5 minute read

Annáll Félags læknanema

Félag Læknanema

Teitur Ari Theodórsson Formaður FL 2020–2021

Advertisement

Þrátt fyrir samkomutakmarkanir og COVID (borið fram Kovvid) hefur stjórn Félags læknanema (FL) beitt sér í mörgum málum í vetur og enn fleiri eru á döfinni. Þegar stjórnartíðin hófst var allt í blóma, veiran í lágmarki, sól og sumar. Fyrsta bakslagið gerði þó fljótlega vart við sig með annars konar veiru. Heimasíðu Félags læknanema var eytt og ekkert afrit til. Við vissum það ekki þá, en þetta verkefni átti eftir að verða illviðráðanlegra en margan hefði grunað. Blessunarlega er nú komin upp ný heimasíða þar sem læknanemar geta bæði skráð sig í vísindaferðir og búið til sitt eigið rafræna nemendaskírteini!

Í lok sumars kom skammstöfunin MSN ungu fólki aftur við (e. relevant), en nú í algjörlega nýrri merkingu sem Menntasjóður námsmanna. Ráðherra hvatti nema til lántöku hjá hinum nýja sjóði, en áfram gátu nemar tekið lán hjá Lánasjóði íslenskra námsmanna (LÍN). Talsvert ógagnsæi var að finna í lánakjörum sjóðanna tveggja. Brá FL því á það ráð að útbúa leiðbeiningar fyrir læknanema, með aðstoð Sigrúnar Jónsdóttur, sjötta árs læknanema, þar sem lánakjör sjóðanna voru borin saman. Vonum við að þær hafi gagnast sem flestum.

Blekið var vart þornað á nýju leiðbeiningunum þegar ný bylgja veirunnar skall á, sú þriðja í röðinni og við tóku harðar samkomutakmarkanir sem ílengdust fram á vor. Verknám læknanema á fjórða, fimmta og sjötta ári hélt áfram með minniháttar breytingum. Hins vegar voru læknanemar á fyrsta, öðru og þriðja ári ekki jafn heppnir og fór skólastarf að mestu leyti fram með rafrænum hætti.

Þriðja bylgjan hafði einnig áhrif á hagsmunamál læknanema. Aðalfundi Læknafélags Íslands (LÍ), þar sem leggja átti fram tillögu um hlutaaðild FL að LÍ, var frestað. Lokahönd var lögð á téða tillögu á haustdögum, þar sem stjórn FL lagði áherslu á að læknanemar nytu lagalegrar aðstoðar. Áleit FL hins vegar að kröfur um hin ýmsu fríðindi sem alla jafna fylgja aðild að LÍ, svo sem fæðingarstyrkur og aðgangur að sumarbústöðum félagsins, væru til þess fallnar að koma í veg fyrir inngöngu og fá þær því að bíða um sinn. Í aðdraganda aðalfundar skrifaði FL svo grein í Læknablaðið til þess að vekja athygli á stéttleysi læknanema. Stjórn FL bindur vonir við að á næsta aðalfundi hljóti læknanemar loks hlutaaðild að LÍ.

Talsverðrar óánægju gætti meðal læknanema um sumarráðningar síðasta árs. Strax í haust var ráðist í endurskipulagningu þessa ferlis í samráði við stjórn FL. Stjórnin sóttist eftir því að umsækjendur yrðu metnir á hlutlægan hátt og gengið yrði frá ráðningum fyrr. Einnig vildum við að val læknanema á hinum ýmsu sviðum Landspítala (þ.e. skurð, lyf, o.s.frv.) í umsókn ætti ekki að hafa áhrif á möguleika þeirra á atvinnu. Stefnt er að því að halda erindi á vegum FL fyrir næstu sumarráðningar, í samstarfi við Landspítala, til frekari upplýsingar um ferlið. Ljóst er að með fjölgun kandídata mun þörf fyrir læknanema í sumarafleysingum minnka. Hins vegar vonum við að nýir kjarasamningar, þar sem sumarleyfi sérnámslækna eru lengd, vegi þar upp á móti og tryggi áfram sumarafleysingar læknanema.

Að loknum skemmtanalausum áramótum tóku við bólusetningar heilbrigðisstarfsfólks. Mikil vinna fór í að tryggja að læknanemar myndu ekki falla milli skips og bryggju í bólusetningarröðinni. Fyrsti tölvupóstur til farsóttarnefndar LSH var sendur daginn áður en fyrstu Pfizer skammtarnir komu til landsins, svo ekki er hægt að saka stjórn FL um andvaraleysi! Mörgum tölvupóstum og símtölum síðar, við farsóttarnefnd, heilbrigðisvísindasvið, deildarforseta og Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, voru læknanemar á fjórða, fimmta og sjötta ári loksins boðaðir í bólusetningu á vormánuðum. Þeir fengu bóluefni P-fizer (borið fram „pé-fidser“), sem vakti mikla lukku, kátínu og létti á meðal læknanema.

Á jákvæðum nótum ber einnig að nefna að nú munu læknanemar útskrifast með lækningaleyfi. Sú staða blasti við lækna nemum í vor að þeir þyrftu að endurtaka kandídatsárið, eða ígildi þess, hyggðu þeir á sérnám á Norðurlöndunum. Reglugerðarhópur á vegum heilbrigðisráðuneytisins brást snöggt og örugglega við og nú er ljóst að núverandi nemar á sjötta ári, auk framtíðarlæknanema, munu útskrifast með fullgilt lækningaleyfi. Með þessum breytingum er betur tryggt að nýútskrifaðir læknar fái fyrsta ár sitt í starfi metið og þurfi ekki að endurtaka það í sérnámi sínu á Norðurlöndunum. Skilyrði þessarar breytingar var aukning á klínískri kennslu í Læknadeild. Breytingarnar voru unnar í góðu samráði við FL og endanleg niðurstaða var sú að til þess að auka við klíníska færni nemenda yrði valtímabilinu á sjötta ári breytt. Í stað tólf vikna valtímabils kæmu sex vikur í klínísku verknámi með handleiðara og tvær vikur í bráðalækningum þar sem áhersla er lögð á færni og hermimiðaða kennslu. Haldið er eftir fjórum vikum í val þar sem ríkari áhersla er lögð á klíník. Áfram verður þó hægt að fá þennan hluta valtímabils metinn eða nýta hann til rannsóknarstarfa.

Sjálfsmat Læknadeildar fór fram í vetur þar sem FL hafði sinn fulltrúa. Úr varð viðamikil 170 blaðsíðna skýrsla þar sem farið var gaumgæfilega yfir starfsemi deildarinnar og gerðar tillögur að úrbótum. Sett voru sérstök markmið sem eiga að vera framkvæmanleg á næstu fimm árum. FL beitti sér fyrir því að viðvera í klíník eða annarri kennslu færi ekki fram úr 40 tímum á viku, að annir yrðu styttar í samræmi við almanaksár háskólans og að fjórða árið yrði endurskipulagt, svo fátt eitt sé nefnt.

Stjórn FL hefur unnið að fleiri málum í vetur. Sem dæmi má nefna aðgengi læknanema að lyfjagagnagrunni Landlæknis, en samkvæmt landslögum í dag, eftir baráttu stjórnar, eiga læknanemar að hafa aðgang að gagnagrunninum. Strandar aðgengi læknanema nú á Landlæknisembættinu. Stjórn FL vonar að læknanemar fái aðgang fljótlega, en skýr tímalína er ekki fyrir hendi. Þá hefur stjórn FL tekið þátt í framleiðslu tveggja myndbanda, með hjálp læknanema á ýmsum árum. Annað þeirra fjallar um inntökuprófið en hitt er almenn kynning á læknisfræði. Bæði myndböndin verða aðgengileg á heimasíðu Læknadeildar von bráðar.

Ljóst er að þrátt fyrir heimsfaraldur og óvenjulegt skólaár hefur stjórn FL haft ýmislegt fyrir stafni. Ég er einstaklega stoltur af okkar starfi og vil þakka mínu samstarfsfólki í stjórn, þeim Sólveigu Bjarnadóttur, 6. árs læknanema, Kristínu Haraldsdóttur, 5. árs læknanema, Hjördísi Ástu Guðmundsdóttur, 4. árs læknanema, Daníel Pálssyni, 3. árs læknanema, Inga Péturssyni 2. árs læknanema og Kristjáni Guðmundssyni, 1. árs læknanema, fyrir skemmtilegt og árangursríkt ár. Það hefur verið frábært að fá að leiða þennan flotta hóp, auk þess er það mikill heiður að fá að gegna embætti formanns Félags læknanema. Nú vona ég að bólusetningar gangi hratt og vel fyrir sig og að við göngum galvösk, en jafnframt hægt, inn um gleðinnar dyr inn í sumarið!

This article is from: