3 minute read
Kafbátadrónar í eftirlit á sjó og vötnum
Chasing M2 kafbátadróni.
Þetta er kafbátur með bæði ljósmynda- og myndbandsupptöku sem er tilvalið að nota við eftirlit á bátum, skipum, í fiskeldi, höfnum og víðar. Og auðvitað einnig hægt að nota hann við rannsóknir eða við björgunaraðgerðir,“ segir Arnar Þór Þórsson, eigandi Dronefly ehf., um Chasing M2 sem er í boði hjá fyrirtækinu. Dronefly ehf. er umboðsaðili Chasing Innovation á Íslandi.
Fjórar gerðir Dronefly ehf . er með fjórar gerðir af kafbátadrónum og er Chasing M2 sá
ÆGIR Í 115 ÁR Í gegnum söguna 1926 – Ný bók – Fiskarnir
Bjarn i Sæmundsson: Fiskarnir. 544 bls. í stóru broti, með 266 myndum og litprentuðu sjókorti af Íslandi. Verð ib. 15,00, ób. 12,00. – Lýsing á öllum íslenskum fiskum í sjó og vatni með myndum af þeim öllum og lýsingu á lifnaðarháttum þeirra. Mesta fróðleiksnáma fyrir alla íslenska fiskimenn. Fæst hjá bóksölum. Auglýsing Bókaverslunar Sigfúsar Eymundssonar, október 1926. fullkomnasti . Chasing M2 getur kafað á allt að 100 metra dýpi og hefur átta mótora sem gera honum kleift að kafa lárétt, lóðrétt og í hvaða gráðu sem er . Rafhlaðan endist í tvær til fjórar klukkustundir og er auk þess hægt að skipta um hana .
Myndgæðin í kafbátadrónanum eru gríðarlega mikil en hann er með 4K myndbandsupptöku og tekur 12MP ljósmyndir . Einnig er hægt er að streyma úr kafbátnum í beinni, yfir YouTube, Facebook eða aðra miðla . Stjórnendur geta því fylgst með á skrifstofunni eða úr brúarhúsi á meðan aðrir stýra bátnum . Allar ljósmyndir og myndbönd vistast á microSD kort . Auk þess er á honum 4000 lumen LED ljós og mögulegt að fá öflugri kastara eða 12000 lumens . Þá er hægt að setja á kafbátinn arm sem er stjórnað með fjarstýringu ofansjávar .
Auk kafbátsins er hægt að fá margs konar dróna hjá Dronefly ehf . „Við erum einnig með dróna sem geta lent á sjó og vatni og farið með myndavél niður fyrir yfirborðið sjávar . Einnig erum við með dróna sem hafa hitamyndavélar, mælingardróna og margt fleira,“ segir Arnar Þór .
Reynslumestir í drónum Dronefly ehf . er fyrirtæki frá árinu 2014 og var stofnað af Arnari Þór sem hafði áður starfað í nokkur ár sem einyrki í sölu og þjónustu við dróna . „Þetta er fyrsta íslenska sérverslunin á þessu sviði . Þjónusta okkar er af ýmsum toga, þ .á .m . drónaverslun, -verkstæði, -námskeið, -leiga, sjónvarps- og kvikmyndatökur,“ segir Arnar Þór .
Dronefly ehf . er í dag sá sölu- og þjónustuaðili á Íslandi sem hefur mesta reynslu í drónum . „Við sjáum um sölu á drónum fyrir áhugafólk og fagfólk . Einnig bjóðum við viðgerðarþjónustu fyrir allar tegundir dróna . Við erum með sérhæfða menn til að lesa úr bilunum og/eða göllum á drónum og sérhæfum okkur í að taka að okkur verkefni við myndbandsgerð og ljósmyndun, með einum af fullkomnustu drónum sem bjóðast í heiminum,“ segir Arnar Þór að lokum .