1 minute read
Ávarp formanns
Þór Þorsteinsson, formaður Slysavarnafélagsins Landsbjargar
Kæru félagar
Það má segja að í grunninn hafi Slysavarnafélagið Landsbjörg og félagseiningar þess ávallt staðið frammi fyrir þrennskonar áskorunum. Ein er sú að byggja upp og viðhalda faglegu starfi, önnur sú að hlúa sem best að félagslega hlutanum og sú þriðja að tryggja fjárhagslegan grundvöll starfsins. Allir þessir þættir eru okkur mikilvægir og forsenda þess að við getum staðið undir þeirri ábyrgð sem á herðum okkar hvílir.
Árið 2020 verður sennilega lengi í minnum haft enda er óhætt að segja að hrikt hafi í öllum þessum þremur stoðum starfs okkar sökum heimsfaraldurs inflúensu sem barst til landsins snemma á árinu.
Þó svo að einingar félagsins séu skrifaðar inn í viðbragðsáætlanir vegna heimsfaraldurs reyndi blessunarlega ekki mikið á þá þætti enda nóg samt sem takast þurfti á við. Faglega áskorunin var án efa sú að vera áfram til taks og ná að sinna okkar hefðbundnari verkefnum af sama krafti og áður. Fólkið okkar sýndi af sér frábæra blöndu af frumkvæði og samvinnu þar sem einingar lærðu hver af annarri og voru duglegar að miðla af reynslu sinni.
Félagslega áskorunin sem einingar þurftu að takast á við var sú að halda uppi félagsstarfi og þjálfun og enn og aftur sýndi samtakamáttur félagsins sig í verki. Ómögulegt reyndist að halda þessu mikilvæga starfi gangandi af fullum krafti en félagið reyndi eftir megni að leggja sín lóð á vogaskálarnar og við getum öll verið stolt af viðbragði björgunarskólans og á hvaða hátt hann náði að bregðast við nýjum veruleika og að laga sig að nýju umhverfi.
Fjárhagslegt öryggi félagsins og eininga þess hefur einnig orðið fyrir áhrifum af breyttu landslagi. Rótgróin fjáröflunarverkefni hafa látið undan og hefur félagið þurft að bregðast við breyttum veruleika með skömmum fyrirvara. Með samheldinni stjórn og öflugu starfsfólki tókst okkur að bregðast við í tíma og tryggja að fjárhagslegur skaði varð minni en ella.
Framtíð félagsins er björt og svo lengi sem við berum gæfu til að huga að þeim þremur gildum sem áður hafa verið nefnd; félagslega, faglega og fjárhagslega þættinum, eru okkur allir vegir færir og hvorki snjóflóð né aurflóð geta sett stein í götu okkar.