3 minute read
Fagdeild sjúkraflutningamanna LSS
Fagdeild sjúkraflutningamanna LSS er vettvangur allra sjúkraflutningamanna til samráðs og samvinnu. Fagdeildin er sameiginlegur málsvari okkar allra og í gegnum hana höfum við tækifæri til þess að koma málefnum okkar á framfæri með einni sterkri rödd.
Sjúkraflutningamenn koma með misjöfnum hætti að bráðaþjónustu og sjúkraflutningum. Menntunarstig, starfsaldur, starfshlutfall og aðstæður á útkallssvæði geta ásamt fleiri þáttum haft sín áhrif á sjónarhorn hvers okkar og skoðanir okkar á einstaka málum kunna jafnvel að vera misjafnar. Það sem stendur því ofar og það sem sameinar okkur öll er viljinn til þess að gera betur. Viljinn til þess að bæta þjónustuna við skjólstæðinga okkar og alla notendur bráðaþjónustunnar sem við veitum. Notendurnir eru fólkið í kring um okkur, vinir okkar og fjölskyldur. Það eru allir sem búa og dvelja á þessu landi og það erum við sjálf líka. Mikilvægi þjónustunnar sem við veitum er óumdeilt og það er einmitt þess vegna sem við erum að þessu. Það er líka fleira sem við viljum gera betur. Við viljum bæta aðbúnað sjúkraflutningamanna, auka öryggisvitund og auka almennt áherslu á velferð. Við viljum styrkja stoðir grunn- og framhaldsmenntunar og tryggja viðhaldsmenntun sjúkraflutningamanna og við viljum styrkja viðbragðskerfið í heild svo það þjóni samfélaginu á Íslandi sem best. Það er margt sem vel er gert í dag og margt sem við getum þakkað fyrir en þó blasa við stórar áskoranir og þeim viljum við mæta í nafni einnar fagdeildar og eins félags. Röddin okkar heyrist og hún skiptir máli. Hún fær aukinn styrk ef við sammælumst um lausnirnar og núna þegar í undirbúningi eru aðgerðir stjórnvalda til þess að svara ákalli um bætur skiptir máli að við mætum undirbúin í þá vegferð. Við skulum vinna saman og fastmóta sameiginleg áherslumál okkar svo við lendum ekki í því að þurfa að skipta um hest í miðri á. Við ætlum að vera málefnanleg og við viljum vera í góðu samstarfi alla þá sem koma að máli þ.m.t. aðrar fagstéttir, rekstraraðila sjúkraflutninga og stjórnvöld.
Advertisement
Birkir Árnason
Við höfum haft nóg að gera
Heilbrigðisráðuneytið (HRN) hefur undanfarin misseri unnið að stefnumótun fyrir málaflokk bráðaþjónustu og sjúkraflutninga og fagdeild sjúkraflutningamanna hefur komið að þeirri vinnu með ýmsum hætti, m.a. með beinu framlagi í vinnuhópi HRN. Við höfum einnig lagt til málsins í gegnum fagráð sjúkraflutninga en fagráðið skilaði inn í byrjun árs umfangsmikilli greinargerð að beiðni HRN þar sem fagráðið lagði til hvernig forgangsraða skyldi aðgerðum stjórnvalda. HRN gaf svo nýverið út drög að aðgerðaráætlun næstu fimm ára fyrir bráðaþjónustu og sjúkraflutninga en þau voru sett í samráðsgátt stjórnvalda. Drögin eru mikilvægur áfangi í þessu ferli en þó vantaði kjöt á beinin og ónefnd voru mörg af þeim málum sem bæði fagdeild sjúkraflutningamanna og fagráð sjúkraflutninga hafa lagt áherslu á. Fagdeild sjúkraflutningamanna skilaði inn umsögn í samráðsgáttina og kom sjónarmiðum sjúkraflutningamanna á framfæri. Við munum áfram fylgja þessum málum eftir. Fagdeild sjúkraflutningamanna lagði fram tvær ályktanir á 18. þingi LSS. Það voru ályktun um bráðaþjónustu og sjúkraflutninga og ályktun um sjúkrabifreiðar með kassayfirbyggingu og voru þær báðar samþykktar einróma. Fagdeildin hefur fylgt þeim báðum eftir í samskiptum við HRN og mun gera það áfram. Fagdeildin hefur verið í góðri samvinnu við Rauða krossinn vegna endurnýjunar sjúkrabílaflotans. Von er á 25 nýjum bifreiðum til landsins í sumar. Tæknilýsing þeirra byggir á þeirri sömu og notuð var síðast en þó með nokkrum viðbótum. Búið er til að mynda að bæta rafkerfi og bæta aðgengi að stjórnun forgangsbúnaðar. Nokkur öryggisatriði hafa verið bætt og verður í bifreiðunum 360° myndavél með „birds eye view“. Fagdeildin hefur lagt töluverða vinnu af hendi í þetta verkefni en það er allt frá undirbúningi útboðs og samskipta við Ríkiskaup, undirbúningur og framkvæmd gæðamats tilboða og samskipti við seljanda í framleiðsluferli. Við viljum samstarf um þessa hluti og með þessum hætti getum við sem vinnum á vettvangi haft áhrif á hvernig þessi mikilvægu tæki eru útbúin. Svona viljum við gjarnan sjá í fleiri tilfellum en Rauði krossinn hefur nú þegar leitað til fagdeildarinnar um mat á búnaði á borð við hjartastuðtæki o.fl. Fagdeildin hefur einnig tekið að sér mat á nýjum búnaði að beiðni fagráðs sjúkraflutninga og yfirlæknis bráðaþjónustu utan sjúkrahúsa. Þetta fyrirkomulag getur gengið framhald á bls 8