Heilsublað Nettó - September 2020

Page 18

lífrænt

Lífrænt fyrir umhverfi og lýðheilsu Það getur reynst þrautinni þyngri að standa í matvöruverslun og velja úr þeim aragrúa matvara sem eru í boði. Aldrei hefur verið mikilvægara en nú að taka upplýsta ákvörðun um hvað endar í körfunni enda eru áhrif matvælaframleiðslu á loftslag mikil.

Berglind Häsler, verkefnastjóri Lífræns Íslands.

Hægt er að finna ýmsan fróðleik um Lífrænt Ísland á heimasíðunni lifraentisland.is

Talið er að um 50% umhverfisáhrifa megi rekja til þess hvernig við framleiðum eða neytum matar. Á Íslandi má rekja mesta losun á gróðurhúsalofttegundum í landbúnaði til notkunar á tilbúnum áburði. Lífrænn landbúnaður notar einungis lífræn áburðarefni sem brotna niður í náttúrunni og er almennt talið að hann losi 40% minna en hefðbundinn landbúnaður. Hugmyndafræði lífrænnar ræktunnar er ávallt sú að vinna með og hagnýta lögmál náttúrunnar, án þess að skaða umhverfið eða framleiðsluafurðir. Íslendingar jákvæðir í garð lífrænnar framleiðslu Íslenskir neytendur eru afar jákvæðir í garð lífrænnar framleiðslu á Íslandi, eða ríflega 80% landsmanna eins og kom í ljós í könnun sem Zenter rannsóknir unnu fyrir VOR, Verndun og ræktun, félag framleiðenda í lífrænum búskap, í mars síðastliðnum. Þá eru 77,2% sem alltaf, oft, eða stundum velja lífrænar íslenskar vörur fram yfir hefð– bundnar íslenskar vörur. Í könnuninni var fólk beðið að nefna helstu ástæður þess að það velji frekar lífrænt og voru þetta þær ástæður sem oftast voru nefndar:

Nánari upplýsingar um Lífrænt Ísland: lifraentisland.is lifraentisland lifraent_island

18

∙ Umhverfisvænna ∙ Án skordýraeiturs ∙ Meiri gæði ∙ Meiri áhersla á dýravelferð Með því að velja lífrænt vottuð matvæli forðast þú sjálfkrafa mörg skaðleg aukaefni í matvælum sem bannað er að nota í lífrænni matvælaframleiðslu. Margar rannsóknir hafa jafnframt sýnt fram á að lífræn matvæli séu næringarríkari.

Vottunarmerki Til að framleiðendur hljóti lífræna vottun þurfa þeir að gangast undir strangt eftirlit. Nýlega tók í gildi hér á landi reglugerð ESB sem gerir framleiðendum skylt að nota merkið á vottaða íslenska framleiðslu. Vottunarmerkið er staðfesting þess að um– ræddur framleiðandi vinni samkvæmt gildandi lögum um Vottunarmerki lífrænnar lífræna framleiðslu. Vottunar– framleiðslu, Evrópulaufið merki Túns hefur verið notað og vottunarmerki TÚN fram að þessu hér á landi og sér Tún um eftirlit og vottanir hér á landi. Evrópulaufið og vottunarmerki Tún eru afar gagnleg tól fyrir neytendur sem vilja afurðir sem unnar eru í meiri sátt við umhverfið og bæta lýðheilsu. Lífrænt Ísland Þrátt fyrir ótvíræða kosti lífrænnar framleiðslu og mikla velvild í hennar garð á lífræn framleiðsla á Íslandi enn langt í land miðað við þau lönd sem við berum okkur saman við. Niðurstöður umræddrar skoðunarkönnunar gefur hins vegar fullt tilefni til stórsóknar í lífrænni framleiðslu á Íslandi þar sem eftirspurn eftir lífrænum afurðum er augljós. VOR hefur nú í samstarfi við Bændasamtök Íslands og Atvinnu- og nýsköpunarráðuneytið hrundið af stað átaksverkefni undir yfirskriftinni Lífrænt Ísland. VOR fer með framkvæmd verkefnisins. Markmið þess er að fræða neytendur, framleiðendur og stjórnvöld um ágæti lífrænnar framleiðslu. Við sem að verkefninu stöndum vonumst til að þetta sé upphafið af lífrænni byltingu á Íslandi.


Turn static files into dynamic content formats.

Create a flipbook

Articles inside

Góðgerlar fyrir ónæmiskerfið

2min
page 106

Viðhöldum vökvajafnvægi í líkamanum

2min
page 90

Heilbrigðari þarmaflóra og betri melting

1min
page 55

Mikilvægt að fræðast um allt sem viðkemur heilsu

3min
pages 104-105

Terranova bætiefni hámarka virknina

2min
page 102

Sérhönnuð vítamínlína fyrir Íslendinga

2min
page 96

Bólgur - Mataræði og náttúruefni

4min
pages 98-99

Litlu skrefin - bara eitt í einu!

4min
pages 74-75

Eru þvagfærasýkingar að angra þig?

5min
pages 108-109

Hjólreiðar og næring

5min
pages 92-93

Ég, Bjé og Djé!

2min
page 53

Járnskortur, slen og þreyta heyra sögunni til!

3min
page 81

Þinn hrausti líkami

5min
pages 78-79

Verndum náttúruna og veljum lífrænt

5min
pages 120-121

Vöffluuppskrift Maríu Kristu

1min
page 70

Ódýrasta en öflugasta fitubrennslustöffið á markaðnum

5min
pages 112-113

Öndum okkur í gegnum þetta

3min
page 94

Skólanesti - auðvelda aðferðin

3min
pages 46-47

Hampur - sannkölluð ofurfæða

5min
pages 118-119

Lífrænt fyrir umhverfi og lýðheilsu

2min
page 18

Krydd án aukaefna

2min
page 38

Kollagen súkkulaðibúðingur að hætti Ásdísar Grasa

1min
page 42

Mismunandi pizzur fyrir mismunandi smekk

3min
pages 32-33
Issuu converts static files into: digital portfolios, online yearbooks, online catalogs, digital photo albums and more. Sign up and create your flipbook.