Heilsublað Nettó - janúar 2021

Page 94

uppbygging

Heilsudrykkir

Ásdísar grasalæknis Heilsuvegferð mín hófst með Vitamixer blandara fyrir ansi mörgum árum og fram til dagsins í dag finnst mér fátt betra en að byrja daginn á bragðgóðum heilsudrykk sem gefur saðsama næringu og kröftuga orku inn í daginn. Að mínu mati eru heilsudrykkir einn af betri kostum þegar kemur að morgunmat því þeir gefa líkamanum færi á að hreinsa sig eftir nóttina, stuðla að jafnvægi blóðsykurs og létta á meltingunni. Heilsudrykkir eru fljótgerðir, stútfullir af næringarefnum, auðvelt að taka þá með sér og eitthvað sem allir geta gert. Með því að nota heilsudrykki reglulega nýtum við betur næringarefni og önnur virk efni sem eru nauðsynleg líkamanum til uppbyggingar og endurnýjunar. Það er líka mjög auðvelt að auka neyslu okkar á grænmeti, ávöxtum og annarri ofurhollri fæðu úr jurtaríkinu með því að skutla því út í heilsudrykkinn og stuðla þannig að meiri inntöku á andoxunarefnum og næringarefnum sem efla heilsuna okkar. Jafnvel einn grænn heilsudrykkur á dag er skref í rétta átt í að skapa sér góðar heilsuvenjur sem skila sér í bættri líðan. Vel nærður líkami er fullur af orku! Það er snjallt að eiga ákveðin grunn hráefni þegar við gerum heilsudrykki s.s. gæða próteinduft, fræ og hnetur, ofurfæðisduft, trefjar, frosin ber og ávexti, góða fitu/olíu, möndlumjólk, krydd, stevíu o.fl. Þið getið leikið ykkur að vild með hráefnin en ég mæli með að þið komið ykkur upp góðum hráefnum sem þið getið notað til að auka fjölbreytnina og næringuna í drykkjunum ykkar.

94

4 trix

að góðum heilsudrykk:

Prótein: Hreint próteinduft, hnetur, fræ, kollagen, hreint jógúrt Trefjar: Grænmeti, ávextir, chia fræ, hörfræ, acacia trefjar, psyllium husk Góð fita: Avókadó, kókósolía, hörfræolía, hnetu & möndlusmjör, hampfræ, MCT olía Grænt: Spínat, grænkál, hveitigrasduft, brokkolí, mynta, grænt næringaduft, spirulina duft Þessi samsetning á próteini, trefjum og góðri fitu heldur blóðsykri í jafnvægi, veitir stöðuga orku og slekkur á hungurhormónum og gefur okkur góða mettun til lengri tíma. Ég mæli með að bæta við ávöxtum eða grænmeti ef vill og nota vökva að eigin vali svo úr verði vel samsettur nærandi drykkur. Góð regla er að bæta regulega einhverju grænu út í drykkina til að auka magn trefja og plöntuefna. Ég nota lífræna sykurlausa möndlumjólk frá Isola í alla drykkina og stundum kókósmjólk eða kókósvatn. Fyrir þá sem vilja sæta og bragðbæta drykkina enn frekar má bæta við smá sætu ef vill s.s. lífrænu hunangi, vanilludufti eða stevíu.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.