Bruni í jarðgöngum Á Íslandi fjölgar jarðgöngum stöðugt og krafa nútímans er að fá sem greiðastar og öruggastar samgöngur á milli staða. Vegfarendum fjölgar árlega og hlutfall fólksflutninga- og vöruflutningabíla eykst. Þá fjölgar erlendum, reynslulitlum ökumönnum sem veldur hættum í umferðinni. Gott er að hafa í huga að jarðgöng eru einn öruggasti hluti vegakerfisins.
Hönnun og búnaður
24
Nafn ganga
Opnuð Lengd Ársumferð ár m bílar/dag
Múlagöng
1990
3400
Göng undir Breiðad. og Botnsh.
1996
9119
668
Hvalfjarðargöng
1998
5770
6959
Fáskrúðsfjarðargöng
2005
5850
730
Almannaskarðsgöng
2005
1308
627
Héðinsfjarðargöng
2010
3650
718
Bolungarvíkurgöng
2010
5400
946
Norðfjarðargöng
2017
7908
“655”
Vaðlaheiðargöng
2018
7500
“2000”
Tækni við jarðgangagerð þróast stöðugt og þekking á aðstæðum og jarðfræði eykst með ári hverju. Öryggismál skipa sífellt stærri sess og þar hefur Vegagerðin gert mikið átak. Í nýjum Norðfjarðar- og Vaðlaheiðargöngum er betri og vandaðri lýsing og ljósastýring en áður hefur sést. Birtustigið aðlagar augað betur umhverfinu og kantsteinalýsing gerir mikið fyrir upplifun í akstri. Svo virðist
Bæði tal- og myndsamband er við þessi rými og vaktstöð Vegagerðarinnar fær boð þegar farið er inn í rýmið. Merkingar flóttaleiða eru þannig að þær sjást þó 0-línan (reyklagið) sé farin að lækka og valda slæmu skyggni.
sem myndi auka öryggi til muna. Það er lykilatriði því allar upplýsingar um ástand í göngum áður en - og þegar - eldur kemur upp eru mjög mikilvægar, tryggja rétt viðbrögð og draga úr áhættu viðbragðsaðila.
sem kantsteinalýsingin sporni gegn hraðakstri að einhverju leyti og jafni umferðarhraðann. Miðlína á milli gagnstæðra akstursstefna er fræst þannig að bílstjórar verða strax varir við ef bíll leitar yfir á rangan vegarhelming. Í hvorum göngum eru fjögur neyðarrými með um 1.500 metra millibili. Þar geta vegfarendur komist í skjól undan sóti, reyk og hita ef eldur kemur upp og leiðin út er ekki greið. Hvor göng eru 7,5 - 8 km að lengd með langhalla á akbraut en það gerir flóttaleið mjög erfiða. Í hverju neyðarrými geta yfir 100 manns hafst við í a.m.k. 3 klst og færra fólk lengur.
Þar hjálpar lýsingin í kantsteinum við akbraut til. Sendar fyrir farsíma, TETRA og útvarp eru með 1,5 km millibili og samband frá þeim er öruggt þó bilun verði í einhverjum sendi. Raf- og fjarskiptalagnir eru lagðar þannig að truflun vegna bilunar er lágmörkuð og staðbundin. Fæðing að bilunarstað helst báðum megin frá þannig að einungis lítill hluta ganganna dettur út. Frá haustinu 2018 er vaktstöð Vegagerðarinnar starfrækt allt árið um kring en þar er m.a. fylgst með jarðgöngum Vegagerðarinnar. Þar með er kominn grundvöllur fyrir víðtækara eftirlitsmyndavélakerfi
Innganga í jarðgöng þar sem eldur er laus er alltaf varhugaverð og hættuleg og krefst þekkingar og þjálfunar. Inn í brennandi jarðgöng á ekki að fara nema með réttan útbúnað og örugga flóttaleið.
Á vakt fyrir Ísland
Lengd jarðganga og umferð. Gróf áætlun fyrir Vaðlaheiði og byggt á umferð frá opnun í Norðfirði.
Öryggi
Samstarf hefur verið á milli jarðgangadeildar Vegagerðarinnar og slökkviliða í landinu. Farið hefur verið yfir öryggismál og brunavarnir, æskilegan búnað slökkviliða, viðbragðsáætlanir endurskoðaðar og fleira mætti telja. Farið var í skoðunarferð til Noregs í mars 2017 og rætt