2 minute read
Afríkuævintýri á tímum heimsfaraldurs
Herdís Hergeirsdóttir Sjötta árs læknanemi 2020–2021 Í fyrstu viku marsmánaðar 2020 var hinn árlegi marsfundur Alþjóðasamtaka læknanema, IFMSA, haldinn í Kígalí, höfuðborg Rúanda. Átta læknanemar af ólíkum námsárum voru fulltrúar íslenskra læknanema á fundinum; Freydís Halla Einarsdóttir, Guðrún Ólafsdóttir, Halla Kristjánsdóttir, Herdís Hergeirsdóttir, Héðinn Össur Böðvarsson, Hugrún Lilja Ragnarsdóttir, Ingi Pétursson og Stefán Már Jónsson. Nokkur óvissa ríkti í samfélaginu þegar ferðalagið hófst vegna frétta um að heimsfaraldur gæti verið yfirvofandi. Daginn eftir að fyrsta tilfelli COVID-19 greindist á Íslandi lagði hópurinn galvaskur í þetta ævintýri. Eftir langt og strangt ferðalag tóku ráðstefnuskipuleggjendur á móti íslenska hópnum í Kígalí í sól og blíðu.
Dagskrá aðalfundarins var þétt skipuð ýmsum fræðslufundum, vinnustofum og fyrirlestrum svo ekki sé talað um hina víðfrægu lagabreytingafundi sem jafnan stóðu langt fram eftir kvöldi. Á þessum viðburðum eru samankomnir læknanemar frá um 100 löndum sem er einstakt tækifæri til að skiptast á hugmyndum og læra hvert af öðru. Þessi vettvangur hefur verið uppspretta ýmissa frábærra verkefna íslenskra læknanema í gegnum tíðina, svo sem bangsaspítalans, stofnun Bjargráðs og svo lengi mætti telja. Íslenski hópurinn kynnti glæsilegt starf Ástráðs fyrir fundarmönnum við góðar undirtektir.
Advertisement
Þegar glufur mátti finna í dagskránni var ljúft að kæla sig niður í sundlauginni eða skella sér í tennis á ráðstefnusvæðinu. Þegar færi gafst var íslenski hópurinn duglegur að skoða nágrennið, hvort heldur sem var hina litríku götumarkaði Kígalí eða átakanleg ummerki um þjóðarmorðin í Rúanda 1994. Vikan var jafnframt uppfull af skemmtiviðburðum, veisluhöldum og fjöri svo jafnan var lítið sofið áður en dagskráin hófst snemma næsta morgun. Eftir að dagskrá aðalfundarins lauk bauðst fundarmönnum að fara í skoðunarferðir um sveitir Rúanda, „lands hinna þúsund hæða“. Hópurinn fór í magnaða safaríferð um Akagera þjóðgarðinn þar sem fylgst var með hinum ýmsu villtu dýrum sem þar er að finna. Einnig var fjölskrúðugt dýralíf Nyungwe regnskógarins skoðað. Á heimleiðinni átti hópurinn gott stopp milli fluga í Addis Ababa í Eþíópíu þar sem hópurinn gat borið augum hina einu sönnu Lúsí á þjóðarsafni Eþíópíumanna. Ferðinni var loks slúttað með ekta eþíópískri veislu með ljúffengum kræsingum og kaffismökkun. Blessunarlega náði veiran skæða ekki að stinga sér niður á meðal ferðalanga en magakveisa með öllu tilheyrandi setti vissulega strik í reikninginn. Sendi mínar bestu þakkir til æðislegra ferðafélaga fyrir ógleymanlega ferð, með öllum tilheyrandi skakkaföllum og óvæntum uppákomum.
IFMSA heldur tvo aðalfundi á hverju ári, í ágúst og í mars. Jafnframt fer fram aðalfundur Evrópuþjóðanna, EuRegMe, í apríl og ráðstefna norrænna læknanema, FINO, í nóvember. Ég vil hvetja læknanema af öllum námsárum til að nýta þessi frábæru tækifæri sem alþjóðasamstarf IFMSA býður upp á. Það er ekki krafa um að sinna störfum innan samstarfs- eða undirfélaga Félags læknanema til að taka þátt en þeir nemar eru jafnan í forgangi um sæti. Á þessum viðburðum gefst ómetanlegt tækifæri til að kynnast læknanemum frá öllum heimshornum, sanka að sér margvíslegri þekkingu sem nýtist í bæði leik og starfi, ferðast um framandi slóðir og eignast vini um allan heim.