2 minute read
Badmintonmót læknanema
Advertisement
Það var í mars 2021. Rúmt ár var frá því að samkomutakmarkanir voru settar á og allir voru bugaðir og brotnir eftir ítrekaðar bylgjur, félagslífsskort og óhóflega einveru. Læknanemar voru sérstaklega viðkvæmir um þetta leyti þar sem árshátíð Félags læknanema, uppáhalds viðburður okkar allra, hefði undir venjulegum kringumstæðum verið haldin á þessum tíma. En eins og annað var hún aðeins fjarlægur draumur og ekkert til að hugga sig við nema hlýjar og óljósar minningar. En þá gerðist nokkuð. Örsmá vonarglæta birtist á sjóndeildarhringnum, smitum fækkaði og takmarkanir rýmkuðu. Þá, öllum að óvörum, reis eins og fönix úr öskunni viðburður sem enginn sem þá stundaði nám við Læknadeild mundi lengur eftir; Badmintonmót læknanema. Prinsinn á hvíta hestinum, eða réttara sagt hvítu flugunni, kominn til að bjarga félagslífi læknanema. Eins og alþjóð veit eru læknanemar ekki bara klárir á bókina heldur líka klárir í slaginn og íþróttamenn upp til hópa. Því tók ekki langan tíma að fylla skráningu á mótið.
Laugardaginn 20. mars héldu 32 galvaskir læknanemar suður með sjó með spaða í hönd. Mótið var haldið í íþróttahúsi Akurskóla í Reykjanesbæ og var aðstaðan öll hin glæsilegasta. Keppt var í tvíliðaleik og, eins og þeir sem ekki hafa tapað allri stærðfræðikunnáttu eftir innritun í Læknadeild hafa nú þegar áttað sig á, voru 16 lið skráð til leiks. Eftir stutta upphitun hófst mótið en liðunum hafði verið skipt af handahófi í fjóra riðla. Þegar öll lið höfðu keppt innan síns riðils röðuðust þau í nýja riðla eftir því í hvaða sæti liðin lentu, þ.e.a.s. öll liðin sem lentu í fyrsta sæti lentu saman o.s.frv. Þá gat keppnin hafist fyrir alvöru. Ótrúlegt var að fylgjast með töktunum á mótinu og hefðu margir þarna vafalaust getað náð langt á þessu sviði hefði læknisfræðin ekki sett strik í reikninginn. Spaðinn var handleikinn af sömu einbeitingu og natni og saumaskæri í skurðaðgerð og flugan þaut á milli hraðar en læknanemi þegar hann fær sms um að það sé krufning eftir korter.
Eftir þrjár klukkustundir, 48 leiki, mikinn svita, töluvert orðaskak og lágmarks barsmíðar (bara eitt tilvik sem vitað er um og svo það sé tekið fram sló sá sig sjálfur í höfuðið með spaðanum) var mótinu lokið. Sigurvegarar riðlana voru leystir út með páskaeggjum af stærri gerðinni og en þeir sem ekki komust á pall fengu smærri egg í sárabót. Þeir sem unnu efsta styrkleikariðilinn, og þar af leiðandi mótið, voru þeir Teitur Ari Theodórsson og Jóhann Ragnarsson fimmta árs læknanemar. Þess ber að geta að Teitur hafði ákveðið forskot á mótherja sína þar sem hann spilaði á heimavelli enda alinn upp í Njarðvíkinni.
Badmintonmót læknanema 2021 var vel heppnaður viðburður í alla staði og er það klárt mál að hann verður aftur fasti í félagslífi læknanema, með fyrirvara um frekari faraldra.