Íslandsmót slökkviliða
Árleg hefð slökkviliða landsins að koma saman og keppa í hinum ýmsu íþróttagreinum féll niður í nokkur ár. Með nýjum mannskap kemur nýr eldmóður í hópinn og þegar hugmyndin var borin upp í fyrravor fékk hún strax mikinn meðbyr. Íslandsmót slökkviliða var haldið í Varmá, Mosfellsbæ, laugardaginn 15. september 2018. Keppt var í þremur greinum; fótbolta, kraftlyftingum og einnig var sérstök slökkviliðskeppni um titlana „Hraustasti slökkviliðsmaðurog kona Íslands“. Að auki var hið árlega golfmót landssambandsins sett undir sama hatt og fór fram sama dag. Í fótboltamótinu var keppt í fimm manna liðum í útsláttarkeppni. Fimm lið tóku þátt og var spilað á gervigrasvelli innanhúss í 2x8 mínútna leikjum. Kraftlyftingarnar fóru fram í lyftingaraðstöðu Eldingar í Varmá og var keppt í réttstöðulyftu og bekkpressu. Stig voru reiknuð skv. Wilks stigum eins og tíðkast á kraftlyftingamótum, en þar er líkamsþyngd keppenda tekin með í reikninginn. Sérlegur aðstoðarmaður og dómari í lyftingunum var Hjalti Úrsus Árnason. Slökkviliðskeppnin var hönnuð að fyrirmynd sambærilegra erlendra keppnisviðburða. Keppnisgreinarnar voru allar í anda þeirrar vinnu sem slökkviliðsmenn þurfa að sinna og að mestu leyti með búnaði sem er í öllum slökkvibifreiðum landsins. Keppendur voru klæddir í fullan búnað og með stálkúta á bakinu (þó ekki með SÖB) og keppnisgreinarnar voru: 1. Taka tvær 20m 2 ½” slöngur, leggja þær út í eina lengju, kúplingar tengdar saman. 2. Rúlla upp sömu slöngum einfalt og hlaupa með þær til baka að upphafsreit. 3. 70kg dúkka er dregin 40m kk / 30m kvk. 4. Tveir 25 kg froðubrúsar eru bornir 80m kk / 60m kvk í bændagöngu. 5. Sleggjubraut. 15 kg stálkubb slegið 1,5m eftir trébakka (sjá mynd). 6. 40m / 30m vatnshlaðin 1 ¾” árásarlögn með stút dregin að merktum stað. 7. Stúturinn á fullhlöðnu slöngunni er þá dreginn til baka um 40m / 30m og sprautað er í skotmark við endamarkið. Alls voru 16 keppendur í slökkviliðskeppninni, 8 karlar, 6 konur og 2 makar slökkviliðsmanna. Allar líkur eru á að sambærileg braut verði sett upp fyrir næsta Íslandsmót þótt smávægilegar breytingar verði eflaust gerðar.
framhald í næstu opnu Á vakt fyrir Ísland
27