Heilsublað Nettó - September 2020

Page 98

lípóxygenasa og cýklóoxygenasa, en bæði þessi ensím eru þekktir bólguhvatar í líkamanum. Boswellia getur því mögulega reynst gagnlegt náttúrefni til þess að draga úr bólguvirkni. Engifer Engifer er algeng kryddjurt og lækningajurt sem er notuð víða um heim og á sér langa sögu vegna heilsueflandi áhrifa. Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á þessari merku jurt og eru heilsufarsleg áhrif engifers vel þekkt. Jurtaþykkni úr engiferrótinni inniheldur virk efni sem nefnast gingerols sem hafa sýnt sig í rannsóknum að hafi bólgueyðandi áhrif með því að hamla framleiðslu á bólguhvetjandi efnum í líkamanum s.s. prostaglandína og cýtókína. Engifer virðist þannig geta dregið úr bólguvirkni og hefur verið notað gegn liðagigt og bólgum í stoðkerfinu. Astaxanthin Astaxanthin tilheyrir flokki náttúruefna sem nefnast karótenóíð en astaxanthin er aðallega unnið úr smáþörungum. Astaxanthin er kröftugt andoxunarefni og gegna andoxunarefni mikilvægu hlutverki í að verja frumur gegn skemmdum af völdum oxunarálags, en það er talið vera einn orsakaþáttur öldrunar og margra sjúkdóma. Astaxanthin virðist hafa bólgueyðandi áhrif með því að koma í veg fyrir framleiðslu á bólguhvetjandi efnum s.s. cýklóoxygenasa ensími. Vegna sterkrar andoxunarvirkni og bólgueyðandi áhrifa er astaxanthin talið gagnlegt gegn bólgum í húð s.s. exemi og ótímabærri öldrun. Curcufresh Curcufresh er unnið úr ferskri turmerikrót í sínu náttúrulega formi. Turmerik er krydd og lækningajurt sem hefur verið notað á Indlandi

í þúsundir ára. Turmerik hefur verið rannsakað mikið síðustu ár og flest allar rannsóknir hafa verið gerðar á virka efninu curcumin, sem er kröftugt náttúruefni með mikla virkni. Curcumin virðist hafa sterk bólgueyðandi áhrif með því að hamla framleiðslu á bólguhvetjandi efnum s.s. NF-kB, TNF-alpha og IL-1. Curcumin hefur einnig sterka andoxunarvirkni og bæði virkjar framleiðslu á mikilvægum andoxunarensímum í líkamanum ásamt því að hlutleysa skaðleg sindurefni sem geta valdið frumuskemmdum. Rannsóknir sýna að turmerik rótin getur talist gagnleg gegn ýmsum bólgusjúkdómum vegna andoxunarvirkni og bólgueyðandi áhrifa. Omega 3 Það eru fá næringarefni sem hafa verið jafn mikið rannsökuð og fjölómettaðar Omega 3 fitusýrur og fjöldi rannsókna sýna fram á gagnsemi þeirra í meðferð langvinnra bólgusjúkdóma s.s. liðagigtar og astma- og bólgusjúkdóma í þörmum. Omega 3 fitusýrur hafa bólgu- og ónæmishemjandi áhrif og virðast hafa bælandi áhrif á marga bólgusjúkdóma samkvæmt rannsóknum. Einnig hefur verið sýnt fram á að inntaka á Omega 3 fitusýrum minnki fjölda bólginna og aumra liða og dragi úr morgunstirðleika hjá fólki með liðagigt. Omega 3 fitusýrur geta minnkað framleiðslu á bólguhvetjandi efnum s.s. eikósanóíðum og cýtókínum og sýna rannsóknir fram á tengsl milli hærri inntöku á Omega 3 fitusýrum og minni bólgumyndunar. Omega 3 fitusýrur samanstanda aðallega af þremur mikilvægum fitusýrum, EPA og DHA úr dýraríkinu og ALA úr plöntum. Omega 3 fitusýrur er helst að finna í feitum kaldsjávarfiski s.s. villtum laxi, síld, þorski, sardínum og ansjósum og þar sem líkaminn getur ekki framleitt þessar nauðsynlegu fitusýrur, þurfum við að fá þær úr fæðunni eða taka þær inn í bætiefnaformi.

99


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook

Articles inside

Góðgerlar fyrir ónæmiskerfið

2min
page 106

Viðhöldum vökvajafnvægi í líkamanum

2min
page 90

Heilbrigðari þarmaflóra og betri melting

1min
page 55

Mikilvægt að fræðast um allt sem viðkemur heilsu

3min
pages 104-105

Terranova bætiefni hámarka virknina

2min
page 102

Sérhönnuð vítamínlína fyrir Íslendinga

2min
page 96

Bólgur - Mataræði og náttúruefni

4min
pages 98-99

Litlu skrefin - bara eitt í einu!

4min
pages 74-75

Eru þvagfærasýkingar að angra þig?

5min
pages 108-109

Hjólreiðar og næring

5min
pages 92-93

Ég, Bjé og Djé!

2min
page 53

Járnskortur, slen og þreyta heyra sögunni til!

3min
page 81

Þinn hrausti líkami

5min
pages 78-79

Verndum náttúruna og veljum lífrænt

5min
pages 120-121

Vöffluuppskrift Maríu Kristu

1min
page 70

Ódýrasta en öflugasta fitubrennslustöffið á markaðnum

5min
pages 112-113

Öndum okkur í gegnum þetta

3min
page 94

Skólanesti - auðvelda aðferðin

3min
pages 46-47

Hampur - sannkölluð ofurfæða

5min
pages 118-119

Lífrænt fyrir umhverfi og lýðheilsu

2min
page 18

Krydd án aukaefna

2min
page 38

Kollagen súkkulaðibúðingur að hætti Ásdísar Grasa

1min
page 42

Mismunandi pizzur fyrir mismunandi smekk

3min
pages 32-33
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.