2 minute read
Háskólaræktin og Háfit
from Akademían
HÁSKÓLARÆKTIN OG HÁFIT THE UNIVERSITY FITNESS CENTER
Eftir langan dag á lesstofunni er fátt betra en að kíkja við í Háskólaræktinni og koma blóðinu á hreyfingu. Íþróttahús HÍ við Sæmundargötu er opið öllum stúdentum og starfsfólki gegn vægu gjaldi. Árskort veitir aðgang að skipulögðum tímum í sal, aðstöðu í tækjasal og notalegri sánu í kjallaranum. Þá stendur hópum til boða að leigja íþróttasalinn. Stunda skrá Háskólaræktarinnar fyrir haust og vormisseri má nálgast á heimasíðu HÍ. Auk þess geta nemendur keypt áskrift að Háfit, faglegri fjarþjálfun sem hönnuð er með þarfir stúdenta nútímans í huga. Æfingaáætlanir gera ráð fyrir því að æfingar spanni tíma á bilinu 2040 mínútur og næringaráætlanir gera ráð fyrir ódýrum mat sem einfalt er að útbúa. Háfit er er eingöngu í boði fyrir stúdenta og starfsfólk við Háskóla Íslands. Hægt er að kaupa áskrift á vefsíðunni: hafit.is.
Advertisement
Sumarið 2019 var unnið að framkvæmdum í tækjasal íþróttahússins og Háskólaræktin fékk ellefu glæný tæki og býður nú upp á endurnýjað teygjusvæði og jógasal. Árskort í Háskólaræktina eru seld á þjónustuborðinu á Háskólatorgi. After a long day of studying, there’s nothing better than stopping by the gym to get your blood pumping. The University of Iceland’s fitness center on Sæmundargata is open to all students and staff for a modest fee. An annual pass grants you access to the equipment room, regularly scheduled group classes, and the sauna in the basement. Groups can also rent out the gymnasium. The fitness center’s class schedule for both fall and spring semester is available on the university’s website.
As well as using the gym on it’s own students can purchase a subscription to Háfit, a professional online training program which is considerate of the modern student life. The program is designed so each session takes about 2040 minutes and nutrition plan regards for cheap meals that are simple to make. Háfit is only available for students and staff at the uni. Subscriptions can be bought on the website: hafit.is
The equipment room was updated in summer 2019 and now features 11 brandnew pieces of equipment, a revamped stretching area, and a yoga studio. Annual passes for the fitness center can be purchased at the Service Desk in the University Center.
OPNUNARTÍMI ÍÞRÓTTAHÚSSINS OG HÁFIT
Mánudaga fimmtudaga: 7:0022:00 Föstudaga: 7:0020:00 Laugardaga: 8:0018:00 Sunnudaga : Lokað
Íþróttahúsið er alla jafna lokað á hátíðisdögum, yfir jól og áramót og 6 vikur á miðju sumri.
VERÐSKRÁ
Árskort í Háskólaræktina: 10.000 kr. Árskort í Háfit háskólaþjálfun: 12.290 kr. Leiga á íþróttasal fyrir hópa (45 mín.): 2.500 kr. / 3.500 kr. Leigjendur greiða að lágmarki fyrir 10 tíma fyrirfram.
Umsjón með leigu á salnum hefur Birna Úlfarsdóttir: ithrottahus@hi.is. OPENING HOURS OF THE FITNESS CENTER AND HÁFIT OFFICE
MondayThursday: 7:00 am 10:00 pm Friday: 7:00 am 8 pm Saturday: 8:00 am 6:00 pm Sunday: Closed
The Fitness Center is closed on holidays, Christmas, New Year’s and for six weeks over the summer.
FEES
One-year pass for the fitness center: 10.000 kr. One-year pass for Háfit customized exercise and nutrition planning: 12.290 kr. Gymnasium rental for private group, 45-minute session: 2500 / 3500 krónur. Renters must pay for at least 10 sessions in advance.
The supervisor for renting the gymnasium is Birna Úlfarsdóttir: ithrottahus@hi.is.