8 minute read
Bókmenntahorn ritstjórnar
Líkt og alþjóð veit blómstrar bókaútgáfa hér á landi aldrei meira en vikurnar fyrir jól. Það er fátt íslenskara en að fá glænýja bók í jólagjöf og útgefnum titlum fjölgar ár hvert. Við í ritstjórninni erum gífurlega spennt fyrir bókunum sem eru að koma út fyrir þessi jól, auk þess sem við lumum á nokkrum góðum erlendum bókum sem við höfum lesið nýlega.
ÍSLENSKAR BÆKUR
Advertisement
Guð leitar að Salóme, Júlía Margrét Einarsdóttir Guð leitar að Salóme er nýjasta skáldsaga Júlíu Margrétar Einarsdóttur en hún sló eftirminnilega í gegn með sinni fyrstu, Drottningin á Júpíter. Hér segir frá ungri konu sem hefur týnt kettinum sínum og ákveður að setjast niður á Kringlukránni og skrifa bréf til horfinnar ástar. Júlía Margrét er þekkt fyrir lifandi frásagnarstíl og skrautlegar persónur en hér koma til dæmis við sögu spákona og drykkfelldur organisti, guðhræddar smásálir og framliðinn sjómaður. Í bréfum sínum afhjúpar Salóme í fyrsta sinn sjálfa sig, sína hryllilegu fortíð og fjölskylduharmleik í ljúfsárri frásögn. Bréfin skrifar hún eitt á dag fram að jólum, 23 samtals, og er bókin því fullkomin jólalesning!
Umframframleiðsla, Tómas Ævar Ólafsson Umframframleiðsla er fyrsta ljóðabók Tómasar Ævars Ólafssonar, sem hefur getið sér gott orð fyrir dagskrárgerð á Rás 1 og stundar meistaranám í ritlist við Háskóla Íslands. Frásögnin er næm og snertir á ýmsu, þar á meðal kvíða, óefni, minningum, úrvinnslu og þeim þyngdarbreytingum sem eiga sér stað í mannslíkamanum þegar við deyjum. Ljóðin eru djúp og innihalda fjölda áhugaverðra lýsinga sem kalla á annan lestur og frekari íhugun. Tómas er í hópi fjölmargra spennandi ungra höfunda sem gefa út verkin sín hjá Unu útgáfuhúsi, en það er eitt ferskasta og framsæknasta útgáfuforlag dagsins í dag, með sterka tengingu við grasrótina.
Úti, Ragnar Jónasson Ragnar Jónasson var fljótur að festa sig í sessi sem einn fremsti glæpasagnahöfundur Íslands. Hann hefur gefið út eina bók fyrir jólin síðustu 12 árin, og á því er enginn undantekning í ára. Nýjasta bók hans, Úti, er sálfræðitryllir um fjóra vini sem leita skjóls í litlum veiðikofa upp á heiði, en margt er hættulegra en blindbylur og vinirnir fjórir munu ekki allir lifa dvölina af. Við erum mjög spennt fyrir jólaglæpasögunum og Ragnar hefur svo sannarlega ekki valdið vonbrigðum síðustu ár.
Merking, Fríða Ísberg Orðið „loksins“ á sjaldan jafn vel við og núna þegar út er komin skáldsaga í fullri lengd eftir Fríðu Ísberg. Fríða hefur skotist upp á bókastjörnuhimininn undanfarin misseri með ljóðabókunum sínum, Slitförin og Leðurjakkaveður, og smásagnasafninu Kláða. Skáldsagan Merking fjallar um nokkrar aðalpersónur í atburðarás sem á sér stað í Reykjavík á sjötta áratug 21. aldarinnar, í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um merkingarskyldu. Merkingin gerir öðru fólki kleift að vita If you are not aware, book publishing in Iceland reaches its apex in the weeks before Christmas. Getting a new book for Christmas is a stable tradition in many Icelandic homes. We in the editorial staff are extremely excited about the new books coming out this Christmas and would like to recommend the following titles, both Icelandic and foreign, to our readers.
ICELANDIC LITERATURE
Guð leitar að Salóme, Júlía Margrét Einarsdóttir Guð leitar að Salóme is Júlía Margrét Einarsdóttir latest novel, but she made a memorable breakthrough in the Icelandic literary scene with her debut novel, Drottningin á Júpiter. Guð leitar að Salóme is a story about a young woman who has lost her cat and decides to sit down at Kringlukráin and write a letter to a long lost love. Júlía Margrét is known for her lovely storytelling and colourful characters, but in the book the cast of characters includes a fortune teller and a drunken organist. In a tender story, Salóme reveals herself through a series of letters that detail her horrible past and family tragedy. She writes one letter per day until Christmas, 23 in total, so the book is a perfect Christmas read!
Umframframleiðsla, Tómas Ævar Ólafsson Umframframleiðsla is the first book of poetry by Tómas Ævar Ólafsson. Tómas has a career as a program director at Rás 1 and is pursuing a master’s degree in Creative Writing at the University of Iceland. The narrative in the book is sensitive and touches upon various themes, including anxiety, memories, processing and the changes that take place in the human body when we die. The poems are deep and contain descriptions that call for another reading and further reflection. Tómas is one of the many exciting young authors who publish their work at Una útgáfuhús, which is one the freshest and most progressive publishing houses today, with a strong connection to the literary grassroots.
Úti, Ragnar Jónasson Ragnar Jónasson was quick to establish himself as one of Iceland’s foremost crime novelists. He has published one book for Christmas every year for the last 12 years, and this year is no exception. His latest book, Úti, is a psychological thriller about four friends who seek refuge in a small hunting lodge when they are caught by a storm in the Icelandic highlands. The friends find out that the blizzard is not the only thing they have to worry about and not all of them will survive their stay. We are love a good Christmas crime novel and Ragnar has certainly not disappointed his readers in recent years.
Merking, Fríða Ísberg Finally, the first novel by Fríða Ísberg has been published. Fríða is a rising star in Icelandic literary circles with her poetry books, Slitförin and Leðurjakkaveður, and the short story collection Kláði.
hvort þú hefur staðist hið svokallaða „samkenndarpróf“ og eigir erindi í samfélag hinna siðmenntuðu. Við erum miklir aðdáendur Fríðu Ísberg og getum ekki beðið eftir því að lesa skáldsögu eftir hana í fullri lengd!
ERLENDAR BÆKUR
Humankind: a Hopeful History, Rutger Bergman Bókin Humankind: A Hopeful History eftir Rutger Bergman kom út í fyrra en áður hafði bókin Utopia for Realists komið út þremur árum fyrr. Bergman fjallar að einhverju leyti um svipað efni og Yuval Noah Harari í bókum sínum Sapiens og Homo Deus nema hvað Bergman er nokkuð jákvæðari í hugsanahætti og skrifum. Í Humankind fer hann í gegnum sögu síðustu 200.000 þúsund ára, og gengur út frá því að fólk sé yfirleitt og yfirhöfuð gott. Mjög áhugaverð lesning og sérstaklega í skammdeginu þar sem hún kveikir á jákvæðu heilasellunum.
Það sem hangir um hálsinn, Chimamanda Ngozi Adichie Nígeríski metsöluhöfundurinn Chimamanda Ngozi Adichie hefur vakið athygli fyrir alþjóðlega kvenréttindabaráttu sína og er meðal dáðustu rithöfunda samtímans. Það sem hangir um hálsinn er marglaga smásagnasafn í þýðingu Janusar Christiansen sem Una útgáfuhús gefur út í bókaflokknum Sígild samtímaverk. Um er að ræða heillandi og tilfinninganæmar sögur um stöðu kvenna í karllægu samfélagi, sambönd foreldra og barna og þjóðfélagslegan óstöðugleika í Afríku. Hér er sögum um harðindi og ást á föðurlandinu fléttað saman þar sem Adichie kafar djúpt í vandamál nútímans.
Ilium, Dan Simmons Í Ilium eftir Dan Simmon er saga Trójustríðsins rekin á nýstárlegan hátt. Bókin svarar spurningum sem lesanda hefði aldrei dottið í hug að spyrja eins og til dæmis: „Hvað ef grísku guðirnir byggju á Mars í fjarlægri framtíð?”, „Hvað ef þeir notuðu tímaflakk til að fylgjast með Trójustríði á 12. öld f.Kr.?” og mikilvægast af öllu „Hvað ef internetið fengi mikilmennskubrjálæði?” Í bókinni fléttast saman forngrískar bókmenntir, leikrit Shakespeare og heimspekihugmyndir Proust. Skyldulesning fyrir lesendur í leit að krefjandi frásögn.
Sjálfsævisaga Alice B. Toklas, Gertrude Stein Sjálfsævisaga Alice B Toklas eftir Gertrude Stein í þýðingu Tinnu Bjarkar Ómarsdóttur er hluti af bókaflokknum Sígild samtímaverk sem kemur út hjá Unu útgáfuhúsi. Titillinn einn og sér gefur vel til kynna hvers vegna þessi bók er jafn frábær og hún er. Gertrude Stein ritar „sjálfsævisögu“ ástkonu sinnar Alice B. Toklas, þar sem Stein sjálf er raunverulegur miðpunktur sögunnar. Það er bæði áhugavert og skemmtilegt að lesa um lífið í París um aldamótin 1900, kynnast rithöfundum, málurum, málverkasölum og bóhemlífinu sem einkenndi þetta tímabil Evrópusögunnar. The novel follows a group of characters in Iceland in the fifties, in the run-up to referendum on the obligation to tag or mark certain individuals. The mark allows people to know if one has passed a so-called “compassion test” and is suited for a role in a civilized society. We are huge fans of Fríða Ísberg and cannot wait to read her first full-length novel!
FOREIGN LITERATURE
Humankind: a Hopeful History, Rutger Bergman The book Humankind: A Hopeful History by Rutger Bergman was published last year. Bergman had written Utopia for Realists, which was released three years earlier. In Humankind Bergman touches upon similar subjects that can be found in Yuval Noah Harari’s books Sapiens and Homo Deus. However, Bergman is more positive towards humankind in his way of thinking and writing. Humankind goes through the last 200.000 years of human history, and assumes the position that people are generally kind and good people. A very interesting read, especially in the short days of winter because the book is a spark of bright hope and positivity.
The Thing Around Your Neck, Chimamanda Ngozi Adichie Nigerian bestselling author Chimamanda Ngozi Adichie has attracted attention for her advocacy for international women’s rights and is one of the most beloved writers in our time. The Thing Around Your Neck is a multifaceted collection of short stories and in it, the reader will find fascinating and emotional stories about the position of women in a patriarchal society, parent-child relationships, and the social instability in Africa. The stories of hardship and love of one’s homeland are intertwined as Adichie delves deep into the issues that plague today’s society.
Ilium, Dan Simmons In Dan Simmons’ Ilium, the story of the Trojan War is told in an innovative way. The book answers questions that the reader would never have thought to ask, such as: “What if the Greek gods relied on Mars in the distant future?”, “What if they used time travel to observe the Trojan War in the 12th century BC?” and most importantly “What if the internet got mad?” The book combines ancient Greek literature, Shakespeare's plays, and Proust's philosophical ideas. Compulsory reading for readers in search of a challenging narrative.
The Autobiography of Alice B. Toklas, Gertrude Stein The Autobiography of Alice B. Toklas by Gertrude Stein, is a part of the book series Classic Contemporary Works, published by Una útgáfuhús. The title alone gives a good indication why this book is as great as it is. Gertrude Stein writes the “autobiography” of her mistress, Alice B. Toklas, where Stein herself is the center of the story. It is both fun and interesting to read about life in Paris at the turn of the 20th century and to get to know writers, painters, and other artists who were active in the bohemian art movement that characterized that era in European history.