4 minute read
FLAIM hermir fyrir þjálfun slökkviliðsmanna
Nú í vor tók Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins þátt í rannsókn um kosti og nothæfi sýndarveruleika fyrir slökkvistörf. Notast var við sýndarhermi frá ástralska fyrirtækinu FLAIM Systems og verkefninu var stýrt af VR Support Center Europe.
Rannsóknin er unnin af Western
Advertisement
Norway University of Applied
Sciences og kallast verkefnið ,,Project VR Effect - Research Project about the effectiveness of Virtual Reality (VR) for Firefighter Skills Training”.
Hann samanstendur af:
• VR gleraugum með heyrnartólum • Stút sem er sambærilegur þeim sem notaður er í slökkviliði sem búinn er skynjurum og aðgerðahnapp • Vesti sem gefur frá sér hita þegar nálgast er sýndareld • 30 metra slöngu sem tengd er við stútinn og draghjól sem togar í og líkir eftir bakþrýstingi • Lunga sem mælir öndunartíðni og loftnotkun • „Loftkút” sem er í raun stjórntölva og rafhlaða til að keyra búnaðinn.
Kúturinn er sambærilegur að vigt og stærð og hefðbundinn 10 lítra loftkútur. Búnaðinum fylgir spjaldtölva sem stjórnandinn notar til að velja sviðsmyndir, erfiðleikastig verkefnisins, bakþrýsting á slöngu miðað við vatnsþrýsting, val um slökkvimiðil og hita sem hitavestið gefur (40-90°C).
Ómar Ágústsson
Auk þess getur stjórnandinn séð upplýsingar um notkun stútsins, slökkvitækni, vatnsnotkun, öndunartíðni, loftnotkun og ýmis önnur gögn um framkvæmd verkefnisins. FLAIM Trainer er aðeins þriggja ára gömul tækni og er í stöðugri þróun. Sýndarumhverfið verður sífellt fullkomnara og raunhæfara með stöðugri þróun. Í dag er hægt að velja um 40 mismunandi verkefni. Meðal þeirra eru íbúðareldur, árekstur og eldur í göngum, sinueldur, eldur í hreyfli á flugvél, logandi bíll á eldsneytisstöð með flæðandi olíu, eldur í gámi, brennandi mótor í lyftikrana og klassískur pottur á eldavél.
Viðtökur slökkviliðsmanna hjá SHS hafa vægast sagt verið mjög góðar. Hvort sem notendur höfðu reynslu af tölvuleikjum og sýndarveruleika eða ekki voru flestir mjög fljótir að lifa sig inn í senurnar og hefja slökkvistörf líkt og í raunveruleikanum. Almennt fannst öllum upplifunin vera mjög skemmtileg og töldu þessa tækni geta nýst vel sem viðbót við þjálfun í slökkvistörfum. Sérstaklega þótti æfingin með stútinn vera góð, þjálfun í samskiptum og aðkomuáætlunum einnig. Mikill kostur við þessa hermiþjálfun er að hægt er að setja upp æfingar og aðstæður sem er nánast útilokað að skapa við æfingar í raunheimum. Þar að auki er þjálfun með þessu móti 100% eiturefnalaus, vistvæn og hættulaus. Stjórnandinn fylgist með því sem fer fram á skjá eða skjávarpa og getur einnig hlustað á umhverfishljóðin sem notandinn heyrir. Hann getur breytt erfiðleikastigi verkefnisins meðan það er í gangi, stýrt bakþrýstingi slöngunnar, hversu heitt vestið verður og hvort notað er vatn eða froða við slökkvistörfin. Fyrir varðstjóra og stjórnendur í slökkvistörfum er notagildið mjög mikið því hægt er að biðja um virk fjarskipti frá notanda til að skilja hvernig hann vinnur, meta slökkvitæknina, aðkomu, ágengi að eldinum og með notkun maskans er hægt að sjá mun á loftnotkun og öndunartíðni notenda. Hægt er að setja upp verkefni fyrir vaktina og opna umræður um slökkvistörf, hættur og aðrar pælingar. Það tekur aðeins um 20 mínútur að stilla upp öllum búnaðinum og hefja
hermiþjálfun. Allur búnaðurinn rúmast í þremur ferðatöskum og hægt er að setja herminn upp í allt frá 9m² rými og um og yfir 50 m². Æfingatíminn er stuttur og mjög sveigjanlegur.
Allir starfsmenn SHS sem fóru í gegnum sýndarverkefnin svöruðu spurningum fyrir og eftir æfinguna. Þessar upplýsingar verða svo notaðar af FLAIM Systems til að þróa senurnar áfram og betrumbæta. Eigendum FLAIM Trainer býðst einnig að láta sérhanna senur gegn gjaldi og eru t.a.m. US Navy, US Air Force og Rio Tinto kaupendur að slíkum senum og eru þær aðgengilegar öllum notendum.
Það er enginn vafi á því að þjálfun sem þessi er að ryðja sér til rúms með betri tækni og aukinni meðvitund um öryggi slökkviliðsmanna og umhverfisvitund. Það eru fáir sem halda því fram að svona þjálfun komi alfarið í staðinn fyrir æfingar með alvöru eld og í raunverulegum aðstæðum en sannarlega er það mjög góð viðbót.
Fyrir nánari upplýsingar um FLAIM Systems, sýnishorn af sviðsmyndum og almennar upplýsingar kíkið á
FLAIM Trainer er búnaðurinn sem SHS fékk til afnota fyrir rannsóknina
heimasíðuna þeirra: https://flaimsystems.com
Það er gaman að segja frá því að SHS ætlar að kaupa græjuna. Við fórum líka með hana víða til að leyfa öðrum að prófa; Brunavarnir Suðurnesja, Slökkviliðið í Grindavík, HMS á Sauðárkróki, Brunavarnir Árnessýslu og Slökkvilið Akureyrar.
Slökkvistjórar og slökkviliðsmenn þaðan og í nærsveitum komu líka á þessa staði til að sjá og prófa. Einnig kynntum við Flaim fyrir Eignarhaldsfélagi Brunabótafélags Íslands og Slysavarnaskóla sjómanna.
Ómar Ágústsson
slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður hjá SHSHeimstaden 10,5x14,8-final.pdf 1 9.6.2021 10:12
C
M
Y
CM
MY
CY
CMY
K