1 minute read

Skrúðgarðyrkja

STAFSMENNTNÁM

HEFUR ÞÚ ÁHUGA Á FEGRUN UMHVERFIS, HÖNNUN OG VERKÞEKKINGU VIÐ GERÐ GRÆNNA OG GRÁRRA SVÆÐA?

Skrúðgarðyrkjufræðingar annast m.a. nýframkvæmdir við gerð garða og útisvæða – leggja hellur, hlaða veggi og planta út trjám svo dæmi séu tekin. Þeir sjá líka um viðhald eins og trjá- og runnaklippingar, illgresiseyðingu, slátt, mosatætingu, úðun, áburðargjöf og margt fleira. Sérhæfing er umtalsverð. Sum fyrirtæki eru nær eingöngu í nýframkvæmdum en önnur helga sig viðhaldi garða og stórra opinna svæða. Skrúðgarðyrkja er lögfest iðngrein og stunda nemendur samningsbundið iðnnám hjá viðurkenndum skrúðgarðyrkjumeistara með bóklegu námi. Náminu lýkur með sveinsprófi sem síðar gefur möguleika á meistaranámi í skrúðgarðyrkju.

ÁHERSLUR Í NÁMI

Í skrúðgarðyrkjunámi er kennt allt er viðkemur nýbyggingu, viðhaldi og endurgerð lóða af ýmsum stærðum og gerðum, hvort sem það er einkagarðurinn eða stór opin svæði. Skrúðgarðyrkjunemar læra auk þess öll helstu undirstöðufög garðyrkjunnar eins og grasafræði, jarðvegsfræði, plöntulífeðlisfræði, plöntuvernd, rekstrar- og markaðsfræði og plöntuþekkingu á trjám, runnum og garðblómum.

UPPBYGGING NÁMS

Námið skiptist í tveggja ára bóklegt staðarnám sem kennt er á Reykjum í Ölfusi og 60 vikna verknám undir handleiðslu skrúðgarðyrkjumeistara.

AÐ LOKNU NÁMI

Skrúðgarðyrkjufræðingar hafa allnokkra atvinnumöguleika, m.a. hjá skrúðgarðyrkjufyrirtækjum, sveitafélögum eða garðyrkjudeildum stærri stofnana ýmist sem almennir starfsmenn eða verkstjórar. Margir fara út í sjálfstæðan rekstur eða vinna sem verktakar hjá stærri fyrirtækjum.

FRAMHALDSNÁM

Að loknu sveinsprófi er hægt að skrá sig í Meistaraskólann en það nám tekur að jafnaði þrjár til fjórar annir. Skrúðgarðyrkjubrautin er góður undirbúningur ef fólk vill hefja háskólanám eins og t.d. í landslagsarkitektúr. Skrúðgarðyrkjufræðingum stendur einnig margvíslegt nám til boða í nágrannalöndum okkar og sækja það flestir til Danmerkur eða Svíþjóðar.

„Ég kláraði skrúðgarðyrkjuna 2018 og stefni á að ljúka meistaraskólanum í vor. Eftir námið stofnað mitt eigið fyrirtæki, Torfkofann, en þar tek ég að mér hönnun og uppbyggingu lóða og garða ásamt trjáklippingum, gróðursetingu og þökulögn.“ Kristín Snorradóttir.

Námsstig: Starfsmenntanám á framhaldsskólastigi. Námslengd 2 ár 120 Fein + 60 vikna verknám 100 Fein. Fagdeild: Skipulag & Hönnun. Starfsstöð Reykir í Ölfusi.

This article is from: