Starfsmenntunarsjóður
Starfsárið 2018
Að vanda var mikið um úthlutanir úr starfsmenntunarsjóði árið 2018. Á árunum 2017-2018 hefur mikil endurskoðun átt sér stað á starfsemi sjóðsins, í nánu samstarfi við stjórn LSS og nefndarmenn. Búið er að tryggja rétt flæði reikninga í bókhaldi og öll endurskoðun er eins og á að vera. Einnig eru úthlutunarreglur í stöðugri endurskoðun, sem að vísu hefur sína ókosti gagnvart félagsmönnum þegar breytingar eiga sér stað. Þó er það einróma álit stjórnar að komið sé gott jafnvægi á sjóðinn og að úthlutunarreglur eru komnar til að vera í þeirri mynd sem þær eru í dag. Meðal þeirra breytinga sem sjóðurinn þurfti að taka inn í reikningsdæmið var innkoma nýrra félagsmanna t.d. frá Neyðarlínunni. Þar gilda ekki sömu reglur og gagnvart slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum. Því var ákveðið að auka úthlutunarmöguleikana en úthlutunarreglum og upphæðum úthlutana er skipt í fjögur þrep. Lægsta möguleg styrkveiting er 50 þúsund krónur fyrir styttri námskeið og óvinnutengd námskeið. Fyrir ráðstefnur og sýningar styrkir sjóðurinn að hámarki 70 þúsund krónur. Fyrir vinnutengd fagnámskeið styrkir sjóðurinn allt að 100 þúsund krónur. Fyrir lengra nám svo sem Bráðatæknisnám er búið að herða reglurnar. Einungis er úthlutað einu sinni á ári og þá á vorin. Eru þá allar umsóknir teknar fyrir og fjárhæð ákveðin í samræmi við það en þó að hámarki 250 þúsund krónur. Á sama fundi eru umsóknir fyrir að halda málþing og ráðstefnur teknar fyrir.
Skiptingu á milli viðfangsefna.
Á árinu 2018 voru meðal helstu styrkja Bráðatæknanám, EMS Today, styttri fagnámskeið og svo óvinnutengd námskeið t.d. skólagjöld. Einnig var töluvert um styrkveitingar fyrir stjórnendanám. Félagsmenn eru eindregið hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur sjóðsins á heimasíðu www.lsos.is. Einnig er sjálfsagt að hafa samband ef spurningar vakna, við reynum - og getum í raun - svarað fljótt hvort umrætt viðfangsefni er styrkhæft þó endanleg afgreiðsla fari fram á fundum sem haldnir eru fjórum sinnum á ári; í janúar, apríl, september og desember. Fyrir hönd starfsmenntunarsjóðs, Eyþór Rúnar Þórarinsson
Sendum slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum bestu kveðjur og óskir um velfarnað í starfi Viking björgunarbúnaður Eldvarnarþjónustan ehf Medor Geymsla 1 ehf Brunavarnir Suðurnesja Þorbjörn hf Eldvörn ehf Slökkvilið Borgarbyggðar Grundarfjarðarbær v/Slökkviliðs Reykhólahreppur v/Slökkviliðs Strandabyggð v/Slökkviliðs Húnaþing vestra v/Slökkviliðs Brunavarnir Austur-Húnvetninga Fjallabyggð v/Slökkviliðs Stefna hugbúnaðarhús Grýtubakkahreppur v/Slökkviliðs Slökkvilið Langanesbyggðar Slökkvitækjaþjón Austurl ehf Mýrdalshreppur v/Slökkviliðs Skaftárhreppur v/Slökkviliðs
Hvaleyrarbraut 27 Móabarði 37 Reykjavíkurvegi 74 Steinhellu 14 Hringbraut 125 Hafnargötu 12 Höfðasel 5 Sólbakka 13-15 Borgarbraut 16 Reykhólum Höfðagötu 3 Pósthólf 22 Norðurlandsvegi 2 Gránugötu 24 Glerárgötu 34 Túngötu 3 Fjarðarvegi 3 Strandgötu 13a Austurvegi 17 Klausturvegi 15
220 220 220 221 230 240 300 310 350 380 510 530 540 580 600 610 680 735 870 880
Hafnarfirði Hafnarfirði 6914231 Hafnarfirði 4127000 Hafnarfirði 6616800 Reykjanesbæ 4214749 Grindavík 4204400 Akranesi 431 2345 Borgarnesi 4337100 Grundarfirði 6914343 Reykhólum 8923328 Hólmavík 8933531 Hvammstanga 8951995 Blönduós 4554700 Siglufirði 8477825 Akureyri 4648700 Grenivík 4145400 Þórshöfn 4681220 Eskifirði 8931999 Vík 8919968 Kirkjubæjarklaustri 4874717
Á vakt fyrir Ísland
37