7 minute read

Ávarp formanns

Kæru félagar

Skammt er liðið frá 19. aðalþingi LSS, þingstörf gengu vel fyrir sig og þakka ég starfsmönnum og þingfulltrúum fyrir vel unnin störf, gott skipulag og skemmtileg kvöld. Aðalþing markar alltaf ákveðin tímamót í starfi LSS, yfirleitt láta einhverjir stjórnarmenn af störfum sem gefið hafa af sér í vinnu fyrir félagið og nýir einstaklingar koma inn fullir af eldmóði og áhuga. Það er alltaf eftirsjá af góðum mönnum og í þetta skiptið var engin undantekning á því og vil ég nýta tækifærið til að þakka Birki Árnasyni fv. formanni fagdeildar sjúkraflutningamanna fyrir gæfuríkt og ánægjulegt samstarf og Antoni Berg Carrasco fv. ritara fyrir vinnusemi og ábyrgðarfulla innkomu í það embætti. Margir fyrrverandi stjórnarmenn eru enn verðmætir ráðgjafar og sinna sérverkefnum fyrir hönd LSS, sum mál krefjast þekkingar og reynslu til úrvinnslu og því dýrmætt að hafa aðgang að þeim einstaklingum sem áður hafa staðið í brúnni. Með reglulegri heilbrigðri endurnýjun stjórnarmanna stækkar sá hópur sem styrkir félagið okkar enn frekar. Enginn er hins vegar ómissandi í henni veröld og með nýjum einstaklingum sem kosnir hafa verið til stjórnarstarfa eða í fagdeildir fylgir nauðsynleg vítamínsprauta með ferskum augum á verkefni í vinnslu og smitandi eldmóður til að ná lengra, finna nýjar lausnir og tækifæri til að eflast.

Advertisement

Nýtt fólk í stjórnir og nefndir

Í fyrsta skipti kemur formaður fagdeildar sjúkraflutningamanna ekki úr hópi starfsmanna SHS sem áður hafa mótað og byggt upp starf þessarar öflugu fagdeildar sem á margan hátt hefur dregið vagninn í framþróun og eflingu á fjölmörgum þáttum bráðaþjónustu utan spítala. Arnari Páli Gíslasyni frá HSU bíður því verðugt verkefni að leiða þessa öflugu fagdeild en ég hef fulla trú á að hann muni njóta velgengni í sínu starfi og haldið verður áfram að vinna að þeim metnaðarfullu verkefnum sem búið er að leggja grunn að en einnig koma inn með nýjar og spennandi áherslur sem vonandi munu leiða til nýrra tækifæra fyrir félagsmenn. Jón Kristinn Valsson mun halda áfram að leiða fagdeild slökkviliðsmanna sem undanfarinn misseri hefur unnið að viðamiklum verkefnum varðandi framtíðarsýn á menntun slökkviliðsmanna. Ég þarf að éta hatt minn yfir þeim yfirlýsingum sem ég gaf á þeim tíma sem flutningur brunamálasviðs HMS til Sauðárkróks var tilkynntur því samstarfsvilji og fagmennska þeirra sem þar starfa hefur verið til mikillar fyrirmyndar og málaflokkurinn tekinn fastari tökum en áður. Ég er fullur bjartsýni að sú vinna sem búið er að leggja í málefnin muni leiða af sér stórkostlegar endurbætur á menntunarumhverfi slökkviliðsmanna, stjórnenda og eldvarnaeftirlitsmanna. Ásamt Arnari Páli kemur nýr inn í stjórn félagsins Maron Berg deildarstjóri eldvarnaeftirlits hjá S.A. Maron hefur mikla reynslu af fjölbreyttum félagsmálum sem án efa mun nýtast vel í stjórnarstarfi LSS. Þakka ég þeim einnig fyrir sem gáfu kost á sér til áframhaldandi stjórnarstarfa, Ásgeir Þórisson frá B.S. er prímus mótor í orlofshúsamálum félagsins, dugnaður hans og vinnusemi er eftirtektarverð og hann ásamt öðrum eiga miklar þakkir fyrir að halda við og bæta íbúðir og sumarhús LSS. Ólafur Stefánsson slökkviliðsstjóri á Akureyri situr áfram sem formaður fagdeildar stjórnenda sem í fyrsta skipti vinna nú að sérstökum kjarasamningi hjá sveitarfélögunum. Ólafur hefur sinnt stjórnarstörfum af kostgæfni og er vel meðvitaður um sitt hæfi þegar kemur að málefnum sem geta verið þess eðlis að spenna ríki milli hagsmuna rekstraraðila og stéttarfélagsins. Varamenn verða áfram þeir sömu en Árni Snorri Valsson frá HSU hefur um langt skeið unnið að félagsmálum bæði innan síns vinnustaðar og á vegum LSS, reynsla hans og þekking á samskiptum gagnvart ríkinu nýtist gríðar vel og er hann mikilvægur hlekkur í að mynda þá breiðu þekkingu og reynslu sem stjórn býr nú yfir. Hlynur Kristjánsson fv. varðstjóri á Ísafirði hefur sýnt starfsemi LSS mikinn áhuga og bætir við þekkingu á ólíkum rekstrarformum slökkviliða og er gott að hafa hann sem hauk í horni. Ég og Bjarni Ingimarsson munum áfram skipta stöðu formanns á milli okkar þó ábyrgðin liggi á mér. Okkar samstarf tel ég mjög gott og við höfum fundið farsælt jafnvægi á milli okkar og styrkjum hvorn annan í þeim verkefnum sem liggja fyrir. Framkvæmdarstjórinn okkar Hermann Sigurðsson sinnir sínu starfi af mikilli fagmennsku og á stóran þátt í því að félagið okkar er á þeim góða stað sem ég tel það vera á í dag, nákvæmni og agi varðandi rekstur félagsins, skýrir málsmeðferðarferlar og vönduð vinnubrögð í úrvinnslu kjaramála er eitthvað sem hann hefur tekið föstum tökum og sjá má skýran árangur endurskipulagningar undanfarinna ára í ársskýrslu og ársreikningum félagsins. Skrifstofustjórinn okkar Guðrún Hilmarsdóttir spilar svo stórt hlutverk í þessum kvartett en vinnubrögð hennar og nær óþrjótandi þolinmæði gagnvart okkur og félagsmönnum sem leita þurfa á skrifstofuna hafa

skapað henni sérstakan sess hjá félaginu, það þarf oft ansi mikla staðfestu til að eiga við stjórnarmenn og félagsmenn LSS en það gerir hún ávallt af virðingu og leitar farsælla lausna þeirra verkefna sem koma inn á hennar borð. Öll höfum við okkar styrkleika og veikleika en ég tel að við myndum gott teymi og vinnum upp veikleika hvers annars og ég tel mig heppinn að fá að vera hluti af þessum hópi sem vinnur af heilindum og ástríðu fyrir hagsmunum allra félagsmanna. Fulltrúar LSS mynda svo kjötið á beinin, þeir eru á gólfinu og vinna ötullega að einstaka málum sem komið geta upp á starfsstöðvum félagsmanna, það er óeigingjarnt starf og oft erfið mál sem þessir einstaklingar sinna, en heilt yfir eru þeir aðilar sem þessu sinna að gera það af mikilli dyggð og árvekni og vinna þeirra gerir okkur kleift að gera okkar allra besta til að tryggja réttindi okkar fólks. Fjölmargir aðrir félagsmenn koma síðan að starfsemi LSS með einum eða öðrum hætti, margir hafa lagt mikla vinnu á sig í undirbúningi og framkvæmd styttingar vinnuvikunnar og oft leitum við til einstaka félagsmanna sem við vitum að hafa sérþekkingu á ákveðnum sviðum til að styrkja starfsemi okkar í þeim verkefnum sem liggja fyrir og þakka ég þeim innilega fyrir sem lagt hafa hönd á plóginn undanfarin ár.

Ráðstefnur og viðburðir

Við erum sífellt að leita leiða til að umbuna þeim sem starfa í þágu félagsins, aðalþing og aðalfundir eru tækifæri til málefnastarfs en ekki síður til eflingar félagsandans og þar reynum við að vanda til verka. „Á vakt fyrir Ísland“ er búin að festa sig rækilega í sessi sem fagleg ráðstefna og blaðaútgáfa með sama nafni hefur, þrátt fyrir breytingu á heiti, áratuga sögu sem framsækinn miðill um málefni líðandi stundar og nýjungar á þeim fjölbreyttu sviðum sem félagsmenn okkar starfa við. Aðrir félagslegir þættir eins og ferðir erlendis á ráðstefnur eða sýningar og grasrótarverkefni eins og Bráðavarpið, Skemmtileikarnir, Íslandsmót viðbragðsaðila og nýstofnað Instargram EMS-Iceland stuðla hvorutveggja að faglegri framþróun og stemmingu í hópi félagsmanna. Stemming er ómetanleg! Ég þakka þeim kærlega fyrir sem hafa skipulagt og staðið að þessum útgáfum eða viðburðum og ég vona að þið gerið ykkur grein fyrir hversu verðmæt ykkar vinna er í þágu okkar allra.

Starfið framundan

Það er mín einlæga von að okkur takist að halda áfram að byggja upp starfsemi LSS á breiðum grundvelli. Til þess þurfum við samstöðu og staðfestu ásamt aðkomu fjölda félagsmanna sem tilbúnir eru að leggja á sig vinnu í þeim fjölbreyttu verkefnum sem félagið sinnir eða kemur að. Eðli sumra verkefna geta verið þung og stundum afar hægfara en þátttaka í verkefnum á vegum LSS er gott tækifæri til að læra og eflast sem einstaklingar og njóta þeirra vellíðunar sem fylgir því að láta gott af sér leiða fyrir aðra. Ég hlakka til næstu tveggja ára og er reiðbúinn að sinna hvaða verkefnum sem upp geta komið því ég veit að sá hópur sem ég hef í kringum mig myndar gríðarlega sterka heild. Eins og ég hef nefnt áður er sérfræðiþekking félagsmanna LSS auðlind sem alls ekki má taka sem sjálfsögðum hlut og ég tel mig ófeiminn við að viðurkenna vanþekkingu sem upp getur komið og kalla eftir aðstoð þegar svo ber undir, ég man ekki atvik þar sem slíkri beiðni hafi ekki verið tekið öðruvísi en vel og að hætti viðbragðsaðila: hratt, örugglega og faglega. Að lokum vil ég þakka stjórnendum rekstraraðila og samningsaðilum fyrir góð samskipti undanfarin ár, alloft erum við á öndverðum meiði og ólíkir hagsmunir uppi sem skapað geta spennu milli aðila. Með gagnkvæmri virðingu og viðurkenningu á aðstöðu beggja aðila finnast yfirleitt lausnir sem báðir aðilar geta sætt sig við. Sá lausnarmiðaði andi sem undanfarin misseri hefur frekar verið regla en undantekning vona ég að muni ríkja til frambúðar því það er ánægjulegt finna fyrir þeirri samstöðu að skýrt markmið sé að efla þjónustu við samborgarana, gesti landsins og í víðum skilningi starfsumhverfi félagsmanna LSS.

Kveðja

Magnús Smári Smárason

Formaður LSS

Hæð : 33 sm Breidd : 34 sm

This article is from: