Eldvarnaátakið og Eldvarnagetraunin
Eldvarnaátak LSS fór fram um allt land í lok nóvember 2018. Slökkviliðsmenn heimsóttu alla nemendur í 3. bekk grunnskólanna og fræddu þá um eldvarnir heimilisins. Börnin fengu afhenta söguna af Loga og Glóð og baráttu þeirra við Brennu-Varg, handbók Eldvarnabandalagsins um eldvarnir heimilisins og fleira. Þeim var jafnframt gefinn kostur á að taka þátt í Eldvarnagetrauninni og voru vegleg verðlaun í boði. Reynslan sýnir að fræðslan sem börnin fá skilar sér vel í betri eldvörnum á heimilum þeirra. Í tilefni af Eldvarnaátakinu gerði Gallup könnun á eldvörnum heimilanna fyrir LSS og Eldvarnabandalagið. Að sögn Garðars H. Guðjónssonar, verkefnastjóra Eldvarnaátaksins og Eldvarnabandalagsins, eru helstu niðurstöður könnunarinnar þær að fólk á aldrinum 25-34 ára stendur öðrum langt að baki þegar kemur að eldvörnum á heimilinu. Hvort sem litið er til fjölda reykskynjara eða slökkvibúnaðar stendur þessi aldurshópur mun lakar að vígi en aðrir. Könnunin og eldri kannanir sem Gallup hefur gert reglulega á undanförnum árum sýna þó að heimilin efla almennt eldvarnir og eru þannig betur búin undir að bregðast við eldsvoða. Um helmingur heimila hefur nú þann eldvarnabúnað sem mælt er með, það er reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi. Að venju var dregið úr réttum lausnum í Eldvarnagetrauninni og voru verðlaun veitt víða um land á 112-deginum, 11. febrúar. Við athöfn í Björgunarmiðstöðinni Skógarhlíð hélt Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra ávarp og afhenti síðan verðlaun í Eldvarnagetrauninni.
Verðlaunahafar eru:
Bjarki Þór Smárason.................... Selfoss Bragi Freyr Eiríksson.................... Akureyri Brynjar Orri Hjörleifsson............... Reykjavík Dagný Kristinsdóttir...................... Ísafjörður Daniel Andri Bragason.................. Garðabær
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, Jón Viðar slökkviliðsstjóri og Steinþór Darri varaformaður LSS með vinningshöfum á höfuðborgarsvæðinu.
Darri Freyr Gíslason..................... Reykjavík Diljá Ásta Ásgeirsdóttir................. Hafnarfjörður Edilon Máni Davíðsson................. Mosfellsbær Elín Ósk Sigfúsdóttir..................... Seltjarnarnesi Emilía Sól Brynjarsdóttir............... Reykjavík Gestur Ingi Maríasson.................. Selfoss Grímur F. Björnsson..................... Reykjavík Guðjón Elí Gústafsson................. Vestmannaeyjar Guðjón Gauti Vignisson................ Akranes Guðrún Hekla Arnarsdóttir............ Kópavogur Hana Mesetovic............................ Fáskrúðsfjörður Hákon Bragi Sölvason.................. Vopnafjörður Hilda Rún Hafsteinsdóttir.............. Sandgerði Hrafn Hilmisson............................ Borgarfjörður Hugrún Birta Sigurðardóttir........... Hellissandur Jóhanna Bjarkadóttir Lind............. Akureyri Júlía Heiðrós halldórsdóttir........... Kópavogur Kristófer Örn Þórðarson............... Reykjavík Lára Sigurðardóttir........................ Sauðárkrókur Lóa Björk Gissurardóttir................ Reykjavík Patrekur Örn Ingvason................. Dalvík Ragnheiður Ósk Kjartansdóttir..... Reykjavík Rakel Alva Friðbjörnsdóttir........... Hvammstangi Stefán Birgir Bjarnason................ Höfn Styrmir Haukur Sigurðsson.......... Hafnarfjörður Tumi Benediktsson....................... Egilsstaðir Ögmundur Ásgeir Bjarkason........ Garður
Endurvinnsla | Klettagörðum 9 | 104 Reykjavík | Sími 550 1900 | afgreidsla@hringras.is
Á vakt fyrir Ísland
21