7 minute read

Bókmenntahorn ritstjórnar Bækur um heilsu

regluna: ef bókin er ekki búin að fanga ykkur á fyrstu 50 síðunum þá er í góðu lagi að skila henni og ná sér í nýja bók. Þið skuldið engum að klára bók ef þið viljið það ekki.

FINNIÐ VIN Það er mjög sniðugt að eignast bókavin. Þið þurfið ekki að lesa ná kvæmlega sömu bækur á nákvæmlega sama tíma en það er mjög gaman að geta heyrt í einhverjum af og til sem þið getið spjallað við um hitt og þetta tengt bókum. Lestur getur verið mjög einrænt og persónulegt áhugamál en hann þarf ekki að vera það. Einnig eru til ýmislegir bókaklúbbar sem hægt er að taka þátt í. Kíkið á næsta bókasafn eða fylgist með á Facebook, þið gætuð rekist á skemmtilegan hóp af bókaáhugafólki.

Advertisement

PRÓFIÐ AÐ HLUSTA Sumar bækur eru torlesnar og þá getur verið sérstaklega erfitt að halda þræði. Mín reynsla er sú að þetta eigi sérstaklega við um klassískar bækur og bókmenntir. Það sem hefur reynst mér vel er að hlusta á slíkar bækur, ýmist meðan ég les eða ekki. Ef þið hafið bjástrað við ákveðna bók lengi og viljið gjarnan klára hana þá gæti þetta hjálpað ykkur. Það að hlusta á bók er jafn mikils virði og að lesa hana, ekki telja ykkur trú um annað.

BÓKASÖFN Að lokum vil ég taka smá pláss til að dásama bókasöfn. Þau eru frá bær. Þau kosta lítið sem ekki neitt á ári og veita ykkur aðgang að fjöldan allan af allskonar bókum. Auk þess bjóða flest söfn upp á fjölbreytta og skemmtilega viðburði og þjónustu. Ég uppgötvaði það til dæmis á liðnu ári að safnið í mínu nágrenni býður upp á að fá lánuð bökunarform og saumavélar. Ég hvet ykkur innilega til að kynna ykkur þjónustuna á ykkar safni. Þá tek ég fram að bókasafnskort í einu safni á höfuðborgarsvæðinu gildir á öllum öðrum söfnum. Hugsið ykkur allar bækurnar sem bíða ykkar. Nú er um að gera að drífa sig af stað á næsta safn og ná sér í góða bók. afraid to follow the "50 pages rule": If the book doesn’t enthrall you in the first 50 pages, then it’s fine to return it and start reading a new one. You don’t have to finish a book you don’t like for anyone.

FIND A FRIEND It’s a good idea to make a book friend. You don’t have to read exactly the same books at the exact same time, but it’s fun to talk about books with someone every now and then. Reading can be a very isolating hobby, but it doesn’t have to be. There also exist a lot of book clubs that you can join. Check out your nearest library or follow along on Facebook. You could find a fun group of fellow readers.

TRY LISTENING Some books are hard to read, which makes it hard to focus. In my experience, this is especially true of classic books and literature. It has helped me to listen to those books, either while I’m reading or while doing something else. If you’ve been struggling with the same book for a long time and really want to finish it, it could help to listen to it. Listening to a book is worth the same as reading it, so don’t be convinced otherwise.

LIBRARIES Lastly, I want to dedicate some space to wax eloquent about libraries. They’re fantastic. They cost little to nothing per year and grant you access to a myriad of different books. Most libraries also host many different and exciting events and offer good services. For instance, I found out last year that my local library offers to lend booking forms and sewing machines to its patrons. I encourage you wholeheartedly to check out the services that your local libraries offer and I also want to mention that a library card from one library in the capital area can be used everywhere else. Imagine all the books that are waiting for you… Now get going to the nearest library and fetch a good book.

Grein / Article

Ritstjórn Stúdentablaðsins / The Student Paper’s Editorial Team Bókmenntahorn ritstjórnar

Bækur um heilsu

The Editorial Booknook

Books on Health

ÍSLENSKAR BÆKUR

PTSD ljóð með áfallastreituröskun, Ragnheiður Guðmundsdóttir PTSD ljóð með áfallastreituröskun eftir Ragnheiði Guðmundsdóttir kom út nú fyrir jólin. Ljóðabókin er uppgjör höfundar við krabba mein við hún fékk fyrir nokkrum árum og áfallastreituna sem fylgdi því. Ljóðin eru einstaklega falleg, einlæg en að sama skapi stingandi. Þetta er fyrsta ljóðabók Ragnheiðar, sem gaman er að geta að er nemi við Háskólann. Það er deginum ljósara að Ragnheiður er höf undur sem mun láta að sér kveða og vert er að fylgjast grannt með.

Gangverk, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason Gangverk Þorvaldar Sigurbjarnar Helgasonar vakti verðskuldaða athygli þegar hún kom út vorið 2019. Þar lýsir Þorvaldur því þegar hann fór í hjartastopp fimmtán ára gamall í kennslustund í Kvennaskólanum. Ljóð bókarinnar lýsa innri og ytri aðstæðum og lesningin er einstaklega áhugaverð. Uppgjör Þorvaldar við þennan trámatíska atburð er einlægt og skilar sér í ljóðabók sem er einstök í efnistökum og góð viðbót á bókalista allra ljóðaunnenda. ICELANDIC BOOKS

PTSD ljóð með áfallastreituröskun, Ragnheiður Guðmundsdóttir PTSD ljóð með áfallastreituröskun (PTSD Poems with Post-Traumatic Stress Disorder) by Ragnheiður Guðmundsdóttir came out before Christmas. This poetry collection is the reconciliation of the author with cancer that she was diagnosed with several years ago and the post-traumatic stress that followed it. The poems are uniquely beautiful, sincere but by the same token, stabbing. This is the first poetry book by Ragnheiður, who is, by the way, a student at the University. It is abundantly clear that this is the author who will make a difference and is worth watching closely.

Gangverk, Þorvaldur Sigurbjörn Helgason Gangverk (Mechanism) by Þorvaldur Sigurbjörn Helgason attracted well-deserved attention when it came out in the spring of 2019. In the book Þorvaldur describes the time he went into cardiac arrest at a school lesson aged 15. The poems describe his internal and external circumstances, and reading is uniquely interesting.

ERLENDAR BÆKUR

Dr. Bird’s Advice for Sad Poets, Evan Roskos Dr. Bird’s Advice for Sad Poets kom fyrst út árið 2013 og lét ekki mikið fyrir sér fara. Bókin er flokkuð með unglingabókmenntum en á, eins og svo oft vill gerast með góðar barna og unglingabækur, vel við fullorðinn lesendahóp. Bókin fjallar um unglingspilt sem ímyndar sér að hann eigi sálfræðing sem hann ræðir við um amstur dagsins. Ímyndaði sálfræðingurinn er dúfa í mannsstærð sem sýnir drengnum, James, samkennd og skilning. Ef lesendur lásu og fíluðu The Perks of Being a Wallflower mun Dr. Bird’s Advice for Sad Poets vafalaust höfða til þeirra Mynd byggð á bókinni kom svo út árið 2021 og hlaut góðar undirtektir.

My Year of Rest and Relaxation, Ottessa Moshfegh Skáldsagan My Year of Rest and Relaxation eftir bandaríska höfundinn Ottessa Moshfegh kom út árið 2018 og vakti töluverða athygli enda þótti hún bæði djörf og nýstárleg. Bókin segir frá til raunum ungrar konu til að flýja meinsemdir heimsins með því að leggjast í árslangan dvala. Árið er 2000, sögusviðið er New Yorkborg: söguhetja bókarinnar er falleg og farsæl ung kona sem vinnur í listagalleríi, lifir á arfi foreldra sinna og býr ein í ríkmannlegri íbúð á The Upper East Side í Manhattan. Hvað gæti mögulega amað að? My Year of Rest and Relaxation er spennandi og áræðin bók sem kemur lesandanum á óvart. Í bígerð er kvikmynd byggð á bókinni. The closure of Þorvaldur with this traumatic event is sincere and hits home in a poetry book that is unsurpassed in the treatment of material and is a good addition to the poetry lovers reading list.

FOREIGN BOOKS

Dr. Bird’s Advice for Sad Poets, Evan Roskos Dr. Bird’s Advice for Sad Poets first came out in 2013 and went unrecognized. The book is classified as young adult literature but, as it often happens with good childrens and young adult books, it sits well with an adult reader. The book focuses on a young man who imagines he has a psychologist, whom he talks to about the challenges of the day. The imagined psychologist is a dove the size of a human, which provides the boy, James, empathy and understanding. If readers read and liked The Perks of Being a Wallflower, Dr. Bird’s Advice for Sad Poets will surely appeal to them. A film based on the book came out in 2021 and received positive feedback.

My Year of Rest and Relaxation, Ottessa Moshfegh The novel My Year of Rest and Relaxation by the American author Ottessa Moshfegh came out in 2018 and attracted considerable attention, because it was both bold and innovative. The book recalls the attempts of a young woman to escape the lesions of the world by lying in a year-long hibernation. The year is 2000, the place – New York City: the heroine of the book is a beautiful and successful young woman who works in an art gallery, lives on the inheritance of her parents alone in a luxury apartment on The Upper East Side in Manhattan. What could possibly go wrong? My Year of Rest and Relaxation is an exciting and daring book that surprises the reader. A film based on the book is in the works.

This article is from: