða eitthvað álíka þar sem félagsheimilið stendur núna. Eitt skipti var maður að flá húð af dauðum hesti sínum en hann var víst ekki alveg dauður og brokkaði í burtu með feldinn hangandi utan á sér. Hann á að hafa gengið aftur. Ýmis hljóð heyrast í húsinu, t.d. brak í þaki og brokkið í hestinum. Margir hafa heyrt og 5


SÚGANDI 2015 með æfingum áhugamannahóps. Fólkið vinnur fullan vinnudag og mætir síðan á æfingar á kvöldin til í slaginn. Fólk frá hinum og þessum starfsstéttum hittist og fíflast og gleymir sér saman í gleðinni. Svo kemur að frumsýningu, spennan fer að kikka inn og stress í flestum. Afrakstur mikilla æfinga er að fara að skila sér. Fólk flykkist frá fjörðunum í kring til að sjá. Á frumsýningu fæ ég tilfinningu sem er góð. Ég verð að viðurkenna að þegar ég hef komið að sýningum sem framkvæmdastjóri og nú sem Frumsýningarkvöld.

fundið fyrir nærveru hans, sumir finna kalt vatn renna milli skins og hörunds á meðan öðrum finnst þetta bara notalegt. Greyið hesturinn sem fékk þennan slæma dauðdaga fær að lifa með okkur í húsinu og upplifa ýmislegt sem aðrir hestar gera ALDREI. Það skiptir miklu máli að gefa honum að éta. Það gerðist eitt sinn þegar við settum upp Galdrakarlinn í OZ að við gleymdum að gefa hestinum í nokkrar vikur, vorum að æfa í íþróttahúsinu og hann bara gleymdist. Við fórum að átta okkur á því þegar fleiri og fleiri úr leikarahópnum voru að lenda í óhöppum af ýmsu tagi á þessu tímabili. Mig minnir að um 18 manns af 30 manna hópi voru ýmist með sýkingu á hné eða munni, brákaða ökla og bara endalaus meiðsli. Við gleymdum hestinum! Við fluttum steininn sem við settum matinn hans alltaf á inn í íþróttahús og viti menn og konur! Allt fór að ganga slysalaust fyrir. Þetta var farið að likjast ónefndu Shakespeare verki sem ég nefni ekki upphátt. Mér hefur alltaf fundist aðdáunarvert að fylgjast

6

Kolbrún skutlar Hr.Kolbert í búningamátun.

formaður fyllist ég stolti. Stolti af verkefninu, þetta gátum við. Stolti af leikurunum sem gáfu allt sitt í verkefnið. Stolt af menningarsjóðnum sem við eigum og verðum að varðveita. Kveðja, stoltur formaður Leikfélagsins Hallvarðs Súganda Kolbrún Elma Schmidt


SUMARBLAÐ

7


SÚGANDI 2015

Heimir Hávarðsson Hverra manna ertu ? Ég er fæddur í Vestmannaeyjum 3. júní 1954. Móðir mín var Fanney Guðmundsdóttir frá Súgandafirði en faðir minn hét Hávarður Ásbjörnsson frá Vestmannaeyjum. Móðir mín flutti með mig til Súgandafjarðar um tveggja ára aldur þar sem ég ólst upp ásamt fjórum bræðrum mínum. Uppeldisfaðir minn var Friðjón Guðmundsson frá Súgandafirði og leit ég á hann ávallt sem minn föður. Fjölskylduhagir? Ég stofnaði ungur fjölskyldu eða rúmlega tvítugur og eignaðist dásamlega eiginkonu og með henni tvö yndisleg börn sem eru uppkomin með sínar eigin fjölskyldur. Við skildum fyrir um tíu árum. Ég hef verið í sambúð sem slitnaði uppúr fyrir um fjórum árum. Staðan er þannig núna að ég á vinkonu erlendis og vonandi þróast það samband í eitthvað meira því ég kann illa við mig einn. Starf? Ég hef alla tíð starfað við eitthvað sem tengist fiski og fiskvinnslu. Ég er lærður útgerðartæknir frá Tækniskóla Íslands og markaðsfræðingur frá Endurmenntunarstofnun Háskóla Íslands. Ég rek mína eigin fiskvinnslu í Sandgerði og svo er ég í veitingarekstri í Reykjanesbæ. Hvar býrðu? Síðustu tíu ár hef ég búið í Reykjanesbæ. Áhugamál? Ég hef stundað skíði með hléum frá því ég var þriggja til fjögurra ára. Fyrstu skíðin voru gerð úr tunnustöfum sem frændi minn Guðni Guðmundsson gerði og ýtti hann mér af stað í fyrstu brekkunni. Undanfarin fimm ár hef ég ekkert stundað skíðin en keypti mér nýjar græjur í vor. Ég reyni að stunda líkamsrækt þrisvar til fjórum sinnum í viku, göngur og TRX. Siðan er ég mikill fótboltaáhugamaður og fylgist vel með

8

enska boltanum. Ég fer stundum á leiki erlendis. Mitt félag er Liverpool. Fallegustu staðirnir í Súgandafirði? Þar er af ýmsu að taka: stóra vatnið í Vatnadal er heillandi fagurt, og Spillirinn og Hádegishornið eru tignarlegir og fallegir staðir. Þá vil ég minnast á bæjarstæði í Vatnadal þar sem langamma mín bjó og frændi minn Guðni Guðmundsson ólst upp. Bærinn hét Hraunprýði og gekk undir nafninu Hraunakot í daglegu tali. Hvenær fórstu síðast á Suðureyri? Síðast kom ég til Suðureyrar fyrir tveimur árum. Uppáhaldsstaðurinn? Uppáhaldsstaðurinn er eyrin, skollasandur og ósinn. Uppáhaldsmaturinn? Uppáhaldsmaturinn er tvímælalaust aðalbláberin úr Súgandafirði og lambakjöt. En sá matur sem ég hef haft hvað mest fyrir að útbúa og hlýtur því að teljast í uppáhaldi er skatan, ýmist elduð úti í bílskúr eða úti á verönd. Meira að segja hef ég tvisvar sinnum tekið hana með mér til Orlando og eldað hana á gasgrilli utandyra en snarhætti því þegar granni kom eitt sinn í heimsókn til að óska okkur gleðilegra jóla og bauðst til að hjálpa mér að kæra matvörubúðina sem seldi mér úldinn kalkúnn. Þá rétt slapp ég fyrir horn og reyndi þetta ekki aftur. Uppáhaldstónlist? Country Western og Ýr. Uppáhalds leikari/leikkona? Jón Kitt og Bessi Bjarna Viltu deila með okkur einni góðri minningu frá Suðureyri? Við félagarnir vorum miklir prakkarar og kennt um ýmislegt sem fór úrskeiðis. Sumt var


SUMARBLAÐ

rétt en flest var ýkt og ósatt, en þó kom upp leiðindamál sem endaði þó vel. Þannig var að ég átti forlátan loftriffil. Við nutum þess að skjóta úr honum í mark og hann var ekki ætlaður til annars. Einn daginn vorum við að munda riffilinn og þá gengur mikilsmetin hefðarkona upp Hjallaveginn. Miðið var sett á hana og vegna einhverra óskiljanlegra hluta var hleypt af skoti, sem endaði með því að blýkúla skaust í aðra löppina á greyið konunni og festist í nælonsokkunum. Svo ég fari hratt yfir sögu þá endaði þetta ævintýri með því að æðsta vald staðarins Sturla Jónsson mætti á staðinn með hreppstjórahúfuna í plastpoka undir hendinni. Hann útbjó skýrslu, gerði byssuna upptæka og fór fram á að við púkarnir bæðum viðkomandi afsökunar, sem og við gerðum.

- snjallar lausnir NAV í áskrift

Fullbúin viðskiptalausn í áskrift - Microsoft Dynamics NAV Mánaðarlegt gjald veitir aðgang að einu mest selda bókhaldskerfi landsins ásamt kostnaði við uppfærsluog þjónustugjöld, hýsingu, afritun á gögnum, öryggisvarnir og SQL gagnagrunn. Breytilegur fjöldi notenda eftir mánuðum sem lágmarkar kostnað. Kerfinu fylgir rafræn sending reikninga, samskipti við RSK og margt fleira. Fjöldi sérlausna í boði fyrir þá sem þurfa aukna virkni.

Verð frá kr.

11.900pr. mán. án vsk

TM

Gold Enterprise Resource Planning Silver Independent Software Vendor (ISV)

Wise lausnir ehf. Borgartún 26, 105 Reykjavík » Hafnarstræti 93-95, 600 Akureyri sími: 545 3200 » wise@wise.is » www.wise.is

545 3200

navaskrift.is

sala@wise.is

9


SÚGANDI 2015

2015 Pub Quiz var haldið á Catalínu í Kópavogi þann 15. janúar síðastliðinn. Góð mæting var og voru alls fjögur lið sem kepptu og svöruðu 40 spurningum. Liðið Norðureyri fór með sigur af hólmi með 32 1/2 stig. Í öðru sæti voru Vitringarnir. Liðið Erla hafnaði í þriðja sæti og 66° suður í því fjórða.

Myndir - Ingrid Kuhlman

Spurningakeppninni stjórnaði Atli Þór Þorvaldsson.

10


SUMARBLAÐ

Vísnahornið SÚGANDAFJÖRÐUR

Guðrún G. Jónsdóttir

Hér nam Hallvarður Súgandi land fyrir meira en ellefu hundrað árum.

Guðrún G. Jónsdóttir (Edda) er fædd 1923 á Suðureyri í Súgandafirði. Hún settist að í Reykjavík árið 1945 þegar hún gekk í hjónaband með Ásvaldi Stefánssyni, málara- meistara. Þau fluttu síðan í Kópavog 1998. Í Kópavogi fengu þau að njóta félagsstarfs eldri borgara, hann í myndlistinni en hún í ljóðagerð undir leiðsögn Þórðar Helgasonar.

Leikir barna urðu spegilmynd af lífi fullorðna fólksins. Á góðum dögum var smáfiskur veiddur á færi við bryggjurnar. Kúskeljar voru tíndar í fjörunni síðan farið í „kappa“ og sterkasta skelin vann. Bláskel og gimburskel urðu hluti af búsmala ásamt sauðarleggjum og kindakjálkum. Síðla sumars blánuðu brekkur af berjum þá brostu allir berjabrosi.

ÁTTHAGAÁST Í firðinum mínum fagurt er þar fjöll og dalir skína senn fara nú að blána ber sem börnin mega tína. Guðrún G. Jónsdóttir ( Edda )

Ég skora á vin minn Birki Friðbertsson í Birkihlíð að koma með næsta ljóð.

Veturinn kom með skammdegi og ómældan snjó og skíðabrekkurnar lifnuðu við. Fyrsta sunnudag í Góu skein sólin á þorpið eftir fimm mánaða fjarveru. Þá færðist fjör í barnaleikina og hlaupið var milli kennileita.

®

11


SÚGANDI 2015

Þann 30. apríl síðastliðinn hélt Arnbjörn Jóhannesson fróðlegan fyrirlestur um súgfirskar ættir á Catalínu í Kópavogi. Um 50 manns mættu og rifjuðu upp góðar minningar úr firðinum fagra. Fjallað var um sögu fjarðarins, m.a. upphaf þorpsins og verslunar þar, ásamt ættartengslum Súgfirðinga. Ljóst er að Súgfirðingar eru af góðu fólki komnir.

12


Myndir - Elsa Eรฐvarรฐsdรณttir

SUMARBLAร

13


SÚGANDI 2015

14


SUMARBLAÐ

Sveinbjörn Yngvi Gestsson Hverra manna ertu? Ég er sonur Gests Kristinssonar og Sólveigar Huldu Kristjánsdóttur. Systkini mín eru Þuríður Kristín Heiðarsdóttir, Kristinn Gestsson, Óðinn Gestsson, Gunnhildur Gestsdóttir og Jón Arnar Gestsson.

Uppáhaldstónlist? Í dag hlusta ég mikið á raftónlist en einnig rokk. Uppáhalds leikari/leikkona? Pétur Jóhann Sigfússon/Ágústa Eva Erlendsdóttir.

Fjölskylduhagir? Ég er í sambúð með Borghildi Kristínu Magnús- Viltu deila með okkur einni góðri minningu frá Suðureyri? dóttur. Mér eru alltaf minnisstæðar rauðmagaveiðarnar sem ég stundaði með pabba heitnum. Hann var Starf? Eftir meistaranám í sálfræði fór ég að vinna sem löngu hættur sem skipstjóri þegar ég var lítill og dundaði sér við að draga rauðmaganet á próffræðingur hjá Námsmatsstofnun. bátnum Rauðku. Ég fór oft með honum og má Hvar býrðu? segja að það hafi verið mín fyrsta sjómennska Ég bý í Kópavogi. þar sem ég fékk að draga netin með honum og leggja þau aftur. Það sem er mér minnisstæðast Áhugamál? úr þessum ferðum var að pabbi notaði svo Margt, hef áhuga á öllu sem tengist tölvum og til aldrei sjóvettlinga og dró netin berhentur. tækni. Bæði tónlist og kvikmyndir heilla mig. Þessar rauðmagaveiðar standa uppúr í þeim Einnig hef ég gaman af því að ferðast. aragrúa góðra minninga sem ég á frá æskuárunum. Fallegustu staðirnir í Súgandafirði? Spillirinn er mjög fallegur og þá sérstaklega Minnum félagsmenn á að fallegt er í uppi á toppi. Einnig er gamla skriðan utan við Súgandafirði á veturna og gott að gista í Skothólinn mjög falleg. Ég bjó á Hlíðarveginum Súgfirðingasetrinu. www.sugandi.is og var Skothóllinn beint fyrir ofan húsið okkar. Á Skothólnum er yndislegt að sitja og horfa yfir bæinn. Hvenær fórstu síðast á Suðureyri? Það var í fyrra eða 2014. Uppáhaldsstaðurinn? Allur bærinn var leikvöllur hjá okkur í gamla daga og man ég sérstaklega eftir verksmiðjunni, gamla Ísver, og rústunum af gamla frystihúsinu. Þetta var ævintýraheimur fyrir litla prakkara.

Sumarverð 36.000 kr Vetrarverð 29.000 kr Helgarverð á vetrartíma 20.000 kr 40.000 kr Sæluhelgin

Uppáhaldsmaturinn? Steikt ýsa með kartöflum. Það er eitthvað sem ég fæ ekki leið á.

Afsláttur til öryrkja og eldri borgara 20 prósent af vetrarverði á vetrartíma.

15


SÚGANDI 2015

Blómlegt starf Fornminjafélags Súgandafjarðar Gróska hefur verið í starfi Fornminjafélags Súgandafjarðar. Skipulag starfsins er í fjórum hópum sem eru: Fornmunahópur, Fornleifahópur, Örnefnahópur og Söguhópur. Hóparnir vinna allir að ákveðnum markmiðum og merkilegt starf hefur verið unnið. Á síðasta ári hélt Minjastofnun í samstarfi við Náttúrustofu Vestfjarða námskeið fyrir Fornminjafélag Súgandafjarðar um skráningu fornleifa fyrir áhugafólk. Þátttaka var góð og námskeiðið í alla staði áhugavert og gagnlegt. Fornleifahópurinn, sem Egill Ibsen fer fyrir, hóf kortlagningu Súgandafjarðar í Staðardalnum og bæði ljósmyndaði og skráði GPS-hnit þeirra minja sem eru á svæðinu frá Keravík og upp að Sunndal. Fjölmargar tóftir urðu sjáanlegar þegar flygildið flaug yfir og ljósmyndaði. En loftmyndir virðast vera áhrifaríkastar til að greina þær minjar sem eru illsjáanlegar frá jörðu niðri. Svæðið fyrir ofan Stað reyndist áhugavert og svokallaður „Vandræðakotsreitur“ reyndist búa yfir fleiri tóftum en upphaflega var talið. Erla Eðvarðsdóttir og Anna Bjarnadóttir voru með Agli síðasta sumar við að skrásetja. Kjartan Ólafsson lagði einnig hönd á plóg, enda með afbrigðum fróður og minnugur. Framundan er að halda áfram inn í Vatnadalinn en þar leynast margar tóftir sem áhugavert verður að skoða. Einnig er stefnan tekin á Sauðanesið en nokkuð er af mannvirkjum þar. Minjahópurinn, sem Erla Eðvarðsdóttir stýrir í góðu samstarfi við Önnu Bjarnadóttur, hefur tekið ljósmyndir af gömlum munum sem tengjast Súgandafirði og segja sögu hans. Má þar nefna ljósmyndir af munum í Barnaskólanum á Suðureyri og á bókasafninu, gamlan brauðhníf, og leirker frá tímum hollenskra sjómanna við strendur íslands. Rætt hefur verið um að fá Þjóðminjasafnið til að koma og kynna fyrir áhugasömum sögu gamalla gripa. En starfsmenn safnsins eru fróðir um marga hluti. Örnefnahópurinn, sem Birkir Friðbertsson hefur farið fyrir, hefur unnið að því að staðsetja öll örnefni í firðinum inn á kort. Birkir, sem er manna fróðastur um örnefni fjarðarins, hefur ekki setið auðum höndum enda gríðarlega umfangsmikið verkefni og örnefnin nokkur þúsund talsins. 16

Birkir hefur skráð örnefnin inn á ljósmyndir sem síðar verða skráð inn í rafrænan gagnagrunn sem verður aðgengilegur öllum. Björn Birkisson, Sæmundur Þórðarson og Valdimar Hreiðarsson hafa aðstoðað Birki í þessu og m.a. útvegað ljósmyndir til að merkja inná. Söguhópurinn, sem Eyþór Eðvarðsson fer fyrir, hefur farið víða og m.a. unnið að heimildamyndböndum um fornleifar á Vestfjörðum. Búinn var


SUMARBLAÐ

til þáttur um fornleifauppgröftinn á Grélutóftum við Hrafnseyri sem eru taldar vera með elstu fornleifum á Vestfjörðum. Einnig var sagt frá fornleifauppgreftrinum sem er yfirstandandi á Hrafnseyri en þar hafa áhugaverðar niðurstöður komið fram um viðamikla járnvinnslu á miðöldum. Einnig voru búin til myndbönd um fornleifarannsóknir á Gufuskálum og á Siglunesi en þar voru í fyrndinni stórar verstöðvar.

Fornleifafélag Súgfirðinga stóð í samstarfi við Minjastofnun Íslands og fleiri aðila fyrir vel sóttri ráðstefnu um strandminjar í mikilli hættu. Á ráðstefnunni var farið yfir stöðu strandminja en staðreyndin er því miður sú að mikill hluti útvegsminja Íslendinga er að hverfa í brimið og við erum ekki að gera mikið til að bjarga þeim. Ástandið er mjög slæmt á nokkrum stöðum á landinu og heilt yfir þá eru allar stóru verstöðvar okkar Vestfirðinga í mikilli hættu. Fyrir utan áframhaldandi starf í hópunum er í sumar skipulögð ferð á Hrafnseyri til að fylgjast með og fræðast um fornleifauppgröft hjá Margréti Hrönn Hallmundsdóttur en hún hefur stjórnað uppgreftri þar í nokkur sumur. Einnig að heimsækja þá staði á Vestfjörðum sem eru í mikilli hættu vegna sjávarrofs, m.a. Kálfeyri í Önundarfirði, Fjallaskaga í Dýrafirði, og Kollsvíkina í Arnarfirði. Ennfremur að vinna í að mynda frásagnir um áhugaverðar tóftir í Súgandafirði. Allir eru velkomnir í félagið. Við erum með fésbókarsíðu sem finnst undir Fornminjafélag Súgandafjarðar. Eyþór Eðvarðsson 17


SÚGANDI 2015

Act alone Einleikjahátíðin Act alone verður haldin á Suðureyri dagana 5.-8. ágúst. Boðið verður uppá einstaka dagskrá fyrir alla aldurshópa og rúsínan í pysluendanum er að það er frítt á hátíðina. Já, frítt á alla þá 21 viðburði sem verður í boði á Act alone 2015. Act alone var fyrst haldin árið 2004 á Ísafirði en árið 2012 flutti hátíðin búferlum til Suðureyrar. Óhætt er að segja að Act alone hafi tekið margfalt hástökk við þann flutning. Bæði hefur dagskráin margfaldast, þó einstök sé, sem og aðsókn en í fyrra sóttu um 3000 manns hátíðina þökk sé bakhjarli hátíðarinnar, Fisherman á Suðureyri, sem og íbúum sem hafa tekið hátíðinni opnum örmum. Á Act alone 2015 verður boðið uppá allt það besta af einleikjaárinu. Allir aldurshópar geta skemmt sér saman þessa einstöku helgi í ágúst. Enda er Act alone fjölskylduhátíð og vissulega er fjölskyldan stór. Boðið verður uppá leiksýningar, tónleika, dans, gjörning og svo ótalmargt fleira einleikið. Eina reglan er að aðeins einn listamaður kemur fram í hverjum viðburði. Það er Act alone. Meðal þess sem boðið verður uppá á Act alone 2015 má nefna vinsælasta einleik ársins sjálfan Kenneth Mána. Leikkonan ástsæla Edda Björgvins býður uppá leikinn Húmor er dauðans alvara, Karl Örvarsson eftirherma bregður sér í ótal gerfi, Þórarinn Eldjárn les úr verkum sínum og tónlistarmennirnir Lára Rúnars og KK verða með einstaka tónleika. Að vanda verður boðið uppá veglega dagskrá fyrir börn. Ævar vísindamaður verður með vísindanámskeið og Ísgerður Gunnarsdóttir verður með leik og söngskemmtun. Margt fleira einleikið og einstakt verður í boði á Act alone 2015 má þar nefna gjörninginn Hertu þig upp sem mun fara fram í einum af hinum fjölmörgu harðfiskhjöllum sjávarþorpsins. Nánari upplýsingar um Act alone og dagskrá ársins má nálgast á heimsíðu hátíðarinnar www.actalone.net Eitt er víst. Nú veistu lesandi góður hvar er gott að vera dagana 5.-8. ágúst. Sjáumst á Act alone á Suðureyri.

18


SUMARBLAÐ

Þröstur Karlsson Hverra manna ertu? Sonur hjónanna Karls Guðmundssonar og Ingibjargar Jónsdóttur frá Bæ.

Uppáhaldsstaðurinn? Sveitin mín gamla og Djúpavík sem konan mín er ættuð frá.

Fjölskylduhagir? Ég er giftur Ingibjörgu Önnu Elíasdóttur. Samtals eigum við fjóra dætur.

Uppáhaldsmaturinn? Kjötbollurnar hennar mömmu.

Starf? Vélstjóri á Tómas Þorvaldsson GK 10 sem Þorbjörn í Grindavík gerir út. Hvar býrðu? Brekkubraut 22, Akranes. Áhugamál? Ferðalög innanlands og fjölskyldan. Fallegustu staðirnir í Súgandafirði? Verð að segja gamla sveitin mín Bær í Súgandafirði, sem er búið að selja til ungra hjóna, og Spillirinn, sem getur verið mjög fallegur á sumrin en jafnframt hrikalegur á veturna. Hvenær fórstu síðast á Suðureyri? Ég fór síðast til Suðureyrar í mars í jarðarför hjá elsku ömmu minni.

Uppáhaldstónlist? Ég er alæta á tónlist. Núna í augnablikinu er það Of Monsters and men. Uppáhalds leikari/leikkona? Siggi Sigurjóns. Viltu deila með okkur einni góðri minningu frá Suðureyri? Þær eru nokkrar: Í minningunni finnst mér öll grunnskólagangan hafa verið góð, sérstaklega þegar maður fór úr sveitinni í stórborgina Suðureyri. Við systkinin fórum oftast á sunnudagkvöldum til ættingja á Suðureyri til að stunda skólann á veturna því það gat oft verið skrautlegt að komast á milli (fyrir Spilli). Á veturna fórum síðan heim á föstudögum. Í minningunni var miklu meiri snjór þá. Það snjóaði meira og góðar stillur voru á milli. Fjörurnar voru ekki mokaðar. Gaui á ýtunni jafnaði bara ofaná og þá var hægt að fara á dráttarvélinni.

19


SÚGANDI 2015

Súgfirðingar og aðrir velunnarar Súgfirðingafélagsins þreyttu kappiz í allan vetur um Súgfirðingaskálina í bridge. Keppnin var jöfn fram á síðustu lotu enda margir góðir spilarar í þessum hópi og blanda af konum og körlum, ungum og öldnum sem hafa gaman af því að hittast og eiga saman stund við spilaborðið.

Spilaðar voru sjö lotur í vetur þar sem allir spiluðu sömu gjafirnar. Sex lotur hámark teljast með í hámarksstigaskori vetrarins og má því sleppa lélegasta kvöldinu ef spilaðar eru allar sjö loturnar. Sextán pör hófu keppni um Súgfirðingaskálina 2015 og var röð keppenda eftir veturinn eftirfarandi í réttri röð með stigaskori:

Hafliði Baldursson - Árni Guðbjörnsson ............................... Karl Bjarnason - Ólafur Ólafsson .......................................... Flemming Jessen - Kristján H. Björnsson ............................. Kristján Pálsson - Ólafur Karvel Pálsson .............................. Rafn Haraldsson - Jón Sveinsson ........................................ Sturla Gunnar Eðvarðsson - Björn Guðbjörnsson .................. Friðgerður Friðgeirs - Kristín Guðbjörnsdóttir ....................... Gróa Guðnadóttir - Alda S. Guðnadóttir ............................. Finnbogi Finnbogason - Magnús Jónsson .............................. Sigurður G. Ólafsson - Ásgeir Ingvi Jónsson ......................... Sveinbjörn Jónsson - Sigurður Ólafsson ............................. Eðvarð Sturluson - Mortan Hólm .......................................... Steinþór Benediktsson - Birgir Benediktsson ........................ Hnikarr Antonsson - Guðmundur Símonarson ....................... Ásgeir Sölvason - Sölvi Ásgeirsson ...................................... Sigurjón Guðröðarson - Þórólfur Friðgeirsson ...................... Ég vil óska sigurvegurunum þeim Hafliða Baldurssyni og Árna Guðbjörnssyni til hamingju með sigurinn sem var verðskuldaður. Ég vil einnig þakka öllum spilurunum fyrir þátttökuna og skemmtileg kvöld. Einnig þakka ég spilastjóranum honum Sigurpáli

20

1076 stig 1050 stig 1049 stig 1010 stig 1010 stig 1001 stig 965 stig 952 stig 909 stig 901 stig 887 stig 872 stig 859 stig 599 stig 409 stig 144 stig

fyrir röggsama stjórnun. Súgfirðingaskálin 2016 verður svo á sínum stað næsta vetur og verður spilað eftirtalda daga: 28. september, 26. október, 30. nóvember, 25. janúar, 29. febrúar, 14. mars og 25. apríl.


SUMARBLAÐ

Myndir - Kristján Pálsson

Spilamennskan hefst því 28. september n.k Nokkrar myndir af hópnum og sigurvegurunum kl. 18:00 og verður spilað á sama stað í sal í fyrsta til þriðja sæti 2015 fylgja hér með. Bridgefélags Reykjavíkur að Síðumúla 37 á þriðju hæð. Ég vonast eftir góðri mætingu að F. h. stjórnar Súgfirðingafélagsins, venju og ekki væri verra að fá fleiri unga Kristján Pálsson spilara í hópinn.

21


SÚGANDI 2015

Dagskrá Sæluhelgarin Litaþema Sæluhelgarinnar í ár Föstudagurinn 10. júlí 10:00 - Hoppukastalar blásnir upp. 15:30 - 17:00 - Þorpsganga og matarferð í boði Fisherman. Þar er öllum

gestum boðið í kynnisferð um eyrina þar sem saga þorpsins og húsa er rakin undir leiðsögn (skráning í síma 450 9000).

18:00 - 22:30 - Fjölskylduhátíð í Bryggjukoti. Hátíðarsetning, kynning á

Sæluhelgarlaginu Þjóðvegur 65, sameiginlegt grill, viðurkenning fyrir Sæluhelgarlagið og fyrir frumlegasta appelsínugula búninginn, barnadiskó með mömmu, pabba, afa, ömmu frænku og frænda. Stulli puð sér um fjörið.

23:30 - 03:00 - Stórdansleikur í FSÚ. Rokksveit Jonna Ólafs sér um að halda uppi rífandi stemmningu fram undir ársól.

Laugardagurinn 11. júlí 10:00 Hoppukastalar blásnir upp. 11:30 – 13:00 - Skráning/æfing fyrir söngvarakeppnina í Íslandssögu, sem

verður með sama sniði og í fyrra, þar sem söngvarar koma með sinn eigin undirleik hvort sem er lifandi eða af diski. Albert skráir í síma 892 8683.

12:00 - 18:00 - Sæluhátíð á Freyjuvöllum og Bryggjukoti, m.a.

markaðstorg,kaffisala Ársólar, pylsusala Stefnis, matarkynning annarra landa, Vestfjarðaglíma, minningarmót Guðna kóngabana, andlitsmálun, gjarðarskopp, sleggjukast, húsmæðrafótboltinn og verðlaunaafhending (básapantanir í sms 861 7061).

Til að geta haldið Sæluhelgina sem veglegasta verða seld armbönd í Spari helgarinnar - kr. 1000 fyrir 12 ára og yngri og kr. 3000 fyrir 13 ára og e

Hittumst á Sæ 22


SUMARBLAÐ

nnar á Suðureyri - 2015 er Mansaliturinn appelsínugult 17:00 - 17:40 - Mansakeppnin fyrir 12 ára og yngri. 17:40 - 20:00 - Söngvarakeppnin og verðlaunaafhending. 20:00 - 22:00 - Stund milli stríða. 22:00 - 01:00 - Óvissu- og ævintýraferð fyrir unglinga 13 til 17 ára. 23:00 - 03:00 - Diskó, karaoke og stuð með Stulla puð í FSÚ.

Sunnudagurinn 12. júlí 10:00 - Hoppukastalar blásnir upp. 10:00 - 12:00 - Fjósið í Botni er opið fyrir hátíðargesti. Boðið er uppá

kaffi og hjónabandssælu. Söluborð verður á staðnum og eitt er víst að það er alltaf fjör hjá Helgu.

12:00 - 14:00 - Skötuveisla með vestfirsku ívafi til styrktar Hofsú í FSÚ, skammturinn kostar 2000 kr. sem rennur óskiptur til Hofsú (pantanir í síma 866 4738).

12:30 - Skothólsganga barna með Lilju og Jónu Möggu á meðan mam-

ma og pabbi eru að borða skötu. Boðið verður upp á harðfisk og svala. Mæting á gamla sumarróló með góða skapið og klæðnað eftir veðri.

14:00 - 14: 15 - Sæluslútt með Adda Önd í FSÚ.

isjóðnum, Kaupfélaginu og versluninni Súganda sem gilda á alla viðburði eldri (mælum með að armböndin fyrir börnin séu merkt viðkomandi).

ælu! Mansavinir 23


SÚGANDI 2015

Súgfirðingur utan landsteinanna Sigrún Magnúsdóttir

Sigrún heiti ég og er dóttir Ágústu Gísladóttur og Magnúsar Sigurðar Jónssonar (Magga Sigga), sonar Jóns Kristjánssonar (Nonna Kitt), hvers afi (Kristján Albertsson) byggði fyrsta timburhúsið á Suðureyri árið 1892 á þeim stað sem kirkjan stendur nú. Húsið fauk í ofsaveðri 32 árum síðar. Nokkrum áratugum síðar fæddist ég síðan í Reykjavíkinni en var komin vestur með pabba og mömmu rétt rúmlega eins árs. Mamma (skvísa úr Hafnarfirðinum) ákvað að fara með pabba vestur og samþykkti að vera þar til ég myndi byrja í sex ára bekk. Þau halda nú, tæpum 40 árum síðar, til á Eyrargötu 5 og tel ég ekki þurfa að hafa um það fleiri orð. Ég flutti burt úr firðinum fagra þegar ég var tuttugogeitthvað ára. Þvældist svolítið á þeim árum svo ég er ekki með dagsetningar á hreinu enda flestum sama um slíkt. Ég er sumsé stoltur Súgfirðingur, búsettur í Grímsey. Nú spyrð þú þig, kæri lesandi, hvernig í ósköpunum mér datt í hug að flytja til Grímseyjar (einhverjir hafa væntanlega flett yfir þennan pistil minn eða eru hættir að lesa en ég sé ekki ástæðu til að ávarpa þá sérstaklega) og þá sérstaklega þar sem við hvorki tengdumst né þekktum neinn hérna. Og nú verður forvitni þinni svalað því hér kemur sagan af því þegar Sigrún MaggaSigga flutti til Grímseyjar: Þannig er að fyrir rétt um ári ákvað ég að svara auglýsingu þar sem óskað var eftir grunnskólakennara í Grímsey. Þrátt fyrir að vera búin að búa á Akureyri í sjö ár lágu rætur okkar hjóna nokkuð grunnt. Við stóreignalaus, bæði að útskrifast úr Háskólanum á Akureyri (ég sem kennari og hann sem lögfræðingur) og krakkarnir mínir, þau Ágústa Sóley og Skarphéðinn Ás, á leikskólaaldri. Hugmyndin var alltaf að þetta yrði aðeins tímabundið, við vildum kúpla okkur út úr öllu, núlla okkur og reyna að finna hvað skiptir okkur máli í alvöru, hverjar raunverulegu þarfirnar eru og hverjar eru gervi. Ekki væri verra ef manni tækist svo að safna smá aur (eins og amma Veiga hefði sagt) í leiðinni en það hafði sitt að segja að 24

starfinu fylgir íbúð í parhúsi og hér getur maður farið allra sinna leiða fótgangandi. Ég sá líka ómetanlegt tækifæri til að kenna krökkum á öllum aldri allskonar námsgreinar og koma mér inn í starfið og námsefnið á þennan hátt. Að sannfæra fjölskylduna gekk stórátakalaust

fyrir sig. Með Ágústu og Skarphéðin virkar það svolítið þannig að ef Ágústa er kát þá speglar Skarphéðinn það nokkurn veginn. Ef hún er örugg og líður vel þá veit hann að það er ekkert að óttast. Ágústu Sóleyju spurði ég hvernig henni litist á að gerast eyjarskeggi og bætti svo við að í eyjunni væru sko margir margir lundar! Henni fannst þetta æðisleg hugmynd. Pabbi þeirra var meira en til í að taka við stöðu leikskólaleiðbeinanda við leikskólann í eynni í eitt ár svo við sáum ekkert því til fyrirstöðu að leggja í þetta ævintýri og létum því vaða. Hér í Grímsey búa yfir vetrartímann um 70 manns en fleiri yfir sumartímann. Hér er


Glerísetningar SUMARBLAÐ

sími:

510 66 66

Helstu samstarfsaðilar:

Bíllyklar/húslyklar Kæru Súgfirðingar Smíðum og forritum flestar gerðir bíllykla og húslykla á meðan beðið er. Þjónustum öll höfuðlyklakerfi. Tímapantanir óþarfar

Skútuvogi 11 • 104 Reykjavík • 510 8888 • www.las.is • las@las.is

25


SÚGANDI 2015 verslun og aðlögunarhæfnin er ekki minni en svo að mér fannst strax aðdáunarvert að hún væri opin alla daga vikunnar. Þó hún sé bara opin í klukkutíma á laugardögum og hálftíma á sunnudögum. Þetta sannaði fyrir mér að það að hafa verslun sem opin er allan sólarhringinn í bakgarðinum hjá mér, eins og var á Akureyri, var sannarlega gerviþörf. Hingað siglir ferja frá Dalvík þrjá daga vikunnar og tekur siglingin um þrjár klukkustundir. Yfir vetrartímann er flogið hingað frá Akureyrarflugvelli þrisvar í viku og

það að vera uppalin á stað eins og Suðureyri gerði þessa ákvörðun mun léttari. Ég upplifði að ég vissi hvað ég væri að fara út í. Þetta væri bara lítill staður, ekki ósvipaður Suðureyri. Eitt af því sem ég kveið hvað mest var að búa einhvers staðar þar sem engin fjöll væru. En ég sé fjöllin í landi og það virðist hafa sitt að segja. Náttúrufegurðin hérna er ótrúleg og oft er fjallasýnin í landi eins og í málverki. Hér eru að vísu færri íbúar en lögmálin einhvern veginn þau sömu. Ekki síst er ómetanlegt að komast aftur í meiri tengingu við sjóinn og dýrmætt þegar hér banka sjómenn með fullan haldapoka af nýveiddum fiski handa okkur, flökuðum og roðflettum. Það verður ekki mikið betra í mínum huga. Fuglalífið hérna er líka fjölbreytt. Þá er það sérstaklega lundinn sem heillar en það er líka gaman að sjá lóu og hrossagauk trítla um garðinn sinn en hér eru engir hundar eða kettir og fuglarnir því sérlega óhræddir. Mér finnst mikilvægt að vera minnt á, eins alla daga yfir sumartímann. Við erum því langt og gerist gjarnan þegar maður býr í svona litlu samfélagi, að það gerist ekkert án fólksins. frá því að vera í algjörri einangrun hérna. Lífið er ljúft hér í eyjunni. Skólinn er með Við höfum oft miklar skoðanir á því hvað ætti aðstöðu í félagsheimilinu Múla. Þar eru tvær skólastofur, ein fyrir yngri deild (1.-4. bekk) og önnur fyrir eldri deild (5.-8. bekk). Nemendur í 9. og 10. bekk fara í skóla í landi. Leikskólinn er síðan með aðstöðu í herbergi sem staðsett er milli skólastofanna tveggja. Nemendur í grunnskólanum voru ellefu talsins nú í vetur og fimm krakkar í leikskólanum. Við höfum því gengið nánast alla daga í skólann saman og eytt dögunum undir sama þaki og það hefur verið ómetanlegt að geta verið svona nálægt börnunum mínum. Margir spyrja hvað í ósköpunum við gerum í að vera gert í hinu og þessu, fussum jafnvel frítímanum (sem reyndar er af skornum skammti yfir framkvæmd hátíða eða skemmtana, en fyrsta árið í rúmlega fullri kennslu) en við gleymum að við getum haft áhrif og jafnvel höfum oft sagt fólki að hér sé varla flóarfriður. aðstoðað. Svona samfélag eins og hér í Grímsey Hér er starfandi mjög virkt kvenfélag (Baugur) ER fólkið. Hér er nóg að gera af því að fólkið býr og líka klúbbur Kiwanismanna (Grímur) og sér til eitthvað að gera. Og í svona samfélagi höfum við verið þátttakendur í þeirra starfi í getur verið gott að vera stór fiskur í lítilli tjörn. vetur. Kvenfélagskonur standa til dæmis fyrir Rödd manns heyrist, öllum hugmyndum er handavinnukvöldum öll fimmtudagskvöld yfir fagnað og margir tilbúnir að aðstoða mann vetrartímann. Þá sjá tvær konur um veitingar og við að gera hugmynd að veruleika. Mér hefur svo mæta þær sem geta og vilja, með eða án fundist Grímseyingar taka vel á móti okkur og handavinnu, og spjalla um daginn og veginn. hérna höfum við átt dásamlegan vetur innan Samræðurnar geta oft orðið dásamlega litríkar um dásamlegt fólk í yndislegu umhverfi. Og og skemmtilegar. Það er því erfitt að verða eftir þennan vetur verður sannarlega breyting algjörlega félagslega einangraður nema maður á högum litlu fjölskyldunnar í norðri en hugsanlegt er, ef einhverjir lásu til enda, að ég kjósi það sjálfur. Það er enginn vafi um það í mínum huga að fái tækifæri til að skrifa meira síðar. 26


SUMARBLAÐ

Aðalfundur Súgfirðingafélagsins 64. aðalfundur Súgfirðingafélagsins var haldinn sunnudaginn 12. apríl á Catalínu í Kópavogi. Á dagskránni voru hefðbundin aðalfundarstörf Nýir stjórnarmenn voru boðnir velkomnir í stjórn. Í stjórninni hættu Eydís Aðalbjörnsdóttir, Alda Karlsdóttir, Guðríður Gyða Halldórsdóttir og Friðbert Pálsson. Ný stjórn er skipuð Eyþóri Eðvarðssyni formanni, Elsu Eðvarðsdóttur varaformanni og ritstjóra, Björk Birkisdóttur gjaldkera, Steinunn Mar ritara, Kristjáni Pálssyni meðstjórnanda, Elínu Bragadóttur meðstjórnanda og Pálínu Snorradóttur meðstjórnanda.

Kæru Súgfirðingar Aðfluttir, brottfluttir og ófluttir

Innilegar hamingjuóskir með nýjan pott og sérlega huggulega Suðureyrarlaug. 27


SÚGANDI 2015

SPURNINGAKEPPNI ÁTTHAGAFÉLAGANNA

Súgfirðingar kepptu í Spurningakeppni átthagafélaganna þann 19. febrúar síðastliðinn. Keppnin var hörð og erfið og Húnvetningar stóðu uppi sem sigurvegarar. Keppendur fyrir hönd Súgfirðingafélagsins voru Atli Þór Þorvaldsson, Björk Birkisdóttir og Ingrid Kuhlman.

28


SUMARBLAÐ

Hálfnað verk þá hafið er hugur fylgir máli. Hópast nú að, heimaher heljar Noggs að báli. Ævar, Guðni, ættartal, eins er von og vísa. Leifa Nogg með lagaval, lofa menn og prísa. Bál er tendrað, blik á sjá, boðar komu slíka. Gítarspil og gleði á brá, getur þar að líta. Vildi gjarnan vera hér og vísur ykkur færa. En flensuskömmin fatlar mér fæ mig ekki að hræra. Guðríður Gyða Halldórsdóttir (Gyða)

29


SÚGANDI 2015

Súgfirðingagleðin var haldin í veislusalnum Lundi að Auðbrekku í Kópavogi þann 14. mars síðastliðinn. Kvöldið heppnaðist mjög vel og vinahópar og árgangar fjölmenntu og

30

gerðu sér glaðan dag. Skemmtiatriðin slógu í gegn og á ballinu hljómuðu fagrir tónar frá árinu 1945 og til ársins í dag. Veislustjóri var Elsa Eðvarðsdóttir.


Myndir - Elsa Eรฐvarรฐsdรณttir, Ingrid Kuhlman

SUMARBLAร

31


SÚGANDI 2015

32


SUMARBLAÐ

33


SÚGANDI 2015

Súgfirðingur í Sviðsljósinu

Lilja Rafney Magnúsdóttir

Nafn og hverra manna ertu? Lilja Rafney Magnúsdóttir dóttir Þóru Þórðar kennara frá Stað í Súgandafirði og Magga Ingimars sjómanns á Suðureyri. Fósturfaðir minn er Valgeir sjómaður á Suðureyri. Fjölskylduhagir? Ég hef búið með eiginmanni mínum Hilmari Oddi vörubílstjóra og sjómanni í 42 góð ár í blíðu og stríðu og afraksturinn er fjögur mannvænleg börn, tvær dætur og tveir synir, og 2 barnabörn ásamt heimiliskettinum.

en svo lengi lærir sem lifir og mennt er máttur hverrar gerðar sem hún er. Hvar býrðu? Ég bý á Suðureyri og hafði alið allan minn aldur þar þegar ég fór á þing árið 2009. Þá urðu kaflaskil í lífi mínu og ég þurfti að halda tvö heimili, annað fyrir sunnan nú í Kópavoginum, en ég flýg vestur um hverja helgi þar sem eiginmaðurinn og heimili mitt er. Börn og barnabörn eru á höfuðborgarsvæðinu og yngsta dóttir okkar býr hjá mér svo þetta hefur allt blessast. Hvað ætlaðir þú að verða þegar þú varst lítil? Þegar ég var að alast upp með annan fótinn í sveitinni hjá afa og ömmu á Stað og svo hjá mömmu og Valla á Suðureyri fannst mér liggja beinast við að vera kennari á veturna og sjómaður á sumrin. Ég hugsa að ég hefði getað orðið ágætur kennari og flott á strandveiðum á sumrin.

Hvaðan stafar áhugi þinn á verkalýðsmálum og baráttu fyrir hagsmunum „litla“ mannsins? Ég byrjaði snemma að vinna í fiskvinnslu eins og flestir þeir sem alast upp í sjávarplássum. Ég er alin upp við réttlætiskennd og sanngirni og í uppvexti mínum á Suðureyri með sjómönnum, bændum og verkafólki fann ég þörf fyrir að standa með þeim sem minna mega sín og reyna að bæta þeirra hag. Í Súgandafirði hefur Starf/Nám? Ég hef verið alþingismaður Vinstri grænna í í gegnum tíðina verið róttækt félagshyggjufólk Norðvesturkjördæmi í sex ár og minn bakgrunnur sem hefur látið til sín taka á ýmsum sviðum og er úr félagsmálum, verkalýðshreyfingunni og þar á ég margar góðar fyrirmyndir. sveitarstjórnarmálum. Ég lauk hefðbundinni skólaskyldu en hef sótt mér menntun úr ýmsum Hvernig kom það til að þú situr nú á þingi? áttum í gegnum lífið sem hefur gagnast mér vel Ég hef verið að stússast í pólitík og 34


SUMARBLAÐ

35


SÚGANDI 2015

verkalýðsmálum frá því ég var um þrítug, var formaður Verkalýðs- og sjómannafélagsins Súganda í 16 ár, oddviti Suðureyrarhrepps í 4 ár og varaþingmaður Alþýðubandalagsins frá 1991 til 1999 og þar á eftir Vinstri grænna. Ætli minn tími hafi ekki bara verið kominn. Ég ákvað að taka slaginn 2009 og lenti inn á þingi við erfiðustu aðstæður sem hugsast geta eftir Hrunið. Þessi tími hefur verið harður skóli sem kennt hefur manni margt. Hefur þig alltaf dreymt um að það að vera þingkona? Ég hef ekki gengið með þingmanninn í maganum. Mér hefur þótt mjög gaman að takast á við sveitarstjórnarmál og verkalýðsmálin í nærumhverfinu og oftar en ekki séð árangur af því sem ég vil sjá breytast til batnaðar. Kerfisbreytingar í gegnum Alþingi eru oft og

36

tíðum mjög svifaseinar og erfitt að gera róttækar breytingar á þjóðfélagsskipan, en dropinn holar steininn og á Alþingi eru línurnar lagðar um hvernig við ráðstöfum almannafé og hvort við stefnum til aukins jöfnuðar eða ójöfnuðar. Þar vil ég leggja mitt lóð á vogarskálina til að auka jöfnuð og bæta lífskjör í landinu og ég tala nú ekki um að breyta fiskveiðistjórnarkerfinu! Hvað er það óþægilegasta við að að vera í sviðsljósinu? Það hefur ekkert truflað mig sérstaklega, ég reyni yfir höfuð að vera eins og ég á að mér. Ég var reyndar spurð nýlega af ókunnri konu í heitapottinum á Suðureyri hvort hún ætti ekki að þekkja mig. Ég svaraði því til að það gæti verið vegna þess að ég væri þingmaður. Þá svaraði hún já já ég sá þig á flokksþingi Framsóknarflokksins! Ég tók andköf en hugsaði


SUMARBLAÐ síðan með mér að flokksmenn Framsóknar þekktu greinilega ekki þingmenn sína betur en þetta. Hver eru þín framtíðaráform næstu 5 ár? Að gera mitt besta til þess að bæta mig sjálfa og gera eitthvert gagn í lífinu og að gleyma ekki að njóta lífsins með fjölskyldunni. Hver er þín helsta fyrirmynd? Móðir mín. En ég er svo heppin að eiga svo fjölbreytta flóru af ættingjum og vinum sem ég lít upp til og er alltaf að læra af því góða fólki sem ég hef kynnst í gegnum lífið. Hver er þín besta minning um Suðureyri? Það er ómögulegt að gera uppá milli góðra Hver er þín framtíðarsýn fyrir Ísland? minninga. Hjá mér var æskan samfelld Að á Íslandi ríki jöfnuður og að okkur auðnist að gleðiganga en ég get nefnt alla leikina sem við byggja upp réttlátara þjóðfélag þar sem allir fái krakkarnir vorum í á sumrin. Það voru boltaleikir, að njóta sín óháð tekjum og búsetu og burtséð hverfa, þrautakóngur og fleira og inni á gamla frá því hvar þeir eru staddir í lífinu. Ísland á að leikvellinum var fjör þar sem kapphlaup var um vera í forystu í friðarmálum og umhverfisvernd að komast í kaðlana og í hringina. Svo átti ég og láta gott af sér leiða í þróunarsamvinnu mína sælu í sveitinni á Stað hjá afa og ömmu meðal fátækari þjóða. sem erfitt er að toppa. Eitthvað sem þú sérð eftir? Það er til lítils að lifa í eftirsjá en ég hefði viljað faðma þá oftar sem mér hefur þótt vænt um og eru farnir yfir móðuna miklu en við hittumst örugglega hinum megin og þá verða fagnaðarfundir.

Hver er draumurinn? Að komast aftur upp á Hádegishorn þegar búið verður að lappa uppá hnéð á mér, það væri frábært og svo myndi ég alveg þiggja það að komast á hestbak í fallegri sveit.

37


SÚGANDI 2015

Velheppnað golfmót í Miðdal

Blásið var til golfmóts Súgfirðingafélagsins sunnudaginn 21. júní á stórglæsilegum níu holu golfvelli Dalbúa í Miðdal við Laugarvatn. 24 manns skráðu sig til þátttöku og spiluðu 9 holur eftir Texas Scramble fyrirkomulagi í blíðskaparveðri. Mikill keppnisandi myndaðist á vellinum. Sigurvegararnir voru Sturla Gunnar Eðvarðsson og Kári Árnason. Farandbikarinn verður því hjá þeim þangað til á næsta ári. Friðgerður Björk Friðgeirsdóttir og Elvar Jón Friðbertsson unnu annað sætið. Þriðja sætið hlutu Hildur Þorsteinsdóttir og Karl Bjarnason. Hugheilar þakkir fá Guðmundur H. Sigmundsson og Ransý Bender en þau sjá um rekstur golfvallar klúbbsins og skála og tóku vel á mótu okkur Súgfirðingum.

38


Myndir - Ingrid Kuhlman

SUMARBLAÐ

39


SÚGANDI 2015

40


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.