4 minute read

Afglæpavæðing, skaðaminnkun og heilbrigðisþjónusta

Afglæpavæðing, skaðaminnkun og heilbrigðisþjónusta: Heilbrigðisþjónusta við jaðarsetta einstaklinga á Íslandi

Elísabet Herdísar Brynjarsdóttir Hjúkrunarfræðingur og fyrrverandi verkefnastýra Frú Ragnheiðar

Advertisement

Á Íslandi, þar sem allir hafa rétt á sömu heilbrigðisþjónustu, er þar með ekki sagt að allir hafi jafnt aðgengi að henni. Þröskuldarnir og hindranir geta verið af mörgum toga eftir félagslegri stöðu, en skortur er á innlendum rannsóknum varðandi þátttöku jaðarsettra hópa í heilbrigðiskerfinu. Það sem við vitum þó er að heimilisleysi hefur aukist síðustu ár á Íslandi ásamt neyslu vímuefna. Þeir einstaklingar sem eru heimilislausir og nota vímuefni, lögleg eða ólögleg, verða gjarnan jaðarsettir og mæta hindrunum þegar kemur að því að sækja sér heilbrigðisþjónustu. En hvað er þá til ráða?

Áður en lengra er haldið: Hversu stór er þessi vandi á Íslandi? Heimilislausum fjölgaði um rúmlega 95% í Reykjavík á fimm árum, frá 2012 til 2017, og stærsta aukningin var í ungum aldurshópum. Meðferðarstofnanir og aðrar þjónustur hafa áætlað að á hverjum tíma séu rúmlega 700 einstaklingar í virkri vímuefnanotkun um æð.

Frú Ragnheiður, skaðaminnkunarverkefni Rauða krossins, hefur verið á ferðinni í 12 ár. Árið 2020 leituðu til verkefnisins 596 einstaklingar í rúmlega 4.400 heimsóknum. Mikil aukning er á heimsóknum til verkefnisins, en þær hafa rúmlega fjórfaldast á fjórum árum. Verkefnið er rekið af sjálfboðaliðasamtökum og sjálfboðaliðar standa því vaktina, þar á meðal læknanemar. Heilbrigðisþjónusta sem er í boði í verkefninu er meðal annars umbúðaskipti á sárum, aðhlynning við minniháttar áverka, saumatökur, sálrænn stuðningur og áfallahjálp, skaðaminnkandi samtal, skimun fyrir lifrarbólgu C og sýklalyfjameðferð við húðsýkingum. Verkefnið var á sínum tíma stofnað sem nálaskiptaþjónusta út frá skaðaminnkandi hugmyndafræði, til að tryggja aðgengi að sprautubúnaði og hreinlætisaðstöðu fyrir einstaklinga sem nota vímuefni um æð og veita mannúðlega nálgun við virkum vímuefnavanda. Þörfin fyrir þjónustuna var mikil, ekkert annað sambærilegt úrræði var til á landinu, en sýnt hafði verið fram á mikilvægi slíkra verkefna erlendis fyrir þennan samfélagshóp. Rauði krossinn starfar meðal annars eftir þeirri nálgun að mæta þörfum jaðarsettra hópa í samfélaginu sem er ekki mætt annars staðar og gerir Frú Ragnheiður það. Aukin áhersla hefur verið á heilbrigðisþarfir notenda í Frú Ragnheiði vegna skorts á aðgengi að þjónustu og alvarleika heilbrigðisvandamála þeirra. Í gegnum nýlegan heimsfaraldur skertust réttindi þeirra og aðgengi enn frekar og því varð mikilvægi Frú Ragnheiðar enn meira í krefjandi og ófyrirséðum aðstæðum.

En hvernig getur það verið, ef allir eiga rétt á sömu heilbrigðisþjónustu? Undirrituð hefur nú starfað í þrjú ár faglega í verkefninu, en lengur sem sjálfboðaliði. Vandamálið er að það geta ekki allir nýtt sér sömu tegund heilbrigðisþjónustu, þó allir eigi rétt á henni. Það er erfitt að líta framhjá fordómum, mismunun, félagslegri stöðu og fátækt; hindrunum sem mæta fólki sem sækir sér þjónustuna. Aðrar hindranir koma einnig í veg fyrir nýtingu á þjónustu, hindranir á borð við langa biðtíma, úrræðaleysi, samgöngur og opnunartíma sem henta illa. Raunin er sú að það geta ekki allir nýtt sér þá þjónustu sem er í boði. Það er nær ómögulegt að nálgast einstakling og sjúkdóma eða einkenni hans, án þess að taka til greina allar þarfir hans og nálgast hann heildrænt. Þar á meðal þarf að taka inn í myndina hver afstaða heilbrigðisstarfsmannsins er gagnvart félagslegri stöðu viðkomandi, og hvort sú ómeðvitaða eða meðvitaða afstaða geti haft áhrif á þjónustuna sem einstaklingurinn fær, eða jafnvel, spyrja hvort ríkjandi afstaða gegn minnihlutahópum hafi áhrif á hvernig þjónustur eru þróaðar?

Heilbrigðismenntaðir sjálfboðaliðar í Frú Ragnheiði tóku sig til árið 2018 og fundu leið til þess að geta veitt sýklalyfjatöflumeðferð á vettvangi til notenda þjónustunnar. Tilgangurinn var að draga úr alvarlegum sýkingum, meðhöndla þær á byrjunarstigum og hlúa að sárum. Sjálfboðaliðarnir og undirrituð vildu einnig sjá hvort meðferðin myndi ganga betur ef stigið yrði út fyrir þann kassa að veita þjónustu innan stofnunar og koma fremur með hana til þeirra, jaðarsetta hópsins, í þeirra nærumhverfi og veita sérhæfða eftirfylgni.

Niðurstöður þessarar meðferðar tala fyrir sig sjálfar. Árið 2018 voru 40 sýklalyfjatöflumeðferðir hafnar í gegnum Frú Ragnheiði fyrir 26 einstaklinga, af þeim voru 37 meðferðir árangursríkar án aðkomu annarrar heilbrigðisþjónustu í meðferðarferlinu. Þetta eru 37 sýkingar sem hægt var að koma í veg fyrir að þróuðust yfir í

alvarlegri sýkingar, meðferðarheldnin var tryggð og lauk meðferðunum á árangursríkan máta og það sem var í raun ennþá betra, að mæta þörfum einstaklinga sem geta ekki sótt sér sömu þjónustu og aðrir, var valdeflandi fyrir þau og jók enn frekar á traust til verkefnisins.

Stærsta verkefni okkar framundan varðandi þjónustu við jaðarsetta hópa er án vafa í mínum augum afglæpavæðing og þær samfélagslegu breytingar sem fylgja henni fari frumvarp heilbrigðisráðherra í gegn. Markmið þess að afglæpavæða neysluskammta af ólöglegum fíkniefnum er að tryggja að þeir einstaklingar sem kljást við vímuefnavanda fái viðeigandi heilbrigðisþjónustu, en sé ekki refsað fyrir sinn vanda. Þá þarf heilbrigðiskerfið og starfsfólk þess að vera reiðubúið að taka á móti einstaklingum sem eru jaðarsettir og finna lausnir til þess að stuðla að reisn þeirra og velferð á mannúðlegan máta. Við verðum að breyta stefnum sem hafa ekki virkað hingað til og sett hópa út á jaðarinn, líta á tölurnar og finna lausnir. Það er mikilvægt á tímum þar sem ójöfnuður eykst og heimilisleysi Íslendinga líka, að tryggja aðgengi að velferðarlegum stuðningi og þá þarf oft að hugsa út fyrir kassann. Það er hægt að þjónusta hóp sem telst krefjandi á auðveldan máta, ef litið er til þarfa þeirra. Heimildir 1. Elín Sigríður Gunnsteinsdóttir.

Kortlagning á fjölda og högum utangarðsfólks í Reykjavík; skýrsla. Velferðarsvið

Reykjavíkurborgar, Reykjavík 2017. https://reykjavik.is / sites / default / files / svid_skjol / VEL / fjoldi_ utangardsfolks_2017.pdf2. 2. Rauði krossinn höfuðborgarsvæðinu.

Ársskýrsla Rauða krossins í Reykjavík, skýrsla. Rauði krossinn höfuðborgarsvæðinu, Reykjavík 2020. https://www. raudikrossinn.is/media/reykjavikurdeild/

Arsskyrsla_2020_RK_prent.pdf

„Stærsta verkefni okkar framundan varðandi þjónustu við jaðarsetta hópa er án vafa í mínum augum afglæpavæðing og þær samfélagslegu breytingar sem fylgja henni fari frumvarp heilbrigðisráðherra í gegn.“

This article is from: