9 minute read

Við viljum að öll séu alltaf velkomin

Next Article
Ávarp ritstjóra

Ávarp ritstjóra

„Við viljum að öll séu alltaf velkomin“

VIÐTAL INTERVIEW Katla Ársælsdóttir

Advertisement

ÞÝÐING TRANSLATION Bergrún Andradóttir

MYND PHOTOGRAPH Helga Lind Mar

Erna Lea Bergsteinsdóttir er annars árs nemi í félagsráðgjöf og forseti Félags- og menningarlífsnefndar Stúdentaráðs. Blaðamaður Stúdentablaðsins hitti Ernu Leu á dögunum til að ræða hlutverk nefndarinnar og hvernig hún hefur orðið fyrir áhrifum heimsfaraldursins.

„VIÐ ERUM AÐ VANDA OKKUR MJÖG MIKIГ Aðspurð hvert helsta verkefni Félags- og menningarlífsnefndar Stúdenta ráðs sé segir Erna Lea að fyrst og fremst sé markmið hennar að sporna gegn félagslegri einangrun nemenda háskólans. „Þar með hafa allir einhverja félagslega viðburði til þess að mæta á og geta þar með skapað félagsleg tengsl við samnemendur og þar fram eftir götunum. Ég tel það mikilvægt að allir geti upplifað gott félagslíf innan háskólans óháð námsgrein,“ segir Erna. Hún bætir við að það séu einnig fastir viðburðir sem nefndin heldur utan um yfir skólaárið. „Þar má til dæmis nefna Mínútuleikana á Októberfest, Vísó í Stúdentaráð, Fyndnasta Háskólanemann, Partýbingó og Vísó í Þrennu“ segir Erna.

Hún segir að það sé erfitt að vinna að þessum hefðbundnu verkefnum á tímum sem þessum. Þegar viðtalið var tekið höfðu þau ekki enn haft tök á að halda viðburði sökum ástandsins í samfélaginu. „Við í nefnd inni erum að bíða og sjá hvað gerist en erum auðvitað líka á fullu að skipuleggja viðburði sem eru í takt við tímann, en það er erfitt, sérstaklega þar sem við erum ekki nemendafélag. Nemendafélög einskorðast við eina deild en við erum með allan háskólann og við viljum ekki velja úr hverjir mega koma eða eitthvað slíkt. Við viljum að öll séu alltaf velkomin. Þess vegna erum við að vanda okkur mjög mikið og erum því bæði að skipuleggja okkur í kringum veiruna en einnig að reyna að vera bjartsýn og höldum í vonina um að geta haldið einhverja viðburði yfir skólaárið og erum því líka í undirbúning fyrir slíkt,“ segir Erna Lea.

„ÞAÐ ER ALLSKONAR HÆGT AÐ GERA“ Aðspurð hvort nefndin sé að vinna að einhverjum veiru-vænum útfærslum á viðburðum segir Erna að nefndin sé að íhuga rafræna útgáfu á þeim. „Mig langar ekki að opinbera allar hugmyndirnar sem við erum með því við erum ekki búin að staðfesta þessa viðburði eða hvort við getum fundið útfærslu á þeim. Við höfum verið í mikilli hugmyndavinnu frá því skólaárið byrjaði og út frá því spruttu upp margar góðar hugmyndir. Þá var staðan í samfélaginu hins vegar önnur en hún er núna þannig maður er mikið að endurskoða og útfæra viku eftir viku,“ segir hún. Erna bætir við að um það leyti sem viðtalið var tekið var nefndin að skipuleggja rafrænt partýbingó sem þau vilja gera mjög veglegt. „Þetta verður ekki bara einhver að lesa upp tölur á skjá, við ætlum að reyna að gera það eins fyndið og skemmtilegt og við mögulega getum. Það er allskonar hægt að gera,“ segir hún.

Nefndin hefur einnig verið dugleg að undirbúa viðburði með hefðbundnara sniði þegar tækifæri gefst. „Vísó í Stúdentaráð hefur verið samþykkt á Stúdentaráðsfundi. Hefðin er að sá viðburður sé haldin í byrjun skólaársins en af augljósum ástæðum var það ekki möguleiki. En okkur langar rosalega mikið að halda það og við bíðum eftir tækifærinu. Síðan er til dæmis Fyndnasti Háskólaneminn og Vísindaferð í Þrennu vanalega haldið á vorönn og það er engan veginn hægt að gera sér grein fyrir hver staðan verður þá. Við vonumst auðvitað eftir því að geta haldið þá viðburði með hefðbundnum hætti,“ segir Erna. Þó megi ekki gera ráð fyrir því að komandi viðburðir á vegum nefndarinnar muni fela það í sér að fólk komi saman. „Við erum stöðugt að endurmeta stöðuna og viljum halda einhverja skemmtilega viðburði um leið og tækifæri gefst. Það væri líka svo leiðinlegt að skipuleggja einhvern geggjaðan viðburð, búin að gera og græja allt og síðan verða hertar aðgerðir vegna COVID. Við viljum allavegana bægja frá því að slíkt gerist,“ segir hún.

MIKILVÆGT AÐ REYNA AÐ VERA FRUMLEG Blaðamaður Stúdentablaðsins spyr Ernu hvort henni finnist eitthvað jákvætt hafa komið út úr ástandinu í samfélaginu fyrir starf nefndarinnar. Hún segir að svo sé ekki en bætir því við að hún sé að sama skapi dugleg að líta á björtu hliðarnar og ef til vill sé fullsnemmt að segja til um hvort það muni hafa einhver jákvæð áhrif á starfið. „Maður þarf alveg að vera frumlegur og kannski kemur einhver nýr og skemmtilegur viðburður út frá þessu sem verður síðan ef til vill fastur liður hjá nefndinni. Það væri alveg jákvætt. Að prófa eitthvað nýtt og prófa að hafa eitthvað rafrænt og sjá hvort það hafi kannski jákvæð áhrif á þátttöku. Maður verður að bíða og sjá hvað það varðar. En það er auðvitað ótrúlega leiðinlegt að fresta viðburðum og það vegur svo þungt. Októberfest og Mínútuleikarnir, til dæmis, er svo góð leið fyrir nýnema að koma sér inn í félagslíf skólans en svo var auðvitað ekki hægt að halda neitt slíkt, sem er auðvitað mikil synd. Það hefur enginn viðburður verið haldinn fyrir nýnema og mér finnst það mjög leiðinlegt og setur ef til vill strik í reikninginn hvað varðar upplifun þeirra á háskólalífinu. Það gæti alveg verið skemmtilegt og eitthvað sem væri hægt að nýta seinna þó svo að maður megi hittast, það gæti komið mjög skemmtilega út,“ segir Erna Lea.

Að lokum vill Erna Lea hvetja nemendur HÍ til að vera eins virk í félagslífinu og kostur er. Þá vill hún sérstaklega hvetja nýnema til að leggja sig fram við að kynnast nýju fólki. „Það er erfiðara á tímum sem þessum en það er mjög mikilvægt að mínu mati. Vera opin og þolinmóð fyrir aðstæðunum og vonandi verður þetta búið sem fyrst.“

“We Want Everyone to Always Be Welcome”

Erna Lea Bergsteinsdóttir is a second-year student in Social Work and president of the Student Council’s Social and Cultural Life Committee. A journalist from the Student Paper met with Erna Lea recently to discuss the role of the committee and how it has been affected by the pandemic.

“WE’RE TAKING GREAT CARE” Asked what the Social and Cultural Life Committee’s main projects are, Erna Lea responds that its primary goal is working against social isolation of students at the university. “That way, everyone has some social events to attend and can create social connections with their fellow students and so on. I think it’s important that everyone can experience a good social life at university, whatever they’re studying.” Erna adds that there are also regular events that the committee oversees during the school year: “For example, there are the Minute Games at Oktoberfest, a field trip (vísindaferð) to the Student Council, the Funniest Student contest, Party Bingo, and a field trip to Þrennan.”

She says it's tough to work on these traditional projects in times like these. When this interview took place, the committee had still not been able to hold any events due to the current circumstances. “The committee is waiting to see what happens, and of course we’re also working on events that are appropriate given the current situation, but it's difficult, especially since we’re not a student union (nemendafélag). Each student union is bound to one department, but we’re in charge of everyone at the university, and we don’t want to pick and choose who can attend and who can’t or anything like that. We want everyone to always be welcome. That’s why we’re taking great care and planning around COVID-19, but also trying to be optimistic and hold on to hope that we will be able to hold some events during the school year, so we’re also preparing for that,” says Erna Lea.

“THERE ARE ALL SORTS OF POSSIBILITIES” Asked if the committee is working on some virus-appropriate versions of events, Erna replies that the committee is considering holding events online. “I don’t want to reveal all of the ideas that we have, since we haven’t confirmed these events or even figured out if we can make them work. We’ve been brainstorming since the start of the school year and many great ideas have come out. Back then the situation was different than what it is now, so we’re revising and working it out week by week.” Erna adds that about the time the interview took place, the committee was organizing an online party bingo that they want to make as fun as possible. “This won’t just be someone reading numbers on a screen, we want it to be as funny and entertaining as possible. There are all sorts of possibilities,” she says.

The committee has been hard at work organizing events in a more traditional form once the opportunity arises. “A field trip (vísó) to the Student Council was approved at a Student Council meeting. Traditionally, this event is held at the beginning of the school year, but obviously that was not possible. However, we really want to go ahead with it and are waiting for the opportunity. Then, for example, the Funniest Student contest and the trip to Þrennan are usually held in the spring, but there’s no way of knowing what the situation will be like by then. Of course, we hope we’ll be able to hold those events as usual,” Erna remarks. However, we shouldn’t assume that the committee’s upcoming events will involve people gathering. “We’re constantly re-evaluating the situation and want to be able to have some fun events as soon as possible. It would be so sad to have organized some fun event, arranged everything, and then have to cancel because of stricter measures due to COVID. We want to avoid that happening,” says Erna.

IMPORTANT TO TRY AND BE CREATIVE

The Student Paper asks Erna if she thinks the current situation has had any positive effect on the committee’s work. She doesn’t think so, but adds that it's a bit too early to say if this will have any positive effects and that she’s trying to look on the bright side. “We need to be creative, and maybe some fun new event will arise out of all of this, which will then become a regular event. That would be positive. To try new things and test the online option and see if that has a positive effect on participation. We just have to wait and see. But of course it’s just so sad to postpone events, and it weighs you down. Oktoberfest and the Minute Games, for example, that’s such a good way for new students to get involved with the social scene on campus, but of course we weren’t able to hold any of that, which is a shame. There’s been no event held for new students, and I think it’s very sad and it does affect their experience of student life. However, it could be fun and something to utilize later, even when we can meet again. It could work out well,” Erna Lea says.

Finally, Erna Lea would like to encourage students to actively participate in student life as possible. She especially encourages new students to put in the work of meeting new people. “It’s harder during times like these, but I feel it's very important. Be open and patient with the situation, and hopefully this will be over soon.”

This article is from: