![](https://assets.isu.pub/document-structure/221208222720-563664ee97a504d109a363a42b3e8aa1/v1/3588904d6ad9574e79521e5e743c2356.jpeg?width=720&quality=85%2C50)
4 minute read
Sniðgöngum Nestlé
Rán Birgisdóttir og Valgeir Bragi Þórarinsson
Okkur hefur reynst erfitt að sniðganga vörur frá Nestlé. Nestlé er jú stærsta matvælafyrirtæki í heimi, en einnig er það með krumlurnar sínar víðsvegar annars staðar á markaðnum. Sviti rennur niður ennið í lágvöruverslunum þegar maður rennir yfir risastóra Excel skjalið sem inniheldur öll undirfyrirtæki Nestlé, pírð augu mæta manni þegar spurt er út í sælgætisval einstaklings, fuss og svei heyrist þegar Quality Street molum er hafnað á jólunum. Af hverju leggjum við svona mikið á okkur til að sniðganga Nestlé? Vörur Nestlé eru fjölmargar og má finna á mörgum sviðum en t.d. má nefna súkkulaði og ýmiskonar annað nammi, barnamat, fæðubótarefni, morgunkorn, drykkjarvatn, mjólkurvörur, frosnar máltíðir og gæludýramat. Fyrirtækið hefur hlotið mikla gagnrýni fyrir ýmis mál sem flest tengjast mannréttindabrotum og arðráni auðlinda.
Advertisement
Súkkulaði og barnaþrælkun
Nestlé er ef til vill hvað þekktast hér á landi fyrir súkkulaðivörur á við KitKat, Nesquik og Quality Street. Ástæðan fyrir því að við byrjuðum bæði að sniðganga vörur frá Nestlé eru tengsl fyrirtækisins við barnaþrælkun í kakóiðnaðinum Kakóiðnaðurinn í heild sinni hefur lengi verið gagnrýndur fyrir að búa vinnufólki óásættanlegar vinnuaðstæður. Meðferð á börnum sem vinnuafli hefur þá sérstaklega verið gagnrýnd. Um það bil 1/3 af kakói í heiminum kemur frá Vestur-Afríku og samkvæmt skýrslu atvinnumálaráðuneytis Bandaríkjanna frá 2015 voru rúmlega 2 milljónir barna vinnandi við hættulegar aðstæður á kakóræktarsvæðum þar. Mörgum er beinlínis rænt og þau neydd til að vinna við uppskeru. Önnur eru tekin frá fjölskyldum sínum með loforðum um góða menntun og framtíðaratvinnutækifæri, jafnvel aðeins 12 til 15 ára gömul. Börnin vinna oftast við skelfilegar aðstæður. Þau sem náðst hefur að taka viðtöl við kvarta gjarnan yfir ýmsum verkjum og hungri. Árið 2019 tilkynnti Nestlé að fyrirtækið gæti ekki tryggt að framleiðsla súkkulaðivara þeirra væri laus við barnaþrælkun. Aðeins 49% af kakóinu frá Nestlé er rekjanlegt fyrir neytendur.
Vatn og veikindi
Eftir að við byrjuðum að sniðganga Nestlé vegna barnaþrælkunar í kakóiðnaðinum þá fórum við að kynna okkur starfsemi fyrirtækisins betur og komumst að því að starfsemi fyrirtækisins er vafasöm á mun fleiri sviðum. Þá sérstaklega í kringum sölu þeirra á vatni. Nestlé er stærsti vatnsflöskuframleiðandi í heimi, sem þýðir að hagsmunir fyrirtækisins eru að sem flestir kaupi vatn af þeim en hafi ekki ókeypis aðgengi að því. Það hefur gengið svo langt að fyrrum formaður fyrirtækisins, Peter Brabeck-Lethmathe, gagnrýndi þá hugmynd að allt fólk eigi rétt á hreinu vatni. Taldi hann það vera öfgafulla lausn (e. Extreme solution). Formaðurinn hefur tekið þau ummæli til baka, en einungis eftir mikla gagnrýni í fjölmiðlum. Starfsemi fyrirtækisins í vatnsmálum hefur hins vegar áfram endurspeglað þessa afturhaldssömu yfirlýsingu formannsins. Sem dæmi má nefna aðgerðir Nestlé í Bhati Dilwan þorpinu í Pakistan. Þar hefur fyrirtækið ofnýtt grunnvatn fyrir Pure Life™ vörumerkið og þorpsbúar hafa því ekki aðgang af hreinu vatni sem hefur gert það að verkum að fjöldi barna hefur veikst í þorpinu. Nestlé hefur neitað öllum ásökunum varðandi málið. Svipaðar aðstæður hafa myndast í borginni Flint í Bandaríkjunum, en þar var gríðarleg vatnskrísa þar sem íbúar höfðu ekki aðgang að hreinu vatni, á meðan Nestlé fyllti hundruð þúsundir vatnsflaska úr aðliggjandi lóni sem kostaði fyrirtækið aðeins 200 dollara. Loks má nefna að fyrirtækið hefur verið kært í fjölda skipta fyrir að fylla vatnsflöskur með kranavatni og ljúga um uppruna vatnsins, en sá gjörningur hefur þó ekki ógnað neinum mannslífum.
Þurrmjólk og ungbarnadauði
Nestlé hefur sætt gagnrýni fyrir markaðssetningu á ungbarnaþurrmjólk sem beindist sérstaklega að fátækum mæðrum í þróunarlöndum. Samkvæmt International Baby Food Action Network (IBFAN) notaðist fyrirtækið við aðferðir sem ekki geta talist siðferðislega í lagi. Þeir markhópar sem fyrirtækið reyndi helst að ná til höfðu ekki aðgang að hreinu vatni en þegar þurrmjólkinni er blandað við óhreint vatn er heilsu ungbarna ógnað. Leiðbeiningar sem fylgdu voru sjaldnast á móðurmáli mæðranna og gátu þær því fæstar kynnt sér hætturnar. Samkvæmt mati Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna (UNICEF) þá eru börn sem búa við slæmar hreinlætis aðstæður 6 til 25
sinnum líklegri til að deyja af völdum niðurgangs en niðurgangur er algengasta dánarorsök barna undir fimm ára aldri í heiminum í dag. Samkvæmt IBFAN dreifir fyrirtækið fríum sýnishornum á fæðingardeildum en vegna þess að notkun þurrmjólkur í stað brjóstamjólkur getur truflað mjólkurmyndun mæðranna verða fjölskyldur í raun oft háðar henni og neyðast til að halda áfram að kaupa þurrmjólkina. Nestlé neitar að fyrirtækið beri nokkra ábyrgð á þessu stóra vandamáli og segir að fólk eigi frekar að einbeita sér að bæta vatnsgæði á þessum svæðum frekar en að gagnrýna starfsemi fyrirtækisins. Fyrirtækið kom svo til með að nota þessa sömu nálgun til að ýta undir sölu á vatnsflösku-
Þegar við deilum með öðrum, til dæmis num sínum. á samfélagsmiðlunum, ósætti okkar við Nestlé mætir maður oft pirringi og furðu yfir því að maður nenni að standa í þessu. Fyrrum upplýsingar hafa vonandi gefið ágæta sýn í uppruna afstöðu okkar til Nestlé og ákvörðun okkar að sniðganga vörur sem koma fyrirtækinu við. Sniðgönguhreyfingin gegn Nestlé er gríðarlegt batterí sem hefur dreift vængjum sínum víðsvegar um heiminn.
Sérstök nefnd hefur meira að segja verið sett á fót, International Nestlé Boycott
Committee, sem vaktar starfsemi fyrirtækisins. Að lokum viljum við birta mynd sem sýnir hversu fjölbreytt vöruúrval Nestlé er í þeim tilgangi að gera grein fyrir því hversu víðamikið fyrirtækið er og sýna hvaða vörumerki maður ætti að hugsa sig tvisvar um áður en maður verslar.
© Nestlé