Golf á Íslandi - 1. tbl. 2020

Page 28

Konur á Íslandi

spila oftar golf en karlar Konur sem eru félagar í golfklúbbi á Íslandi spila oftar golf en karlar sem eru einnig félagsmenn í golfklúbbi. Þetta er ein af fjölmörgum áhugaverðum niðurstöðum úr þjónustukönnun Gallup sem birt var á golfþingi GSÍ í nóvember sl. Markmið rannsóknarinnar var að skoða viðhorf kylfinga til ýmissa þátta er varða golfiðkun og þróun þar á. Nær helmingur kvenna (49%) spilar þrisvar í viku eða ­oftar, sambærilegt hlutfall meðal karla er 41%. Á móti kemur að karlar eru mun líklegri en konur til að spila 18 holu hring. Konur fara þá frekar 9 holur. Um var að ræða netkönnun sem gerð var á tímabilinu 26. september – 13. nóvember 2019. Úrtakið var unnið úr félagaskrá, alls 5.746.

28

golf.is // Konur á Íslandi spila oftar golf en karlar


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.