4 minute read

Stytting vinnuvikunnar hjá HSU

Þegar við fulltrúar LSS hjá HSU fengum í hendurnar verkefnið um styttingu vinnuvikunnar fór af stað mikil vinna sem unnin var af fagmennsku og með hag starfsmanna fyrir brjósti. Þegar ljóst var að við yrðum eina deildin innan LSS til þess að hefja þessa vinnu í kjölfar þess að félagsmenn samþykktu kjarasamning með rétt rúmum meirihluta greiddra atkvæða var eins gott að hafa hraðar hendur og vinna málið eins vel og hægt var.

Advertisement

Samtal mikilvægt

Stjórnendur sjúkraflutninga HSU kölluðu strax eftir samtali við okkur sem fulltrúa starfsmanna og farið var að leggja línur með það hvernig innleiðing styttingarinnar yrði framkvæmd. Farið var að mestu leyti eftir fyrirfram uppgefinni formúlu sem innleiðinganefnd styttingar vinnuvikunnar hafði sett upp og reyndist sú leið nokkuð góð. Kallað var til samráðsfundar sem kallast í vinnuferlum nefndarinnar ,,Umbótasamtal“. Með því er reynt að draga fram sjónarmið beggja aðila, starfsmanna og stofnunar. Umbótasamtalið fór fram með þeim hætti að skipt var í vinnuhópa þar sem a.m.k. einn starfsmaður af hverri vakt var í hverjum hópi. Við erum ekki fjölmennasta liðið á landinu og hafði hver starfsmaður það hlutverk að koma með hugmyndir um það hvað mætti betur fara og líka að draga fram það sem vel er gert hjá stofnuninni. Út frá þessu samtali komu margar góðar hugmyndir en ljóst var að mikill vilji var til þess að halda í það vaktakerfi sem var við lýði, 5-5-4 kerfi sem er 12 tíma fast vaktakerfi. Umbótasamtalið er mikilvægt fyrir okkur, þar er tækifæri til þess að koma okkar sjónarmiðum að og benda á þá hluti sem okkur líkar við og hvað okkur finnst betur mega fara. Virk þátttaka starfsmanna og yfirmanna er mjög mikilvæg og verða báðir aðilar að koma að því borði með opinn hug og tilbúnir til viðræðna. Markmið umbótasamtalsins er skýrt, það er að starfsmenn og stofnun beri hag af því samtali.

Vaktakerfin útfærð

Niðurstaðan úr samtalinu var að skipaðir voru tveir vinnuhópar sem fengu það hlutverk að útfæra annarsvegar 12 klst. og hins vegar 8 klst. vaktakerfi sem myndi passa inn í hinn nýsamþykkta kjarasamning. Mikilvægt var að öll þau atriði sem í samningnum koma fram standist í nýja vaktakerfinu, þar með talið jafnan vaktahvata milli starfsmanna, sem er nýtt launatengt ákvæði. Hóparnir lögðu á sig mikla vinnu við að útfæra vaktakerfin. Mikið var um fundahöld og ýmis vaktakerfi sett upp. Hugmyndir að vaktakerfum voru lögð fyrir innleiðinganefnd ríkisins en allt kom fyrir ekki. Eftir þó nokkuð japl, jaml og fuður kom í ljós að ekki var til staðar vilji innleiðinganefndarinnar til þess að

Heimstaden 10,5x14,8-final.pdf 1 9.6.2021 10:12

Menntun skapar tækifæri

Ríkismennt styrkir starfsmenntun beint til stofnana ríkisins á landsbyggðinni Sjóðurinn veitir styrki í fræðsluverkefni á vegum stéttarfélaganna. Sjóðurinn veitir styrki til einstaklinga og sjá stéttarfélögin um afgreiðslu þeirra í umboði Ríkismenntar. Kynntu þér rétt þinn á www.rikismennt.is

Ríkismennt

láta hreint 12 tíma kerfi passa inn í vaktahvatafyrirkomulagið sem samið hafði verið um í kjarasamningnum. Þar með breyttist áhersla hópanna nokkuð. Hópurinn sem ætlaði sér að útfæra 12 tíma kerfi einbeitti sér að útfærslu á blönduðu 12 og 8 tíma föstu vaktakerfi. Hinn hópurinn skoðaði útfærslu á fljótandi 12 og 8 tíma kerfi.

Kosið um vaktakerfin

Hóparnir kynntu svo niðurstöður sínar fyrir starfsmönnum. Var síðan gengið til kosninga og að þeim loknum lágu afgerandi niðurstöður fyrir. Fyrir valinu varð fast 8 og 12 tíma kerfi, sem stundum er nefnt ,,löggukerfið“ sem á uppruna sinn hjá lögreglunni á Norðurlandi vestra. Kerfið virkar þannig að alla virka daga standa starfsmenn 8 tíma vaktir frá 07:00-15:00, 15:00-23:00 og 23:0007:00. Um helgar eru fjórar 12 tíma vaktir frá laugardagsmorgni til mánudagsmorguns, frá 07:00-19:00 og 19:00-07:00. Um það bil sex mánuðum eftir að nýja vaktakerfið var tekið í notkun gerðu fulltrúar LSS hjá HSU könnun meðal starfsmanna. Niðurstöður þeirrar rannsóknar voru ótvíræðar, mikill meirihluti starfsmanna var ánægður með nýtt vaktakerfi og samspil þess við fjölskyldulíf og áhugamál sem starfsmenn telja sig hafa meiri tíma til þess að sinna með nýju kerfi. Lykilorðið í styttingu vinnuvikunnar er umbótasamtal og til þess að nýta það sem best er mikilvægt að það fari fram með opnum hug beggja samningsaðila. Við höfum öll það markmið að gera góða vinnustaði ennþá betri. Öll viljum við einnig að okkur líði betur í vinnunni og fáum þau laun sem um hefur verið samið og að laun séu í samræmi við ábyrgð og áhættu sem oft fylgir okkar starfi.

Selma Friðriksdóttir og Sigurjón Bergsson

Baráttukveðjur,

Sigurjón Bergsson

og Selma Friðriksdóttir fulltrúar LSS hjá HSU

This article is from: