11 minute read

Sókrates var fyrsti áhrifavaldurinn

Við erum almennt frekar týnd í lífinu. Sem betur fer er til fólk sem líta má upp til, sjá hve miklu betur því gengur og svo herma eftir því. Þetta getur verið hver sem er ef aðilinn heldur úti frábærri Instagram-síðu. Þetta fólk kallast áhrifavaldar. Við sem meðalmanneskjur höfum ekki áhrif á nema stöku hræðu í okkar nærumhverfi en svo er til fólk sem hefur híft upp um sig buxurnar og sinnir lífstíl áhrifavaldsins af einskærri fagmennsku. Til þessarar elítu má, meðal annarra, telja Patrek Jaime, Sunnevu Einars og Kardashian fjölskylduna en í fylgjendahópum þeirra má finna aragrúa alþýðulýðs úr öllum heimshornum. Maður nokkur sem mörg gleyma ef til vill, hvers áhrifavald var svo mikið meðal almennings að yfirvöldum stóð stuggur af, var Sókrates, fyrsti áhrifavaldurinn, sem var svo langt á undan sínum samtíma að hann var næstum því á morgun. Í samræðum Platóns birtist Sókrates okkur sem geðprúður sérvitringur. Það þýðir þó ekki að hann hafi ekki „beef-að“ við mann og annan. Í Gorgíasi segir Platón okkur frá rifrildi Sókratesar við hóp sófista¹. Fremstur þeirra var Pólos, nemandi Gorgíasar, en hann var á vissan hátt Kim K síns tíma. Sókrates var þá auðvitað Taylor Swift í þessu samhengi en á milli þeirra var gríðarmikið „beef“ þó báðir væru á ketó. Umfjöllunarefni þessa rifrildis var eðli ræðumennskunnar, hvort hún væri iðn eða kúnst, en það var einungis liður í löngum deilum Sókratesar og sófistanna. Síðari tíma fræðimenn og leikskáld (Aristófanes þeirra á meðal) töldu að Sókrates hefði sjálfur þegið laun fyrir fræðakennslu, þrátt fyrir að hann hefði reglulega gagnrýnt Sófistana fyrir það. Það væri þá náttúrulega ekkert nema hræsni, sambærileg því að áhrifavaldur nútímans auglýsti „sponsoreraðar“ vörur en upplýsti ekki um það. Sjálfur mælti Sókrates gegn duldum auglýsingum í Lakesi þar sem hann færði rök gegn því að herþjónusta yrði gerð að hluta framhaldsnáms. Andmælendur hans voru herforingjarnir Níkías og Lakes auk annarra. Sókrates staðsetur sig þar skýrt sem miðstóran áhrifavald, þ.e. hann hefur ekki sama áhrifavald og stórfyrirtæki á borð við Marvel Studios (sem hefur starfað náið með bandaríska hernum síðustu áratugi) en hann er vissulega á þeim stað að hann getur andmælt hernaðaryfirvöldum fullum hálsi. Svo fór þó að Sókrates var tekinn af lífi fyrir að andmæla herforingjastjórn hinna 30 einráða og lýðræðisstjórninni sem fylgdi og má bera það saman við hvernig John Cena var eitt sinn neyddur til að birta langa afsökunarbeiðni til kínversku þjóðarinnar eftir að hann ýjaði að því að Taívan væri sjálfstætt ríki. Einn þessara 30 einráða var Krítías sem er einmitt viðmælandi Sókratesar í samnefndu verki. Í Krítíasi rekur Platón söguna af tilurð, viðgangi og endalokum hinnar goðasagnakenndu borgar Atlantis. Sú saga er önnur útgáfa af hamfaraflóðssögunni sem rekin er í Biblíunni, Þeógóníu Hesíódosar og fleiri ritum en orsökin er alltaf sú sama: spilling mannkyns. Þetta er auðvitað ekkert annað en þegar áhrifavaldar tala fyrir heilbrigðari lífsstíl, náttúruvernd og því að vera góður við dýrin. Sókrates var í raun það sem væri nú til dags kallað lífsstílsgúrú. Hann var hlynntur ákveðnum lífsstíl og líkt og margar TikTokstjörnur var hann óhræddur við að dreifa hugmyndum sínum. Hann trúði á alheimsbylgjurnar sem ráða lífi okkar allra, líkt og stjörnuspekingar nútímans, og má segja að birtingarmynd þessa sé helst í Lýsis þar sem hann færir rök fyrir því að tveir menn geti einungis verið vinir, séu sálir þeirra sambærilegar. Samstarf tveggja áhrifavalda geti sömuleiðis aðeins borið árangur ef báðir hafa lík vörumerki, líkt og áhrifavaldasamstarfið Áttan. Sömuleiðis sagði hann að við mannkynið værum bara mismunandi, ófullkomnar birtingarmyndir hinnar fullkomnu frummyndar mannsins². Sálin sé millivegur þessara tveggja forma en líkaminn geymsluhólkur sem líkja má Um Sókrates

About Socrates

Advertisement

Sókrates (Σωκράτης) (sirka 470-399 f.Kr.) var aþenskur heimspekingur. Hann er jafnan álitinn faðir vestrænnar heimspeki og fyrsti siðfræðingurinn. Sjálfur skrifaði hann engin verk sem varðveist hafa og öll okkar þekking á hugmyndum hans kemur frá lærisveinum hans, Platón og Xenófon. Þessi verk eru sett fram sem samræður (διάλογος, dialogos) sem bera jafnan nöfn viðmælenda Sókratesar, og áhrifa þeirrar framsetningar gætti langt fram á aldir eins og sjá má til dæmis í Eddu Snorra Sturlusonar. Árið 399 f.Kr. var hann dæmdur fyrir að spilla æskulýðnum og hafna ríkjandi trúarhugmyndum. Hann var dæmdur til dauða og þrátt fyrir tilraunir náinna vina neitaði hann að flýja. Svo fór að hann drakk óðjurtareitur og lést í haldi yfirvalda, þá 71 árs að aldri. Socrates (Σωκράτης) (circa 470-399 BC) was an Athenian philosopher. He is traditionally considered the father of Western philosophy and the first ethicist. He didn’t write any works himself that were preserved, so all our knowledge about his ideas comes from his disciples, Plato and Xenophon. These works are presented in the form of dialogues (διάλογος, dialogos) that traditionally carry the names of Socrates’ interlocutors. The influence of this form can be traced for centuries, as can be seen, for example, in Edda by Snorri Sturluson. In 399 BC, he was sentenced for corrupting the youth and rejecting dominant religious ideas. He was sentenced to death and, despite the attempts of close friends, refused to escape the punishment. So, he drank hemlock poison and died in the custody of authorities at 71 years of age.

We are pretty lost in life. Fortunately, we have people whom we can look up to, see how much better they are and mimic their behavior. This could be anyone as long as the person maintains an Instagram page. These people are called influencers. We, the average folks, don’t influence anyone except for a handful of people in our micro-environment, but there are people who got their act together and pursued the lifestyle of the influencer with sheer professionalism. To this elite belong Patrek Jaime, Sunneva Einars and the Kardashian family. Among their followers one may find a myriad of common people from all over the world. However, many forget that there was once a man called Socrates, whose influence among the public was so great the authorities were frightened by it. He was the first influencer, so far ahead of his contemporaries, he was almost living in tomorrow.

In the dialogues of Plato, Socrates appears as a laid-back eccentric. But it does not mean that he did not have “beef” with other people. In Gorgias, Plato tells a tale about Socrates’ argument with a group of sophists.¹ Their leader was Polus, a student of Gorgias, who was in a way the Kim K of his time. Socrates was, of course, Taylor Swift in this context, the “beef” between them was massive, though they were both on keto. The topic of this argument was the nature of rhetoric; whether it should be a craft or an art. It was the sole topic in long disputes between Socrates and sophists. Later scholars and playwrights (Aristophanes among them) suspected that Socrates himself had accepted payments for his teaching, even though he had constantly criticized sophists for that. Then it would be nothing but hypocrisy, comparable to modern influencers advertising “sponsored” products without a full disclosure.

Socrates spoke against hidden advertisements in Laches, in which he argued against military service as a part of education. His opponents were the generals Nicias and Laches, as well as others. Socrates was clearly a mid-level influencer, i.e. he was not as big as corporations such as Marvel Studios (who have worked closely with the American military over the past few decades), but he was certainly at the point where he could stridently object to the military authorities. Despite that he was executed for opposing the government of Thirty Tyrants and the democratic government after them, which can be compared to John Cena who was once compelled to publish a lengthy apology to the people of China after he alluded that Taiwan was an independent state.

við ryðgaðan gám. Fyrir Sókratesi var þó ekki hugsanlegt að leyfa líkamanum að grotna niður heldur skyldi rækta dauðlegan líkamann og eilífa sálina til jafns. Um það má finna fjölda dæma:

Í Karmídesi talar Sókrates um sjálfstjórn (σωφροσύνη, sofrosyne) sem er á margan hátt sambærileg sjálfstjórninni sem er nauðsynleg á ketó. Fátt var Sókratesi mikilvægara en núvitund, eins og kemur skýrt fram í Þeætetosi þar sem Sókrates veltir fyrir sér þekkingu og skynjun. Í þessu samhengi má nefna að hann lætur það sig varða hvernig hugmyndum hans er tekið (brandið skiptir öllu máli) og að rökfærslu þurfi að fylgja stuðningur (pic or it didn’t happen). Hann var að auki talsmaður mínímalísks lífstíls eins og vel sést í Fílebusi. Þar er hann greinilega orðinn eldri og farinn að minnka við sig eins og Pewdiepie.

Áhrifa Sókratesar gætti mjög á hans eigin tíma. Í Menóni færir Sókrates rök fyrir því að viskan sé meðfædd en það gerir hann með því að beita ræðumennskubragði sem jafnan er kallað sókratíska aðferðin eða hnekking (ἔλεγχος, elenkos). Hún felst í því að leiða andstæðinginn í rökleysu þar sem eina leiðin út er að viðurkenna gildi raka andstæðingsins. Þessari aðferð er enn beitt af stjórnmálafólki, viðskiptafólki og öðrum áhrifavöldum en hvað kallar maður áhrifavald sem hafði áhrif á alla áhrifavalda sem á eftir komu? Jú, fyrsta áhrifavaldinn. Öll gerum við mistök, en þegar áhrifavaldar gera mistök hafa öll og amma þeirra skoðanir á því og áhrifavaldurinn þarf að koma með afsökun. Þegar Sókrates var dæmdur fyrir guðlast og spillingu á aþenskum ungmennum flutti hann ræðu sér til varnar. Sú ræða, sem hlotið hefur hið mjög svo viðeigandi nafn Varnarræða Sókratesar, er mjög svo sambærileg afsökunarbeiðnum sem YouTube-arar nútímans senda reglulega frá sér, s.s. Logan Paul eftir að hann birti myndband af sér í spássitúr í japönskum skógi fullum af líkum eða Pewdiepie eftir að hann greiddi indverskum skemmtikrafti fimm dollara fyrir að endurtaka orðflutning nasista um fjöldamorð gegn gyðingum. En líkt og margir áhrifavaldar nútímans baðst Sókrates ekki afsökunar heldur hélt hann því fram að hann ætti þakkir skilið fyrir þjónustu sína við samfélagið og að hann hefði ekki gert neitt rangt.

One of Thirty Tyrants was Critias who was an addressee of Socrates in the same-titled work. In Critias, Plato recalls a story of the origin, development, and demise of the mythical city of Atlantis. The story is another version of the Great Flood as described in the Bible, Theogony by Hesiod, and more writings, but the cause is always the same: the corruption of mankind. This is pretty similar to when influencers advocate for a healthier lifestyle, nature protection and the kind treatment of animals.

Socrates was, in fact, someone who in our day would be called a lifestyle guru. He favored a certain lifestyle, and like many TikTok stars, was not afraid to spread his ideas. Like the astrologers of the modern world, he believed in the principle of universal connection and development that dominates the lives of all of us. The manifestation of that can be found in Lysis where he argues that two persons can only be friends if they are alike. The collaboration between two influencers can only be successful if both have the same brand, like the influencer collective Áttan. Likewise, he said that mankind was just different, imperfect manifestations of a perfect Idea of the human.² The soul is the middle ground of these two forms, but the body is just a storage capsule that resembles a rusted container. Socrates couldn’t imagine allowing the body to moulder, he encouraged an equal cultivation of a mortal body and an eternal soul. One will find a lot of examples:

In Charmides, Socrates speaks about self-control (σωφροσύνη, sophrosyne), which is in many ways comparable to the selfcontrol needed for a keto diet. Nothing was more important for Socrates than mindfulness, as was clearly stated in Theaetetus where he contemplates the nature of knowledge and perception. In this context it should be mentioned that he is concerned about how his ideas are perceived (the brand is all that matters), and whether his reasoning should be supported by something (pics or it didn’t happen). He was a spokesman for a minimalistic lifestyle as is well evidenced in Philebus. There he was obviously older and started to downsize like PewDiePie.

The influence of Socrates is perceptible during his lifetime. In Meno, Socrates argues that wisdom is congenital by implementing a rhetorical form that is traditionally called a Socratic method or refutation/elenchus (ἔλεγχος, elenkos). It consists of leading the interlocutor into the situation where one lacks arguments, so the only way out is to recognize the value of the opponent’s arguments. This method is still applied by politicians, businessmen and other influencers, but what does one call the influencer who influenced all subsequent influencers? Yes, the first influencer.

We all make mistakes, but when influencers make one, everyone and their grandma has an opinion about it, so the influencer needs to come up with an apology. When Socrates was condemned for blasphemy and corruption of the Athenian youth, he delivered a speech to protect himself. That speech, which carries a very appropriate name The Defense Speech of Socrates, resembles the apologies that YouTubers regularly post. Such as Logan Paul did after he uploaded a video of himself strolling in the Japanese forest full of dead bodies, or PewDiePie after he paid an Indian entertainer five dollars for repeating a Nazi speech about the Holocaust. But like many current influencers, Socrates didn’t really apologize but declared that he deserved a thank you for his services to society and that he didn’t do anything wrong.

Tilvísanir / Citations

This article is from: