![](https://assets.isu.pub/document-structure/221208222720-563664ee97a504d109a363a42b3e8aa1/v1/ee9fa8011f2eaecfb4978221d449426d.jpeg?width=720&quality=85%2C50)
1 minute read
Annáll fráfarandi skemmtanastýru
Þórunn Soffía Snæhólm, fráfarandi skemmtanastýra Politica
Undanfarin námsár hefur Politica, nemendafélag stjórnmálafræðinema við Háskóla Íslands, gert sér glaða daga og heimsótt ýmis fyrirtæki í gegnum árin og var skólaárið 2019-2020 þar engin undantekning. Politica tók á móti fyrsta árs nemum með þvílíku teiti í Framsóknarhöllinni á Hverfisgötunni í lok ágúst þar sem nýir, jafnt sem eldri nemendur fengu tækifæri til að kynnast. Síðan var keppt í beer-pong og flip-a-cup, þvílíkt og annað eins!
Advertisement
Politica hóf skólaárið á vísindaferð til Viðreisnar, mikilmennin Þorgerður Katrín og Jón Steindór tóku vel á móti nemendum og ræddu um starfsemi Viðreisnar. Eftir frábæra vísindaferð hjá Viðreisn héldu nemendur af stað á Októberfest SHÍ þar sem var dansað fram á rauða nótt.
Hagstjórnardagurinn var haldinn með pompi og prakt 4. október, keppt var í ýmsum greinum, svo sem fótbolta, kubbi, körfubolta, brennó og reipitogi. Eftir langan dag af strangri íþróttaiðkun var blásið til heljarinnar veislu í veislusal Gróttu þar sem tilkynntir voru sigurvegarar Hagstjórnardagsins og voru það hagfræðinemar sem báru sigur úr bítum. Eftir Hagstjórnardaginn tóku við hrikalega skemmtilegar vísindaferðir. Politica heimsótti Utanríkisráðuneytið, NOVA, Sjálfstæðisflokkinn, Fastanefnd ESB og Framsóknarflokkinn svo eitthvað sé nefnt. Það er óhætt að segja að rúsínan í pylsuendanum hafi verið heimsókn Politica á Bessastaði í lok nóvember. Nemendur tóku sér góða pásu frá prófalestri, klæddu sig upp og gerðu sér ferð í forsetahöllina þar sem forseti vor, Guðni Th. Jóhannesson tók á móti nemendum ásamt frábæru starfsfólki og svaraði spurningum um starfsemi hans og komandi tíma.
Vorönnin 2020 var vægast sagt áhugaverð, án þess að fara mikið út í þá sálma þá féll niður meirihluti vísindaferða ásamt árshátíð, vegna kórónuveiru. Áður en heimsfaraldur skall á þá heimsótti Politica Íslenska erfðagreiningu, Pírata og breska sendiráðið.
Frávíkjandi stjórn Politica þakkar fyrir frábært skólaár 20192020 og óskar nemendum góðs gengis á komandi námsári. Við bjóðum nýja stjórn velkomna sem er búin að hnoða saman hrikalega dagskrá!
![](https://assets.isu.pub/document-structure/221208222720-563664ee97a504d109a363a42b3e8aa1/v1/a7318858c41d0ef0f457e6ef83412022.jpeg?width=720&quality=85%2C50)
![](https://assets.isu.pub/document-structure/221208222720-563664ee97a504d109a363a42b3e8aa1/v1/bac756395e9dbc0ad107295da6fae909.jpeg?width=720&quality=85%2C50)
![](https://assets.isu.pub/document-structure/221208222720-563664ee97a504d109a363a42b3e8aa1/v1/e8370912ab4fc30906d3851bb1bf6309.jpeg?width=720&quality=85%2C50)
![](https://assets.isu.pub/document-structure/221208222720-563664ee97a504d109a363a42b3e8aa1/v1/33e9b49c776ec398ed4c4a546c995374.jpeg?width=720&quality=85%2C50)
![](https://assets.isu.pub/document-structure/221208222720-563664ee97a504d109a363a42b3e8aa1/v1/92faf3cfd9cf77486afd52ed116f3fb8.jpeg?width=720&quality=85%2C50)
![](https://assets.isu.pub/document-structure/221208222720-563664ee97a504d109a363a42b3e8aa1/v1/b94116fb43811bdab9697fcd4b325396.jpeg?width=720&quality=85%2C50)
![](https://assets.isu.pub/document-structure/221208222720-563664ee97a504d109a363a42b3e8aa1/v1/64de030444ad89a5d5d28439fb534e43.jpeg?width=720&quality=85%2C50)